Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28 JUNI 1977
Iðnkynning á Selfossi — Iðnkynning á Selfossi — Iðnkynning á Selfossi — Iðnkynni
Iðnkynning á Selfossi 65
iðnfyrirtæki í 3000 manna
bæ....111ÍSLENZK iðn-
kynning, hin 6. í röðinni,
var haldin á Selfossi fyrir
nokkru og hinn 16. júní s.l.
var þar „Dauu iðnaðarins"
og við það tækifæri heim-
sóttu ýmsir forystumenn
iðnaðarins Selfoss ásamt
iðnaðarráðherra, Gunnari
Thoroddsen, og kona hans,
Völu Ásgeirsdóttur Thor-
oddsen.
Af helztu dagskráatriðum
dags iðnaðarins á Selfossi
má nefna heimsóknir i fyrir-
tæki að morgni dags og var
fyrst litið við i Mjólkurbúi
Flóamanna þar sem þeginn
var morgunverður eftir að
fyrirtækið hafði verið skoðað.
Siðan var farið í smiðjur
Kaupfélags Árnesinga, þ.e.
bifreiðaverkstæði, renniverk-
stæði og trésmiðju og þá í
trémiðjuna Selós. Síðasta
fyrirtækið, sem heimsótt var
á Selfossi var Sláturfélag
Suðurlands þar sem gestum
gafst kosturá að fylgjast með
stórgripaslátrun
Frú Vala og Gunnar Thoroddsen skoBa hér hvar veriB er a8 sauma saman spón, sem ð a8 fara ð hansahillur hjð
trósmiðjunni Selós s.f.
65 iðnfyrirtæki í
3000 manna bæ
hljóðnuðu um aldamótin",
eins og hann komst að orði.
Sagði hann að á Selfossi
störfuðu 42% vinnandi fólks,
við iðnað en á landinu í heild
væri þessi tala 32,4% og því
væri iðnaður á Selfossi meiri
en víðast annars staðar á
landinu. Þá sagði hann sögu
um útibústjóra Landsbanka
íslands, sem hann sagðist
hafa eitt sinn heyrt, að hann
hefði veriðá gangi um þorpið
til að athuga hvort einhver
þyrfti ekki á láni að halda og
sagði Óli Þ. Guðbjartsson, að
ef það gilti enn þá hlökkuðu
menn til haustsins er
Iðnaðarbanki tæki til starfa á
Selfossi. Að lokum sagðist
Óli Þ. Guðbjartsson vona, að
vel tækist til með að nota þau
iðnaðartækifæri, sem byðust
á Selfossi.
Einar Elíasson,
framkvæmdastjóri, sagði að
margt gott væri hægt að
segja um iðnkynningu og
sýninguna, en ,,betur má ef
duga skal" og iðnaður ætti
við margs konar samkeppni
að strlða og að mörgu leyti
væri auðveldara að taka sér
störf hjá þvl opinbera en
..basla við að koma á fót
iðnaði", sagði Einar, „það fer
enginn í skóla til að læra að
Á iSnsýningunni é Selfossi gafst kostur é a8 bragSa á ýmsum smákjötrétt-
um hjá Sláturfélagi SuSurlands.
Þeginn var hádegisverður í
boði sveitarstjórnar Selfoss
og þar afhenti Sigurður Jóns-
son frkv.stj iðnkynningar á
Selfossi, viðurkenningu fyrir
snyrtilegustu iðnaðarlóðma á
Selfossi og kom hún i hlut
trésmiðjunnar Selóss s.f. og
sagði Sigurður, að það væri
vegna snyrtilegrar lóðar og
góðrar lýsingar Afhenti hann
síðan Hilmari Þ, Björnssyni,
einum eigendum trésmiðj-
unnar, farandbikar, sem
Junior Chamber hefur gefið.
Þá fengu einnig viðurkenn-
ingu Mjólkurbú Flóamanna
og Sláturfélag Suðurlands.
Þessi viðurkenning, sem nú
er veitt i fyrsta sinn, verður
siðan veitt 1 7. júní ár hvert.
í Gagnfræðaskóla Selfoss
var opnuð iðnsýning og þar
sýndu alls 25 fyrirtæki fram-
leiðslu sína, en alls eru á
Selfossi starfandi um 65 iðn-
fyrirtæki. Guðmundur Jóns-
son, skósmiður, flutti ávarp
við opnun sýningarinnar og
rakti hann þar nokkuð sögu
bæjarins og þá þróun, sem
þar hefur orðið i atvinnu- og
byggðamálum. Gestir skoð-
uðu síðan sýninguna og
þágu að bragða á matvöru,
sem matvælafyrirtæki buðu.
Siðdegis var fundur um
iðnaðarmál og þar flutti
Gunnar Thoroddsen ávarp
og síðan framsögumenn er-
indi, þeir Bragi Hannesson,
bankastjóri, Óli Þ Guðbjarts-
son, oddviti, og Einar Elías-
son, framkvæmdastjóri í
ávarpi Gunnars Thorodd-
sens, kom það m.a. fram að
síðar á árinu tekur til starfa á
Selfossi nýtt útbú Iðnaðar-
bankans, en leyfi fyrir því var
veitt í febrúar s.l. Siðar
minnti ráðherra á mikilvægi
íslenzks iðnaðar, ekki sizt á
Selfossi þar sem hann veitti
flest ný atvinnutækifæri, og
lét hann í Ijós þá ósk að
iðnaðurinn mætti eflast og
taka við því fólki á næstunni
sem á þyrfti að halda og
oékaði iðnaði Selfyssinga vel-
farnaðar.
Bragi Hannesson, banka-
stjóri, sagði m.a. í ræðu sinni
að það væri fróðlegt að bera
saman tölur um fjölda fólks í
frumvinnslu- og úrvinnsluat-
vinnugreinum á ýmsum tím-
um. T.d. hefðu 33% starf-
andi fólks verið við þjónustu-
störf 1940 en 1975 væru
það 45% og að þróunin væri
sú að fólk flyttist frá frum-
vinnslugreinum til úrvinnslu-
og þjónustugreina
Óli Þ. Guðbjartsson þakk-
aði starfsmönnum iðn-
kynningar fyrir vel unnin
störf og sagði að iðnaður
hefði alla tíð verið snar þáttur
í atvinnulífknu á Selfossi,
„allt frá því er hamarshögg
brúarsmiðanna á Ölfusá
standa í atvinnurekstri".
Sagði Einar að betur þyrfti að
búa að iðnaðinum varðandi
tollamál og t.d. farmgjöld.
Degi iðnaðarins á Selfossi
lauk með móttöku iðnaðar-
ráðherra og þar heiðruðu
samtök iðnaðarins nokkra af
elztu starfsmönnum í iðnaði
og elztu iðnaðarmenn á Sel-
fossi og nokkrum iðnfyrir-
tækjum voru veittar viður-
kenningar, svo og starfs-
mönnum iðnkynningar-
nefndar Selfoss.
ForráBamenn trésmiSjunnsr Selóss s.f., Stefán Jónsson, Hilmar Þ. Björns-
son og SkarphéSinn Sveinsson, en fyrirtæki þeirra hlaut farandbikar fyrir
snyrtilegustu iðnaðarlóSina á Selfossi.
TrésmiSjur eru margar á Selfossi og vinna margar jöfnum höndum a8 smfSi innréttinga og
húsbyggingum. Þetta er frá sýningardeild TrésmiSju Kaupfélags Arnesinga.
Wm 1
Grétar Sfmonarson. framkvæmdastjóri Mjólkurbús Flóamanna, sýnir Gunnari Thoroddsen
hvar veriS er a8 setja Ými f dósir. Lj6sm Kristinn.