Morgunblaðið - 20.08.1977, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. AGUST 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hellissandur Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl hjá umboðsmanni í síma 6741 og afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100. Jltaqjttitfrlftfrifr Kennara vantar Að Grunnskóla Patreksfjarðar. Æskilegar kennslugreinar eru: Handavinnukennsla pilta og stúlkna, tónmenntakennsla og almenn kennsla í 1. til 6. bekk. Upplýsingar gefa skólastjórinn Davíð Ingi- mundarson í síma 94—1 337 og formað- ur skólanefndar Sigurður Jónsson í síma 94 1122 Símavarsla Óskum eftir að ráða starfskraft til síma- vörslu fyrir hádegi. Vé/smiðjan Héðinn h / f Se/javegi 2 sími 24260
Atx/inna
Skrifstofustarf vélritun Viljum ráða sem fyrst ritara.í fullt starf Leikni í vélritun og góð móðurmálskunn- átta nauðsynleg. Umsóknir sendist í pósthólf 7080 fyrir 29. ágúst n.k. Búnaðarfé/ag /s/ands Bændahö/linni v/ Hagatorg.
Bókaforlag óskar eftir starfskrafti til úrkeyrslu og lagerstarfa. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 27. ágúst merkt „B —681 7." rnvii 11 ia meðeigandi Leitað er eftir meðeiganda að teiknistofu, sem þarf að bæta við sig verslunarfróðum starfskrafti, til að annast viðskipti vegna umboða, og reikningshald. Tilboð merkt: „Atvinna — meðeigandi", sendist í póst- hólf 6, 121 Reykjavík.
Læknaritari Læknaritari óskast á handlæknisdeild fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Upplýs- ingar í síma 221 00. 1. flokks ritari Óskum að ráða vélritara nú þegar. Um er að ræða almenna vélritun hjá stóru fyrir- tæki. Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 23. þ.m. merktar: „1. flokks ritari — 681 8".
Grunnskólinn á Kirkjubæjar- klaustri auglýsir eftir kennurum Einum kennara við 1.—3 bekk, opinn skóli. Tveim kennurum við 4,-—9 bekk, ýmsar greinar m.a. myndlist, handmennt og fl. Skólinn er vel búinn tækjum og um margt nýtízkulegur. Gott og ódýrt hús- næði. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 99- 7040
Ritari Stofnun í miðborginni óskar að ráða ritara með verzlunarskólapróf eða hliðstæða menntun. Góð kunnátta í ensku og að minnsta kosti einu norðurlandamáli nauð- synleg, ásamt góðri velritunarkunnáttu. Umsóknir sem tilgreina menntun, starfs- reynslu og fyrri störf sendist Mbl. merkt: „Ritari—4366."
Hafnarfjörður Okkur vantar starfskraft til barnagæslu. Einnig vantar starfskraft til ræstingar- starfa. Leikskó/i Jósepssystra Suðurgötu 44 Hafnarfirði
— Tugþúsunda
byggð
Framhald af bls. 13
í dag. Þegar haft er i huga aö á
þessum fáu árum mun um fjórð-
ungur Reykvíkinga koma sér fyr-
ir á þessu áður óbyggða svæði,
gengur það kraftaverki næst, að
svo stór byggð hafi risið á svo
skömmum tima með drjúgum
hluta þeirrar þjónustuaðstöðu,
sem þörf er á í slikri byggð. Slík-
ur hraði í uppbyggingu vitnar um
það, að þarna býr duglegt fólk,
sem lagt hefur á sig mikla vinnu,
til þess að koma upp húsnæði yfir
sig og sínar fjölskyldur. Framtak
einstaklinganna hefur hér skilað
sér í ótrúlegum afrekum þeirra
karla og kvenna, sem sköpuð
hefur verið aðstaða til athafna.
Uppbygging svo fjöimenns
hverfis á svo skömmum tíma hef-
ur að vísu leitt til þess að ýmsar
opinberar þjónustustofnanir eru
og verða síðbúnari íbúðabyggðun-
um, þrátt fyrir að þriðjungur
framkvæmdafjár borgarinnar
hafi verið varið í Breiðholtið und-
anfarið. Nýlega var úthlutaó í
Mjóddinni í Breiðholti I Ióðum
undir ýmiss konar slíka starf-
semi: heilsugæzlustöð, kirkju,
póst- og síma, lögreglustöð, banka,
veitingahús og kvikmyndahús,
svo nokkuð sé nefnt. Hér er um
mjög mikilvægar stofnanir að
ræða, sem vonandi-rísa sem fyrst.
Sérstaka áherzlu iegg ég á heilsu-
gæzlustöðina, sem á að þjóna
Breiðholti I og II. Því miður hef-
ur ekki enn fengizt fjárveiting frá
ríkinu til þessarar byggingar.
Vonandi verður það á næstu fjár-
lögum. Hönnun þessarar bygging-
ar er um það bil að Ijúka. Vegna
fjarlægðar Breiðholtsbyggða frá
öðrum borgarhlutum er mjög
knýjandi að þessi bygging rísi
sem allra fyrst.
0 Að lokum
Sp.: Hvað vilt þú segja I lokin,
Magnús.
í þessu spjalli hefur verið drep-
ið á fátt eitt, sem ég hefi haft
kynni og afskipti af sem borgar-
fulltrúi og borgarráðsmaður.
Borgarráð annast, ásamt borgar-
stjóra, framkvæmdastjórn borg-
arinnar. Seta í borgarráði hefur
gefið mér yfirsýn yfir margbreyti-
lega málaflokka, er borgarmálin
spanna, eins og eðlilegt er. Slík
yfirsýn er nauðsynleg til þess að
van- eða ofmeta ekki einn mála-
flokk á kostnað annars. Það hefur
verið ánægjulegt að starfa í borg-
arráði og borgarstjórn. Það skipt-
ast að sjálfsögðu á skin og skúrir í
sliku starfi, eftir því hversu vel
gengur að leysa úr vanda þeirra,
sem manns leita. Ég hefi sem
borgarfulltrúi komizt i nána
snertingu við mikil vandamál
fólks í sambandi við húsnæðis-
mál. Þó mikið hafi verið byggt að
undanförnu og húsakostur fólks
fari sifellt batnandi, þá eru marg-
ir enn i brýnni þörf fyrir bætt
húsnæði, en eins og ég sagði áðan,
er húsnæði frumþörf hvers
manns. __sf.
— Frystihúsin
Framhald af bls. 32
húss Ölafsvikur. „Við neyðumst
því til að stiga það óskemmtilega
skref að senda starfsfólki okkar
uppsagnarbréf eftir helgina og
miða uppsögnina við mánaðamót-
in“.
Guðmundur sagði, að segja
mætti að Ölafsvik, Hellissandur
og Grundarfjörður byggðu af-
komu sína svo til alfaríð á útgerð-
inni. Hins vegar hefðu þeir í
Stykkishólmi hörpudiskinn og
Grundfirðingar eitthvað af rækju
og sagðist hann skilja menn svo,
að grundvöllur væri til að halda
þeirri útgerð áfram. „En það er
ekki bara það, að hraðfrystihúsin
stöðvist“, sagði Guðmundur.
„Bátaflotinn stöðvast svo af sjálfu
sér, því ég fæ ekki séð hvernig
söltunarstöðvarnar ætla að kom-
ast af með þann fisk, sem þær
ekki geta tekið í salt. Ég held að
þetta verði algjör lömun, ef til
þessa kemur.
Guðmundur sagði, að Harð-
frystihús Ólafsvikur hefði ekki
getað greitt starfsfólkinu laun sin
í gær og sagði hann ekki hægt að
bjóða fólkinu upp á það, þegar
ekki væri einu sinni hægt að gefa
loforð um greiðslu síðar. „Ég hef
heyrt það hjá viðskiptavinum Ut-
vegsbankans, að hann hafi ætlað
að bjarga þeim um vinnulaunin í
dag, en eftir það er allt i óvissu
hjá þeim líka.
Guðmundur kvaðst vilja mót-
mæla þeim röddum, sem fram
hefðu komið um að frystihúsa-
menn væru að biðja um gengis-
fellingu.
„Gengisfellingin er ekki lausn-
in, a.m.k. er það ekki okkar að
benda á hana“, sagði Guðmundur.
„Ég held að það megi þá allt eins
benda á einhverjar millifærslur
til lausnar vandanum."
„Obbinn af fólkinu i íshúsunum
hér í Grindavik er nú ekki fast-
ráðinn, þannig að við þurfum
ekki að senda því uppsagnir með
neinum fyrirvara“, sagði Jón Guð-
mundsson, forstjóri Hraðfrysti-
húss Þórkötlusktaða hf„ í samtali
við Mbl. í gær.
„Það var nú rætt um það á
fundinum í Keflavik að húsin á
Reykjanesi stöðvuðust 27. ágúst
og reyndar er ekki víst að allir
haldi út þangað til, þegar hvorki
eru peningar til að greiða fólkinu
laun né kaupa fisk.“
Jón sagði, að menn ræddu það
sín á milli, að eitthvað yrði gert i
málunum, þannig að stöðvun
þyrfti ekki að koma til fram-
kvæmda um aðra helgi, „En ein-
hvern veginn hef ég það á tilfinn-
ingunni að menn flýti sér hægt
við að leysa þennan vanda“, sagði
Jón.
Jón sagði, að hjá Hraðfrystjhúsi
Þórkötlustaða og Hraðfrystihúsi
Grindavíkur ynnu hátt á annað
hundrað manns „í húsunum. Svo
stoppar flotinn auðvitað lika og að
auki eigum við hlut að tveimur
skuttogurum í Hafnarfirði. Við
ætlum einmitt að ræða það yfir
helgina, hvort við stöðvum togar-
ana eða látum þá sigla“.
„Við höfum ekki tekið afstöðu
til okkar aðgerða. Hins vegar höf-
um við ákveðið að hafa samflot og
við munum ræða málin á fundum
um helgina", sagði Stefán
Runólfsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum.
Stefán sagði, að hraðfrystihúsin
í Eyjum hefðu getað greitt starfs-
fólkinu laun í dag. „Við sluppum
fyrir horn með launagreiðslurnar,
en ekkert annað“.
Þegar Mbl. spurði Stefán, hvort
ástand húsanna í Eyjum væri
svipað og annars staðar, að 29.
ágúst væri sá dagur, sem menn
miðuðu við, svaraði hann. „Við
höfum nú ekki neina ákveðna
dagsetningu á þessu, En þó við
höfum sloppið með launin þennan
ganginn, þá vitum við ekki, hvað
verður næst, þannig að mér sýnist
allt stefna í stöðvun um mánaða-
mótin.“
„Það hefur engin ákvörðun ver-
ið tekin í þessa átt ennþá“, sagði
Guðmundur R. Ingvason fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar, er Mbl. spurði
hann, hvort uppsagnir starfsfólks
hefðu verið ræddar í stjórn fyrir-
tækisins.
„Hins vr er ástandið mjög
slæmt hjá okkur og ekkert betra
en annars staðar", sagði Guð-
mundur.
— Laugaland
Framhald af bls. 32
Þá sagði Helgi, að það yrði ekki
fyrr en eftir 4—5 ár, sem Akur-
eyrarbær þyrfti 300—320 sek.
lítra vatns.
Helgi Bergs kvað fyrstu holuna
á Laugalandi hafa gefið mikíð af
sér, en hola nr. 2 hefði verið mjög
slöpp. Síðan hefði þriðja holan
gefið mikið vatn af sér og svo
hefði stóra holan komið sem væri
2800 metrar að dýpt, og gæfi litið
sem ekkert af sér.
— Við erum nú byrjaðir að
bora við Grisará, með bornum
Dofra, og er hann nú kominn á
700 metra dýpi, en stefnt er að þvi
að fara niður á 1800—2200 metra
dýpi. Nú þegar hefur lítillega orð-
ið vart við vatn á þessu svæði, en
hins vegar verður ekki ljóst
hversu mikið það er fyrr en kom-
ið er lengra niður, sagði Helgi.
Að lokum sagði hann, að nú
væri verið að stinga út nýja holu
við Laugaland, en þangað yrði
Dofri fluttur þegar borun væri
lokið við Grisará. Þá kvað hann
hitaveituframkvæmdir ganga vel
á Akureyri.
— Kína
Framhald af bls. 1
væg ræða var flutt af Yeh Chien
Ying, að þvi er segir i óstaðfestum
fregnum.
Jafnskjótt og hinu almenna
flokksþingi lýkur mun miðstjórn
flokksins koma saman og telja
stjórnmálafréttaritarar sennilegt
að sá fundur sé hafinn.
— Engin
Framhald af bls. 1
Ijóst að vinsemd sé meiri en fyrr mill-
um þessara þjóða og Sovétmenn hafi
látið af þeirri tregðu sem þeir sýndu
við því að Júgóslavar fylgi stefnu veru-
lega frábrugðinm stefnu Sovétríkjanna,
bæði í innanrikis og utanríkismálum
Ekki var i yfirlýsingunni vikið berum
orðum að umræðunni sem hefur orðið
um evrópukommúnismann. en talið er
þó vist að leiðtogarnir hafi fjallað um
málið Síðan eru mjög ákveðnar yfir-
lý ingar um aukna samvinnu, eflingu
vináttu og fleira i þeim anda
— Þingmaður
Framhald af bls. 1
regluna sem slíka en ekki einstaka
starfsmenn.
Síðan gerðist það að ríkissaksókn-
arinn Dorenfeldt ákvað að ákæra
Unneberg fyrir ærumeiðingar Sam-
kvæmt norskum lögum getur Unne-
berg átt yfir höfðu sér allt að 3ja ára
íangelsisdóm, verði hann sekur
tundinn Viðbrögð við þessari
ákvörðun saksóknarans hafa orðið á
ýmsa lund Margir stjórnmálamenn
hafa gagnrýnt hana og eins margir
þekktir lögfræðingar