Morgunblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1977 3 Hvar skal álver rísa? Rœtt við talsmenn sveitarfélaga, sem sýnt hafa áhuga á að fá slíkt fgrirtœki ^ ÞEGAR ákveðið hefur verið að Hrauneyjarfossvirkjun verði reist og framkvæmdir hefjist, virðist svo sem menn vakni víða á landinu og óskir berast nú um það að álver verði reist hér og þar. Sýslunefnd Norður-Þingeyjarsýslu áréttar nú ársgamla samþykkt þess efnis að álver rísi á Melrakkasléttu, Þykkbæingar vilja fá álver og binda vonir við að þar komi höfn samfara álverinu. Þeir benda á að 90% allrar orkuframleiðslu fari fram i Rangárvallasýslu og þvi sé sanngjarnt að stóriðja komi i hérað þeirra einnig. íbúar i Vík í Mýrdal sjá einnig hafnargerð fylgja álverinu og þeir hafa þegar hafið viðræður við viðræðunefndina um orkufrekan iðnað. Þá má og enn benda á samþykkt bæjarstjórnar Akureyrar um byggingu álvers i Eyjafirði. Akureyringar vilja láta kanna allar aðstæður, en hafa enn ekki tekið afstöðu til verksmiðjunnar, þótt einstaka félagasamtök þar hafi lagzt gegn hugmyndinni. Morgunblaðið ræddi i gær við sveitarstjórnarmenn i ofangreindum stöðum og fer yfirlit um málið hér á eftir. Þingeyingar ítreka Melrakkasléttu Sýslumaður Þingeyinga, Sig- urður Gizurarson. kvað sýslunefnd Norður-Þingeyjarsýslu hafa ályktað I fyrra og óskað eindregið eftir þvl að álver risi I sýslunni, nánar tiltekið einhvers staðar á Melrakkasléttu Ekki kvað hann staðsetninguna hafa verið ákveðnari, en taldi að ýmsir staðir kæmu til greina Nú I sam- bandi við þær ályktanir, sem Mýr- dælingar hefðu gert, þar sem þeir óskuðu eftir álveri við Vík, kvað hann Þingeyinga hafa áréttað þessa samþykkt sína með því að minna á hana og að hún væri enn I fullu gildi Sigurður kvað ekki vanþörf á að gera eitthvað fyrir norðausturhorn landsins, svo að byggðin i landinu hreinlega sporðreistist ekki og allt athafnalif yrði staðsett á suðvestur- kjálkanum. Hann kvað Norður- Þingeyjarsýslu hafa þörf fyhr að eitt- hvað róttækt yrði gert fyrir hana, en suðursýsluna kvað hann standa til- tölulega vel, þar sem byggðin þar væri mjög þétt orðin. í norðursýsl- unni væri hins vegar allt of mikið strjálbýli. Á Melrakkasléttunni kvað hann mengunarvandamál ekki ættu að verða mikil, þar væri vindasamt Þá kvað Sigurður Gizurarson nauðsynlegt að beina meira af fram- kvæmdum framkvæmdaáætlunar bygginganefndar til Norðurþing- eyjarsýslu. Sagði hann að flytja mætti framkvæmdir nefndarinnar ásamt sllkri framkvæmd sem álvers- byggingu. Miðað við fjölgun I Reykjavtk virtist allt of mikið byggt þar Á móti kvað hann mikla hús- næðiseklu vera I Þingeyjarsýslum og kvaðst hann geta nefnt dæmi þess að menn á Húsavlk byggju I bílskúr- um, þar sem annað og betra hús- næði væri ekki I boði Þetta sýndi að fólkið vildi vera á Húsavík, þótt staðurinn hefði ekki upp á húsnæði að bjóða sem skylda Þykkvabæingar óttast ekka mengun Sigurbjartur Guðjónsson oddviti Djúpárhrepps, þe Þykkvabæjar, kvað álvershugmyndina hafa orðið raunverulega i hugum Þykkbæinga, þegar Ijós hefði orðið andstaða margra félagasamtaka I Eyjafirði Þá kvað hann marga staði hafa komið til greina Þar sem og hefði verið rætt um að hugsanlegt væri að koma upp hafnaraðstöðu I Þykkva- bæ, vildu menn láta fara fram hag- kvæmnisathugun á þessu máli. „Teljum við að staðurinn hér búi yfir fleari möguleikum en einum I þvl efni," sagði Sigurbjartur „Erum við að gera yfirvöldum það Ijóst, að hér er kannski möguleiki, sem gleymzt hefur að lita á." Þar sem Þykkvibærinn er lang- rnikilvægasta kartöfluræktarhérað l.indsins, spurði Morgunblaðið, f.vort mengun frá sllku álveri gæti fkki haft skaðvænleg áhrif á kart- cfluuppskeru landsmanna. Sigur- b/artur kvað erfitt að gefa svar við sourningu sem þessari. Um hana yrðu fræðimenn að fjalla, en hann kvað Þykkbæinga telja að yrði sllkt álver að veruleika, myndu menn hafa öll þau fullkomnustu hreinsi- tæki, sem völ væri á og kvað hann nú álitið að mengun frá nýjum álverum væri 93% fyrir neðan það sem almennt gerðist nú Þá kvað hann þess að gæta að Þykkvibær stæði á vindasamri strönd. þar sem langt væri til fjalla, þannig að sú litla mengun, sem kannski yrði, ætti kannski ekki að hafa afgerandi áhrif Hins vegar væri það rétt að álverið yrði I hlaðvarpanum á kartöflurækt- inni Jarðeigendur hafa þegar sam- þykkt að láta land undir slíka fram- kvæmd Einnig var rætt við aðra íbúa hreppsins og sagði Sigurbjart- ur að vart hafi komið fram mótat- kvæði Um 260 manns eru I Þykkvabæ, en með Háfshverfi eru íbúar um 2 70 Rangeyingar telja sig eiga að hafa forgang Sigurbjartur kvað þessa fram- kvæmd, ef af henni yrði, verða mikla atvinnubót fyrir héraðið í gær barst Morgunblaðinu ályktun frá stjórn verkamannadeildar Verkalýðsfélags- ins Rangæings og i henni skorar hún á iðnaðarráðherra og viðræðu- nefnd um orkufrekan iðnað að beita sér fyrir þvl að teknar verði upp viðræður hið fyrsta við Norsk Hydro um hugsanlega staðsetningu álverk- smiðju i Þykkvabæ og hafnargerð þar I þvi sambandi i ályktuninni segir: „Fundurinn vekur i þessu sambandi sérstaka athygli á þeirri þróun, sem átt hefur sér stað hin síðari ár I atvinnu- og byggðamálum Rangárvallasýslu, þar sem megin- hluti verka- og iðnaðarmanna, hátt á þriðja hundrað manns, á afkomu sina alla undir timabundnum virkj- unarframkvæmdum Fundurinn telur að ibúar þess héraðs, sem orkan til stóriðju er sótt til eigi forgangsrétt um að ný at- vinnufyrirtæki. sem byggja á þessari orku, séu staðsett I héraðinu — einkum og sér I lagi, eins og átt hefur sér stað i Rangárvallasýslu, að atvinnulif og uppbygging héraðsins hefur mótast af hinum tímabundnu virkjunarframkvæmdum um árabil — Þvi telur fundurinn, að við ákvörðunartöku eigi skilyrðislaust og öðru fremur að taka tillit til hinna félagslegu viðhorfa." Fyrir hönd stjórnar verkamannadeildar Rang- æings ritar Hilmar Jónasson undir ályktunin'a Meirihluti Víkverja fylgjandi álveri Ari Þorgilsson, hreppsstjóri í Hvammshreppi, Vík í Mýrdal, kvað fund hafa verið haldinn fyrir nokkru þar eystra, þar sem boðaðar voru hreppsnefndir Hvammshrepps, Dyrhólahrepps og Austur- Eyjafjallahrepps ásamt oddvitum austan sands og Jóni Helgasyni þingmanni frá Seglbúðum Ari sagð- ist ekki hafa verið á fundinum. en þar hefði komið fram mikill áhugi á því að reist yrði álver í Vík og gerð yrði sérstök höfn í því sambandi. Á fundinn kom Sveinbjörn Jónsson, forstjóri i Ofnasmiðjunni, en hann sagði Ari vera umboðsmann Norsk Hydro. Þá sat og fundinn Guðmundur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitar- félaga á Suðurlandi Kaus fundurinn sérstaka nefnd til þess að vinna að málinu og er formaður hennar Ingi- mar Ingimarsson, sóknarprestur í Vík Þá sagði Ari Þorgilsson að um helgina hefði gengið listi meðal íbúa við Vík, þar sem þessum hugmynd- um var mótmælt. Ekki kvaðst Ari halda að margir hefðu ritað á list- ann Greinilegt væri að mikill meiri- hluti íbúanna væri fylgjandi stór- iðjuframkvæmdurh í Vík. 60 milljarð króna framkvæmd Nefndin, sem kosin var á fundinum í Vík, hefur þegar átt einn fund með viðræðunefnd um orku- frekan iðnað Séra Ingimar Ingi- marsson, formaður nefndarinnar, kvaðst ekkert geta tjáð sig um þann fund Hins vegar sagði hann að á Framhald á bls. 38 Matthfas A. Mathiesen Björn Þórhallsson Sigurbjörn Þorbjömsson Hvatarfundur um skattamál í kvöld HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna, heldur fund I kvöld um skatta- mál. Fundurinn verður I Sjálf- stæðishúsinu við Bolholt og hefst kl. 20.30. Að framsöguerindum loknum svara frummælendur fyrirspurn- um fundarmanna ásamt Sigur- birni Þorbjörnssyni, rikisskatt- stjóra. Frummælendur verða Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráðherra, og Björn Þórhallsson, viðskipta- Allt sjálfstæðisfólk er velkomið fræðingur. ® fundinn. Málið gegn Hauki og Kristjáni brátt til saksóknarans RANNSÓKN vegna kærunnar á hendur Hauki Guðmundssyni og Kristjáni Péturssyni fyrir meint- ar ólöglegar aðferðir við rannsók á máli tveggja varnarliðsmanna er á lokastigi, að sögn Sigurbergs Guðjónssonar umboðsdómara. Hefur Sigurbergur yfirheyrt þá Hauk og Kristján. Kvaðst hann eiga eftir að taka skýrslur af nokkrum aðilum til viðbótar, en siðan yrði málið sent til saksókn- ara til umsagnar. Gæti það ef til vill orðið i næstu viku. Rannsókn málsins hófst i fyrrasumar en hef- ur dregizt á langinn vegna anna umboðsdómarans. MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI Aðalstræti 9, sími 1 2940 og 1 1 255. KAUPMANNAHÖFN 6 daga ferð á byggingavörusýn- inguna „Byggeri for milliarder' Innifalið í verði er flugferð, gisting, morgunverður, ferðir milli flugvall- ar og hótels, aðgöngumiði að sýn- ingunni og nú, einnig skoðunar- ferð til framleiðanda á bygginga- vörum. Verð kr. 44.600 FRANKFURT INTERNATIONAL FAIR Alþjóðleg vörusýning. þar sem m.a. er sýnt postulin glervörur og Ijósastæði, skrifstofuvörur, skart- gripiro.fi. Sýning, sem skapar mikla möguleika. Takmarkað gistirými. Feröamiðstöðin hefur einkaumboö fyrir fiestar stærstu vörusýningar í Evrópu. Notfærið ykkur reynslu okkar í skipulagningu viðskiptaferða. THE SCANDINAVIAN BUILDING EXHIBITION d

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.