Morgunblaðið - 18.01.1977, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977
21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1977
i--------
Ragnheiður Lárusdðttir, Val er þarna komin inn á Hnu en Katrln Danivalsdðttir brýtur grðflega á henni.
Álfhildur Hjörleifsdðttir er til varnar I marki FH og lengst til hægri er Björg Guðmundsdöttir, Val.
Ljósm. RAX
FH NÁDISTIGIAF VAL
FII náði stigi af Val I 1. deild
kvenna, þegar liðin mættust í
Laugardalshöllinni á sunnudag-
inn. Jafntefli varð, 8:8, en I hálf-
leik var staðan 6:5 FH I vil. FH-
stúlkurnar voru lengst af betri
aðilinn I þessum mjög svo slaka
ieik en Vaisstúlkurnar áttu góðan
endasprett og kræktu sér þannig I
annað stigið. Eru þær enn efstar I
Isiandsmótinu, hafa tapað þessu
eina stigi.
Fyrri hálfleikurinn var miklu
skárri en sá síðari. FH-stúlkurnar
höfðu þá yfirleitt frumkvæðið og
vörn og markvörðum Vals gekk
sérstaklega illa að ráða við skot
Svanhvítar Magnúsdóttur, en hún
skoraði helminginn af mörkum
FH í fyrri hálfleik. Harpa
Guðmundsdóttir sá um það, að.
Valur drægist ekki of langt aftur
úr, en hún gerði 4 af 5 mörkum
Vals í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikurinn er eitthvað
það lakasta, sem sézt hefur i
kvennahandknattleik í háa herr-
ans tið. Bæði iiðin gerðu sig sek
um hverja vitleysuna annarri
verri enda voru aðeins gerð 5
mörk í allt á 25 minútum i seinni
hálfleik. Þegar 10 mínútur voru
til loka leiksins höfðu FH-
stúlkurnar tvö mörk yfir, 8:6, en á
lokamínútunum virtist þeim
fyrirmunað að skapa sér mark-
tækifæri. Aftur á móti nýtti Valur
þá tvö færi, Björg Guðmundsdótt-
ir bæði. Þar með náði Vaiur að
jafna og Valsstúlkurnar áttu færi
á því að skora sitt 9. mark og þar
með sigra. En það tókst þeim
ekki, enda hefði það verið i hæsta
máta óréttlátt.
Þær eru ekki margar stúlkurn-
ar í báðum iiðum, sem eiga hrós
skilið fyrir þennan leik. Svanhvít
Magnúsdóttir og Harpa Guð-
mundsdóttir voru áberandi beztar
í fyrri hálfleik og Alfhildur Hjör-
leifsdóttir í marki FH kom mjög á
óvart með góðri markvörzlu.
Mörk Vals: Harpa Guðmunds-
dóttir 4, Björg Guðmundsdóttir 2
(lv), Björg Jónsdóttir 1 og Oddný
Sigurðardóttir 1 mark.
Mörk FH: Svanhvít Magnús-
dóttir 4 (lv), Jóna Margrét
Brandsdóttir 2, Katrín Danivals-
dóttir 1 og Sigrún Sigurðardóttir
1 mark.
— SS.
VÍKINGAR AF BOTNINUM
LEIKUR botnliðanna, Vfkings og
Breiðahliks, I 1. deild kvenna er
einna helzt minnisstæður fyrir þá
sök, að hálfieikirnir voru mis-
langir, sá fyrri var 20 mínúlur en
sá seinni 30 mfnútur. Stafaði mis-
skilningurinn af þvf að næst á
undan var aukaleikur I Reykja-
vfkurmótinu, en þar er leik-
tíminn aðeins 20 mfnútur, en 25
mfnútur f tslandsmótinu.
Uppgötvuðust mistökin ekki fyrr
en f seinni hálfleik, og var hann
þvf þetta lengri. Vfkingur sigraði
örugglega f leiknum, 16:10 og
fékk sfn fyrstu stig en Breiða-
bliksstúlkurnar sitja í botn-
sætinu áfram án þess að hafa
hlotið stig. Og miðað við spila-
mennskuna f undanförnum
leikjum, er harla ólfklegt að þær
yfirgefi boinsætið í bráð.
1 fyrri hálfleik var leikurinn
nokkuð i jafnvægi og eftir fyrri
hálfleik, eða réttara sagt fyrstu 20
mínúturnar, var staðan jöfn, 7:7.
En f seinni hálfleik sýndu
Vikingsstúlkurnar umtalsverða
yfirburði og sigruðu örugglega
16:10. Voru þær miklu sprækari f
sókninni en Breiðabliks-
stúlkurnar, enda gerðu þær 9
mörk síðustu 30 mfnútur leiksins
á sama tima og Breiðabliks-
stúlkurnar gerðu aðeins 3 mörk.
Víkingsliðið er mestmegnis
skipað ungum stúlkum óg gæti
orðið aligott þegar fram liða
stundir. Ein stórskytta er í liðinu,
Ingunn Bernódusdóttir. Hún er
yfirleitt f strangri gæzlu and-
stæðinganna og þegar svo er,
verður oft liitil ógnun f spili
Vfkings. 1 þessum leik áttu beztan
lcik auk Ingunnar þær Jóhanna
Magnúsdóttir, Guðrún Bjartmars
og Guðrún Helgadóttir, sem ætíð
berst af hörku f vörninni.
Breiðabliksliðið er mjög slakt
og verður aö herða sig verulega ef
það ætlar að sleppa við fall. í
þessum leik var Alda Helgadóttir
mest ógnandi.
Mörk Víkings: Ingunn
Bernódusdóttir 4, Astrós
Guðmundsdóttir 3 (3v), Jóhanna
Magnúsdóttir 3, Kagnheiður
Guðmundsdóttir 2, Sigrún
Olgeírsdóttir 2, Guðrún Hauks-
dóttir 1 og Anna Björnsdóttir I
mark.
Mörk Breiðabliks: Alda Helga-
dóttir 3, Ása Jónsdóttir 2, Hrefna
Snæhólm 2, Dagný Halldórsdóttir
1, Heiöa Gunnarsdóttir 1 og Sigur-
borg Daðadóttir 1 mark.
—SS
Þórsstúlkumar í framför
Á laugardaginn fór fram á
Akureyri ieikur í I. deildar
keppni kvenna f handknattleik og
áttust þar við lið Þórs og bikar-
meistarar Ármanns. Urðu úrslit
þau, að Þórsstúlkurnar unnu
fyrirhafnarlftinn sigur 12—6,
eftir að hafa haft eitt mark yfir f
hálfleik 4—3. Er greinilegt að
Þórsliðið er mjög að sækja f sig
veðrið og er t.d. miklu sterkara en
það var s.l. haust. Er greinilegt að
Elfas Jónasson, þjálfari liðsins,
ætlar að ná góðum árangri með
það, þó svo að Þórsstúlkurnar séu
sennilega úr leik í haráttunni á
toppnum f deildinni í ár.
Það bar til tfðinda í leik þessum
að Jóni Hermannssyni, þjálfara
Ármannsstúiknanna, var vfsað út
úr húsinu vegna gífuryrða i garð
dómara leiksins. Þau áttu þó alls
ekki rétt á sér. Skýringin á því
hve illa gekk hjá Armanns-
stúlkunum lá fyrst og fremst i því
hvað liðið er lélegt. Eftir að
Guðrún Sigurþórsdóttir var tekin
úr umferð var aðeins ein stúlka í
liðínu sem eitthvað reyndi, Erna
Lúðvfksdóttir, en hún fékk sára-
litla aðstoð hjá stöllum sinum.
Þór komst í 2—0 í leiknum og
hafði síðan ailtaf yfir. Sem fyrr
segir var staðan 4—3 í hálfleik, en
Þót skoraði siðan 5 fyrstu mörk
seinn hálfleiksins og var þár með
búinn aðgera út um leikinn.
Beztan t úk hjá Þórsliðinu sýndi
Harpa Sig rðardóttir en sem fyrr
segir var Erna Lúðvfksdóttir eina
Ármannsstúlkan sem eitthvað
sýndi.
IVliirk Þórs: Anna Gréta 3,
Harpa 3, Steínunn 2, Soffía 2,
Sigríður 1 og Ingibjörg 1
Mörk Armanns: Erna 2, Anna
Gunnarsdóttir 1, Aðalheiður 1,
Auður 1 og Sigríður 1.
sigbj..
IR komst í krappan dans
en vann þó Val að lokum
ÍR-ingar lentu f kröppum dansi f
leik sfnum við Val á laugardag-
inn, en unnu þó leikinn með 10
stiga mun, 78—68, eftir að Valur
hafði verið betri aðilinn mestan
hluta leiksins og haft frumkvæðið
nær allan leikinn. Þessi frammi-
staða Vals kom nokkuð á óvart
þar sem þrjá af beztu mönnum
liðsins vantaði, þá Þóri og
Jóhannes Magnússyni og
Ilafstein ilafsteinsson, en einnig
er rétt að geta þess að tR-inga
vantaði einnig nokkra af sínum
mönnum, þó að það kæmi sfður að
sök.
Gangur leiksins var annars
þannig, að Valsmenn tóku foryst-
una strax og voru mun friskari en
IR-ingarnir framan af þó að
munurinn yrði aldrei mikill, en
mestur varð hann á 15. mínútu, 4
stig, þegar staðan var 22—18 Val i
vil, en i lok fyrri hálfleiksins
náðu ÍR-ingar svo forystunni í
fyrsta sinn í leiknum og i leikhléi
var staðan 31—30 IR í vil.
Valsmenn mættu svo mjög
ákveðnir til leiks f seinni hálfleik
og náðu forystunni strax, komust
i 37—32 á 3. mínútu og héldu þeir
svo forystunni þar til að seipni
hálfleikur var hálfnaður og stað-
an orðin 49—49, en þá höfðu Vals-
menn farið illa með tvö góð færi
og virtist sem móðurinn færi al-
veg úr þeim við það og eftir það
voru iR-ingar því næst alveg
öruggir með sigur, þó svo að Vals-
mönnum tækist að jafna á 15.
minútu hálfleiksins, 55—55, en
leiknum lauk svo eins og áður
sagði með sigri ÍR 78—68.
Þessi leikur var fremur slakur,
einkum af hálfu ÍR-inga og verða
þeir að leika betur það sem eftir
er af keppnistimabilinu ef þeir
ætla að eiga einhverja möguleika
á sigri í mótinu.
Valsmenn komu nokkuð á óvart
með frammistöðu sinni því að
eins og áður sagði vantaði þrjá af
máttarstólpum Iiðsins í þessum
leik.
Bezti maður IR-inga i þessum
leik var tvímælalaust þjálfari
þeirra, Þorsteinn Hallgrimsson,
sem dreif menn sina með sér og
hleypti i þá þeirri hörku og leik-
gleði sem þurfti til að vinna leik-
inn. Flestir leikmenn aðrir hjá ÍR
léku undir getu og er ekki ástæða
til að geta frammistöðu þeirra.
Stigin fyrir ÍR skoruðu:
Kristinn Jörundsson 25, Jón
Jörundsson 14, Kolbeinn Kristins-
son 13, Agnar Friðriksson 10,
Þorsteinn Hallgrímsson 8,
Þorsteinn Guðnason 6 og
Sigurður Gíslason 2 stig.
Beztir Valsmanna i þessum leik
voru þeir Kristján Ágústsson og
Helgi Gústafsson og það er greini-
legt að þeir vaxa báðir með
hverjum leik og eru liði sinu
mikill styrkur.
Stigin fyrir Val skoruðu:
Kristján Agústsson 24, Torfi
Magnússon 13, Helgi Gústafsson
og Lárus Hólm 10 hvor, Ríkharð-
ur Hrafnkelsson 8, Gisli
Guðmundsson 2 og Þorvaldur
Kröyer 1 stig.
HG
KR átti ekki í erfiðleikum með ÍS
KR-ingar unnu góðan sigur á
stúdentum f leik liðanna I
Islandsmótinu í körfuknattleik
nú um helgina, en úrslit urðu þau
að KR vann með 10 stiga mun,
90—80, eftir að þcir höfðu haft
eins stigs forystu f Ieikhléi,
42—41. Leikurinn var fremur
daufur og virtust KR-ingar lengst
af öruggir með sigur þrátt fyrir
að þeim tækist ekki að hrista
stúdentana af sér fyrr en í lok
leiksins.
Gangur leiksins var svo þannig
að stúdentar skoruðu fyrstu 4
stigin, en síðan var jafnræði með
liðunum þar til um miðjan fyrri
hálfleikinn að KR-ingar tóku
góðan sprett og náðu 10 stiga
forystu 38—28, en i lok hálfleiks-
ins náðu stúdentar að minnka
muninn niður í eitt stig, 42—41
KR i vil.
Seinni hálfleikur var svo mjög
jafn og það var ekki fyrr en á
lokaminútunum sem KR-ingar
náðu því forskoti sem nægði þeim
til sigurs, 90—80.
KR-ingar áttu þokkalegan leik,
en sigur þeirra byggðist mest á
því hve léleg vörn stúdentanna
var og greinilegt er að liðið getur
ekki verið án Jóns Héðinssonar,
sem nú er einn af okkar allra
beztu varnarmönnum. Þess ber
einnig að gæta, að þjálfari KR-
inganna, Einar Bollason gat ekki
leikið með vegna meiðsla, en
Kristinn Stefánsson lék hins
vegar sinn fyrsta leik í vetur og
komst hann með sóma frá
leiknum. Langbezti maður KR-
inea var Riarni .Tnhannp«nn spm
skoraði hvorki meira né minna en
42 stig og tók auk þess aragrúa af
fráköstum.
Eins og áður sagði voru
stúdentarnir fremur slakir i þess-
um leik og er ekki ástæða til að
hæla nokkrum þeirra fyrir góðan
leik því að þeir geta allir leikið
betur en þeir gerðu i þetta sinn.
Stigin fyrir KR skoruðu: Bjarni
Jóhannesson 42, Kolbeinn Páls-
son 17, Birgir Guðbjörnsson 16,
Gunnar Ingimundarson 6, Árni
Guðmundsson 4, Gunnar Jóakims-
son og Gísji Gíslason 2 hvor og
Kristinn Stefánsson 1 stig.
Fyrir 1S skoruðu: Bjarni
Gunnar Sveinsson 29, Ingi
Stefánsson 16, Steinn Sveinsson
15, Ingvar Jónsson 12, Guðni
Kolbeinsson 4 og Jón Oskarsson
og Jóhann Frimann 2 stig hvor.HG
Bjarni Jóhannesson og Steinn Sveinsson f baráttu um knöttinn f leik KR og IS um helgina, en Bjarni var
langbezti maður þessa leiks og skoraði hvorki meira né minna en 42 stig og hirti auk þess mikið af
fráköstum
IBK STOÐILEIKNI
KEFLVlKINGAR voru ekki langt frá þvf
að krækja í sfn fyrstu stig í 2. deild Islands-
mótsins f handknattleik á laugardaginn, er
Leiknir sótti þá heim. Úrslit leiksins urðu
25—23 sigur Leiknis, eftir að staðan hafði
verið 15—14 fyrir Leikni í hálfleik. Náðu
Keflvíkingarnir þarna sfnum bezta leik í
vetur og er greinilegt að þeir eru að sækja f
sig veðrið. Munu þeir nú vera farnir að æfa
af alvöru, en aðstöðuleysi háir liðinu þó
verulega. Má vel vera að of snemmt sé að
bóka Keflvfkingana niður í 3. deild — enn
er töluvert eftir af mótinu.
í leiknum í Keflavfk skoruðú heimamenn
fyrsta markið, en Leiknismenn náðu síðan
forystu í leiknum og komust f 7—3. I kjöl-
far þessa kom svo slæmur kafli hjá Leikni
og liðið misnotaði jafnvel hin opnustu færi.
Virtist það há Leiknismönnum verulega að
ekki er leyft að nota „klístur“ í húsinu í
Njarðvík og margar sendingar þeirra og
skot fóru forgörðum vegna þessa.
Sem fyrr greinir hafði Leiknir eitt mark
yfir f hálfleik, og í seinni hálfleiknum tókst
þeim aldrei að slíta Keflvfkingana af sér.
Munurinn var oftast 2—3 mörk, og úrslitin
25—23.
Beztu menn Leiknisliðsins að þessu sinni
voru þeir Ásgeir Elíasson, sem allt spil
liðsins snýst í kringum, Ásmundur Kristins-
son og Guðmundur Vigfússon, sem átti
þarna sinn bezta leik í vetur. Langbezti
maður Keflavikurliðsins var hins vegar
Guðmundur Jóhannsson.
Maður leiksins: Ásgeir Elíasson, Leikni.
Mörk IBK: Grétar Grétarson 6, Guðmund-
ur Jóhannsson 5, Rúnar Georgsson 3, Þórir
Sigfússon 3, Sigurbjörn Gústafsson 3,
Magnús Garðarsson 2, Sigurður Björgvins-
son 1.
Mörk Leiknis: Ásmundur Kristinsson 10
(4v), Guðmundur Vigfússon 4, Ásgeir
Elíasson 3, Hafliði Kristinsson 3, Finnbjörn
Finnbjörnsson 3, Árni Einarsson 1,
Sigurður Benjamínsson 1.
Dómarar voru Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson og dæmdu þeir mjög
vel.
fg/stjl
Sfmon Ólafsson hefur nú byrjað að leika með Ármannsliðinu eftir
nokkuð hlé og hér mii sjá hann berjast við Geir Þorsteinsson f leik
Ármanns og UMFN um helgina.
Baráttugleði færði
UMFN dýrmætan sigur
LOKS kom að því að Armenning-
ar töpuðu leik og urðu Njarð-
víkingar fyrstir til að klekkja á
þeim, en leik liðanna lauk með
sigri UMFN, 76—70, eftir æsi-
spennandi og hnffjafna viður-
eign. Allan leiktímann skiptust
liðin á þvf að hafa forystuna og
var munurinn aldrei meiri en 5
stig fyrr en á 16. mfnútu seinni
hálfleiks, að Njarðvíkingar náðu
afgerandi forystu, 68—60, sem
nægði þeim til sigurs.
Vladan Markovich, þjálfari
Njarðvíkinganna, var að vonum
ánægður með úrslitin, en sagði þó
að Ármenningar væru betra lið,
það hefði verið baráttan og leik-
gleðin sem gerði útslagið.
Annars var gangur leiksins
þannig, að um hnifjafna baráttu
var að ræða allan timann, liðin
skiptust á um forystuna og tókst
hvorugu að ná nokkru forskoti að
ráði og í leikhléi höfðu Ármenn-
ingar 1 stigs forystu, 36—35.
I seinni hálfleik hélzt svo jafn-
vægi með liðunum fram á 13. mín-
útu og höfðu þau þá haft for-
ystuna til skiptis, en þá kom góð-
ur sprettur hjá Njarðvíkingum,
sem náðu 8 stiga forskoti, 68—60,
og hafði Kári Marisson þá verið
mjög drjúgur við að skora fyrir
þá. Njarðvíkingarnir gáfu svo
ekkert eftir og héldu þeir foryst-
unni örugglega og sigruðu Ár-
menninga 76—70.
Leikur þessi var allan tímann
vel leikinn og spennandi, enda
var mikið í húfi fyrir bæði liðin,
en með sigri í þessum leik hefðu
KRTOKSTAÐ
HEFNA TAPSINS
Ármenningar styrkt stöðu sina til
muna, verið eina taplausa liðið á
meðan þau næstu hefðu verið
fjórum stigum lægri. Njarðvík-
ingar náðu Ármenningum að stig-
um með þessum sigri og 1. sæti
deildarinnar á hagstæðara stiga-
hlutfalli og eiga því talsvert meiri
möguleika en áður á sigri í ts-
lar.dsmótinu og einnig urðu þessi
úrslit til þess að jafna deildina og
auka spennuna.
Ármenningar voru óvenju dauf-
ir í þetta sinn hvað sem olli því og
náðu þeir ekki að sýna sitt bezta.
Jimmy Rogers var nú fjarverandi
og kemur hann sennilega ekki
aftur til landsins og veikti það
liðið nokkuð, en Simon Ölafsson
er hins vegar byrjaður að leika
með Ármenningum aftur og er
hann liðinu mikill styrkur og þó
að hann hafi ekki sýnt sitt bezta f
leiknum átti hann samt góóan
leik.
Stigin fyrir UMFN skoruðu:
Kári Marísson 18, Geir Þorsteins-
son 15, Gunnar Þorvarðarson 12,
Brynjar Sigmundsson 9, Þor-
steinn Bjarnason 6, Guðsteinn
Ingimarsson 5, Sigurður Haf-
steinsson og Stefán Bjarkason 4
hvor og Jónas Jóhannesson 3 stig.
Stigin fyrir Armann skoruðu:
Símon Ólafsson 20, Jón Björgvins-
son 19, Jón Sigurðsson 15, Björn
Magnússon 5, Atli Arason 3, Hall-
grímur Gunnarsson, Haraldur
Hauksson, Guðmundur Sigurðs-
son, og Björn Christinssen 2 stig
hver.
HG
KR-ingum tókst á laugardaginn að hefna
fyrir ófarir sfnar f fyrri umferð 2. deildar
keppni fslandsmótsins f handknattleik
fyrir Akureyrarliðinu Þór, er þeir unnu
eins marks sigur í leik liðanna á Akureyri
16—15. Voru Þórsarar reyndar klaufar að
ná ekki jöfnu f leiknum, þar «■: m þeir
fengu góð tækifæri til þess að skora á
lokamfnútum leiksins, sem rV.ki nýttust.
Töluverð barátta vat : teiknum, einkum
til að byrja með, og jafnt var á öilum tölum
upp í 7—7. Þá sigu KR-ingar fram úr og
komust um tíma í 12—7. Þór skoraði siðan
siðasta mark fyrri hálfieiksins, þannig að
staðan að honum loknum var 12—8.
Þór byrjaði síðan seinni hálfleikinn með
miklum látum og tókst fljótlega að komast i
12—11, og eftir það munaði aldrei nema
einu marki, unz Þór tókst loks að jafna
15—15, þegar 5 mínútur voru til leiksloka.
Símon Unndórsson skoraði síðan fljótlega
16. mark KR-inga, og þvi marki tókst Þórs-
urum ekki að svara þrátt fyrir allgóð tæki-
færi.
Leikur þessi var heldur slakur þegar á
heildina er litið og átti dómgæzla þeirra
Geirs Thorsteinssonar og Vals Benedikts-
sonar sinn þátt í því. Var oft ákaflega erfitt
að átta sig ýmist á dómum þeirra eða af-
skiptaleysi.
Leikaðferð Þórs og KR var nokkuð svip-
lik í þessum leik. Hvorugt liðið lagði mikið
upp úr linuspiii — allt gekk út á það að
skapa skyttunum tækifæri. Varnarleikur
beggja liðanna var hins vegar góður.
Maður leiksins: Hilmar Björnsson, KR
Mörk Þórs: Þorbjörn Jensson 7, Sigtrygg-
ur Guðlaugsson 3, Elías Jónasson 2, Gunnar
Gunnarsson 1, Ragnar Sverrisson 1, Jón
Sigurðsson 1.
Mörk KR: Hilmar Björnsson 6, Simon
Unndórsson 5, Þorvarður Guðmundsson 3,
Ólafur Lárusson 1, Sigurður Öskarsson 1.
Hilmar Björnsson átti góðan leik a Akur-
eyri.
EINSTEFNAIGARÐABÆ
ÁRMENNINGUM tókst rækilega að hefna
fyrir stigið sem Stjarnan „stal“ af þeim í
fyrri umferð 2. deildar keppni Islandsmóts-
ins f handknattleik, er liðin mættust f Ás-
garði í Garðabæ á sunnudaginn. Úrslit
leiksins urðu 24—11 fyrir Armann, eftir að
staðan hafði verið 9—5 fyrir Armann í
hálfleik. Höfðu Ármenningar firburði f
leiknum, og léku á köflum skínandi góðan
handknattleik — handknattleik sem ntyndi
sóma sér vel í 1. deildinni, en sennilegt
verður að teljast að þar muni Armenningar
leika að ári.
Leikurinn á sunnudaginn var í jafnvægi
fram undir lok fyrri hálfleiks, og léku þá
bæði liðin eins og bezt má búast við að 2.
deildar lið geri. Varnarleikur beggja liða
var mjög góður, svo og markvarzla, enda
var staðan 4—4 þegar 20 mínútur voru af
leik. Þá loks tókst Ármenningum að ná
tveggja marka forskoti, og þar með var sem
drægi mjög úr árvekni Stjörnumanna bæði
í sókn og vörn. Einstakir leikmenn liðsins
gerðu sig seka um skottilraunir úr heldur
lélegri aðstöðu og sú hreyfing og vinnsla
sem verið hafði á vörninni til að byrja með
var ekki til staðar lengur. Annars er það
greinilegt að Stjörnuna skortir meiri ógnun
á ákveðni í sóknarleik sinn. Það var rétt
einstaka sinnum sem skemmtilegum flétt-
um brá fyrir, en ella var sóknarleikur liðs-
ins heldur litlaus og daufur.
En það verður líka að segjast eins og er að
vörn Ármannsliðsins stóð sig mjög vel i
þessum leik, og þá ekki sízt markvörður
liðsins, Egill Steinþórsson, sem varði oftast
hvað sem að marki hans kom. Þar er á
ferðinni mjög efnilegur ptltur, sem mikils
má vænta af í framtiðinni. Hið sama má
raunar segja um félaga hans — útispilar-
ana. Þar eru margir mjög-efnilegir ungir
piltar sem örugglega eiga mikla framtíð
fyrir sér.
Beztu menn Ámannsliðsins í leiknum,
auk Egils markvarðar, voru þeir Pétur
Ingólfsson og Björn Jóhannesson, en hjá
Stjörnunni stóð Brynjar Kvaran markvörð-
ur sig með ágætum meðan vörn liðsins var í
lagi. Einnig stóð Magnús Andrésson vel
fyrir sínu í leiknum, en í heild er óhætt að
segja að Stjarnan hafi verið nokkuð langt
frá sínu bezta í leiknum.
Mörk Stjörnunnar: Gunnar Björnsson 4.
Magnús Teitsson 3, Magnús Andrésson 2,
Eyjólfur Bragason 2.
Mörk Ármanns: Björn Jóhannesson 6,
Pétur Ingólfsson 6, Friðrik Jóhannsson 6,
Hörður Harðarson 4, Þráinn Asmundsson 1,
Óskar Ásmundsson 1, Jón V. Sigurðsson 1.
Maður leiksins: Egill Steinþórsson, Ar-
manni. stjl