Morgunblaðið - 18.01.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1977
5
Lögreglufélag Suðurnesja:
Lýsir yfír stuðningi við
Hauk Guðmundsson
MORGUNBLAÐINU barst I gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Lögreglufélagi Suðurnesja:
Fundur stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Lögreglufélags Suður-
nesja, haldinn 14. janúar 1977,
lýsir yfir, með tilvísun til 2. gr.
laga félagsins, fullum stuðningi
við Hauk Guðmundsson
rannsóknarlögreglumann, við
rannsókn á meintu broti hans við
handtöku Karls Guðmundssonar
og Guðbjarts Pálssonar, meðan
ekki eru komnar fram nánari
upplýsingar í málinu, er sanna
meint brot hans. Um leið er lýst
yfir vítum á hendur hverjum
þeim, sem notar ólögmæt vinnu-
brögð við starf, í hverju sem það
er fólgið. Jafnframt lýsir fundur-
inn yfir furðu sinni á þeirri
ákvörðun lögmætra yfirvalda, að
svipta Hauk helming fastra launa,
þar sem sú ákvörðun er nánast
einsdæmi og þeirri heimild, sem
stuðst er við í iögum, varðandi þá
ákvörðun, hefur ekki verið beitt
við rannsókn á meintum brotum
opinberra starfsmanna við störf,
um Iangt skeið.
(2. grein laga Lögreglufélags
Suðurnesja, hljóðar svo:) Til-
gangur félagsins er:
A. Að efla samvinnu og samstarf
lögreglumanna á Suðurnesjum og
um land allt.
B. Að vinna að velferðarmálum
lögreglumanna, svo sem launa-
kjörum, vinnutilhögun, vinnuskil-
yrðum, vinnuvernd og atvinnu-
tryggingum.
C. Að vinna að aukinni menntun
lögreglumanna og þekkingu á
starfi og öðru þvi, sem verða má
til gagns lögreglumönnum.
14. janúar 1977:
Skarphéðinn Njálsson formaður
(sign), Björn Bjarnason ritari
(sign), Kristján Ingi Helgason
gjaldkeri (sign ),Unnsteinn
Jóhannsson trúnaðarm. (sign),
Sigurgeir Þorvaldsson
trúnaðarm. (sign) og Erling
Kristinsson trúnaðarm. (sign.)
„Síbería”
óhæf til
geymslu á
síld eða loðnu
í FRÉTTASKEYTI frá fréttarit-
ara Mbl. I Siglufirði, sem birtist I
blaðinu slðastliðinn sunnudag,
16. þessa mánaðar, er frá því
skýrt, að forráðamenn S.R. telji
að ekkert þróarrými sé fyrir
hendi hjá SR, Siglufirði. Hins
vegar sé öllum Siglfirðingum
kunnugt um, að SR hafi enn
6.000—7.000 lesta þróarrými,
„segja má að bæjarbúar séu
gáttaðir á þeirri framkomu yfir-
manna SR, að fylla ekki allar
þrær af loðnu, á meðan loðnan er
rétt við bæjardyrnar."
Þróarrými það, sem fréttarit-
arinn á við mun vera i svokallaðri
„Síberíu", sem byggð var i fram-
kvæmdastjóratið Gísla heitins
Halldórssonar verkfræðings vorið
1937.
Þróarrými þetta er á tveimur
hæðum og ætlað til þess á sinum
tima að geyma þar kælda isaða
sild. Tilraunir til þeirrar notk-
unar á þrónum mistókust. Sildin
skemmdist í þrónum. Mjög erfitt
reyndist að vinna við þau skilyrði,
sem þar voru og hlutu þrærnar,
sem voru hvor upp af annarri
nafngift sína af þeim sökum.
Siðar var hluta af þessu mikla
húsi breytt i baðhús og snyrtiher-
bergi fyrir starfsmenn verksmiðj-
anna og þróarrýmið leigt út til
geymslu á tómum síldartunnum.
Nú eru dragarar og keðjur í
hinum tveimur þróm orðnar ónýt-
ar fyrir löngu.
Eins og ástandi þróarrýmisins
er nú háttað, er með öllu vonlaust
að koma loðnu þar fyrir til
ge.' mslu, hvað þá að ná loðnunni
aft ir úr þrónum, ef unnt kynni að
rejnast að koma lcðnunni i húsið
me) þvi að nota krana til þess að
hvolfa henni i rennur eftir að
möivuð hefðu verið göt á þak eða
veggi hússins til þess að koma
henni þangað.
Er ótrúlegt að nokkur, sem
kynnt hefði sér aðstæður, gæti
látið sér slikt til hugar koma.
Ólafur Óskarsson
útgerðarmaður.
Ljóðakvöld
í franska
sendiráðinu
Þetta er teikning af rústum kirkju I Kakortok.
Ritverk um
sögu Grænlands
ÚT ER komið hjá „Rosenkilde og
Baggers Forlag“ i Danmörku
mikið ritverk um sögu Græn-
lands. Er þetta verk i þremur
bindum og var ráðgert að hið sfð-
astá kæmi út I desember s.l., en
hin tvö fyrri slðla sumars og I
október á siðastliðnu ári og hafa
Mbl. borizt þau.
„Grönlands historiske Mindes-
mærker", eins og ritverkið nefn-
ist á dönsku, kom fyrst út árið
1838—1845 þá einnig i þremur
bindum, og gaf það út þá Det
Kongelige Nordiske Oldskrift-
Selskab. í frétt frá forlaginu Ros-
enkilde og Bagger segir, að enn í
dag leiti fræðimenn í þetta verk
eftir fróðleik og upplýsingum um
búsetu á Grænlandi á miðöldum.
því enn hafi ekki mikið nýtt kom-
ið fram i sögu Grænlands sem
þurfi við að bæta. Þá segir einnig
að islenzku handritin hafi ekki
sizt veitt þekkingu á Grænlandi
fortíðarinnar, þegar Islendingar
fóru til Grænlands og Ameríku.
Þeir sem rituðu þessa sögu
Grænlands voru fræðimennirnir
Finn Magnusen, C.C. Rafn og
Christian Pingel, en hann greindi
m.a. frá ferð Jens Munks og erfið-
leikum og hættum, sem leiðangur
hans lenti i.
Hin nýja útgáfa er ljósprentuð
og er í þrem bindum eins og
fyrsta útgáfan, samtals 2.584 blað-
siður og I þriðja bindinu eru 12
myndir og kort, m.a. af Eystri-
byggð og Vesturbyggð.
BAUDELAIRE og Sigurö-
ur Pálsson veröa meðal
skálda, sem kynnt verða
eöa kynna sig sjálf á ljóða-
kvöldi hjá Alliance
Francaise i dag, þriðjudag
18. janúar, kl. 20.30 í
franska bókasafninu, Lauf-
ásvegi12.
Verða þar kynnt bæði frönsk
skáld eða íslenzk, sem hafa dvalið
langdvölum i Frakklandi.
Frönsku skáldin eru Baudelaire,
Rimbaud, Lautréamont,
Appollinaire, Eluard, Trévert og
Boris Vian. Ljóð þeirra munu
þýðendur flytja auk leilj,aranna
Viðars Eggertssonar og Elísabet-
ar Bjarklind Þórisdóttur. Þýðing-
arnar eru flester eftir Jón Óskar,
Sigfús Daðason o.fl. Gerard
Lemarquis flytur nokkur ljóð eft-
ir þessa höfunda á frummálinu og
einnig verða flutt verk af plötum,
m.a. sjaldheyrð upptaka frá árinu
1912 af flutningi Appollinaires.
Islenzku skáldin, sem koma
fram og lesa eigin verk, eru Ernir
Snorrason, Jón Óskar, Pétur
Gunnarsson og Sigurður Pálsson.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
L
Okkar salur
er ckki dýrari...
en hann er einn sá glœsilegasti!
Næst þegar þér þurfíð á húsnæði að halda fyrir veislur eða
hverskonar mannfagnað, skuluð þér athuga hvort Þingholt
hentar ekki þörfum yðar. Leitið upplýsinga. Sími 21050.
Ái
BERGSTAÐASTR/Í Tl 37
SÍMI 21011
Til sölu
Flyðrugrandi - Meistaravellir
\
Eigum nokkrar 3ja og 5 herbergja íbúöir í hinum glæsilegu
sambýlishúsum við Flyðrugranda (verðlaunateikning)
Athygli skal vakin á að umsóknarfrestur fyrir húsnæðismálalán er 1. febrúar n.k.
ÍBÚÐIRNAR SELJAST TILBÚNAR UNDIR TRÉVERK, EN SAM-
EIGN VERÐUR AÐ FULLU FRÁGENGIN, ÞAR Á MEÐAL ER
SAUNA BAÐ FYRIR HVERT STIGAHÚS. BÍLASTÆÐI VERÐA
MALBIKUÐ OG LÓÐ AÐ ÖÐRU LEYTI FRÁGENGIN MEÐ
TILHEYRANDI TRJÁM OG GRÓÐRI.
IBUÐUNUM VERÐUR SKILAÐ SEINNI HLUTA ÁRS 1977
BEÐIÐ EFTIR LÁNI FRÁ HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN: FASl
VERÐ.
TEIKNINGAR OG FREKARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOF
UNNI.
FASTEIGNAVIOSKIPTI:
Fasteignasalan/Norðurveri Hátúni 4a Sfmar 21870 - 20998 Agnar Ólafsson
Jón Bjarnason hrl.