Morgunblaðið - 25.10.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977
Banaslys
í Keflavik
BANASLYS varð ( Keflavfk f
gærmorgun. 74 ára gamall maður
féll niður um lúgu á 2. hæð og á
steinsteypt gðlf 1. hæðar, og er
talið að hann hafi látizt sam-
stundis. Hann hét Gisli Brynjólfs-
son, til heimilis að Vallargötu 24,
Keflavfk. Hann var fjölskyldu-
maður.
Gisli heitinn vann við smiðar á
2. hæð verksmiðjuhúss netagerð-
arinnar Netanaust við Básaveg i
Keflavík. Laust fyrir klukkan 8 í
gærmorgun mun hann hafa hras-
að við vinnu sína og fallið niður
um lúguna með þeim afleiðing-
um, að hann lét lífið. Engir sjón-
arvottar voru að atburðinum að
sögn lögreglunnar i Keflavík.
Fjármál Landakirkju:
Rannsókn bendir til fjár-
dráttar upp á 6,5 millj. kr.
— með áföllnum vöxtum og kostnaði
er upphæðin 12,5 millj.
RANNSÓKN á fjármálum
Landakirkju er nú lokið og
sagði Jóhann Friðfinnsson,
formaður sóknarnefndar,
að rannsóknin benti til
þess að úr sjóði kirkjunnar
hefðu verið dregnar 6.5
milljónir króna á 7 árum,
sem jjerðu 12,5 milljónir
króna nú með áföllnum
vöxtum og kostnaði.
Jóhann sagði, að sóknarnefnd
fengi skýrslu um rannsóknina um
miðja viku og yrðu reikningarnir
hafðir frammi til sýnis fyrir söfn-
uóinn seinni part vikunnar og síð-
an yrði reikningunum skilað á
aðalsafnaðarfundi á sunnudag-
inn.
Minni yfirvinna
við höfnina:
Mismunurinn um
9000 kr. á viku
Vegna Verkfalls BSRB hefur at-
vinna að vonum minnkað við
Reykjavfkurhöfn, þar sem engin
farskip hafa komið inn sfðan
verkfallið hófst.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér munu
376 hafnarverkamenn Eimskipa-
félags Islands hafa fengið greidd-
ar um 14 milljónir króna i laun
síðustu viku fyrir verkfailið og
10,6 milljónir i laun fyrir siðustu
viku. Munurinn liggur í minni
yfirvinnu við höfnina þar til skip-
in leggjast aftur að og er mismun-
urinn um 9.040 krónur á hvern
hafnarverkamann.
Landleiðir:
Nýtt leidakerfi
í Hafnarfirdi
um næstu helgi
ÆG VONA að við getum tekið
nýja leiðakerfið í notkun nú um
!ielgina,“ sagði Agúst Hafberg,
orstjóri Landleiða, í samtali við
Ibl. f gær.“ Með tilkomu nýja
leiðakerfisins aka vagnarnir
..tækkaðan hring um Hringbraut
g Alfaskeið og verða vagnarnir
veir, sem aka hvor á móti öðrum
inu sinni á klukkustund."
Með þessu nýja kerfi gefst
■íafnfirðingum kostur á „tveimur
i.'tanbæjarferðum á klukkustund
og einni ferð í hvora átt innan-
tæjar“.
DEGI Á UNDAN ÁÆTLUN. Mikill fjöldi pallgesta var kominn f þinghús i góðan tfma áður en
deildarfundir hófust á Alþingi f gær. Voru þar saman komnir ýmsir rfkisstarfsmenn, enda gert ráð
fyrir umræðum utan dagskrár um verkfall og kjaramál BSRB. A daginn kom að menn höfðu farið
dagavillt, ef svo má að orði komast. Talsmenn stjórnarandstöðu munu haf undirgengist að taka þetta
mál upp f dag (þriðjudag). Má því búast við nýrri heimsókn í þinghúsið, ef að Ifkum lætur. Hér er
mynd af pallgestum þingsins í gær. Ljósmynd Mbt. Kr. ón
Lögreglufélag Reykjavíkur:
Lýsir ábyrgð á hendur sér
vegna hugsanlegra agabrota
Lögreglumenn skrifaðir upp að boði forsætisráðherra
segir BSRB - Staðlausir stafir, segir lögreglustjóri
Sigríður Ella
með tónleika
á Akureyri
Akurevri, 24. október.
FYRSTU tónleikar Tónlistarfél-
ags Akureyrar á þessu starfsári
verða í Borgarbfói á miðvikudags-
kvöld klukkan 21. Þar kemur
fram Sigrfður Ella Magnúsdóttir
óperusöngkona, og mun Ölafur
Vignir Albertsson leika með á
pfanó.
Sigríður Ella Magnúsdóttir hef-
ur nýlega unnið glæstan sigur i
söngvakeppni erlendis og mun
margan fýsa að hlýða á hana á
miðvikudagskvöld. —Sv.p.
LÖGREGLUFÉLAG Reykjavíkur
hefur óskað eftir því við félags-
menn sína að verði þeir kallaðir
fyrir yfirmenn vegna orða eða
athafna verkfallsdagana skuli
þeir leita til stjórnar félagsins.
Formaður félagsins sagði f sam-
tali við Morgunblaðið, að stjórn
félagsins vildi með þessari sam-
þykkt Iýsa á hendur sér ábyrgð
vegna hugsanlegra agahrota í
verkfallinu en ekki einstakra
félagsmanna. A fundi með blaða-
mönnum f gær hafði talsmaður
verkfallsnefndar BSRB það hins
vegar eftir ótilgreindum lög-
reglumönnum, að tilefni bréfsins
væri það, að yfirmenn í lögregl-
unni væru farnir að skrifa upp
einstaka lögreglumenn, sem bor-
ið hefðu brigður á fyrirmæli sam-
kvæmt úrskurði kjaradeilunefnd-
ar, og væri þetta gert samkvæmt
fyrirmælum forsætisráðherra.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hef-
ur borið þetta til baka sem stað-
lausa stafi.
Bréf Lögreglufélags Reykjavík-
ur er svohljóðandi og er stílað til
allra lögreglumanna í Reykjavík:
A stjórnarfundi Lögreglufélags
Reykjavíkur þann 23. okt. s.l. var
gerö eftirfarandi samþykkt:
Vegna aískipta stjórnar Lög-
reglufél. Rvk., af athöfnum lög-
reglumanna í Reykjavik i þessu
verkfalli B.S.R.B., þykir rétt að
taka fram eftirfarandi:
Deilt um viðgerð á
símakerfi hjá SS
Þrjú slys í
umferðinni
ÞRJtJ SLYS urðu í umferðinni í
Reykjavík á laugardaginn, en
ekkert þeirra var alvarlegt að
sögn lögreglunnar.
Um hádegisbilió urðu tvö slys.
Framhald á bls. 30.
KJARADEILUNEFND úrskurð-
aði í gær að heimilt væri að láta
fara fram viðgerð á innanhúss-
símakerfi Sláturfélags Suður-
lands. Að sögn Páls Guðmunds-
sonar, talsmanna verkfallsnefnd-
ar BSRB, þótti úrskurður nefnd-
arinnar furðulegur og skildu
menn ekki á hverju úrskurðurinn
væri byggður. Kvað Páll verk-
fallsverði hafa farið á slaðinn en
ekkert hefði þar verið aðhafzt
„Dýrðardagar hjá bíómlum,,
MJÖG mikil aðsókn hefur verið
að kvikmyndahúsunum und-
anfarnar vikur, eða sfðan
verkfall BSRB hófst og er nú
jöfn aðsókn hjá þeim öll kvöld
vikunnar í stað eins til tveggja
kvölda um langt skeið. Morgun-
hlaðið ræddi við forstjóra
þriggja kvikmyndahúsa í gær-
kvöldi, tveggja sem starfa eðli-
iega og Háskóiabíós en það hef-
ur verið lokað í verkfallinu.
Friðfinnur Olafsson forstjóri
Háskólabiós sagði í samtaii við
Mbl. í gær að hann hefði aug-
lýst sýningar f sunnudagsblað-
inu vegna misskilinnar bjart-
sýni. „Það voru allir svo bjart-
sýnir á föstudaginn," sagði
hann, „en það reyndist allt
tómt rugl.“
„Það eru dýrðardagar hjá
bíóunum um þessar mundir og
mun meiri aðsókn en venju-
Iega,“ sagði Grétar Hjartarson
forstjóri Laugarásbíós í samtali
við Morgunblaðið i gærkvöldi.
,,Éf hef verið að hugsa um að
senda BSRB baráttukveðjur,“
hélt hann áfram, „en að slepptu
gamni þá var t.d. uppselt á allar
sýningar helgarinnar og á
sunnudeginum á sýningarnar
kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Þetta hefur
verið mjög jafnt á kvöldsýn-
ingunum síðan verkfall hófst,
alltaf fullt. Þá erum við til
dæmis með mynd í Bæjarbíói í
Hafnarfirði, sem hefði ekki
gengið ef sjónvarpið hefði verið
í gangi. Þá mynd sækir fólk
sem horfir mikið á sjónvarp,
en fer sjaldan í bíó.“
„Aðsóknin er nokkuð góð,
mun meiri en venjulega og
mun jafnari alla daga vikunn-
ar,“ sagði Arni Kristjánsson
forstjóri Austurbæjarbíós í
samtali við Mbl. í gærkvöldi,"
nú eru það ekki aðeins fimmtu-
dagarnir og sunnudagarnir sem
skera sig úr, allir dagarnir eru
jafnir i aðsókn í bióin.“
enn sem komið væri, þar eð bilun-
in hefði ekki verið fundin.
Helgi V. Jónsson, formaður
kjaradeilunefndar, kvað úrskurð
nefndarinnar hafa byggzt á því a<)
þarna væri um vinnustað að ræða
með um og yfir 300 starfsmenn og
hefði það verið röksemd nefndar-
innar fyrir úrskurðinum að vegna
þess hversu stór vinnustaðurinn
væri þá heyrði það til öryggismála
að unnt væri i það minnsta að
síma út af vinnustaðnum, t.d. í
þeim tilfellum að einhver slys
yrðu á mönnum.
Upplýstu
dreifíngu á
marihuana
Fikniefnadómstóllinn hefur sleppt
út liSlega tvitugum manni, sem hafði
setið i gæzluvarShaldi i tæpan mán-
uS vegna rannsóknar á meintri dreif-
ingu á fikniefninu marihuana. Tókst
aS upplýsa dreifingu á nokkru magni
af efninu en rannsókn málsins er
ekki lokiS, þótt umræddum manni
hafi verið sleppt lausum, aS þvi er
Arnar GuSmundsson. fulltrúi viS
Fikniefnadómstólinn, tjáði Mbl. i
gær.
Verði lögreglumenn kallaðir
fyrir yfirmenn sína varðandi orð
eða athafnir verkfallsdagana, ósk-
ar stjórnin eftir því, að til hennar
verði leitað af viðkomandi. Þetta
verkfall er ekki einkaframtak,
heldur lögmætar aðgerðir Banda-
lags starfsmanna rikis og bæja.
Undir bréfið rita f.h. Lögreglu-
félagsins Björn Sigurðsson for-
maður og Gylfi Guðjónsson ritari.
A fundi sem Kristján
Thorlacius, formaður BSRB, og
Páll Guðmundsson, talsmaður
verkfallsnefndar BSRB, héldu
með blaðamönnum í gær sagði
Páll að tilefni þessa bréfs væri
m.a. það samkvæmt frásögn lög-
reglumanna að einstakir lögreglu-
menn sem borið hefðu brigður á
skilgreiriingu kjaradeilunefndar
á starfssvið þeirra væru nú
skrifaðir niður af yfirmönnum
lögreglunnar og slíkt gert sam-
kvæmt beinni fyrirskipun for-
sætisráðherra. Morgunblaðið
spurði þá hvernig slí kt mætti
vera, þar sem iögréglustjóraem-
Framhald á bls. 30.
Útvarpsstöð
Mývetninga
lokað í gær
24. október frá fréltamaiini
Morgunbladsins Ágústi Jonssyni
í Mývatnssveil.
UNDANFARIÐ hefur verið starf-
andi útvarpstöð i Mývatnssveit og
hefur hún flutt hlustendum tón-
list, gamansöngur og fréttir, að
einhverju leyti. Hafa Mývetning-
ar og aðkomufólk á þessum slóð-
um haft hina mestu ánægju af og
hefur „útvarp Mývatnssveit" ver-
ið afþreying fyrir þá mörgu, sem
vinna vaktavinnu á þessum slóð-
um. Um hádegisbilið i gær, las
einn af aðstandendum stövarinn-
ar, mæðulegri röddu tilkynningu
um að þetta væri siðasta útsend-
ing stöðvarinnar. Hafði Póstur &
sími komist aö rekstri útvarpsins
og hótað að loka því með valdi ef
henni yrði ekki þegar lokað. Þótti
Mývetningum súrt i broti að
þeirra einkastöð, sem rekin var af
starfsmönnum Kisiliðjunnar og
starfrækt í dælustöð á bökkum
Mývatnsyrði tekin af þeim.