Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977
25
fclk í
fréttum
mt lÉö| '
■PlOrt
h.'Vm
|gspí*J&
Kjöt-
kveðju-
hátíð...
+ Um það leyti sem fast-
an gengur f garð eru víða
haldnar kjötkveðjuhátíð-
ir. En sem kunnugt er
mega kaþðlskir ekki
neyta kjöts á föstunni.
Þessar myndir eru tekn-
ar við slfk tækifæri.
Vöðvatröllin tvö eru
þýsk og er sú mynd tekin
á götum Dusseldorf f
Vestur-Þýskalandi en á
hinni er það mannfjöld-
inn á götum New Orleans
sem heldur kjötkveðju-
hátfð.
Nýjasta nýtt
frá Ítalíu
+ Ef þið viljið fylgjast með
tfskunni þá verið ekkert að
hafa fyrir þvf að klaeða ykkur f
föt. Stráið bara á ykkur silfur-
dufti svona hingað og þangað
og þá getið þið farið f partý f
Rðm. Það gerði þessi leikkona
sem heitir Crippy Yocard og
ljósmyndararnir tóku a.m.k.
eftir henni.
+ Shirley Temple var 6 ára og Jane Withers 8 ára þegar þær iéku
saman f kvikmyndinni „Bright Eyes“ árið 1934. En tfminn stendur
ekki f stað og ekkert sýnir það betur og sannar heldur en gamlar
myndir. En hér eru þær einmitt að rifja upp gamiar minningar og
skoða gamlar myndir.
Jens í Kaldalóni:
Hvað er að frétta?
Bæjum 15.febrúar. 1977.
Veðrátta siðasta hausts var
svo með eindæmum góð, að
um langt árabil hefur önnur
eins veðursæld ekki verið hér
um slóðir. En allt frá því um
10. janúar hefir verið rysjótt
veðurfar, og 4. febrúar gekk
hér í norðan storm með isingu
og brotnuðu þá fjórir rafmagns-
staurar í raflinunni milli Unaðs-
*dals og Bæja, sem þó tókst
fljótlega að gera við. En raf-
magnslausir vorum við hér þá i
Bæjum í 2 sólarhringa.
Á s.l. hausti var lokið við að
setja upp nýja raflinu frá Látr-
um i Mjóafirði úti Ögur, og á
hana hleypt rafmagni frá
Blævardalsárvirkjun. En eins
og víðar á landi hér, að við
hefir viljað brenna, þvarr vatnið
i Blævardalsárvirkjun, nú í
janúar svo alvarlega að segja
má, að nær við liggi að þurr sé,
og rafmagnsframleiðslan allt
ofan í 30 kílóvött, frá þvi að
geta verið yfir 200 kílóvött, ef
nóg vatn er fyrir hendi. Hefur
þvi af þeim sökum verið
hörmungarástand í rafmagns-
málum Djúpverja. Hins vegar
hefur Mýrarárvirkjun staðið sig
og einnig slæddist i förina með
þeim fyrrverandi stýrimaður af
Djúpbátnum þeim til liðveizlu.
Og er þeir höfðu fundið 4 af
kindunum, og handsamað
þær, var ekki til setu boðið til
heimferðar, enda stuttur dagur
um það leyti árs. Nestuðu þeir
sig með að fá kaffi keypt á
brúsa sína áður en á Þorska-
fjarðarheiði skyldi haldið, sem
var ráð hygginna manna. En
um það bil er upp Þorska-
fjarðarheiði skyldi aka skall á
stórhríð, svo illt var að rata, og
með því að bíllinn drap á sér
vegna bleytu og snjóa, máttu
þeir þar láta fyrir berast um
nóttina, og kom þá kaffisopinn
í góðar þarfir, en er af degi tók
að birta tóku þeir það ráð, að
pæla á tveimur jafnfljótum í
sortabyl labbandi yfir alla
Þorskafjarðarheiði, og voru á
þeirri göngu alla götu að mestu
myrkra á milli. En kindurnar
skildu þeir eftir í jeppanum,
enda forboðinn ávöxtur
nokkurs staðar útá ómengað
land að stíga sínum fæti, enda
sem þeir gátu sótt daginn eftir
er veður batnaði. En mörgum
hefði sjálfsagt þótt það dýrt i
Úr Kaldalóni
Ljósm J. Glslad.
nokkuð vel það sem af er
vetrar.
Það voru hörmuleg tiðindi
þegar garnaveiki skaut upp
kollinum hér í Djúpi i haust.
Búið er að slátra um 1 50 ám úr
Reykjarfjarðarhreppi, og voru
teknar þaðan til slátrunar milli
40 og 50 ær nú í febrúar, að
fluttar voru til ísafjarðar og
fargað þar. Á hverjum bæ i
Reykjarfjarðarhreppi hefir
veikinnar orðið vart, en aðeins »
einni til tveim kindum á
sumum bæjum, en flestu á
einum bæ hefir verið álátrað frá
bænum Botni í Mjóafirði, eða
um það bil 50 kindum.
Þar sem Djúpbændum hefir
af sumum verið nokkuð álasað
fyrir einhliða byggingar fjár-
húsa á undanförnum árum,
skal hér getið, að nú nýverið er
lokið við byggingu 30 kúa fjóss
hjá Sigmundi bónda á Látrum í
Mjóafirði. En þar er um meira
að ræða en veggina strípaða,
þvi svo hefur Sigmundur fyllt
fjósið af kúm, að útúr flóir, og
mjólkin flæðir beint úr kúnum i
nýmóðins mjólkurtanka af
fullkomnustu gerð.
Það er i frásögur færandi,
ekki síður en annað, að
bændur nokkrir úr Reykjar-
fjarðarhreppi, fóru nokkru fyrir
jólin vestur í Skálmardal á
Barðaströnd í jeppa, að leita 7
kinda er þar sáust úr flugvél,
pottinn holdið af skjátunum
þeim arna, hefði það átt að
bera uppi þann kauptaxta, sem
reikna hefði mátt við höndlun
þeirra.
Ekkert lát virðist hér í Djúpi á
þeirri rækjugnótt sem daglega
er mokað hér uppúr Djúpinu.
Hér er stundum eins og yfir
borg að líta á heiðbjörtum vetr-
ar kvöldum, þegar rækju-
bátarnir sigla heim á leið eftir
fengsælan dag Sumar rækju-
stöðvarnar búnar nærri að fá
þann skammt, sem þeim er
ætlað nú um miðjan vetur, en
von er um að eitthvað verði úr
bætt til viðbótar. Hér blómstra
því allar sjávarbyggðir af
gullfiskum þeim sem úr djúpi
eru dregnir, og er það mála
sannast, að nú eru umskiptin
svo stórkostleg frá sjómennsku
okkar eldri manna, að þegar útí
Eldingarnar að komið var,
mátti sjá sem í stórborg væri
Ijósaþyrpingar útlendra togara
svo vandræði voru að koma
niður línuspotta, en nú er
auður sjór af öllum fleytum
nema okkar eigin skipa. Þessu
hefði enginn trúað í þá daga að
slík veraldar undur ættu þeir
eftir að líta í tilveru nýrra tima.
Þetta eru þau önnur og mestu
straumhvörf i sögu okkar
ágætu þjóðar
Lifið heil.
Jens í Kaldalóni