Morgunblaðið - 15.06.1977, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNI 1977
„Dagur iðnaðarins”
á Selfossi á morgun
— Gjörbreytt
andrúmsloft
Framhald af bls. 32
lands og vinnuveitenda — aðeigs væri
um að ræða útfærslu á kauplið og
samningstíma Morgunblaðið spurði
þá Björn, hver væru þessi jákvæðu
atriði samningsins og kvað hann þau
vera uppsagnarákvæðin. Uppsagnar-
ákvæðin eru hin hefðbundnu um að ef
veruleg gengisbreyting verður á gengi
krónunnar megi segja samningnum
upp, en síðan koma tvö ný uppsagnar-
ákvæði, sem ASÍ hafði raunar krafizt,
en ekki fengið samþykkt af vinnuveit-
endum Þau ákvæði eru um að samn-
ingurinn sé uppsegjanlegur, ef sjórn-
völd raska á einhvern hátt verðbótavísi-
öluákvæðum samningsins og ef um-
talsverðir kjarahópar í þjóðfélaginu fái
meiri kjarabætur en samningurinn seg-
ir til um Mun þar átt við sambönd á
borð við BSRB og BHM
Þá kvað Björn Jónsson vísitölu-
ákvæði samningsins að vestan hin
sömu og samizt heíði um hér syðra.
Hins vegar mun kauphækkunin í vest-
firzka samningnum koma aðfullu inn í
bónusgrunninn.
Þá spurði Morgunblaðið Jón H
Bergs, formann Vinnuveitendasam-
bandsins, um vestfirzka samkomulag-
ið. Jón kvað samkomulagið taka til
tiltölulega fárra launþega í fáum starfs-
greinum á öllu landinu Vinnuveitenda-
sambandið væri hins vegar að semja
fyrir mikinn fjölda starfsgreina og land-
ið í heild Því væri mjög erfitt að bera
saman aðstæður við gerð þessara
samninga, auðveldara væri að semja
fyrir fáar starfsgreinar í einum lands-
hluta en fyrir atvinnuvegina í heild
,.Það er nú nauðsynlegt fyrir báða
aðila," sagði Jón, „að Ijúka þessu
samningaþófi, því að ef þetta dregst
mikið úr þessu er hætta á aukinni
•hörku af beggja hálfu Við höfum heyrt
um þessi staðbundnu allsherjarverk-
föll. sem í undirbúningi eru af hálfu
ASÍ í næstu viku og það er afar hætt
við að vinnuveitendur verði að hefja
gagnaðgerðir Afleiðingin er að aukin
harka verður við samningaborðið af
beggja hálfu." Jón H Bergs sagðist
ekki minnast þess að vinnuveitendur
hefðu þurft að beita verkbannsaðgerð-
um á breiðum grundvelli áður, enda
kvað hann verkbönn aðgerð, sem
menn reyndu að komast hjá eða draga
í lengstu lög Hann kvaðst vona að til
slíkra aðgerða þyrfti ekki að koma, sér
virtist samningsvilji vera fyrir hendi frá
ASÍ, með einhverjum undantekningum
þó, en hann sagðist vonast til þess að
unnið yrði af fullum krafti við að Ijúka
samningaviðræðum.
Þá spurði Morgunblaðið formann
Vinnuveitendasambandsins, hve lang-
ur tími þyrfti að líða, unz samkomulag
næðist ef fullur samningsvilji héldist
hjá báðum aðilum Jón sagði að ef til
vill væri kaupliðurinn hið auðveldasta í
samningsgerðinni, þar sem þar væri
um að ræða ákvörðunaratriði, sem
fljótlegt væri að setja inn í samninginn
Margt annað, sem tengt er kaupliðnum
er hins vegar erfiðara viðfangs, en
hann kvað mikinn hluta þess leystan,
svo sem vísitölukerfið Hins vegar kvað
hann sérkröfur einstakra hópa iðnaðar-
manna enn óleystar ,,Ég vil ekki full-
yrða, hve langan tíma tekur að Ijúka
þeim. Það fer eftir samningstímanum
og á þessi atriði reynir nú næstu daga,
eins og það hefur raunar gert allt frá
því er umræðugrundvöllur sáttanefnd-
ar kom fram hinn 17 maí síðastlið-
inn."
Árdegis í gær hélt samninganefnd
ASÍ fund um stöðuna, sem kom upp í
samningunum, er vestfirzku samning-
arnir höfðu verið gerðir Morgunblaðið
spurði Guðmund J Guðmundsson um
það hvað hefði verið rætt á fundinum
„Menn tóku sólarhæðma", svaraði for-
maður Verkamannasambandsins
Morgunblaðið benti þá Guðmundi á að
það hlyti að hafa verið erfitt því að
alskýjað hefði verið í Reykjavík í morg-
un. „Já," svaraði Guðmundur, „það
kom ekki að sök, því að nenn fengu
veðurskeyti að vestan."
— Vestfirzku
samningarnir
Framhald af bls. 32
þeír farið nokkuð út fyrir þá braut sem
tiðkaðist i vinnubrögðum Hann benti
á að kjarasamningagerð væri um flest
auðveldari hjá Vestfirðingum en i
heildarkjarasamningsgerðinni, þar sem
á Vestfjörðum væri verið að semja fyrir
mun þrengri hóp ..Og verði það niður-
staðan að félagar okkar syðra fáí eitt-
hvað betri samning en við höfum gert,
þá erum við ekkert viðkvæmir fyrir því
Það er hlutur sem við höfum alveg
tekið með inn í dæmið og sættum
okkur víð, þvi að þetta er algjörlega
bíndandi samkomulag af okkar hálfu,"
sagði Pétur
Á MORGUN verður haldinn á Sel-
fossi „Dagur iðnaðarins" og hefst
hann kl. 9 með þvf að forráða-
menn íslenzks iðnaðar munu
heimsækja nokkur iðnfyrirtæki á
Selfossi. Að loknum hádegisverði
i boði sveitarstjórnar Selfoss þar
sem veitt verður viðurkenning
Afmæli
SJÖTUGUR verður á morgun
Stefán Pálsson fyrrum bóndi á
Vfðidalsá, en hann á nú heima að
Hafnarbraut 23 Hólmavfk. Hann
verður að heiman á afmælisdag-
inn. __. . ._
— 63% lækkun
Framhald af bls. 1
Örn kvað lítinn vafa vera á því, að
þetta ferðafyrirkomulag myndi
draga til sín eitthvað af farþegum frá
Flugleiðum, svo sem frá öðrum
félögum sem héldu nú uppi
áætlunarflugi yfir Atlantshafið, en
hvort það yrðu veruleg brögð að því
væri annað mál, sem mjög erfitt
væri að meta Hann kvaðst hafa
heyrt það eftir ráðamanni í Banda-
ríkjunum, að „fluglestin" myndi þó
ekki ná til sín nema um 2% af
heildarfarþegaflutningunum á þess-
ari flugleið
Örn var spurður að því hvort hann
teldi „fluglestina" mundu hafa áhrif
á fargjaldastefnu Flugleiða til
lækkunar. en hann kvað svo ekki
verða miðað við óbreyttar aðstæður,
þar sem fargjöld félagsins væru nú
eins ódýr og þau frekast gætu verið
Örn benti jafnframt á, að margvísleg
rýmkun á leiguflugsreglum í Banda-
ríkjunum hefði þegar hoggið mjög
inn í hið reglubundna farþegaflug á
Atlantshafi á þessu ári, og mikil
óvissa væri ríkjandi, enda farþega-
flugið á þessari flugleið rekið með
tapi um þessar mundir og sam-
keppnin væri gífurleg.
— Mikil röskun
Framhald af bls. 32
ekki í dag Jafnframt er í dag rafiðn-
aðarverkfall og eins meðal félaga sem
semja fyrir launþega í veitingahúsa- og
hótelrekstri. í dag fella og kjötiðnaðar-
menn niður vinnu Á morgun, fimmtu-
dag, fella verzlunarmenn niður vinnu,
en breytingar hafa þó verið gerðar á
verkföllum verzlunarmanna, sem vinna
hjá Flugleiðum, flugafgreiðslumenn
fresta verkföllum sínum til 20 júní, er
félagar í Verkamannasambandinu
leggja niður vinnu hjá Flugleiðum. Því
ætti flug ekki að stöðvast nema einn
dag í stað tveggja. Sams konar sam-
komulag hefur verið gert við dagblöð-
in Þeir starfsmenn innan Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem vinna
við dagblöð og áttu að fara í verkfall
1 6 júní, fara í verkfall í dag, 1 5 júnf,
á sama tíma og bókagerðarmenn. Því
getá síðdegisblöð komið út á morgun
og morgunblöð 1 7. júní
Verkfallið, sem stöðvar afgreiðslu
skipa, er í raun virkt frá 1 7. júní, þar
sem sá dagur er frídagur, 18 er
laugardagur og 19. sunnudagur 20.
júnf sem er mánudagur er verkfall í
hafnarvinnu, 21 allsherjarverkfáll f
einn dag og 22 taka síðan við hinar
nýju ákvarðanir, algjör flutningastöðv-
un.
Um verzlanir, þar sem eigendur geta
ekki annað afgreiðslu, er mikið um að
dagar falli úr á næstu dögum. í dag
eru kjötverzlanir lamaðar vegna verk-
falls kjötiðnaðarmanna, á morgun, 16.
júní er allsherjarverkfall verzlunar-
manna í einn dag, 1 7. júní eru verzlan-
ir lokaðar. 18 júní, sem er laugar-
dagur, eru þær lokaðar vegna yfir-
vinnubanns, 19. júnf er sunnudagur,
en sfðan eru verzlanir opnar á mánu-
dag, en lokaðar á þriðjudag 21 júní
vegna allsherjarverkfallsins, sem
stendur f einn dag Það eru því í raun
aðeins tveir dagar, sem fólk hefur til að
verzla fyrir næstu sex daga og má þvf
búast við miklum erli í verzlunum, þar
sem eigendur geta ekki annast af-
greiðslu.
FRAM OG Valur geröu jafntefli á
Laugardalsvelli í 1. deild íslands-
mótsins í gærkvöld og var ekkert
mark skorað. Engu að síður þótti
leikurinn hinn skemmtilegasti, og
jafntefli voru sanngjörn úrslit.
fyrir snyrtilegustu iðnaðarlóðina
verður opnuð sýning í Gagnfræða-
skóla Selfoss. í>ar mun Guðmund-
ur Jónsson, skósmiður, flytja
ávarp. Klukkan 14.15 hefst fund-
ur um iðnaðarmál á Hótel Selfossi
og mun Gunnar Thoroddsen iðn-
aðarráðherra flytja ávarp og er-
indi flytja Bragi Hannesson,
bankastjóri, Óli Þ. Guðbjartsson,
oddviti, og Einar Elíasson, fram-
kvæmdastjóri. „Degi iðnaðarins“
á Selfossi lýkur siðan með mót-
töku iðnaðarráðherra og verða þá
ýmsir aðilar heiðraðir fyrir störf
af íslenzkum iðnaði.
— 100 ára
Framhald af bls. 2.
Björnsson, síðar forseti íslands, fyrsti
formaður félagsins. Síðan tók við Pétur
Thorsteinsson, þá Aug Flygenring,
Ólafur Johnson, Jón Hermannsson.
Pétur Ólafsson og Björn Ólafsson. í
stjórn nú eru: Ólafur B. Thors, Eyjólfur
K Sigurjónsson, Katrín Ólafsdóttir
Hjaltested og Henrik Sv Björnsson
Núverandi framkvæmdastjóri er Lúðvík
Jónsson en framkvæmdastjórar á und-
an honum voru Kristinn Gestsson,
Pétur Ólafsson, Gunnar Einarsson og
Herbert Sigmundsson, sem var fyrsti
framkvæmdastjórinn
— Kosningar
á Irlandi
Framhald af bls. 14
fortiðina rósrauða meðan hryll-
ingur líðandi stundar er for-
dæmdur.
Hann virðist vera aö segja að
þvert á móti hafi Provoarnir
rétt á að halda því fram, að þeir
séu erfingjar mannanna, sem
tóku sér það verkefni árið 1916
að stofna fullvaljlfstætt og
sameinað írland. Það sem
meira sé, þaó sé ekkert undar-
legt þótt þeir trúi þessu á of-
stækisfullan hátt, því að frá
stofnun írska lýðveldisins hafi
allar stofnanir þess stjórnmála-
flokkar og jafnvel menntastofn-
anir baðað sig í ljómanum af
páskauppreisninni sem dæmi
um hina fullkomnu föðurlands-
ást. Litlar líkur eru þó á að
kosningarnar á morgun snúist
um þetta, eins og áður er sagt,
því skattamál, atvinnuleysi og
verðbólga valda kjósendum
meiri áhyggjum en hvort mat
þeirra á sögunni er rangt, eða
ekki.
— Magnús Finns-
son formaður
Framhald af bls. 2.
varpinu, og Gunnar Kvaran, AlþýSu-
blaðinu
Launamál blaðamanna voru mjög til
umræðu á fundinum. Fram kom I
skýrslu bæði fráfarandi formanns,
Einars Karls Haraldssonar, og
formanns launamálanefndar Braga
Guðmundssonar, að kjör blaðamanna
hafa dregizt mjög aftur úr, og launa-
skriðið víða i þjóðfélaginu ekki náð að
marki inn á ritstjórnir dagblaðanna.
Kjaradeila blaðamanna er nú hjá sátta-
semjara, en samningafundur hefur
ekki verið haldínn frá þvi 4 mai sl. Þá
kom fram óánægja meðal fundar-
manna með þá ákvörðun Félags blaða-
útgefenda að gerast félagi I Félagi Isl
prentiðnaðarins og þar með að Vinnu-
veitendasambandi islands. en sá er
skilningur Blaðamannafélagsins að I
gildi hafi verið munnlegt samkomulag
um að aðilar stæðu fyrir utan heildar-
samtök aðila vinnumarkaðar vegna sér-
stöðu blaðamennskustarfans.
Fram kom á fundinum að fjárhagur
félagsins og ýmissa sjóða þess stendur
með miklum blóma, en nokkrir erfið-
leikar hafa þó orðið vegna þess að
erfiðlega gengur með innheimtu
ýmissa launatengdra gjalda hjá nokkr-
um blöðum, Áhugi kom fram á
fundinum á að félagið festi kaup á
húseign til að skapa aðstöðu fyrir aukið
félagsstarf
Einnig var ákveðið á fundinum að
skipa nefnd til að vinna að því með
lögfræðingi félagsins að taka lög
félagsins til gagngerðrar endur-
skoðunar með það fyrir augum að færa
stjórnskipan félagsins að fullu i átt til
hefðbundins stéttarfélags og lögfestá
skilgreiningu á réttindum og skyldum
blaðamanns I starfi Jafnframt var
önnur nefnd skipuð til að vinna að
sams konar endurskoðun á siðareglúm
félagsins. Ákveðið var að boða tíl
framhaldsaðalfundar síðar á árinu þar
sem þessi mál hlytu afgreiðslu
í siðanefnd BÍ eiga nú sæti sr. Bjarni
Sigurðsson, Þorbjörn Guðmundsson
og Indriði G Þorsteinsson. í launa-
málanefnd félagsins voru endurkjörnir:
Bragi Guðmundsson, Sigtryggur Sig-
tryggsson. Bragi Sigurðsson, Úlfar
Þormóðsson, Fríða Björnsdóttir og
Gunnar Kvaran. í stjórn Menningar-
sjóðs og Orlofsheimilissjóðs voru
endurkjörnir Sverrir Þórðarson, Kári
Jónasson auk Björns Vignis Sigurpáls-
sonar.
— Stærsti ullar-
vörusamningur
Framhald af bls. 2.
landið leggja hönd á plóginn við
framleiðsluna.
Hönnun hefur verið gerð í sam-
starfi við Kinetic, af hönnuði
iðnaðardeildar Sambandsins, Þór-
steini Gunnarssyni, en eftirlit
með framleiðslu annaðist Ingólf-
ur Kristjánsson ásamt Þórsteini.
Framleiöslustjóri er Örn Baldurs-
son, en sölustjóri útflutnings er
Jón Arnþórsson. Vonir standa til
að með stærri samningum á næsta
ári muni fleiri fyrirtæki víðar á
landinu koma inn í þessa fram-
leiðslumynd. Iðnaðardeild Sam-
bandsins hefur áður gert stærri
ullarvörusamninga og þá við Ráð-
stjórnarríkin, en að sögn hefur
útflutningur þangað ekki vaxið í
sama hlutfalli og á vestrænum
markaði, þar sem eftirspurn eftir
íslenzkum ullarvarningi eykst
sífellt.
Hjörtur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri iðnaðardeildarinn-
ar, sagði enn fremur að mesti
bölvaldurinn í sambandi við út-
flutningsiðnaðinnn væri verð-
bólgan og segði fjármagnsskort-
urinn stöðugt til sín með vaxandi
þunga og margvíkslegur aðstöðu-
munur íslenzks iðnaðar i saman-
burði við iðnað annara þjóða
leiddi af sér versnandi sam-
keppnisaðstöðu.
Sagði Hjörtur að lokum aó það
væri metna&armál hjá Iðnaðar-
deild Sambandsins að vinna
markvisst að nýtingu innlendra
hráefna, sem skapaði verulega
gjaldeyrisöflun og fjölda atvinnu-
tækifæra. Og vildi hann minna
sérstaklega á þá kröfu Sambands-
ins að fá endurgreiddan uppsafn-
aðan söluskatt af útflutningi.
— Hvergi heyrt
þennan tón . . .
Framhald af bls. 2.
og sú hugsun hvarflaði aldrei að
honum að þvl er hann segir sjálfur,
þótt að hann færi í 2—3 söngtlma
til Rutar L Magnússon „Nei, ég var
ákveðinn i þvl að leggja fyrir mig
hjúkrun og hélt til Noregs árið 1 973
I þeim erindagjörðum. Þá vildi svo
til að ein kennsluhjúkrunarkonan
heyrði einhvern tíma I mér, þar sem
ég tók lagið svona upp úr þurru
meðan ég var að sýsla við eitthvert
verk Hún hafði sjálf verið lengi við
söngnám og mikil áhugakona um
söng. svo að hún spurði mig hvort
ég hefði lært söng. Nei, sagði ég
henni, ég hef aðeins sungið I kór."
Upp úr þessu tókust nánari kynni
með Jóni og húkrunarkonunni og
Jón komst inn I hóp af söngglöðu
fólki sem var á hjúkrunarskólanum.
„Þessi kona var þó alltaf að jagast I
mér að læra söng, sem ég þvertók
alltaf fyrir þar til að lokum að ég lét
undan. mest til að losna við ansans
naggið i kerlingunni. Það varð úr að
ég fór fyrir hennar tilstilli til söng-
kennara, eða söngkonu, sem hún
hafði sjálf lært hjá á sfnum tima og
ég komst að þvi að hún þótti með
beztu kennurum I Ósló. Hún hlust-
aði á mig. fann að öllu og sagðist
siðan ekki hafa neinn tíma fyrir mig
lausan. Þá vildi svo til að siminn
hringdi meðan ég var hjá henni og
var þar einn nemandi hennar að
afpanta 4 tíma vegna utanlandsferð-
ar. Kennarinn gaf mér þá kost á
þessum tímum og bætti við — „en
ég er strög og ég er dýr, en ef þú
þróast í jákvæða átt sjáum við hvað
setur með framhaldið "
Þannig upphófst söngnám Jóns
Þorsteinssonar fyrir alvöru, sem
fljótlega leiddi tl þess að hann hætti
við hjúkrunarnámið Hann varð sið-
an óreglulegur nemandi við tón-
listarháskólann I Ósló, en fékk þar
ekki fulla inngöngu þar sem hann
þótti ekki hafa nægilega fræðilega
undirstöðu á sviði tónfræði Jafn-
framt náminu söng hann með
óperukórnum I Ósló en siðasta vetur
flutti hann sig yfir til Árósa og hélt
áfram söngnámi þar hjá þekktum
prófessor við tónlistarhásólann I
vor þreytti hann siðan inntökupróf í
sjálfan tónlistarháskólann og var
einn fárra af fjölda umsækjenda sem
tekinn var inn. Alltaf hefur hann þó
haldið tryggð við Pólýfónkórinn og
söng hér t d einsöng með kórnum
er hann flutti H-moll messuna um
páskana I fyrra. „Ég hef alltaf sungið
í kórum með námiu 'W SEGIR Jón,
„og vil halda þvi fram að kórsöngur
sé einhver bezti skóli, sem söngvari
hlýtur, bæði hvað raddbeitingu og
tónheyrn snertir Og til dæmis sé ég
það nú eftir á hvað það hefur mér
óendanlega mikils virði að syngja
t d með Pólýfónkórnum og fæ
sennilega seint fullþakkað þann lær-
dóm sem ég fékk þar Siðan hef ég
sungið með ýmsum kórum og hlust-
að á kóra bæði í Noregi og Dan-
mörku, Sviþjóð og viðar, en hvergi
hef ég heyrt þennan góða og dýrð-
lega hljóm eins og hjá Pólýfónkórn-
um, og sú hugsun að hann sé nú að
hætta ja, ég er satt að segja ekki
búinn að kyngja henni ennþá."
— Heildarvelta
Framhald af bls. 15
ur á sl. ári og nam heildarvelta
þeirra 44,9 milljörðum króna á
árinu, sem er 39,2% aukning frá
1975.
Þessar upplýsingar komu fram
á aðalfundi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, sem hófst í
Reykjavík í gær og lýkur síðdegis
í dag. Auk þess að fjalla um mál-
efni Sambandsins með venjuleg-
um hætti er þessi aðalfundur
helgaður fræðslu- og félagsmálum
samvinnuhreyfingarinnar og er
það í tilefni af 75 ára afmæli SÍS
fyrr á þessu ári.
Brúttótekjur Sambandsins 1976
námu 4,836 milljónum króna en
rekstrargjöld námu alls 3,345
milljónum. Á árinu 1976 greiddi
SlS 236,5 milljónir króna i opin-
ber gjöld og 533,7 milljónir króna
runnu til vaxtagreiðslna. Tekjur
að frádregnum fyrningum, er
nema 344 milljónum, eru 641
milljón og eftir að tekjur utan
rekstrarreiknings, 264 milljónir,
hafa verið færðar á höfuðstól, er
rekstrarafgangur samtals 377
milljónir króna. Af þessari upp-
hæð var ráðstafað við reiknings-
lok í endurgreiðslur til kaupfél-
aga og frystihúsa 85,3 milljónum,
í birgðavarasjóð 132,9 milljónum
og í flýtifyrningar á fastafjár-
munum 33,1 milljón. Tekjuaf-
gangur til ráðstöfunar á aðalfundi
SÍS er því 125,6 milljónir króna.
Fjárfestingar Sambandsins á sl.
ári námu 866 milljónum króna og
er hlutur Iðnaðardeildarinnar á
Akureyri og nýrrar birgðastöðvar,
SÍS við Elliðavog stærstur. Hjá
Iðnaðardeildinni var samtals fjár-
fest fyrír 375,2 milljónir króna og
í Holtagörðum, hinni nýju birgða-
stöð, var fjárfest fyrir 372,6 millj-
ónir króna en hlutdeild þessara
tveggja fjárfestinga er um 86% af
heildarfjárfestingu SÍS í fyrra.
Af einstökum deildum SÍS var
veltan mest hjá Sjávarafurða-
deild eða rúmir 8,7 milljarðar
króna, næst í röðinni kemur Bú-
vörudeild með 6,7 milljarða, þá
Innflutningsdeild með 6,3 millj-
arða en alls eru deildir SÍS sjö.
— Belgrad
ráðstefna
Framhald af bls. 1
Carter sagði á blaðamanna-
fundi I Washington, að Sovét-
stjórnin hefði sakað sig um
íhlutun I sovézk innanrtkismál
og bætti við: „Þannig verður
það.“
Belgradfundinn sitja nú hátt-
settir embættismenn þátttöku-
þjóða, en allir æðstu leiðtogar
þjóðanna sátu Helsinkifund-
inn. Gert er ráð fyrir að ráð-
stefnan muni standa í margar
vikur.