Morgunblaðið - 18.03.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977
23
Sigurður Krístjánsson fyrrv.
kaupmaður og sparisjóðsstjóri
I dag er til moldar borinn Sig- ef ekki elsti sparistjóður landsins,
urður Kristjánsson fv. kaupmað-
ur og sparisjóðsstjóri á Siglufirði.
Sigurður var fæddur 24. okt.
1888. Hann var af traustum svarf-
dælskum bændaættum. Hann
lauk á sínmu tfma prófi frá
Verzlunarskóla Islands og hóf
ungur að árum störf hjá hinum
alkunna athafna- og dugnaðar-
manni Ásgeiri Péturssyni. En
ekki leið á löngu þar til Sigurður
hóf sjálfstæðan atvinnurekstur á
Siglufirði. Hann stofnsetti verzl-
un sem síðar varð eitt stærsta
verzlunarfyrirtækið á Siglufirði.
Samtímis verzluninni færði Sig-
urður út kvíarnar og gerðist um-
svifamikill atvinnurekandi á sviði
utgerðar og síldarsöltunar. Síldar-
verksmiðjuna Gránu, áður eign
Sören Goos, eignaðist hann og rak
með miklum dugnaði. Ohætt mun
að segja að þegar umsvif Sigurðar
voru sem mest hafi hann verið
einn stærsti atvinnurekandinn á
Siglufirði.
Sigurður var Siglfirðingur í
húð og hár, og þrátt fyrir mikið
annrfki í sambandi við umfangs-
mikinn atvinnurekstur, hafði
hann alltaf tima til þess að sinna
málefnum síns sveitarfélags. Hon-
um var mjög annt um vöxt og
viðgang Siglufjarðar, og þegar
Siglufjörður fékk kaupstaðarétt-
indi árið 1918 var hann kosinn í
bæjarstjórnina og átti þar langa
og farsæla setu. Áhrif Sigurðar
voru mjög mikil i bæjarmálum
Siglfirðinga og náðu alla tið langt
út fyrir raðir pólitískra samherja
hans. Er óhætt að fullyrða að
engu máli hins unga kaupstaðar
þótti vel ráðið nema Sigurður
leggði þar hönd að verki. öll hin
miklu og árangursríku störf Sig-
urðar í þágu Siglufjarðar kunnu
Siglfirðingar vel að meta og á
1000. fundi bæjarstjórnar var
honum sýndur hinn mesti sómi
sem bæjarstjórn getur veitt, hann
var einróma kjörinn heiðursborg-
ari Siglufjarðar og þótti það mjög
að maklegleikum.
Sigurður hafði hlotið i vöggu-
gjöf að vera mikilhæfur forystu-
maður. Hann var einarður, dug-
mikill og djarfur í öllum ákvörð-
unum. Hann var með afburðum
traustur og mikilvirkur í öllum
störfum og allri framkomu. Því er
það, að þrátt fyrir geysimikið ann-
rfki á öllum sviðum f sambandi
við hinn umfangsmikla atvinnu-
rekstur Sigurðar, þá hlóðust á
hann alls konar trúnaðarstörf í
sambandi við opinber málefni.
Þegar Síldarútvegsnefnd var sett
á stofn var hann skipaður fyrsti
formaður hennar. Hann var um
langt árabil ræðismaður Svfa á
Siglufirði, og ennfremur var
hann umboðsmaður ýmissa er-
lendra og innlendra fyrirtækja
sem hagsmuna höfðu að gæta á
Siglufirði.
Ég sem þessar línur rita kynnt-
ist Sigurði í barnæsku, er ég var
heimagangur á heimili hans, sem
leikbróðir Þráins sonar hans. En
nánust samskipti okkar urðu þó
eftir að ég hóf störf i Landsbank-
anum á Akureyri og Sigurður
hafði þá fyrir nokkru tekið við
stjórn Sparisjóðs Siglufjarðar. En
sparisjóðsstjóri gerðist hann 1920
og gegndi því starfi óslitið til árs-
ins 1962 að hann fluttist búferlum
til Reykjavíkur. Undir stjón Sig-
urðar þróaðist Sparisjóður Siglu-
fjarðar, sem mun vera einn elsti
í að verða mikil og öflug peninga-
stofnun, sem gat rikulega tekið
þátt í farsælli efnahagsuppbygg-
ingu á Siglufirði. Mjög náið sam-
starf var milli Sparisjóðsins og
útibús Landsbankans á Akureyri
og má með nokkrum sanni segja,
að á timabili hafi verið um svipuð
tengsl að ræða milli þessara stofn-
ana eins og um útibú frá bankan-
um á Siglufirði hefði verið að
ræða. Er ég sannfærður um nú
þegar ég lýt til baka til liðinna
tíma, að þessi nánu samskipti
voru áreiðanlega báðum aðilum
til góðs. Samskipti okkar Sigurðar
urðu allnáin, og á bankasviðinu
reyndist hann mér hinn bezti
lærifaðir og naut ég hinnar miklu
reynslu hans á sviði almennra
fjármála, sem var mjög fjölþætt
og yfirgripsmikil. Siðan þróaðist
þetta i einlæga og hlýja vináttu og
ég mun ávallt minnast Sigurðar
sem eins mins mesta velgerðar-
manns.
Jóhanna Stefánsdáttir
Raufarhöfn — Mxnning
Slíks mannkostamanns, sem
Sigurður var, er ljúft að minnast
og það mun ávallt verða bjart yfir
endurminningunni. um þennan
látna vin minn. Ég kveð hann með
virðingu og þakklæti fyrir allt það
góða sem hann auðsýndi mér og
fjölskyldu minni. Eftirlifandi ást-
vinum hans votta ég einlæga sam-
úð og bið þeim blessunar.
Jón G. Sólnes.
AKilASlV.A
SÍMINN KH:
22480
Afmœlis- og
minningargreinar
Að marggefnu tilefni skal athygli vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar verða að berast blað-
inu með góöum fyrirvara. Þannig verður grein, sem
birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli.
Sé vitnað til ljóða eða sálma skal höfundar getið.
Greinarnar þurfa að vera vélritaðar og með góðu
línubili.
F. 19. des. 1890
D. 14. marz 1977
Árið 1877 gengu Stefán Jónsson
bóndi á Skinnalóni, Melrakka-
sléttu, og Kristin G. Jónsdóttir,
heimasæta á Rifi, Melrakkasléttu,
í hjónaband, hann þá 28 ára en
hún 24 ára. Þau stofnuðu bú sitt
að Skinnalóni. Þessi ungu hjón
hófu saman baráttu sina á
erfiðum timum og i mikilli
fátækt, en að einu leyti voru þau
auðug og það var af börnum. Þau
eignuðust 11 börn, sem öll komust
til fullorðins ára og þótti það
mikið guðslán, þar sem barna-
dauði var mjög tiður á þessum
timum.
Eitt af þessum ellefu börnum
var Jóhanna amma, sem við
barnabörnin höfum verið svo lán-
söm að fá að njóta samvista við til
svo hárrar elli.
Þann 6. apríl 1926 giftist hún
önundi Magnússyni sjómanni frá
Borgum á Þistilfirði og hófu þau
sinn búskap á Raufarhöfn. Ári
síðar eignuðust þau sitt fyrsta og
eina barn, föður okkar, Björn
önundarson lækni. Einnig hafði
amma alið upp systurson sinn,
Jónas Finnbogason. Árið 1945
missti amma mann sinn og
helgaði hún þá líf sitt syni sínum
og svo seinna okkur barnabörn-
unum.
Frá því að við munum eftir
okkur var amma búsett á Raufar-
höfn og vann þá í síld, en kom
alltaf og dvaldi hjá okkur tíma af
hverjum vetri til að byrja með, en
frá 1964 fluttist hún alkomin til
okkar, sem var okkur mikið gleði-
efni.
Alltaf minnumst við þess, hve
tilhlökkunin var mikil þegar við
börnin vissum, að von var á
ömmu. Hafði hún jafnan með sér
einn sælgætispoka handa hverju
okkar, sem var bróðurlega deilt.
Svo voru það lfka öll ævintýrin'og
kvæðin, sem hún var óþreytandi
við að segja okkur, því að hvert
okkar átti sfna uppáhaldssögu og
sitt uppáhaldskvæði. öll eigum
við henni það lfka að þakka að við
vorum læs og jafnvel skrifandi
fyrir skólaskyldualdur.
Já, hún amma hún gaf okkur
svo sannarlega allan sinn frítfma
og alla sína hlýju og ástúð.
Með þessum fáu orðum viljum
við þakka ömmu allt sem hún
hefur gert fyrir okkur barna-
börnin og jafnframt viljum við
biðja henni guðsblessunar, hvfld-
ar og friðar við komuna yfir
móðuna miklu og minnumst
hennar með miklu þakklæti og
gleðjumst með henni yfir þvf,
hversu hress og frísk hún var
fram á síðustu stund.
Guð blessi hana og taki hana
elsku ömmu inn í birtuna og
hlýjuna til sín.
Barnabörnin.
Kynningarvika.
Thorex- pakkaraðhúsgögn
Mónudag 14,mars — föstudag 18.mars
Hönnuðurinn verður á staðnum frá kl. 2-6 daglega og sýnir hvernig
| raða má húsgögnunum saman.
Nýjasta nýtt! og aðeins í J.L húsinu.
Thorex - pakkaraðhúsgögn.
Húsgögn, sem hver maður
getur raðað að eigin vild
og flutt og
breytt eftir þörfum.
Thorex-pakkaraðhúsgögn, hönnuð af
Sigurði Karlssyni.
Sófi, stólar, hillur, borð, bekkir, skrifborð, skápar, hjónarúm.
Fást lökkuð eða ólituð, þér getið ráðið litnum sjálf.
Ódýrt- einfalt- fyrir unglinga á öllum aldri.
Húsgagnadeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600