Morgunblaðið - 02.06.1977, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JtlNl 1977
Fímmtán dauðafæri en
aðeins þrjú voru notuð
5V Jt m'ogftlMXr :
ÞAÐ er oft talað um leiki hinna
glötuðu tækifæra og leikur Fram
og Akraness á Laugardalsvellin-
um í fyrrakvöld var vissulega
einn þeirra. Akurnesingar báru
sigur úr býtum 2:1 og sá sigur var
verðskuldaður og hann hefði
getað orðið stærri. 1 fyrri hálfleik
yfirspiluðu Skagamenn Framara
hreinlega, en leikurinn var
jafnari í seinni hálfleik. Þá fengu
Framarar nokkur góð marktæki-
færi en ta:kifæri Skagamanna
voru bara miklu fleiri. Undir-
ritaður skráði niður ein fimmtán
góð marktækifæri auk þeirra,
sem gáfu af sér mörkin þrjú.
Rigning var á meðan leikurinn
fór fram og strekkingsvindur af
austri. Völlurinn var því háll og
sleipur og slíkar aðstæður bjóða
einmitt oft upp á líflega leiki og
mörg marktækifæri. Akur-
nesingar léku undan vindinum í
fyrri hálfleik og réðu þá lögum og
lofum á vellinum. Sýndu þeir oft
skínandi góð a knattspyrnu og
sköpuðu sér fjölda marktæki-
færa. En ekki vildi boltinn i netið
til að byrja með, t.d. átti Pétur
Pétursson þrjú dauðafæri á
fyrstu 20 mínútunum og skaut
alltaf yfir. Og þegar fyrsta markið
kom loksins á 23. mínútu var það
hálfgert klúður. Árni Sveinsson
gaf góðan bolta inn í vítateig
Fram frá vinstri, Þorbergur
markvörður og Sigurbergur
hlupu saman og afleiðingarnar
urðu þær, að boltinn datt fyrir
fætur Kristins Björnssonar, sem
þakkaði gott boð og skoraði örugg-
lega.
Það sem eftir var hálfleiksins
fengu Skagamenn nokkur góð
færi, þar af Pétur Pétursson tvö
dauðafæri, en hann skaut yfir i
bæði skiptin. Fram átti aðeins eitt
gott tækifæri í hálfleiknum þegar
Eggert Steingrímsson átti lúmskt
skot að markinu en Jón varði vel.
í seinni hálfleiknum sóttu
Framarar í sig veðrið enda með
vindinn í bakið. Akurnesingar
voru þó fyrri til að skora og kom
markið á 58. mínútu. Pétur
Pétursson var að kljást við
varnarmenn Fram á miðjum
vellinum, boltinn hrökk frá þeim
til Kristins Björnssonar, sem
þegar tók á rás fram völlinn.
Náðu varnarmennirnir ekki að
stöðva Kristin og skoraði hann af
öryggi. Rétt á eftir fengu Skaga-
menn annað gott færi en úr því
fóru Framarar að láta verulega að
sér kveða i fyrsta skipti í
leiknum. Attu þeir nokkur hættu-
leg tækifæri t.d. bjargaði Árni
Sveinsson á línu skalla Sigur-
bergs og Kristinn Jörundsson átti
skalla í stöng. Markið lá í loftinu
og það kom á 76. mínútu. Löng
sending kom frá vinstri inn í teig-
inn til Sumarliða Guðbjartssonar,
skæðasta sóknarmanns Fram, og
skoraði hann laglega með skalla.
Á 84. mínútu tók Karl Þórðar-
son hornspyrnu, Pétur Pétursson
skallaði að marki og Rafn Rafns-
son handlék knöttinn á línunni.
Vítaspyrna var dæmd, en Þor-
bergur gerði sér lítið fyrir og
varði skot Árna Sveinssonar.
Skömmu siðar átti Árni skot í
stöng og var það síðasta dauða-
færið í þessum fjöruga leik.
Skagamenn léku mjög góða
knattspyrnu lengst af í leiknum.
Boltinn gekk samherja á milli og
hættuleg tækifæri sköpuðust.
Handbragð George Kirbys leynir
sér ekki þegar Skagamönnum
tekst bezt upp. Karl Þórðarson og
Árni Sveinsson sýndu mikinn
baráttuvilja og voru duglegir að
byggja upp sóknarlotur og það
sama má segja um Jón Alfreðs-
son. Reyndar má segja, að allir
leikmenn ÍA hafi tekið þátt i
spilinu þegar bezt gekk. í
vörninni var Jóhannes sterkastur
og frammi á vellinum börðust
þeir grimmilega Pétur og
Kristinn. Pétur er mjög slunginn
Fram — IA 1:2
Texti: Sigtryggur Sigtryggsson
Myndir: Ragnar Axelsson.
í því að skapa sér tækifæri en
honum hefur gengið illa að nýta
þau í siðustu leikjum liðsins.
Framliðið var dauft í þessum
leik sérstaklega í fyrri hálfleik.
Þeir Jón Pétursson og Ásgeir
Elíasson léku nú með Framliðinu
að nýju eftir erfið meiðsli og voru
varla svipur hjá sjón. Sérstaklega
var áberandi hvað Ásgeir var
langt frá sínu bezta. Þetta.virðist
ætla að verða enn eitt vandræða-
sumarið hjá Fram, en ekkert lið
hefur átt jafn misjöfnu gengi að
fagna og Fram. Það er barátta um
titilinn annað árið og jafnvel fall-
barátta hitt árið, þótt svo tíl sami
mannskapurinn skipi liðið, og það
mikill hæfileikamannskapur.
Í STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 31. maí, 1. deild
Fram — ÍA 1:2 (0:1)
Elnkunnagjðfln
Lið FH: Þorvaldur Þórðarson 2, Andrés Krístjánsson 2. Pálmi Jónsson 3,
Logi Ólafsson 3, Jón V. Hinriksson 2, Viðar Halldórsson 3, Jóhann
Ríkarðsson 2, Ólafur Danivalsson 2, Janus Guðlaugsson 3, Gunnar
Bjarnason 2. Magnús Teitsson 2, Helgi Ragnarsson (VM) 2 Þórir Jónsson
(VM) 2 Dómari: Þorvarður Björnsson 4.
Lið UBK: Ólafur Hákonarson 4, Magnús Steínþórsson 2, Gunnlaugur
Helgason 2. Bjarni Bjarnason 2. Einar Þórhallsson 3. Þór Hreiðarsson 3,
Jón Orri Guðmundsson 2, Valdimar Valdimarsson 3. Hinrik Þórhallsson 2,
Ólafur Friðriksson 2, Heiðar Breiðfjörð 3. Sigurjón Rannversson (VM) 2,
Ævar Erlendsson (VM)2
Fram: Þorbergur Atlason 2, Rafn Rafnsson 2, Agúst Guðmundsson 2,
Gunnar Guðmundsson 3. Jón Pétursson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2.
Eggert Steingrímsson 2, Rúnar Glslason 1, Sumarliði Guðbjartsson 3,
Ásgeir Ellasson 1, Pétur Ormslev 2. Kristinn Jörundsson (VM) 2.
Akranes: Jón Þorbjörnsson 2, Björn Lárusson 2, Guðjón Þórðarson 2,
Jóhannes Guðjónsson 3, Jón Gunnlaugsson 2, Hörður Jóhannesson 2,
Karl Þórðarson 3, Jón Alfreðsson 3. Pétur Pétursson 2, Kristinn Björnsson
3, Árni Sveinsson 3. Guðbjörn Tryggvason (VM) 1. Dómari: Hreiðar
Jónsson 3.
Þór: Ragnar Þorvaldsson 2, Oddur Óskarsson 1, Helgi örlygsson 2,
Gunnar Austfjörð 2, Pétur Sigurðsson 2. Sævar Jónatansson 2. Einar
Sveinbjörnsson 1, Sigurður Lárusson 3, Sigþór Ómarsson 2, Jón Lárusson
1, Árn' Gunnarsson 1.
Valur: Sigurður Dagsson 2, Guðmundur Kjartansson 2. Grimur
Sæmundssen 2. Dýri Guðmundsson 2. Magnús Bergs 2. Bergsveinn
Alfonsson 2. Albert Guðmundsson 3, Atli Eðvaldsson 2. Ingi Björn
Albertsson 2, Hörður Hilmarsson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 2. Kristján
Ásgeirsson (v) 1. Dómari: Kjartan Ólafsson 2.
Mark Fram: Sumarliði Guðbjarts-
son á 76. mínútu.
Mörk ÍA: Kristinn Björnsson á23.
og 58. mínútu.
Áminningar: George Kirby sýnt
gula spjaldið fyrir að fara inn á
völlinn án leyfis.
Áhorfendur: 763.
Þannig varð fyrsta mark Skagamanna staðreynd. Efst skella þeir saman Þorbergur og Sigurbergur og
eftirleikurinn var auðveldur og ánægjulegur fyrir Kristin Björnsson, eins og neðri myndirnar bera með
sér.
FH-ingar klaufsk-
ir og óheppnir
EFTIR tap fyrir Blikunum í
Kaplakrika á þriðjudagskvöldið
er staða Fll í 1. deild orðin alvar-
leg, þar sem uppskeran er aðeins
3 stig eftir 6 leiki, þar af þrjú töp
á heimavelli. Þrátt fyrir þetta eru
margir þeirrar skoðunar, að liðið
leiki betri knattspyrnu en það
gerði í fyrra. Hins vegar hefur
óheppni, eða í mörgum tilfellum
klaufaskapur, elt liðið það sem af
er.
Segja má að 2—0 sigur Blik-
anna í þessum leik hafi verið
sanngjarn, en hins vegar verður
þvi ekki neitað, að ef FH hefði
tekist að nýta sín tækifæri í byrj-
un leiksins, er óvist hvernig hefði
farið. Nú er það svo, að í knatt-
spyrnu eru það mörkin en ekki
marktækifærin sem gilda og þvi
fór sem fór fyrir FH.
FH byrjaði leikinn vel og sóttu
af miklum krafti í byrjun leiks-
ins, en þeir fóru illa með upplögð
tækifæri, eða þá að Ólafur
Hákonarson markvörður Blik-
anna, sem átti góðan leik að þessu
sinni, greip inní á réttum augna-
blikum. Flestir bjuggust við
marki frá FH, enda áttu þeir
mörg góð tækifæri, eins og áður
sagði, en það vantaði endahnút-
inn. Hins vegar voru það Blikarn-
ir, sem skoruðu á 36. min. og
verður það mark að skrifast á
reikning Þorvalds Þórðarsonar
markvarðar FH. Valdimar Valdi-
marsson skaut, að því er virtist
hættulausu skoti beint á mark-
vörðinn af 15—20 m. færi, sem
missti knöttinn undir sig og i net-
ið.
Eftir markið hresstust Blikarn-
ir verulega og sóttu það sem eftir
var hálfleiksins.
Annað mark Blikanna
Blikarnir héldu uppteknum
hætti í byrjun síðari hálfleiks því
strax á 3. min. bættu þeir öðru
marki við og var skemmtilega að
þvi unnið. Góður samleikur Þórs,
Heiðars Breiðfjörð og að lokum
sending Jóns Orra Guðmundsson-
FH — UBK 0:2
Texti Helgi Daníelsson
Mynd: Kristinn Ólafsson.
ar fyrir markið til Ólafs Friðriks-
sonar setti vörn FH út af laginu
og skoraði Ólafur örugglega.
Þrátt fyrir mótlætið létu FH-
ingar ekki deigan síga og sóttu í
sig veðrið og áttu margar
skemmtilegar sóknarlotur eins og
t.d. á 55. min. er Ólafur Danivals-
son lék skemmtilega inní vitateig-
inn og gaf fyrir til Jóhanns
Ríkarðssonar, sem var í dauða-
Olafur Danivalsson FH, I baráttu við varnarmann Breiðabliks.
færi, en var of seinn að átta sig og
náði ekki til knattarins.
Enn sótti FH og á 66. mín.
bjargaði Gunnlaugur Helgason
bakvörður Blikanna á línu og
skömmu fyrir leikslok áttu bæði
Ólafur Danivalsson og Helgi
Ragnarsson góð færi. Ólafur hitti
ekki markið, en Helgi skaut beint
í fang Ölafs markvarðar.
Blikarnir áttu skyndisóknir,
sem oft sköpuðu hættu, en mörk-
in urðu ekki fleiri.
Liðin:
Lánleysi FH var mikið í þessum
leik. Þeir léku ágætlega úti á vell-
inum, en sóknin brast eins og svo
oft áður í vor, þegar mest á
reyndi. Þá kom það fyrir, að vörn-
in var illa á verði. Ólafur Dani-
valsson átti góða spretti, en hvarf
á milli, Janus Guðlaugsson átti
góðan leik, sömuleiðis Pálmi
Jónsson, ungur og efnilegur bak-
vörður og Logi Ólafsson. Þórir
Jónsson kom inná í siðari hálfleik
og sömuleiðis Helgi Ragnarsson,
en hvorugur þeirra náði að breyta
gangi mála. Viðar Halldórsson var
nú tengiliður og stendur hann
alltaf fyrir sínu. í heldina tekið er
liðið skipað jöfnum einstakling-
um og það sem af er hefur liðið
ekki náð að sýna það sem í þvi
býr.
Blikarnir voru nú mun ákveðn-
ari en í leiknum gtgn Þór s.l.
laugardag. Þeir léku yfirvegað og
sóknin var mun beittari en I
undanförnum leikjum. Þá var
vörnin mjög Örugg. Ólafur
Hákonarson var besti maður liðs-
ins í þessum leik og varði oft á
tíðum mjög vel. Þá var Einar Þór-
hallsson traustur að vanda og
sömuleiðis þeir Valdimar Valdi-
marsson, Heiðar Breiðfjörð og
Þór Hreiðarsson.
Dómari var Þorvarður Björns-
son og var ekki annað séð, en að
hann dæmdi mjög vel og hefði
góð tök á leiknum.
I STUTTU MÁLI
1. deild 31. mai — Kaplakrikavöll-
ur
FH — UBK 0—2 (0—1)
Mörk UBK:
Valdimar Valdimarsson á 36. mín.
Ólafur Friðriksson á 48. mín.
Áminningar: Engin
Áhorfendur: 205