Morgunblaðið - 04.10.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1977
ÞAÐ SEM af er þessu ári hafa
67 Islendingar láti/.t af völdum
slysa, en á sama tíma í fyrra
hufóu 56 Islendingar látizt af
sl.vsförum. Sá tími er nú fer í
hönd hefur undanfarin ár verið
inesti slvsatími ársins. Létust
17 manns síðustu þrjá mánuði
ársins 1976, en 56 mánuðina
október, nóvemher og desem-
ber 1975. — I lok ársins 1975
gekk skelfileg slysaalda yfir,
en ekki er gott að segja hvað
olli henni, sagði Hannes Haf-
stein, framkvæmdastjóri Slysa-
varnafélags Islands, á fundi
með fréttamönnum í gær.
— Til að vel fari og okkur tak-
ist að forðast það að sagan end-
urtaki sig þurfum við á sam-
takamætti fjöldans að halda,
sagði Ifannes Hafstein.
Siðasti mánuður var niesli
slysamánuður þessa árs, en i
september urðu 14 banaslys. I
ár hafi 26 manns látið lífið af
völdum umferðarslysa, en 11
færri á sama tíma árið áður. 1
sjóslysum og drukknunum hafa
orðið 14 látið lífið það sem af er
þessu ári, en voru 31 á sama
tima í fyrra. Það ár drukknuðu
11 sjómenn, en þrjú fiskiskip
fórust og 3 féllu útbyrðis, siík
hörmuleg slys hafa engin orðið
í ár.
67 íslendingar hafa lát-
izt af slysförum á árinu
Mesti slysatíminn fer nú í hönd og 1975
urðu 36 banaslys 3 síðustu mánuði ársins
Hér fer á eftir skýrsla Slysa-
varnafélags íslands um bana-
slys það sem af er þessu ári:
„í sjóslysum og drukknunum
hafa 14 látið lífið það sem
af er þessu ári en voru 31 á
sama tíma árið 1976. Það ár
drukknuðu 11 sjómenn, er þrjú
fiskiskip fórust og 3 féllu út-
byrðis. Slík hörmuleg slys hafa
engin orðið i ár. 1 höfnum og
við land hafa 8 manns drukkn-
að eða sami fjöldi og árið áður.
I ám og vötnum hafa 4 drukkn-
að, tvö börn á aldrinum tveggja
og átta ára, einnig sami fjöldi
og 1976. í skurði, tjörn eða þró
drukknaði einn, ársgamalt
barn, i ár, en 4 slík banaslys
urðu árið áður, allt börn undir
10 ára aldri. Við aðrar aðstæður
en að framan greinir varð 1
banaslys og einnig árið áður. Í
þessum flokki banaslysa létu
samtals 37 (1 erl.) islendingar
lífið árið 1976.
Af völdum umferðarslysa
hafi 26 manns látiö lifið. Er þá
meðtalin ung stúlka, er lézt í
febrúar af völdum umferðar-
slyss i nóv. árið áður. Á sama
tíma árið 1976 höfðu 15 manns
látizt í umferðarslysum. í ár
hafa 6 börn og unglingar 14 ára
og yngrí látizt af völdum um-
ferðarslysa.
i umferðarslysum erlendis
hafa 2 ísl. látizt eins og árið
áður.
Þótt hér sé aðeins getið bana-
slysanna í umferðinni, sem
vissulega ætti að vekja hvern
einasta vegfarenda til umhugs-
unar og verða hvatning til að
takast á við hinn mikla vanda,
sem að steðjar, hvort heldur er
i þéttbýli eða úti á þjóðvegun-
um, þá má ekki gleyma hinum
mikla fjölda slasaðra, sem ligg-
ur bæklaður á sjúkrahúsum og
gjörgæzludeildum vikum, mán-
uðum og jafnvel árum saman
eftir umferðarslys. Umferðar-
slysin eru þess eðlis — þau
skilja eftir þau sár, sem seint
verða bætt. Hér þarf samtaka-
mátt fjöldans, ef vel á að fara.
Árið 1976 létust samtals 19
manns i umferðarslysum hér á
landi, og 2 íslendingar erlendis.
Af völdum þyrluslyss létuzt 2
ungir menn, en árið 1976 lét
enginn íslendingur lifíð í flug-
slysi.
í þeim flokki, er kallast ýmis
Framhald á bls. 29.
Tæp hálf milljón safn-
aðist á stofnfundinum
Góð sala
Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið:
VELBÁTURINN Jón Þórðarson
frá Patreksfirði seldi 37 lestir af
fiski i Bremerhaven i Þýzkalandi
í gærmorgun fyrir 67 þúsuns
mörk og var meðalskiptaverð á
kíló 119 krónur og veröur þetta að
teljast sæmilegasta sala. I dag
selja tvö skip í Þýzkalandi, Ársæll
Sigurðsson selur í Bremerhaven
og Rán i Cuxhaven, þá selur skut-
togarinn Guðmundur Jónsson
afla í Ostende í Belgíu í dag og er
það fyrsta sala íslenzk skips þar í
langan tíma.
r
Frá stofnfundi Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið.
LIÐLEGA 900 manns sóttu stofn-
fund Samtaka áhugafólks um
áfengisvandamál — SÁÁ —, sem
haldinn var í Háskólabíói s.l.
laugardag. Þar voru fluttar ræður
og ávörp og lögð fram drög að
lögum samtakanna. Samþykkt var
að efna til framhaldsstofnfundar
n.k. sunnudag og verður þar kosin
stjórn samtakanna og gengið frá
lögum. I lok fundarins á
iaugardag lögðu fundarmenn
fram 445.800 krónur í frjálsum
framlögum.
Fundarstjóri var Eggert G. Þor-
steinsson alþingismaður, en stutt
ávörp fluttu Matthías Bjarnason
heilbrigðisráðherra, Vilborg
Helgadóttir hjúkrunarkona, Skúli
Johnsen borgarlæknir, Hilmar
Helgason verslunarmaður,
Jóhannes Magnússon banka-
fulltrúi, Indriði Indriöason stór-
templar og Pétur Sigurðsson
alþingismaður.
I lok fundarins var samþykkt að
fela undirbúningsnefnd samtak-
anna að starfa áfram fram að
framhaldsstofnfundi, sem
ákveðið var að halda n.k. sunnu-
dag kl. 15.00 i Súlnasal Hótel
Sögu. Formaður undirbúnings-
nefndar er Hilmar Helgason.
Fram að framhaldsstofnfundi
geta einstaklingar, félög og
félagasamtök gerst aðilar að
stofnun samtakanna sem stofn-
félagar. Um 9000 manns hafa nú
þegar gengið í samtökin og mun
undirskriftasöfnun verða haldið
áfram fram að framhaldsstofn-
fundi.
Lézt á Spáni
vegna áverka
UNGUR íslenzkur piltur lézt
fyrir helgina í sjúkrahúsi á
Spáni, þar sem hann hafði verið
ferðalangur en hann fannst með
mikla áverka fyrir utan hótel sitt
snemma i sl. mánuði. Ekki er
Ijóst með hvaða hætti hann hlaut
þá áverka.
Ferðaskrifstofan, sem pilturinn
fór með, fékk staðfestingu á and-
láti hans sl. sunnudag, en þegar
Mbl. hafði samband við utanríkis-
ráðuneytið i gær voru fréttir af
láti hans ekki komnar þangað. Að
sögn Péturs Eggerz, sendiherra,
mun verða óskað lögreglurann-
sóknar á máli þessu og fylgzt með
þvi af hálfu ræöimanns íslands i
Malaga.
Friðrik Ólafsson:
„Hef ekki verið
neðstur á skákmóti
síðan ég var 15 ára”
„ÞAÐ ER víst óhætt að fullyrða,
að það er langt síðan mér hefur
gengið svona illa í skákmóti og ég
man ekki eftir að hafa verið
neðstur síðan ég var 15 ára,“ sagði
Friðrik Olafsson stórmeistari
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gærkvöldi í Hollandi.
Friðrik tefldi í gær við heims-
meistarann Karpov og tapaði.
Friðrik var með hvítt í skákinni
og lengi framan af var staðan
Útigangs-
ær í góð-
um holdum
(ioldingaholti 2. október —
ÁGÆTT tíðarfar hefur verið
hér um slóðir siðan i lok ágúst
og eru hey mikil og góð. Fjall-
ferðir gengu vel, en lömb eru
rétt i meðallagi.
I fjallferðinni fundu gangna-
menn nokkrar útigangsær,
sem hafa gengið úti allan
síðastliðinn vetur, voru ærnar
í mjög góðum holdum. Nokkr-
ar framkvæmdir eru hér í
sveitinni. T.d. er verið að
byggja íbúarhús á Skriðufelli,
nokkur gripahús eru i bygg-
ingu og við félagsheimilið Ár-
nes er verið reisa íbúðarhús
húsvarðar. fréiiaríiari
mjög flókin, en um síðir fónaði
Friðrik skiptamun. „Ég lét
Karpov snúa á mig í lokin og það
reyndist vera vitleysa af mér að
fórna skiptamuninum. Um tím-
ann er það að segja, að ég lenti
ekki i timahraki fyrr en i síðustu
leikjunum og reyndar vorum við
Framhald á bls. 29.
Kæra tilraun
til nauðgunar
TVÆR konur kærðu til lögregl-
unnar um helgina að tilraun
hefði verið gerð til að nauðga
þeim. I öðru tilfellinu tókst fljót-
lega að hafa uppi á árásarmann-
inum en í hinu tilfellinu hafði
hann ekki fundizt I gærkvöldi.
I fyrra tilfellinu var ung kona
að ' leið um Hljómskálagarðinn
um tvö-leytið aðfararnótt laugar-
dags, þegar maður réðst þar á
hana og vildi koma fram vilja
sínum. Konunni tókst við illan
leik að verjast ásókn hans og eftir
langa mæðu að slita sig lausa.
Kærði hún atburðinn þegar til
lögreglunnar og nokkru seinna
handtóku lögreglumenn grunsam-
legan mann, sem í Ijós kom að var
árásarmaðurinn.
Á sunnudag gaf sig fram við
lögregluna tæplega tvítug stúlka
og kærðu hún nauðgun. Sagðist
hún hafa verið i bil með tveimur
piltum að loknum dansleik og
hafði ökumaður verið allsgáður
en farþeginn töluvert ölvaður.
Ökumaður hefði síðan brugðið sér
frá og hefði þá hinn pilturinn
notað tímann, ráðizt á sig og feng-
ið vilja sínum framgengt áður en
henni tókst að slíta sig lausa og
komast undan. Rannsóknarlög-
reglan leitaði þessa árásarmanns i
gærkvöldi.
Sigurður Flygering
verkfrœðingur látinn
A SUNNUDAGINN, lézt á Landa-
kotsspitala Sigurður Flygenring
verkfræðingur, 79 ára gamall.
Hunn var verkfræðingur hjá
Reykjavíkurhöfn frá því á árinu
1932 og allt fram undir 1970.
Hann varð verkfræðingur árið
1924. Aður en hann réðst í þjón-
ustu Reykjavíkurhafnar var
Sigurður t.d. byggingafulltrúi í
Hafnarfirði og hér í Reykjavfk
hafði hann umsjón með byggingu
ýmissa stórhýsa, t.d. Austur-
bæjarskólans, Arnarhvols, Lands-
sfmahússins og Hótel Borgar.
Einnig hafði hann umsjón með
gerð bátahafnar vestur á Isafirði.
Siguróur var sonur Ágústs
Flygenrings álþingismanns og út-
gerðarmanns í Hafnarfirði og þar
fæddist Sigurður 28. júlí 1898.
Konu sína missti Sigurður fyrir
nokkrum árum. Hafði hann síð-
ustu árin átt við nokkra vanheilsu
að strfða.