Morgunblaðið - 24.04.1977, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24 APRlL 1977
41
sendu með hraði vopn, skotfæri og
tæknibúnað. Þeir hafa jafnvel boðið okk-
ur hernaðarléga ráðgjafa til að skipu-
leggja varnir Kolwesi. Ég er þess full-
viss, að með aðstoð þeirra verður hægt
að tryggja varnir Kolwesi og að við get-
um komizt í þá aðstöðu að hafa frum-
kvæði á vígvellinum. [Valéry Giscard
dEstaing Frakklandsforseti] sendi mér
orð um að hann tæki persónulega á sig
þá ábyrgð að breyta gegn vilja and-
stæðinga sinna í þessu máli. Sendiherrar
Belga og Frakka eru nýkomnir frá
Kolwesi, en þangað fóru þeir til að
hvetja landa sina til að standa með
okkur. Bandaríkjamenn voru þvi miður
þeir fyrstu sem runnu af hólmi þegar
þeir kvöddu á brott menn, sem þar hafa
unnið að framkvæmdum, án þess að ráð-
færa sig við Belga eða Frakka. Það er
bót í máli að stjórnirnar I Briissel og
Parfs virðast gera sér grein fyrir hvað er
í húfi fyrir hinn vestræna heim.
— Marokkómenn segjast í þann mund
að senda herlið til að aðstoða ykkur við
að verja Shaba-héraðið. Búist þið við
hjálp annars staðar að?
— Já.
— Hvaðan?
— Egyptalandi.
— Hversu marga hermenn ætla
Egyptar og Marokkómenn að senda og
hvenær er von á þeim?
Hvor þjóð sendir eina hersveit [sam-
^íobutu
forseti Zaire
í viðtali við
Arnaud de
Borchgrave
þýðir i raun að þeir viðurkenna að þeir
eigi hlut að máli í Zaire.
— Frétzt hefur að Nígerfumenn hafi
hermenn f Angóla og sé hlutverk þeirra
að aðstoða stjórn Marxista þar. Hvernig
getur Nígeríustjórn þá verið hlutlaus
sáttasemjari?
— Samskipti okkar við Nígeríu eru
með miklum ágætum og skuldbindingar
þeirra við Angóla voru ekki forsenda
fyrir þvi að hafna málamiðlun þeirra.
Það kemur Nígeriustjórn að góðu gagni
að vita frá fyrstu hendi hvað liggur að
baki innrásinni.
— Hver varð niðurstaða fundar ykkar
Netos í Brazzaville á sfðasta ári?
— Um grundvallaratriói var alls eng-
inn ágreiningur, þ.e.a.s. að landssvæði
annars mætti ekki nota til árásar á hinn.
Einnig urðum við ásáttir um að skjóta
öllum ágreiningsmálum okkar til hlut-
lausrar nefndar.
— Neto heldur þvf fram að þér hafið
ekki efnt loforð um að leggja niður
herstöðvar í Zaire, þaðan sem skæru-
liðar gerðu árásir á stjórnarher hans.
Hann segir Ifka að þér hafið aukið að-
stoð við skæruliðahreyfingu, sem mágur
yðar, Holden Roberto, veitir forstöðu, og
er f jandsamleg stjórninni.
— Allar Marxistastjórnir gera þvi
skóna, að sé lygin endurtekin nógu oft
verði henni að lokum trúað af hinum
trúgjörnu. Ég á ekki nema eina systur og
hún er gift höfuðsmanni í herlögreglu
nóta þéirra frá Zaire. Sá eini, sem ég
mundi taka alvarlega, er Antoine
Gizenga, sem bjó í Moskvu í nokkur ár
eftir uppgjöf andspyrnuhreyfingar hans
í Stanleyville. Hann er hendbendi
Moskvustjórnarinnar og er útskúfaður í
Zaire... Moskvustjórn þolir ekki Zaire
af þvf að við þorum að veita heimsvalda-
stefnu hennar i Afríku mótþróa.
— Hvert er álit yðar á heimsóknum
Podgorny forseta Sovétrfkjanna og
Fidel Castro til Afrfku?
— Það er ofur eðlilegt að æðstu menn
skuli fylgjast með hermönnum sínum á
vígvellinum þegar þeir eru að fram-
kvæma meiri háttar áætlun.
— Hver er þessi meiriháttar áætlun að
áliti yðar?
— Að torvelda Vestur-Evrópu leiðina
að forðabúri hráefna. Hvað okkur við-
kemur eru þeir að reyna að mynda
óvinaborg um Zaire. Við erum mestu
framleiðendur demanta, sem notaðir eru
i iðnaði, og kóbalts í veröldinni. Af
hverju haldið þið að námaborgin
Kolwesi sé takmarkið? Maður þarf ekki
að vera mjög mikill sakleysingi til að
gera sér það í hugarlund.
— Teljið þér að innrásarmenn stefni
að þvf að ná skjótum og afdráttarlausum
árangri, eins og til dæmis yfirráðum f
Kolwesi, eða eru þeir að undirbúa
skæruhernað og taugastríð?
— Frá einum njósnara okkar fyrir
handan höfum við fengið skjöl, sem
tals 1600—1800 hermenn], og fyrstu
hóparnir koma i lok vikunnar. Við erum
afar þakklátir fyrir þessa aðstoð og ég er
þess fullviss, að fleiri koma frá öðrum
þjóðum. Ég vildi bara að Bandaríkja-
menn væru ekki svo ragir við að taka af
skarið og skipa sér í þennan hóp. Hefðu
þeir farið þannig að á árunum milli 1930
og 1940 í stað þess að einangra sig, hefði
kannski verið hægt að koma i veg fyrir
siðari heimsstyrjöldina.
— Þið slituð stjórnmálasambandi við
Kúbu í sfðustu viku og báruð sendi-
mönnum þeirra á brýn undirróðurs-
starfsemi. Hvað var það nánar tiltekið?
— Maðurinn, sem við höfum lengi
vitað að stæði fyrir njósnastarfsemi
Kúbumanna hér — Fernández nokkur
— ók að búgarði einum um 55 kílómetra
frá Kinshasa, nam þar staðar og tók
labb-rabbtæki úr farangursgeymslu bif-
reiðarinnar. Hann talaði í tækjð á
spönsku. Brátt komu til hans tveir
Evrópumenn og þrír Afrikumenn,.sem
gætu hugsanlega verið Kúbumenn þar
sem þeir töluðu allir saman á spönsku.
Það sem þeir vissu ekki var að sá sem ók
bifreið Fernández og þeir töldu öfga-
sinnaðan kommúnista og andstæðing
stjórnarinnar, var í rauninni meðlimur í
gagnnjósnadeild okkar. Líka höfðu þeir
á launaskrá hjá sér fréttamann, sem
starfar á hinni opinberu fréttastofu
okkar.
— Vance ráðherra sagði nýlega, að
þróun f átt til stjórnmálalegrar lausnar
á ástandinu sem orðið hefur vegna inn-
rásarinnar f Zaire sé hagstæð og að
óþarft kunni að vera að taka afstöðu til
beiðni frá Zaire-stjórn um hernaðar-
aðstoð. Hvað átti hann við?
— Ætli hann hafi ekki viljað sigla á
kyrru vatni þangað til hann færi til
Moskvu. Það var enn einn fyrirsláttur-
inn til að þurfa ekki að flýta afhendingu
á 30 milljón dala hernaðaraðstoðinni,
sem hefur verið samþykkt á Bandarikja-
þingi.
— Hvað varð úr viðleitni Nigeríu-
stjórnar til að miðla málum milli
Angóla og Zaire?
— Hingað til hefur enginn árangur
orðið, en Angólamenn samþykktu nýlega
að Nigeríustjórn beitti sér í málinu, sem
okkar. Ég á líka fjóra bræður. Kona
Roberts er ekki einu sinni af sama ætt-
flokki og ég, hvað þá að hún sé systir
mín. Neto kom þessari sögu af stað og
hún hefur náð tilgangi sínum. Hvað
viðkemur herstöðvunum okkar megin
landamæranna þá voru þar engir her-
menn og eru ekki.
— t grein eftir Neto í Afrique-Asie,
sem birtist viku fyrir innrásina f Shaba-
héraðið, sakar hann yður um að undir-
búa eitthvað sem hann nefnir „Kóbra-
aðgerðina" gegn Angóla. Er þetta sann-
leikanum samkvæmt?
— Þetta er hin venjulega aðferð
Marxista — að saka aðra um það sem
þeir eru sjálfir að undirbúa. Þetta var
þeirra áætlun, ekki mín.
— Hverjir standa á bak við Þjóð-
frelsishreyfingu Kongó?
— Vinstrisinnar hjá vestrænum fjöl-
miðlum lepja upp allt sem orðað er við
„frelsishreyfingar". í Briissel er fjölda-
framleiðsla á yfirlýsingum einhverra
dularfullra frelsishreyfinga, en þegar
nánar er að gætt er þar um að ræða
tilbúning vansælla vinstri stúdenta og
sýna, að Kolwesi hafði forgang. Upp-
reisnarmenn ætluðu síðan að lýsa því
yfir að mynduð hefði verið byltingar-
stjórn lýðræðissinna og fara síðan fram á
aðstoð frá svokölluðum „framsæknu"
þjóðum. Af þessu má sjá að það er meiri-
háttar áfall að þeim skyldi mistakast að
ná Kolwesi.
— Gætuð þið mætt sókn skæruliða?
— Okkur er ekkert að vanbúnaði að
sækja fram eins og sakir standa nú og
við ætlum að ráða niðurlögum skæru-
liða.
— Erlendar skuldir rfkis yðar nema
nú um 3 milljörðum dala, jafnvel fyrir
innrásina var útlitið allt annað en gott.
Teljið þér að andstæðingarnir hafi valið
þennan tíma fyrir innrásina með tilliti
til þeirra erfiðleika?
— Við vorum nýfarnir af stað með
meiriháttar efnahagsáætlun og Kúbu-
menn og Rússar vissu að ef árangurs
hennar tæki að gæta misstu þeir dýr-
mætt tækifæri. Þeir ákváðu að valda
ókyrrð í landinu á tima sem var okkur
sérstaklega óhagstæður. En þeir komast
ekki upp með það. Því get ég lofað yður.
AUGLÝStNGASÍMINN ER:
22480
ÞAKKW
[Þakka vinum og vandamönnum hlýjar kveðjur,
heillaóskir og gjafir í tilefni 80 ára afmælis
míns.
Árni Jónsson
Heiðarseli.
hjóibarðar
Eigum á lager allar stærðir jeppa og fólksbifreiða hjólbarða.
Sendum um land allt.
Opið frá 8—19,
laugardaga 8—16
Hjólbarðasólun Hafnarfjarðar H.f.f
Trönuhrauni 2, sími 52222.
Leyft Hagkaups-
verð verð
Saltkjöt ‘BB-9 kr. kg. 700 kr. kg.
Súpukjöt T53. kr. kg. 650 kr. kg.
Hrefnukjöt 300 kr. kg.
Kaffi á gamla verðinu,
verð pr. pk. 360