Morgunblaðið - 15.06.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNl 1977
15
Ljósm. Emilía.
Nokkrir fulltrúar norrænna rithöfunda, sem sátu þing norræna rit-
höfundaráðsins í Reykjavfk 13. og 14. júnf.
Norrænir rithöfund-
ar mótmæla sjón-
varpsgervihnöttum
Erlendur Einarsson á hátíðarfundi SIS:
Undiralda samvinnuhreyf-
ingarinnar eru framf arir
ÁRSFUNDI norræna rithöfunda-
ráðsins lauk nýlega í Reykjavík,
en fundinn sátu fulltrúar frá öll-
um Norðurlöndunum, alls 32, þar
af 8 frá tsiandi. Fundur þessi er
haldinn til skiptis árlega á
Norðurlöndunum og var hann síð-
ast haldinn hérlendis 1970, en var
f fyrsta sinn hér 1960 og þetta er
þvf í þriðja sinn sem hann er
haldinn hérlendis.
Á fundi með fréttamönnum
röktu nokkrir þingfulltrúar það
sem helzt var rætt á fundinum, en
það voru einkum kjaramál. Ásamt
rithöfundunum sátu fundinn lög-
fræðingar rithöfundasamband-
anna, en mörg atriði varðandi
samninga rithöfunda um greiðsl-
ur fyrir rit og annað efni fara
gegnum lögfræðilega ráðunauta
samtakanna. Yfir 20 mál voru
rædd og m.a. var samþykkt álykt-
un þess efnis að lýsa yfir mótmæl-
um gegn hinum samnorræna
gervihnetti, sem ráðgert er að
koma upp, og var þessi ályktun
send til HUsavíkur á fund
menntamálaráðherra Norður-
landa.
í ályktuninni kemur fram að
rithöfundar óttast að fjársterkir
aðilar muni hafa um of áhrif á
efni það sem fer um gervihnetti í
framtíðinni og bent er á að með
auknu sjónvarpsefni fari tími
fólks fremur i að horfa á það en
að leggja stund á aðrar tómstund-
ir, svo sem léikhúsferðir, lestur
bóka og annað og hafi þessir
gervihnettir því ótviræð menn-
ingarleg áhrif, sem verði að var-
ast. Bent er á að valmöguleikar
sjónvarpsáhorfenda aukist ekki,
en áhugi beinist frá ýmsum
menningarlegum hlutum að dag-
skrám sem framleiddar eru pen-
inganna vegna. Þá töldu hinir
norrænu rithöfundar að efni sem
sent væri um gervihnött fengist
ekki greitt eins og skyldi, t.d. að
dagskrá, sem send væri út í Sví-
þjóð væri e.t.v. sýnd samtimis i
öðrum löndum, en ekki á misjöfn-
um tíma eins og nú væri, og því
væri aðeins greitt einu sinni fyrir
umrædda dagskrá þar sem væri
greitt eins oft og hún væri sýnd,
eins og nú væri.
Með þessum rökum vilja nor-
rænir rithöfundar beina þeim til-
mælum til menntamálaráðherra
Norðurlanda að mál þetta verði
rætt frekar áður en ákvarðanir
um gervihnetti verði teknar.
Af öðrum málum sem rædd
voru á þingi norrænna rithöfunda
má nefna greiðslur fyrir efni sem
lesið er inn á hljómsnældur, efni
sem ljósritað er, svo sem kaflar úr
bókum til notkunar við kennslu,
en þeir töldu að i þessum atriðum
væri gengið á svig við lög um
höfundarétt í mörgum tilfellum,
og sögðu að þeir vildu ekki síður
en aðrir fá greitt fyrir sina vinnu,
sem þeir hefðu lagt af mörkum og
því yrði að leggja áherzlu á að
fylgjast sem bezt með því að þess-
ar leiðir yrðu ekki notaðar að
rithöfundum forspurðum og án
þess að greiðslur kæmu fyrir.
Í tilefni af 75 ára afmæli Sam-
bands fslenskra samvinnufélaga
fyrr 1 vetur, var haldinn á mánu-
dagskvöld hátíðarfundur í Há-
skólabfói. Fundinn setti Eysteinn
Jónsson, formaður stjórnar Sam-
bandsins, og að þvf loknu fluttu
ávörp Ólafur Jóhannesson við-
skiptaráðherra. Ebbe Groes,
stjórnarformaður Norræna sam-
vinnusambandsins, Ólafur
Sverrisson kaupfélagsstjóri sem
fulltrúi Sambandskaupfélaganna
og Magnús Friðgeirsson, formað-
ur Starfsmannafélags Sambands-
ins f Reykjavfk. Fram kom einnig
kór Söngskólans f Reykjavfk og
óperusöngvararnir Sieglinde
Kahman og Sigurður Björnsson.
Þá flutti Erlendur Einarsson, for-
stjóri Sambandsins, ræðu og við
lok fundarins tóku viðstaddir lag-
ið.
í upphafi ræðu sinnar rakti Er-
lendur Einarsson skrif ýmissa
forystumanna samvinnuhreyf-
ingarinnar á fyrstu árum hennar
hér á landi og hugmyndir þeirra
um samvinnustarfið. Hann
minnti á að þegar Sambandið var
stofnað 1902 þá hefðu þingeyskir
báfendur verið í varnarstöðu og
það kynni að hafa átt sinn þátt í
stofnun Sambandsins. Erfiðleikar
hefðu verið með útflutning á lif-
andi sauðfé og vaxtarbroddur
smjörbúa fyrir landbúnaðinn
hefði ekki náð til Norðurlands á
þessum árum, enda raunar verið
bundinn við Suðurland. Þing-
eyskir bændur hefðu þurft að
finna nýjar leiðir og komast úr
þessari varnarstöðu og þá undir
kjörorðinu að sókn er besta vörn-
in.
Erlendur sagði að næsta erfitt
væri að bera saman gildi sam-
vinnustarfs í dag fyrir íslenzkt
þjóðfélag og það sem var um alda-
mótin síðustu, þegar Sambandið
var stofnað. „Matið i dag hlýtur
að vera annars eðlis en fyrir 75
árum, þegar lifið snerist um það
fyrst og fremst að hafa í sig og á
og að leysa það hvort tveggja var
talin velmegun. Nú getum við ís-
lendingar talað með nokkrum
rélti um að við höfum komið á fót
velferðarríki — þjóðfélagi neyslu
og mikilla möguleika fyrir flesta
einstaklinga að brjótast áfram til
þroska og efna. Hættan virðist
helst, að ljúfa lifið geti orðið
mönnum að fótakefli," sagði
Erlendur. Umframtið samvinnu-
starfsins hér á landi sagði Erlend-
ur að umgjörð samvinnustarfsins
hlyti í framtiðinni sem hingað til
að vera jákvætt afl í þjóðfélaginu
á sem flestum sviðum, vegna þess
að undiralda samvinnuhreyfing-
arinnar væru framfarir og þá ósk-
ir fólks um betra lff. Af einstök-
um framtiðarverkefnum nefndi
HEILDARVELTA Sambands
fslenzkra samvinnufélaga árið
1976 varð 30,2 milljarðar króna
og jókst um 36,3% frá árinu á
undan. Rekstrarafgangur, áður
fyrningar fastaf jármuna eru
færðar til gjalda, nam á sl. ári 721
milljón króna en til viðbótar
koma tekjur utan rekstrareikn-
Erlendur, að starfsemin hluti að
miðast við að efla þjónustu við
félagsmenn, vera jákvætt afl i
hverju byggðarlagi og taka á með
fólkinu, eins og Erlendur orðaði
það. Þá þyrfti að gera vörudreif-
ingu hagkvæmari, gera samvinnu-
félögin fjárhagslega sjálfstæð, að-
stoða landbúnaðinn við aðsteðj-
andi erfiðleika, auka þátttöku
samvinnufélaganna i sjávarút-
vegi, efla iðnað og auka framlög
til menningarmála.
ings vegna eignasölu og jöfnunar-
hlutabréfa að upphæð krónur
264,0 milljónir króna. Aðildar-
félög Sambandsins voru á árinu
1976 49 og voru félagsmenn
þeirra i árslok 41.178 og fjölgaði
um 1399 á árinu. Af þessum 49
félögum voru 44 þeirra með rekst-
Framhald ábls. 18
Frá hátíðarfundi f tilefni af 75 ára afmæli Sambands fslenskra
samvinnufélaga, sem var 20. febrúar sl. Hátíðarfundurinn var haldinn
á mánudagskvöld f Háskólabfói. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.
SÍS og kaupfélögin 1976:
Heildarveltan
75,1 milljarður
— Tekjuafgangur SIS nam 641 millj. króna
Luxembourg er friðsœll töfrandi ferðamanna-
staður, mótaður af frönskum og þýskum
menningaráhri fum - þar sameinast franska
glaðlyndið og þýska nákvæmnin. Þar sem landið
er lítið, er stutt að skjótast til ýmissa stórborga
í nágrannalöndunum.
Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar
Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til
Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta-
héruð Evrópu sameinast, á mótum Mosel og
Rinar.
Luxembourg — einn fjölmargra
staða í áætlunarflugi okkar.
IOFWIBIR
ÍSLAJMDS