Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977
3
Fjallfoss í fyrsta
sinn í heimahöfn
Fjallfoss, nýjasta skip Eimskipafélags Islands. LjAsmvndir ði.K.Mag.
FJALLFOSS nýjasta skip Eim-
skipafélags tslands, lestaði f
gær I Reykjavíkurhöfn og er
það nú í fyrsta sinn f heima-
höfn sinni. Kom það til
landsins í fyrri viku og hefur
síðustu daga verið að Iosa og
lesta, m.a. í Straumsvík, Hafn-
arfirði og á Akranesi, en á
miðnætti átti skipið að halda
áleiðis til Antwerpen og Rotter-
dam.
Skipstjóri á hinum nýja Fjall-
fossi er Agúst Jónsson, en hann
hefur verið starfandi hjá Eim-
skipafélagi íslands í um 30 ár.
Hann Iýsti skipinu í nokkrum
orðum:
— Fjallfoss er um 1600
brúttótonn að stærð og getur
Iestað alls milli 2.700 og 2.800
tonn. Lestar eru tvær og getur
skipið tekið bæði lausavöru og
gáma og einnig er þaó útbúið
skilrúmum þannig að flytja má
laust korn t.d. A lestarlúgunum
eru sérstakar festingar fyrir
gáma og eru lúgurnar styrktar
þannig aó á hvorri lúgu má
hafa 9 gáma.
— Skipið er búið öllum
helztu siglingatækjum, s.s.
sjálfstýringu, tveimur ratsjám
og hægt er að stjórna vélum úr
brúnni, það er búið skipti-
skrúfu og stýrið er með nokkuð
sérstökum hætti það er í
tvennu lagi þannig að mjög
auðvelt er að snú: því „á
punktinum".
Áhöfn Fjallfoss er 15 menn
og sagði Ágúst að vistarverur
væru hinar þægilegustu og líkti
hann andrúmslofti á þessum
fámennari skipum við heimili.
Fjallfoss er 23. skip Eimskipa-
félagsins en það er eitt fjögurra
skipa er félagið hefur nýverið
Ágúst Jónsson, skipstjóri. Yfir-
vélstjóri er Kristján Hafliðason
og 1. stýrimaður Gunnar Örn
Haraldsson.
keypt og eru þau öll svipuð að
gerð og öll 3—4 ára.
— Fjallfoss er smíðaur i
Fredérikshavn 1974, sagði
Agúst, og þó að ekki sé komin
mikil reynsla á það gekk
siglingin hingað vel þrátt fyrir
brælu, en ganghraðinn er rúm-
lega 12 mílur.
Við móttöku skipsins I gær
flutti Ingvar Vilhjálmssin,
varaformaður stjórnar E.í.
stutt ávarp, bauð skip og ahöfn
velkomin og þakkaði forstjóra
fyrir vel unnin störf.
Gódur markaður
fyrir heilfrystan
fisk í Mið-Evrópu
„VIÐ getum selt það sem
unnt er að fá af heilfryst-
um þorski, og verðið sem
fæst fyrir hann er mjög
gott á Evrópumarkaði,"
sagði Ótar Yngvason hjá
jslenzku útflutningsmið-
stöðinni hf. í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Óttar sagði, að íslenzka
útflutningsmiðstöðin hefði
fyrr á þessu ári sent nokk-
uð af heilfrystum þorski á
Mið-Evrópumarkað og þar
hefði fengizt mjög gott
verð fyrir fiskinn. Hér
væri um að ræða minnsta
og lélegasta þorskinn, sem
veiddist við landið og
mætti hirða. Og það verð,
sem í boði væri, sýndi, að
góður grundvöllur væri
fyrir að frysta fisk á þenn-
an markað.
Vel em þrátt fyr-
ir heila öld að baki
ALDARAFMÆLI á I dag
Friðrikka Magnea Slmonar-
dóttir frá Langhúsum I Fljót-
um. Friðrikka er vel ern þrátt
fyrir háan aldur, en að vfsu eru
sjón og beyrn farin að bila.
Friðrikka gengur enn að störf-
um og prjónar t.d. mikið.
Friðrikka tekur f dag á móti
gestum f Félagsheimilinu að
Ketilási f Fljótum.
Friðrikka Simonardóttir er
fædd að Langhúsum 8. október
1877, en fluttist síðan með
eiginmanni sínum, Sigurbirni
Jósefssyni, að Ökrum í sömu
sveit. Bjuggu þau þar í aldar-
fjóróung, en fluttust þá að
Langhúsum. Hefur Friðrikka
átt þar heima síðan, um 40 ára
skeið.
Friðrikka og Sigurbjörn eign-
uðust 7 börn og komust 5 piltar
til fullorðnisára. Eru afkom-
endur þeirra orðnir fjölmargir
um allt land.
Yfir 20
árekstrar
ÞRÁTT fyrir blfðskaparveður og
hagstæð akstursskilyrði í höfuð-
borginni í gær voru lögreglu-
menn f umferðardeild á þönum
vegna fjölda umferðaróhappa.
Reyndar leit lengi vel út fyrir að
um fremur rólegan dag yrði að
ræða, en á háannatimanum frá kl._
um 4.30 til 6 siðdegis urðu um tíu
árekstrar og voru þá árekstrar
yfir daginn orðnir um 20 talsins.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins
bannar sölu og dreifingu öl-
kelduvatnsins frá Lýsuhóli
LAGT hefur verið bann við
sölu og dreifingu ölkeldu-
vatns frá Lýsuhóli í Staðar-
sveit, samkvæmt ákvörðun
Heilbrigðiseftirlitsins í
gær.
í þessu sambandi sneri
Morgunblaðið sér til
Hrafns Friðrikssonar hjá
Heilbrigðiseftir litinu og
innti hann frétta. Aðalfor-
sendan fyrir þessu banni
okkar er, að flúorinnihald
vatnsins er töluvert mikið,
þ.e.a.s. 3,96 milligrömm í
lítra, en eðlilegt innihald
er 1,0 milligramm í lítra
samkvæmt reglugerð al-
þjóða heilbrigðisráðsins.
Þá er það einnig mjög stórt
atriði, að formlegt leyfi hefur
aldrei fengizt fyrir sölu og
dreifingu þessa ölkelduvatns.
Upphaflega fær heilbrigðiseftir-
litið til umsagnar frá Landbún-
aðarráðuneytinu tvær mælingar á
sýrustigi og gerlainnihaldi vatns-
ins, með það fyrir augum hvort
vantið væri neyzluhæft eður eí.
Eftir að hafa skoöað þessar mæl-
ingar sagði Heilbrigðiseftirlitið i
sinni umsögn til ráðuneytisins, aé
út frá þessum tveimur atriðum
væri vatnið neyzluhæft, en gaí
alls ekkert vottorð um að þettE
ákveðna vatn sem slikt væri
neyzluhæft. Til þess hefði þurfi
að koma til mun nákvæmari
mælingar. Þar að auki, ætli mað-
10 skip með
um 5000 lest-
ir af loðnu
AGÆTIS loðnuveiði var í fyrri-
nótt á svæðinu norðan við Kol-
beinsey og þá tilkynntu 10 skip
um afla, samtals 5110 lestir. Þá
var vitað að göð veiði var á miðun-
um í gærkvöldi. Skipin sem til-
kynntu um afla eru þessi: Pétur
Jónsson RE 670 iestir, Skarðsvík
550, Gísli Arni RE 600, Sigurður
RE 850, Kap 2. VE 620, Stapavík
SI 500 og Svanur RE 300 lestir.
Þessi skip fóru öll til Siglufjarð-
ar. Hrafn GK för til Bolungarvík-
ur með 500 lestir og Grindviking-
ur GK til Krossaness með 520
lestir.
ur að selja og dreifa slíkum hlut-
um, ber að sækja um það form-
lega til Heilbrigðiseftirlitsins og
þá fer fram allsherjarmæling á
þess vegum, sem sker úr um það
hvort slíkt leyfi verður veitt.
Stefón frá Lýsuhóli með ölkeldu-
vatniS.
Kemur eins og
þruma úr heið-
skíru lofti
ÞETTA er alveg eins og þruma úr
heiðskíru lofti að heyra þessar
fréttir úti i bæ, sagði Stefán
Jónsson á Lýsuhóli í Staðarsveit
er Morgunblaðið ræddi við hann i
framhaldi af fréttatilkynningu
Heilbrigðiseftirlitsins þar sem
lagt er bann við sölu og dreif ingu
ölkelduvatns frá Lýsuhóli.
Það eina sem ég hef heyrt í
sambandi við þetta er, að ég heyrði
í útvarpinu, að búið væri að stoppa
alla sölu á vatninu Mér þykir það í
hæsta máta furðulegt að slikt bann
sé gert opinbert án þess að ræða
eitt einasta orð við mig Ég hef selt
vatnið í um 30 verzlunum i Reykja-
vík svo þetta er töluvert mikið mál
fyrir mig ef þetta bann verður látið
halda sér i framtiðinni
En þar sem ég hef ekki heyrt
neina glögga skýringu á þessu get
ég i raun ekki tjáð mig meira um
þetta, þó vil ég segja að ég mun
ekki taka þessu með þegjandi
þögn, sagði Stefán á lokum
Leið tólf -
Hlemmur-Fell
Fyrsta skáldsaga ungs Reykvíkings
BÓKAÚTGAFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út fyrstu skáldsögu
ungs Reykvíkings, Hafliða Vil-
helmssonar. Hún heitir „Leið tólf
— Hlemmur-Fell“ og er samtima-
saga úr höfuðborginni.
Hafliði Vilhelmsson er 23 ára og
í þessari fyrstu skáldsögu miðlar
hann af reynslu sinni af lífi og
kjörum unga fólksins. Bókin er
prentuð í Offsetttækni h.f. og
bundin í Arnarfelli. Mynd á bókar-
kápu var tekin af bróður höfund-
ar, Gunnari Vilhelmssyni.
Útgefandi segir svo um söguþrá-
inn:
t öldnu húsi á Selsvararbakkan-
um „vestast í Vesturbænum" hef-
ur ungur og óráðinn maður sest að •
og yfirgefið æskuheimili sitt, en að
hans eigin dómi hefur lifi hans
verið stjórnað um of af móður
hans.
Hann yfirgefur líka háskóla-
nántið og leitar lífsins í þeirri
mynd sem það mest lieillar hann
og leitar á huga hans.
Hann nýtur frelsisins í smátíma:
í leit seiðandi ásta dregst hann æ
dýpra út í svall og næturlíf, stund-
ar böll og kvennafar en með mis-
jöfnum árangri.
Hafi hann ætlað að stjórna lífi
sínu þá fer það nokkuð á annan
veg. Frekar mætti segja að lifið
tæki stjórnina af honum.
Ævintýrin og ævintýraleysið hald-
Framhald á bls. 22.
Hafliði Vilhelmsson.