Morgunblaðið - 04.10.1977, Page 24
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1977
Þegar um er að ræða nýsmiði eða endur-
nýjun í eldhúsi eða baði, er Formica það
besta sem völ er á!
Formica er fallegt og endist endalaust,
það vita þeir sem til þekkja.
Formica harðplast er þess vegna fjárfest-
ing sem borgar sig.
Mikið úrval lista og mynstra.
Lítið inn eða hringið.
G Þorsteinsson & Johnson h.f.
Ármúla 1. — Simi 8 55 33.
IFORMICA
SSSL. BRAND
laminated plastic
Bjóðum alls konar mannfagnaö velkominn.
Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi.
Veisluföng og veitingar aö yðar ósk.
Hafiö samband tímanlega.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR sími 22322
Ævisaga
séra Páls
Þorláks-
sonar
DR. PAUL H.T. Thorlaksson
læknir í Winniepeg hefur ákveð-
ið að beita sér fyrir útgáfu á
ævisögu séra Páls Þorlákssonar,
Jónssonar frá Stóru Tjörnum í
Ljósavatnsskarði. Vestanhafs hef-
ur þegar verið safnað miklu safni
heimilda um séra Pál, ýmsa ætt-
ingja hans og það tímahil er hér
um ræðir. Meðal þessara heim-
ilda er krikjubók séra Páls, er
hefur að geyma upplýsingar um
menn og kjör þeirra á hinum
fyrstu árum Islendinga í Amer-
(ku.
Séra Páll var einn af fyrstu
þjónandi prestum meðal ts-
lendinga vestanhafs og kunnur
fyrir forystu sína meðal landa
sinna á hinum erfiðu landnámsár-
um. Hann fæddist á Húsavík árið
1849 og dó i Norður-Dakota 1882.
Dr. Paul Thorlaksson hefur farið
þess á leit, að þeir, sem lesa þessa
frétt og kunna að hafa í fórum
sínum einhverjar heimildir,
einkabréf eða skjöl hafi samband
við sig. Mun biskupsskrifstofan i
Reykjavík veita slíkum gögnum
móttöku og koma þeim áleiðis.
Öminn
er
seztur
eftir irska rithcfund-
inn Jack Higgins í
þýðingu Ólafs Ólafs-
sonar, lcgfræðings.
Þessi afburða frá-
scgn, um starfsemi
þýzku leyniþjónust-
unnar, á enskri
grund, veturinn
1 943, er nú búið að
kvikmynda og er
verið að sýna hana
þessa dagana i
Hafnarbíói.
BÓKIN FÆST HJÁ
ÖLLUM
BÓKSÖLUM.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Leiftur h.f.
Sviðsmynd úr Grænjöxlum.
Helga Jónsdóttir í einu hlutverki Grænjaxla.
á landsbyggðina
„ÞAÐ ER búið að biðja um
Grænjaxla til Keflavikuí,
Hellu, Hvolsvallar og staða
víða um land," sagði
Stefán Baldursson um hið
nýja verk sem Þjóðleikhús-
ið sýnir nú og ætlað er til
sýninga í skólum landsins.
Næstu sýningar eru í kvöld
og tvö næstu kvöld í Breið-
holtsskóla, en miðar eru
seldir við innganginn.
Leikrit Péturs Gunnarsson-
ar, GRÆNJAXLAR, varfrum-
sýnt i Breiðholtsskóla en leik-
rit þetta samdi höfundur
ásamt Spilverki þjóðanna,
leikstjóra sýningarinnar og
leikþóp til sýninga í fram-
haldsskólum og víðar í leik-
ritinu er brugðið upp svip-
myndum úr lífi unglinga og
umhverfi og er það allt í
fremur gamansömum tón.
Ekki er um ræða samfelldan
söguþráð heldur er brugðið á
leik, leikarar og söngvarar
fara úr einu í annað, sýna
unglinga, samskipti þeirra
innbyrðis, við foreldra og
annað fólk. Leikstjóri sýning-
arinnar er Stefán Baldursson
og Sigurjón Jóhannsson hef-
ur haft umsjón með leikmynd
og búningum. Töluverð tón-
list er í sýningunni og hefur
Spilverk þjóðanna samið
hana og kemur jafnframt
fram í sýningunni, syngur og
leikur. Leikarar eru Helga
Jónsdóttir, Sigmundur Örn
i Arngrímsson, Þórhallur Sig-
1 urðsson og Þórunn Sigurðar-
dóttir en I Spilverkinu eru
Egill Ólafsson, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Sigurður Bjóla og
Valgeir Guðjónsson.
GRÆNJAXLAR taka um
eina og hálfa klukkustund í
flutningi og er verð aðgöngu-
miða hið sama og á skólasýn-
ingar Þjóðleikhússins 650
krónur. Fyrstu sýningarnar
eru í Breiðholtsskóla og eru
þær einkum ætlaðar nem-
endum framhaldsskólanna i
Breiðholti og foreldrum
þeirra en siðan verða sýning-
ar í öðrum framhaldsskólum
þar sem aðstæður leyfa elleg-
ar nemendum gefst kostur á
að heimsækja nærliggjandi
skóla eða sjá sýninguna á
sviði Þjóðleikhússins. Fer
slikt eftir samkomulagi og
aðstæðum hverju sinni.
Skólastjórar, nemendafélög
og félagssamtök, sem áhuga
hafa á að fá Grænjaxla til
sýningar geta haft samband
við skrifstofu Þjóðleikhúss-
ins.