Morgunblaðið - 04.10.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1977
þangað 28. ágOst til að leika á
móti liði Sovétmanna, furðaði
sig á þvi sem þarna var að sjá:
„Menningarmiðstöð, safn, nýtt
sjilkrahiis," sögðu þeir. „Það
sem þeir eru að gera þarna er
stórkostlegt...“
Vararæðismaður Sovétríkj-
anna kom með svörtu alpahúf-
una sína út úr brjóstsykurs-
græna húsinu sinu, þar sem
ávallt blaktir rauði fáninn með
hamar og sigð og tók hátiðlega
á móti þessari litlu sendinefnd.
Andrúmsloftið var gott við
hinn opinbera hádegisverð eft-
ir leikinn, þar sem úrslitin voru
0:0. I stuttrí ræðu af þvi tilefni
notaði vararæðismaðurinn
tækifærið til að minna á sigur
októberbyltingarinnar. Og taka
fram að þjóð hans hefði ekki i
hyggju neinar framkvæmdir
þarna, sem væru fjandsamlegar
Noregi.
„Við höfum enga ástæðu til
að ætla að svo sé,“ segja opin-
berir aðilar i Noregi. Samt sem
áður hafa Sovétmenn yfir að
ráða skammt frá Barentsburg
nútima þyrluvelli á sléttu er
heimskautastormarnir æða um,
og sem Norðmenn hafa stöðug-
ar gætur á. Þar eru fimm MI 8,
eins .og sú sem fórst í fyrra
mánuði. Þar sem þeir geta flutt
28 manns með 250 km hraða, þá
veitir það 1000 km athafna-
svæði.' Þessar þyrlur eru líka
oft að hringsöla yfir suðurhluta
eyjarinnar. án þess að beðið
hafi verið um leyfi. A loftmynd-
um Norðmanna sjást ekki nein
merki um hernaðarmannvirki,
en samkvæmt vissum upplýs-
ingum eru Sovétmenn grunaðir
um að hafa komið þarna fyrir
leitarkerfi til að finna kafbáta.
Hvað er undarlegt við það?
Andspænis, eða meðfram allri
Noregsströnd, var þegar upp úr
1960 komið fyrir Loran C kerfi,
vegna kjarnorkukafbáta vest-
rænna þjóða með kjarnaodda.
Það hafa tveir vinstri sinnaðir
norskir þingmenn nýlega upp-
lýst og byggja á leyniskýrslu:
saka þeir hið ameríska CIA um
að hafa kostað þær alfarið,
byggt þær og búið tækjum.
Varnarmálaráðherrann neitar
þessu. Þetta varð mikið kosn-
ingamál i Noregi fyrir kosning-
arnar 12. september. Þó að
Norðmenn hafi gerzt aðilar að
Atlantshafsbandalaginu 1949,
þá hafa þeir hafnað því að hafa
í landi sinu á friðartimum er-
lendar hersveitir og kjarnorku-
vopn.
Norðan við
70. breiddarbaug
Jafnframt því sem Norðmenn
nota nálarstungu-aðférðina við
að ná aftur fullum yfirráðum
yfir Spitzbergen, þá fara þeir
ákaflega gætilega í samskiptum
sinum við Sovétmenn. Margra
ára erfiðar samningaviðræður
hafa enn ekki leitt til sam-
komulags um skiptinguna á
Barentshafi, sem nær frá Mur-
mansk til Spitzbergens. Agrein-
ingurinn er um 156 þúsund fer-
kílómetra. Og það eru einhver
auðugustu fiskimið i heimi.
E.t.v. eru þau ekki síður auðug
af oliu. Johan Holst, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Noregs,
gefur þessa skýringu: „Moskva
óttast kannski að mikil umsvif
á landgrunninu norðan við 70.
breiddarbauginn hindri för
sovézkra herskipa út í norður-
höf.“
Norðmenn hafa aldrei viljað
að Austur og Vestur fari að
deila um Spitzbergen. Yfir því
vaka þeir mjög,' mjög nákvæm-
lega.
— Edouard Bailby
31eCONGRES
MONOAL
ODESCO
Snyrtisérfræðingar
á ráðstefnu 1 Monaco
ÁRLEG ráðstefna CIDESCO,
þ.e. alþjóðleg samtök snyrti-
sérfræðinga og snyrtivöru-
framleiðenda var nýlega hald-
in í Monaco. Ráðstefnuna
sóttu fulltrúar 24 aðildarsam-
taka viðsvegar að úr heimin-
um. Fulltrúar Félags islenzkra
snyrtisérfræðinga, sem er
aðili að samtökunum, voru
Ásta Hannesdóttir, Fanney
Halldórsdóttir og Birgitta
Engilberts.
Á ráðstefnum CIDESCO er
sameinast um að kynna
nýjungar og taekniframfarir í
formi fyrirlestra, verklegra
sýninga, og skipst er á
upplýsingum um athuganir og
reynslu í starfi.
Helstu mál ráðstefnunnar að
þessu sinni voru: 1. Óæski-
legur hárvöxtur og aðferðir við
að fjarlægja hár og 2. hrukkur
og meðhöndlun til varnar
Háskóla-
fyrirlestur
PRÓFESSOR Amanda Burt frá
George IVlason University í
Virginíu flytur erindi með lit-
skyggnum og tóndæmum í stofu
158, húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar Iláskölans við Hjarð-
arhaga, miðvikudaginn 5. október
kl. 17.15. Erindið fjallar um þjöð-
lög og menningu Bali og er að-
gangur öllum heimill.
Dr. Burt er tónlistarfræðingur
og hefur mikinn áhuga á þjóðlög-
um og miðaldatónlist. Hún hefur
einnig aflað sér mikillar þekking-
ar á íslenzkri tónlist, jafnt þjóð-
lögum sem tónsmíðum 19. og 20.
aldar tónskálda. íslenzka sendi-
ráöið í Washington og bókasafn
Bandaríkjaþings beina oft fyrir-
spurnum um íslenzka tónlist til
hennar. Þá mun hún rita greinar
um íslenzk tónskáld i hina miklu
alfræðibók um tónlist, Grove's
Dictionary of Mucic and Musi-
cians, sem væntanlega kemur út i
6. útgáfu i 18 bindum á næsta ári.
Fjölmennur
ársfjórðungs-
fundur Rauðsokka
FJÖLMENNUR ársfjórðungs-
fundur Rauðsokka var haldinn i
Sokkholti, Skólavörðustig 12,
hinn 29.9 s.i.
Að þvi er segir i frétt frá Rauð-
sokkum er vetrarstarf þeirra nú
að hefjast og fer það allt fram i
hópum. í vetur verða starfandi
meðal annarra: Verkalýðsmála-
hópur, hópur um dagvistunar- og
skólamál, húshópar, dreifbýlis-
hópar, blaðhópur og nýliðahópur.
í Sokkholti verður opið virka
daga kl. 17—18.30 fyrir þá, sem
áhuga hafa á að kynna sér starf
hreyfingarinnar. Eftirfarandi
stuðningsyfirlýsing var samþykkt
á fundinum: Ársfjórðungsfundur
Rauósokka 29.9 1977 lýsir yfir
eindregnum stuðningi við kjara-
baráttu B.S.R.B.
Opinberir starfsmenn! Standið
vörð um réttinn til lifvænlegra
launa handa öllum!
Einkennismerki ráðstefn-
unnar.
þeim. Rætt var um orsakir,
framvindu og nútima aðferðir
til úrbóta, með tilliti til starfs
snyrtisérf ræðinga.
Ásta Hannesdóttir snyrtisér-
fræðingur gekkst undir próf á
ráðstefnunni, en það veitir
henni alþjóðlega viður-
kenningu á sínu sviði.
— Rússarnir á
Spitzbergen
Framhald af bls. 16
sem flutti þá til Barentsburgar.
Morguninn eftir flaug Jensen
þangað á 10 mínútum og lenti á
þyrluvelli Sovétmanna. Hann
fór kurteislega fram á skýr-
ingu. Olaf Bucher-
Johannessen, sá sem fer með
mál heimskautasvæðanna í
stjórnarráðinu norska, gerir í
stuttu máli grein fyrir málinu á
eftirfarandi hátt: „Það er ekki
svo að skilja að Sovétmenn geri
meiri kröfur en fyrr. Öllu held-
ur að Norðmenn leggi meiri
áherzlu á að réttur þeirra sé í
heiðri hafður." Og hann vitnar
í Parísarsamninginn, sem tekur
fram í 3. greininni, að þjóðirnar
sem undirrituðu hann megi
stunda þar starfsemi „í sam-
ræmi við lög og reglugerðir á
staðnum".
Borgarar
Sovétrfkjanna
í „sovézka námabænum" Bar-
entsburg er norskum lögum og
reglugerðum ekki framfylgt í
öllum smáatriðum. Stjórnvöld i
Spitzbergen hafa engin ráð með
að fylgjast með þar sem þar er
hvorki lögregla, embættismenn
né tollverðir. Sovétmenn geta í
rauninni gert það sem þeir vilja
í sinum stöðvum. Þar er reglu-
leg kastarabygging, eins og í
í*yramiden, sem nær yfir
marga ferkílómetra. Byggðin er
samanþjöppuð og öll nýmáluð
og byggð í kringum risastórt
minnismerki, þar sem brjóst-
mynd af Lenin trónar og á rauð-
um borða stendur: „Takmark
okkar er kommúnisminn." A
veggnum er skilti með áletrun-
inni: „Við erum borgarar
Sovétrikjanna". „Knattspyrnu-
lið frá Longyearbyen, sem kom
(í^) krommenie gólfdúk: níösterkur,
einstæö hönnun, hagstætt verö og
þaö er auðvelt, aö halda honum
m hreinum.
Hvers getið
þér krafist
frekaraf A
gólfdúk? m
Sí&''' '• ;
■
Gólfdúkur á gólf og veggi!
Seljum málningavörur
og margt fleira.
liíurínn
Síðumúla15 sími 3 30 70
Peysur, bútar og garn
Les-prjón h.f.
Skeifunni 6