Morgunblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI væri e.t.v. hægt á þann veg eins og einhvers staðar kom fram hug- mynd um, að kirkjur væru opnar til skiptis, nokkur kvöld í einu, rétt eins og er með lyfjabúðirnar. Prestar og sóknarnefndir ættu að íhuga þennan möguleika og bæta úr þessum vanda eins og bréfrit- ari segir. % Sammála strákunum fjórum Ein baráttuglöð stúlka sendir bréf og hennar hjartans mál er að fá að spila þau lög unga fólksins sem eru vinsæl og ekki láta banna þau: „Háttvirti Velvakandi. Ég get nú ekki annað en dáðst að grein sem kom frá fjórum strákum, en hún var um Biólagið sem Stuðmenn spila og syngja. Ég held að flestum þyki það svolítið frekt að leggja fram þá ósk sína að stöðva flutning á laginu vegna smábarnanna. Ég get nú ekki að því gert, en það er bara allt i lagi með lagið og eins og strákarnir segja, þá fellur það inn i takt timans. Ég held satt að segja að þessi blessuð kona í Keflavík ætti að draga saman seglin og benda á betra lag en þetta, það eru kannski til betri lög og ég efast ekki um það, en það er sama og þetta er gott miðað við öll önnur iög. Þvi Stuðmenn eru góðir að öllu leyti og ekki sízt lögin þeirra. Svo þakka ég fyrir og vona að húsmæður reyni ekki að setja út á lög unga fólksins, því þá er okkur að mæta, ekki satt krakkar? Aðdáandi Stuðmanna og baráttumanneskja." Já, það er bara svona. Þá er ykkur að mæta. Ætli beri svo að skilja að húsmæður megi fara að vara sig? Þær hljóta nú að mega segja sitt álit á lögum Stuðmanna og annarra lagasmiða fyrir ungu kynslóðina, ekki satt? Þessir hringdu . . . % Er nokkur furða að henni svíði? Heimakær húsmóðir, sem ekki leiðist: — Ég er húsmóðir og hef aldrei unnið úti, jafnvel ekki núna eftir að fámennt er orðið á mínu heim- ili, börnin vaxin úr grasi og farin að sjá um sitt heimili sjálf. Við stöndum öll frammi fyrir þessum ógnvckjandi verðhækkunum og eftir að ég sá brefið frá ekkju i Velvakanda þann 13. janúar get ég sagt að ég er þakklát fyrir að hafa aldrei þurft að taka vinnu frá öðrum sem hafa frekar þurft hennar með. Er það nokkur furða þó henni svíði? Og það er ekkert undarlegt að blessuð ekkjan skuli spyrja hvert stefni. Hún á þakkir skildar fyrir að hafa vakið máls á þessu og ég er hissa á að hún skuli þora að skrifa um þetta. Ef þessum konum, sem þurfa að vinna úti bara af því að þeim leiðist, því leita þær þá ekki eftir einhverju tómstundastarfi, t.d. eða Iíknastarfi t.d. fara á sjúkra- hús og elliheimili og lesa fyrir gamalt fólk þó ekki væri nema SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Oleg Romanishin er sá skák- meistari af yngri kynslóðinni sem Sovétmenn binda mestar vonir við. Hann er mjög hvass skák- maður og á síðasta Sovétmeistara- móti vann hann 7 skákir, tapaði 7, en gerði aðeins þrjú jafntefli! Hér hefur hann svart og á leik gegn Kupreitsehik á Sovétmeist- aramótinu. 21. ... Df7! 22. Hxe8 (22. f4 svarar svartur einfaldlega með Dxa7) Rf3+!! og hvítur gafst upp. 2—3 tíma á dag. Það er svo ótal margt sem þessar húsmæður geta grrt ef þeim leiðist heima, gert annað en að taka vinnu frá þeim sem þurfa hennar frekar við. Það er annað sem mig langa að vrkja máls á en það er varðandi strætisvagnsfargjöld fyrir ellilíf- eyrisþega. Er það nú víst að allir ellilífeyrisþegar þurfi á afslætti að halda? Þeir eru mjög margir stórefnaðir. Það er frekar að at- huga þurfi mál öryrkjanna. Með kærri kveðju til ekkjunnar og með von um að hún fái ein- hverja vinnu. Og ég vil enda með orðunum: „Élskan sé flærðarlaus, hafi andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða.“ Þetta var ein af þeim húsmæðr- um sem er heimavinnandi og leið- ist ekki. Það væri ekki úr vegi að fá að heyra fleiri raddir um þetta og spyrja hvort það sé mikið um það að húsmæðrum leiðist heima við, hvað er það sem þær vantar? # Hvenær verða menn óperusöngvarar? Söngkona hafði samband við Velvakanda og sagði að það væru margir sem vissu ekki hvað það væri sem gerði fólk að óperu- söngvurum. Sagði hún að það virt- ist gæta nokkurs misskilning á þessu hjá fólki og venjan væri sú að nefna fólk óperusöngvara þeg- ar það hefur sungið a.m.k. sjö hlutverk á sviði auk þess sem það hefði lært söng. Fannst söngkon- unni þetta hvimleiður misskiln- ingur og óþarfur, því það væri þessi munur á söngvara og óperu- söngvara. HÖGNI HREKKVÍSI Mér skilst hann hafi lent í kattaslag? UTSALA ÚTSALA IHLJOMPLOTUUTSALA ÍSLENZKAR OG ERLENDAR HLJÓMPLÖTUR, OG KASSETTUR GEYSILEGT ÚRVAL. ÚTSALAN STENDUR ÞESSA VIKU. heimilistœki sf Hljómplötudeild Hafnarstrœti3-20455 SLÆR ALLT ÚT á venjulegan pappír með stóru skýru letri. STÓRIR VALBORÐSLYKLAR og fisléttur ásláttur fyrir hraðupptökur er aðalsmerki ADDO nú sem fyrr. □ Margfaldar □ Deilir □ Sjálfvirk prósentuálagning og frá- drátturD Fljótandi komma □ SamlagningarstaðaD Margar aukastafastillingar □ Atriðisteljari □ Fyrirferðalítil 0 12 stafa talnarými. Leitið nánari upplýsinga og óskið eftir sýnisvél. KJARAINI hf skrifstofuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8, simi 24140

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.