Morgunblaðið - 28.06.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1977
31
Al'(il,VSIN(iASÍMiNN KR:
22480
JRarflunbTnbiÖ
Óvidunandi
samgöngur
Júní 1977
Siðan i janúar á liðnum vetri
hefur tíðarfar verið mjög gott og
muna elztu menn ekki eftir svo
góðum vetri.
Hér kom aldrei snjór nema á
gamlaárskvöld og nýjársnótt, en
þá var mikil snjókoma og storm-
ur. Vorið hefur verið fremur kalt,
en sólríkt. Gróður er með minna
móti í úthaga á þessum tíma árs.
Sauðburður hefur gengið
frekar vel þegar á heildina er litið
og hey voru næg í sveitinni.
Bændur gáfu búfé mikinn fóöur-
bæti á liðnum vetri vegna slæmra
heyja.
Nú höfum við engan dýralækni
í héraðinu eins og stendur. Valdi-
mar Brynjólfsson, dýralæknirinn
okkar, sem setið hefur í Stykkis-
hólmi, fór til Noregs með fjöl-
skyldu sina um mánaðamótin
febrúar/ marz og kemur hann
með fjölskyldu sína heim aftur
væntanlega í júní.
Valdimar vinnur mest á júgur-
bólgnarannsóknastofu og einnig
fer hann út í sveitir og kynnir sér
baráttuaðfeðir Norðmanna gegn
júgurbólgusjúkdómum, og einnig
öörum dýrasjúkdómum.
Þótt við bændur á Snæfeilsnesi
höfum verið dýralæknislausir
þennan tima sem Valdimar er
fjarverandi og saknað hans, þá
getum við glaðzt yfir því að fá
hann bráðlega heim aftur með
meiri þekkingu á dýrasjúk-
dómum en áður og þá sérstaklega
júgurbólgu, en júgurbólgan hefur
veriö mikill skaðvaldur í kúm
bænda og valdið miklu afurða-
tjóni.
Vegamál
Við búum við slæman veg og
slæmar samgöngur eins og fyrr,
en þó hefur þokað nokkuð á betri
Skoðun þeirra Gunnhildar og
Rannveigar er sú, að ástandinu í
þessum málum hjá okkur íslend-
ingum í dag sé á ýmsan hátt
ábótavant, því þótt allir vilji í
raun gera sitt besta þá vinni um
of hver í sínu horni. t Danmörku
finnst þeim skipulag þjónustu við
aldraöa til fyrirmyndar. Þar er
innlögn á stofnun jafnan metin á
grundvelli þess hver hefur mesta
þörf fyrir innlagningu hverju
sinni en ekki eftir röð á biðlista.
Þetta veldur því að biðlistar hafa
horfið að mestu og meðallegutim-
inn á hjúkrunarheimili er 3—4
ár. Þetta skipulag kemur lfka i
veg fyrir að plássin verói setin af
fólki sem ekki þarf þeirra með í
raun. Reglur þessar og starfsað-
ferðir gilda jafnt hvort heldur
um er að ræða opinberar — eða
sjálfseignarstofnanir Dana.
HÓTEL SAGA
Þessa dagana er verið að taka I
notkun aukið gistirými á Hótel
Sögu, og bætast við 25 tveggja
manna herbergi á fjórðu hæð
hússins, þar sem áður voru
skrifstofur Flugfélags tslands.
t gær voru 2/3 hlutar herbergj-
anna teknir I notkun og þau
sem enn eru ekki tilbúin verða
tekin I notkun á næstunni. Með
þessari viðbót gistirýmis auk-
ast gistinætur á Hótel Sögu um
1500 á mánuði.
Á myndinni sést Wilhelm
Wessmann aðstoðarhótelstjóri
I einu herbergjanna, en þau
eru búin vönduðum húsgögn-
um og teppi á gólfi eru frá
Álafossi.
Ljósm. Mbl.. Ól.K.M.
Elín Eggerz-Stefánsson:
er inni á heimili fjölskyldu eða
einn i ibúð. Nefndir eru ýmsir
mismunandi valkostir og þjón-
ustuþættir sem vissulega eru þeg-
ar vel þekktir meðal margra hér-
lendis, cn fleiri mættu vel að
hyggja, hvort heldur eru einstak-
lingar, hópar eða stofnanir sem
um þessi mál fjalla og visast hér
með til Tímarits Hjúkrunarfélags
tslands, 2 tbl. 1977 til nánari
kynna.
Hafnarfirði 13. júní 1977
Elfn Eggerz-Stefánsson
veg með Utnesveg, því að á sl.
hausti var stórbættur vegakaflinn
í Breiðuvík milli Hnausahrauns
og Litla-Kambs, einnig var vegur-
inn i gegnum Hellnapláss
hækkaöur mikið.
Það er nú mjög aðkallandi að
keyra ofaníburð í Utnesveg á stór-
urn köflum, viða eru hraunvegir
orönir svo berir að ekkert er eftir
af ofaniburði, og verður að-keyra
eftir beru hraungrýti og klöpp-
urn. Þetta fer rnjög illa með bílana
og er ekki hægt að segja að vegur-
inn sé ökufær.
Nú er mesti umferðartími árs-
ins að hefjast og vil ég því nota
tækifæriö og skora á vegaþjónust-
una að bæta úr þessu vegaástandi
hið allra bráðasta.
Um samgöngurnar er það að
segja, að þær eru alveg óviðun-
andi, þar sem sérleyfishafi fyrir
Snæfellsnes veitir enga þjónustu
hér i sveil. Sérleyfið hafði ferðir
einu sinni í viku til og frá Heiðar-
kasti hér um sveitina, en svo voru
þessar ferðir lagðar niður af ein-
hverjum ástæðum.
Þaö eru mikil óþægindi og
kostnaðarauki fyrir þaö fólk, sem
þarf að fara í eða úr Breiðuvíkur-
hreppi, að þurfa að kaupa sér bíl
til að komast leiðar sinnar.
Út þessu verður samgöngu-
málaráðuneytið að bæta hið bráð-
asta.
Utgerð
Hér á Hellnum og Arnarstapa
hefur verið róið á trillum með
handfæri i vor eins og áður. 4
bátar hafa róið frá Hellnum og 5
frá Arnarstapa. Afli hefur verið
mjög sæmilegur og gæftir góðar.
Þorgeir Arnason i Rifi við Hellis-
sand hefur keypt fisk af 5 bálurn
upp úr sjó og sótt hann sjálfur.
Hann verkar fiskinn i skreið.
Finnhogi <;. Fárusson
Ætla má að hjá okkur íslend-
ingum yrði mikil bót að stórefldri
samvinnu heilbrigðis- og félags-
málastofnana í þágu aldraðra, sér-
staklega með það í huga hversu
stórstígar og þakklætisverðar
framfarir nú eiga sér viða stað
(oft með Dani, Þjóðverja o.fl. ná-
granna að fyrirmynd) og má
nefna starfsemi á vegum braut-
ryðjandans Gisla Sigurbjörnsson-
ar, eða til hliðsjónar starfsemi
rekstraraðiia Dvalarheimilis aldr-
aðra að Hrafnistu í Reykjavík og
Hafnarfirði svo og framkvæmdir
og rekstur á vegum fjölda sveitar-
félaga viðs vegar um landið.
Framannefndir greinahöfund-
ar telja að endurmeta þurfi starf-
semi allra þeirra öldrunarstofn-
ana sem við þegar höfum til
Öldrunarhjúkrun
Nýlega birtust tvær mjög at-
hyglisverðar greinar I Tímariti
Hjúkrunarfélags Islands, er nefn-
ast „Stofnanir fyrir aldaða“ og
„Málefni eldra fólksins". Höfund-
ar greina þessara eru þær Gunn-
hildur Sigurðardóttir og Rann-
veig Þórólfsdóttir, hjúkrunarfor-
stjórar starfandi á sviði öldrunar-
hjúkrunar, og frásögn sína byggja
þær á fenginni reynslu i starfi
hérlendis svo og þvi sem fyrir bar
í kynnisferð til Kaupmannahafn-
ar á s.l. ári varðandi þjónustu í
þágu aldraðra þar.
Hringflug
Flugfélag íslands hagar áætlunum sínum svo að
þú getur farið flugleiðis fjórðunga á milli.
Sparað þér þann tíma og fyrirhöfn, sem bílferð
útheimtir og geymt kraftana til að skoða þig vel
um á hverjum stað. Það má gista á hóteli, hjá
vinum eða styðjast við tjaldið og svefnpokann.
Lent er á ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn
og í Reykjavík. Hringfluginu má ljúka á einni
viku, en frjálst er að dveljast lengur á hverjum
stað og skemmta sér að vild.
Jæja, nútímamaður, hvernig væri að fljúga
hringinn í sumar?
FLUCFÉLAC íSLANDS
INNANLANDSFLUG
bættrar nýtingar og auk þess sé
brýnt að koma upp nýjum sér-
deildum fyrir aldrað fólk með
mikla heilahrörnun. Þær benda
og á þörf meiri samræmingar og
aukins átaks til léttist fjölskyld-
um við að hafa eldra fólkið heima
sem lengst, hvort sem viðkomandi
Fréttabréf úr Breióuvíkurhreppi