Morgunblaðið - 28.06.1977, Síða 17

Morgunblaðið - 28.06.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1977 17 Jóhannes Helgi: SVAVAR Gestsson fjallar í síðasta helgarblaði Þjóðvilj- ans allsvakalega um okkur fimmmenningana sem fyrir skömmu fordæmdum hér I blaðinu hugmynd nýafstað- ins norræns rithöfundaþings um fjárstreymi frá norður- löndum I væntanlegan „málfrelsissjóð," öðru nafni fúkyrðasjóð, sem ætlað er það að greiða meiðyrðasektir skítkastara í íslenskum blöð- um. Maður hélt að ekki þyrfti neina mannvitsbrekku til að sjá að hugmyndin er svo frá- leit að engu tali tekur. Hvern- ig halda menn að æra manna t þessu landi yrði leikin, ef mannorðsmorðingjar sem nóg virðist til af hér í seinni tíð, gætu fyrirfram gengið að því sem vísu að innlendir og erlendir sjóðir borguðu brús- ann jafnskjótt og dómar gengu í meiðyrðamálum? Næsta skref yrði væntanlega að stofna leynilegan samnor- rænan tollsvikasjóð og loks almennan lögbrotasjóð. Það virðist ekki heldur þurfa neinar mannvitsbrekk- ur til að sjá óviðurkvæmilegt orðfæri I blöðum, og seyðið sem fúkyrðasmiðir súpa af því, koma Rithöfundasam- bandi íslands ekki nokkurn skapaðan hlut við, ekki frek- ar en það kemur Dagsbrún við, Blaðamannafélaginu eða Læknafélagi íslands. (Einn hinna lögsóttu er læknir). Mér er ekki kunnugt um að formaður síðarnefnda félags- ins hafi blandað félaginu I það mál og klagað á erlend- um læknaráðstefnum. Rit- höfundasamband íslands dróst á sínum tíma um hrlð inn I þetta mál vegna þess að formaður þess, Sig. A. Magnússon og kollegi hans Einar Bragi, skildu ekki hvar mörk einkamála þeirra og Rithöfundasambandsins lágu — og Sigurður klagaði I Nor- egi, en þeir biðu þá — og bíða kannski enn — dóms fyrir meiðyrði. Það breitir engu hvort meiðyrðin eru tengd VL-málunum svoköll- uðu eða einhverjum öðrum málum. Rithöfundasamband íslands er stéttarfélag, rétt eins og Dagsbrún og Lækna- félagið, og meðlimir þessara félaga eru ýmist með eða móti vörnum landsins. Af- staða félagsstjórna með öðr- um hvorum málsaðila jafn- gildir þvl að kljúfa stéttarfél- agið, ganga af þvl dauðu. Persónuleg afstaða okkar fimmenninganna til undir- skriftasöfnunar Varins lands kemur þessu máli ekki við. Það er einfaldlega og af aug- Ijósum ástæðum ekki I verka- hring stjórnar stéttarfélags okkar rithöfunda að taka af- stöðu með eða móti undir- skriftunum og meiðyrðamál- unum sem af þeim spruttu. Menn þurfa að vera ófor- betranlegir þverhausar til að skilja ekki svo einfaldan hlut. Ég hef ekkert við það að athuga að menn finni þörf hjá sér til að safna undir- skriftum um áframhaldandi veru hermanna I landinu, það kemur ekki mál við mig, ekki heldur undirskriftasöfn- un með hið gagnstæða að markmiði. Ég fæ ekki betur séð en undirskriftasafnanir um allt sem nöfnum tjáir að nefna heyri undir almenn mannréttindi, en hitt er jafn augljóst að þeir sem bregðast við sllku með ærumeiðingum þurfa sárlega á að halda þeirri ögun sem felst I því að þurfa að reiða af hendi hóf- legar miskabætur. Og það er ekki aðeins mál þeirra sem fyrir fúkyrðum verða. Ragn og fúkyrði er ein grein meng- unar — og við henni þarf að stemma stigu einsog annarri mengun. Lög úreldast eins og önnur mannanna verk, ganga sértil húðar- og íslenska meiðyrða- löggjöfin er orðin gömul og þarf áreiðanlega endurskoð- unar við, og svo er um fleiri íslenskar lagasetningar. ís- lenskir dómarar vita þetta manna best — enda hafa þeir beitt ákvæðum meið- yrðalöggjafarinnar mjög vægilega, og ný löggjöf yrði tæpast vægari en sú gamla er I reynd. Og þvl er sá sem níðir íslenzkt dómsvald á er- lendri grund vargur I véum og maður að minni og als- endis ófær um að gegna for- mennsku I stéttarfélagi. Ritstjóri Þjóðviljans kveður okkur fimmmenningana leigupenna og þræla Morgunblaðsins, ætlð tiltæka að ganga erinda blaðsins. Það munar ekki um það. Það er ekki seinna vænna en að ég upplýsi ritstjórann um það, að það var mishermi I aðfararorðum skrifa okkar um „málfrelsissjóðinn" I Morgunblaðinu, að blaðið hefði leitað álits okkar. Einn úr okkar hópi hafði samband við ritstjórn blaðsins og æskti rúms undir athugasemdir okkar — af því að við vildum slá skjaldborg um einingu hins unga stéttarfélags okk- ar. Sllk púðurtunna er ágreiningurinn um varnir landsins jafnt I félagi okkar sem öðrum félögum og með- al þjóðarinnar allrar Ekkert stéttarfélag — sem öfga- menn ná að læsa klónum I — verður langra lífdaga auð- ið, og það var með herkjum að tókst I hitteðfyrra að sam- eina gömlu rithöfundafélögin tvö undir einn hatt, Rithöf- undasamband íslands — og þar innti Sigurður A. Magn- ússon óneitanlega af hönd- um gott starf, og þeim mun óskiljanlegra var brambolt hans með VL-málin inn I fé- lagið, og ekki honum að þakka að félögin urðu ekki aftur tvö talsins, framtíð bók- menntanna og hagsmunum höfunda til óbætanlegs tjóns. Og hver er leigupenni og hver ekki? Sá er munurinn á okkur fimmmenningunum og Svavari Gestssyni að hann skrifar fyrir borgun um þessi mál, en við ekki — og liggjum undir aurkasti i ábæti og látum okkur það raunar I léttu rúmi liggja. Við reynum að lafa I því að vera frjáls- lyndir höfundar og erum ekki á klafa hjá neinum stjórn- málaflokki og göngum að- eins erinda sannfæringar okkar um hvað sé rétt og hvað rangt. Ef einhver er leigupenni — þá er það miklu fremur Svavar Gests- son — sem skrifar — að minnsta kosti að hluta — það sem honum er skipað að skrifa. Og ef trúboðið á Þjóð- viljanum heldur að við fáum borgað I fríðu, þá gefst þeim söfnuði kostur á seinna á árinu að að glugga I úttekt I fjárveitingum til rithöfunda slðan lýðveldið var stofnað, byggða á gögnum sem menntamálaráðuneytið heimilaði mér að fá I ríkisbók- haldinu, og birt verður I fjöl- miðlum umreiknuðá nútíma- gengi krónunnar. Þá mun koma I Ijós að hlöðukálfar lýðveldisins I rithöfundastétt eru rithöfundar úr hinni þjóð- hollu sveit Þjóðviljans, engir sjóðir undanskildir, lista- mannalaunin, starfslauna- sjóður menntamálaráðuneyt- isins, launasjóður rithöfunda, viðbótarritlaunin Sællar minningar, ferðastyrkir menningarsjóðs o.s.frv., allir sjóðir sem rithöfundar eiga innangengt I iðju sinni til framdráttar. Ný skilgreining á því hverjir séu leigupennar er þess vegna kannski ekki svo ýkja langt undan, ef nauðsynlegt er að klína þvl skammaryrði á einhverja úr minni stétt. Vlsasti vegurinn til ryktis og fjár hefur hingað til verið þjónusta við Þjóðvilj- ann, og goðsagnarverk- smiðja I endurgjaldsskyni verið keyrð nótt sem nýtan dag I áratugi. Jafnvel draug- fullir heima og heiman hafa goðsagnasmiðirnir og goð- sagnapersónurnar aldrei slegið slöku við þessa arð- sömu iðju. ( þessu landi virð- ast orðið búa tvær þjóðir, minnihlutahópurinn sem I hjarta sinu finnur til sam- stöðu með hermdarverka- mönnum sem synda I blóði, og svo allir hinir, yfirgnæf- andi meirihluti Islendinga, sem metur menn af verkum sínum og þeim einum. En það er orðið brýnt að rann- saka ofan I kjölinn hvernig þessum minnihluta hefur tekist að koma ár sinni svo vel fyrir borð sem raun ber vitni — I menntabrunnum þjóðarinnar. Hitt er ekkert rannsóknarefni, það liggur I augum uppi, hvernig vænir menn á borð við Svavar Gestsson taka bersýnilegan skaða af langvinnri dvöl I andrúmslofti Þjóðviljans. Læt ég svo útrætt um þetta mál, ég hef annað þarf- ara við tímann að gera. Hver jir eru leigupennar? Svona eiga bilar að vera! Það er auðvelt að f ramleiða f rábæran bil Hann þarf aðeins að vera miklu betri en allir hinir Suðurlandsbraut 16*Simi 35200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.