Morgunblaðið - 18.01.1977, Qupperneq 7
t
I
KG&GUN1)LAл. ÞRIÐJuDaGUR 18-, JANtJAR 1977
7
j
Lexía í
ljóðasmíð
Jónas Árnason, leikrita
höfundur og Ijóðskáld,
hefur nú fengið forskrift
að framtlðarverkefnum
slnum. Tveir „hugmynda-
fræðingar" Þjóðviljans
taka hann á hné sér I slð-
asta sunnudagsblaði og
leggja honum llfsreglurn-
ar. Höfundur pistilsins,
sem skrifaður er á vegum
umsjármanna sfðunnar
„Klásúlur," segir orðrétt:
Jónas á „auðvelt með
rlm. hefur vald og skyn á
samhljómun, sem er mik-
ið atriði I tónlist þessari",
þ.e. Irskri og skozkri al-
þýðutónlist. En hins vegar
skorti Jónas áróðurskjarn-
Böðvar Guðmundsson
ann! Orðrétt enn: Konurn-
ar I kvæðum hans eru
ekki bognar, þreyttar kon-
ur, heldur dansglaðar
drósir, einhverjar drauma-
plkur sem aldrei hafa
nálægt veruleikanum
komið. Og það er hlálegt
að á „sjómannaplötu" á
vorum tlmum, orktri
sóslalista, skuli hvert lag-
ið af öðru renna um
hljómtækin, án þess að
minnst sé á kaup og kjör,
langan vinnutlma. verk-
föll, slæm skilyrði, eigna
réttinn á atvinnutækjun-
um og þrælkun, sem þetta
þjóðfélag leggur á þegna
slna undir styrkri sjórn
auðsins."
Þá veit Jónas, hvað til
hans friðar heyrir.
„Sóslalrealisminn" má
ekki gleymast.
Ánægð með
eigið verk
Sem betur fer eiga ekki
allir höfundar sllkum
gagnrýndum undirtektum
að mæta, ef marka má
Jónas Árnason
viðtal sama blaðs við
Svövu Jakobsdóttur um
„Æskuvini" hennar. Hún
segir sjálf I viðtalinu um
eigið verk:
„Á þeim sýningum. sem
ég hefi verið á, einkum
þessum slðustu, hef ég
orðið fyrir ákaflega undar-
legri reynslu. Ég hefi
aldrei fyrr veriðá leikhúsi
þar sem menn stappa I
gólfið, ekki I mótmæla-
skyni, heldur af hrifningu.
Oft var klappað I miðri
senu eftir vissum setning-
um. .
Samúð, sem
skipti
litlu máli
Þá ritar Böðvar Guð-
mundsson greinarkorn um
breytta útgáfuhætti Máls
og menningar og „dular-
grimma vitsmuna-
hyggju", sem hafi „náð
að rugla forráðamenn rót-
tækrar útgáfu og róttæka
höfunda". Hann segir
dæmi þar um:
Svava Jakobsdóttir
„En dæmið er tilurð og
útgáfa Ijóðaflokks föður
mlns gamla (Guðmundar
Böðvarssonar), Saltkorn I
mold. Allt [ einu treystu
málsvarar róttækrar út-
gáfustarfsemi sér ekki til
að gefa þá bók út. Hún
var andvitsmunaleg,
yrkisefnið Iftilf jörlegt.
framsetning vúlger. Loks-
ins fékkst að henni útgef-
andi; — hafði sá þó engar
sérstakar grillur um að
veita róttækum hugmynd-
um út á meðal fólks — ,
og hefur hann fullyrt I mfn
eyru að hann hafi ekki
tapað milljónum á tiltæk-
inu. Manvitsbúð borgara-
legra listdómenda lét
heldur ekki á sér standa.
Hver ólafurinn öðrum
verri jarmaði um rustalegt
bændarim og einfeldni,
jafnvel þeir sem þóttust
vera alþýðumálsvarar. Um
hinn þjóðfélagslega þátt
Ijóðaflokksins varð þeim
hinsvegar ekki tíðrætt,
samúð með hinum snauða
skipti litlu máli, basl hans
og uppátæki, gleði og
sorg, létu þá
ósnortna. . ."
SPILAKVÖLD SJÁLFSTÆÐIS- FÉLAGAIMNA 1 HAFNARFIRÐI Önnur umferð verður spiluð í Skiphóli fimmtu- daginn 29. janúar kl. 9 stundvíslega. Góð kvöldverðlaun. Dansað til kl. 1. Stigahæsti keppandinn í lok 3ja kvölda, fær flugfar fyrir 2 til London. Nefndin.
Takið eftir Útsala í Hofi Þingholtsstræti á garni og hannyrðavörum. Aukaafsláttur af heilum pökkum. Hof, Þingholtstræti.>
1 A Er byrjuð með a A megrunarkúrana aftur ■ ^ y Vil vekja sérstaka athygli á 10 tima megrunarkúrum. % \ Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill ] Nudd- og snyrtistofa, SÉjL Ástu Baldvinsdóttur, Hrauntungu 85 Kópavogi Opið tii kl. 10 öll kvöld Bilastæði, Sími 40609.
Skjalaskápar
Gömlu geröirnar — Nýju geröirnar
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHPAUNI 5 HAFNARFIRÐI SIMI 51888
Verd ca. 1730 þús.
Ath. næsta sending á hækkudu verdi
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hí.
Sudurkuulshraul 14 - lU'ykjavik - Sirni lUllilHI