Morgunblaðið - 15.06.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNI 1977
5
Atli Pálsson
sýnir í Eden
Á MORGUN, fimmtudag,
opnar Atli Pálsson mál-
verkasýningu í EDEN í
Hveragerði.
Á sýningunni verða
sýndar um 30 olíumyndir
allar málaðar á síðustu ár-
um. Sýningin stendur yfir
frá 16.—26. júní.
Hljóðbókasafn
vantar lesara
HLJÓÐBÓKASAFN Blindra-
félagsins og Borgarbókasafns
hefur nú starfað um tveggja ára
skeið. Rétt til afnota af hljóð-
bókum safnsins hafa sjónskertir
og aðrir er sakir bæklunar eða
sjúkdóma hafa ekki full not af
prentuðum bókum, og eru lán-
þegar safnsins nú yfir tvö
hundruð. Bókatitlarnir eru álfka
margir og er þvl að sögn forráða-
manna brýn þörf stórátaks við
uppbyggingu bókakostsins.
Innlestur fer fram í sjálfboða-
liðsvinnu og hafa ýmsir lagt mikið
af mörkum til að gera sjónskert-
um og öðrum fötluðum kleift að
njóta góðra bóka. Þar sem nú fer í
hönd timi sumarfría má búast við,
að margir sjálfboðaliðar leggi
niður störf í bili. Starfsfólk hljóð-
bókasafnsins beinir þvi þeim
tilmælum til góðra lesara sem til
þess hefðu stundir að hlaupa
undir bagga með innlestur.
Þeir sem hefðu hug á að verða
við þessum tilmælum eru beðnir
að hringja i hljóðbókadeild
Blindraféiagsins eða Bor§arbóka-
safn. Fyrir liggur listi um bækur
sem áætlað er að lesa á næstunni
en auk þess eru uppástungur frá
lesurum vel þegnar.
Herjólfur aftur í áætlun
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
fór aftur í áætlun f gærmorgun.
Þegar vélabúnaður skipsins var
kannaður I fyrrakvöld kom f Ijós,
að tengimúffa hafði losnað og sfð-
an valdið útleiðslu í tveimur mæl-
um, hlutfallsmæli og yfir-
snúningshraðamæli, sem aftur
olli þvf að stjórntölva skipsins
brann yfir. Þegar gert hafði verið
við bilunina var farið í reynslu-
siglingu f fyrrakvöld og þá bar
ekki á öðru en að allur stjórnbún-
aður ynni eins og bezt verður á
kosið.
ábyrgð, að sögn Ólafs Runólfsson-
ar fram kvæmdastjóra Herjólfs í
Vestmannaeyjum. Hann sagði, er
hann gaf Mbl. framangreindar
upplýsingar í gær, að það hefði
ekki verið alls kostar rétt, sem
hann sagði blaðinu á mánudag, að
Herjólfur hefði losnað aftur að
eigin rammleik. Það var Lóðsinn
sem kom ferjunni af strandstaðn-
um. Það skal tekið fram, að frétt
Mbl. í gær var að öllu leyti byggð
á upplýsingum framkvæmdastjór-
ans.
Eins og skýrt var frá i Mbl. í
gær kom norskur sérfræðingur,
sá er hannaði stýrisbúnaðinn í
Herjólf, til Vestmannaeyja sið-
degis á mánudag. Fann hann bil-
unina strax og tók viðgerðin
skamma stund. Sérfræðingur
þessi var um borð í Herjólfi í gær
til að ganga úr skugga um, að
ekkert færi úrskeiðis aftur. Allur
vélabúnaður skipsins er enn i
Leiðrétting
í frétt í Morgunblaðinu fyrir
skömmu þar sem rætt var um
veiðiferðir skuttogara á Vest-.
fjarðamið um s.l. áramót var rætt
við þrjá sjómenn sem höfðu verið
á þremur togurum. 1 fyrirsögn
með fréttinni Hundruðum tonna
af smáfiski hent í sjóinn, — segja
þrír sjómenn, urðu þau mistök að
tengja fyrirsögnina ölium þremur
viðmælendum blaðsins þar sem
einn þeirra, Ölafur Ólafsson, sem
svaraði spurningum um áramota-
túr Harðbaks, kvað ekki um
neinn smáfisk að ræða í um-
ræddri veiðiferð Harðbaks.
I umræddri frétt er það sem
Ólafur sagði haft innan
tilvitnunarmerkja og fór þvi ekki
á milli mála.
Helgi Hálfdanarson:
Leiðrétting
Þegar grein mín „Slagbrand-
ur“, sem birtist i blaðinu í dag,
var prentuð, hafa fallið niður í
umbroti tvær línur úr 2. dálki, svo
að málsgrein varð lítt skiljanleg.
En hún átti að vera á þessa leið:
„Hitt er þó miklu verra, að
nokkuð af mikilvægustu efnisatr-
iðum verksins er strikað út at-
hugasemdalaust; svo ekki sé á það
minnzt, að fólk taki til að reka sig
í gegn, þegar minns varir, rétt
eins og að snýta sér.“
Þökk fyrir leiðréttingu.
14. 6. 1977
Ungmennafélag
Borgarfjarðar
eystri sextugt
Ungmennafélag Borgarfjarðar
I Borgarfirði eystri heldur upp á
60 ára afmæli dagana 17. og 18.
júní.
Klukkan 13 á lýðveldisdaginn
er guðsþjónusta og að henni lok-
inni skrúðganga frá kirkju að
íþróttasvæðinu. Þar verður keppt
í ýmsum léttum íþróttagreinum
og að keppni lokinni eru kaffi-
veitingar á boðstólum. Klukkan
20 um kvöldið verður flutt sérstök
hátíðardagskrá og eru Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra, og Ásgeir Sigurvinsson,
knattspyrnumaður, heiðursgestir
kvöldsins. Þarna verða m.a. ein-
gönu sungin lög eftir fyrsta for-
mann félagsins, Inga T. Lárusson,
og ýmsir atburðir úr sögu félags-
ins verða rifjaðir upp. Siðar um
kvöldið verður svo dansleikur.
D:ginn eftir fer fram knatt-
spyrnukeppni á íþróttavellinum
og siðan frumsýning á Allra
meina bót eftir Jónas og Jón Múla
Árnasyni. Afmælisdagskránni
lýkur svo með dansleik að kvöldi
þess 18.
Mikið úrval tekið upp
í dag af alls konar
kakhi fatnaði
Buxur — Jakkar — Skyrtur —
Blússur — Pils — o.fl.
Einnig: ^
\^ Army skyrtur og blússux./ j
að gera innkaupin fyrir
17. júní(ídacfc)
En þó er opið á morgun
að LAUGAVEGI 66
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptibordi 28155