Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTOBER 1977 r Thailand: Skipta með sér verkum Nýr flokkur í stiórn í ísrael Tel Aviv, 24. október Reuter. NVSTOFNAÐUR Lýdræðisbreyt- ingaflokkur (DMC) sem hefur gerzt aðili að hægristjórninni í Israel hefur tilnefnt þrjá af fjór- um ráðherrum sem flokkurinn fær í st jórninni. Annar valdamesti maður flokksins, prófessor Manon Rubinstein, hefur sagt sig ú fra- kvæmdastjórn flokksins vegna ákvörðunarinnar um að ganga til stjónarsamstarfs með Likud- flokki Menaehem Begins for- sætisraæðherra. Aðalleiðtogi flokksins, prófess- or Yigael Yadin, var valinn i stöðu varaforsætisráðherra. Shmuel Tamir lögfræðingur var valinn dómsmálaráðherra og bar sigurorð af dr. Binyamin Haevy fyrrverandi hæstaréttar- dómara. Meir Amit, fyrrverandi yfir- maður leyniþjónustu hersins og til skamms tíma forstöðumaður svokallaðra Koor- fyrirtækjasamsteypu verkalýðs- hreyfingarinnar Histadrut, var valinn samgöngumálaráðherra. Enn er reynt að ná samkomulagi um val manns í fjórða ráðherra- embættið, stöðu velferðarráð- herra. Prófessor Rubinstein, fyrrver- andi forseti lagadeildar háskólans í Tel Aviv, kvaðst hafa sagt af sér til að mótmæia samningaviðræð- um um stjórnaraðild er hefðu far- ið fram án vitundar hans. Hann Kjarnorku- ísbrjótur í reynsluferð Moskvu, 24. október. Reuter. ÞRIÐJI kjarnorkuknúni ísbrjót- urinn sem Rússar hafa smíðað er farinn frá Leníngrad ( jómfrú- ferð sína að sögn Pravda. ísbrjótnum var hleypt af stokkunum snemma á síðasta ári og er mjög svipaður ísbrjótnum Arktika sem fyrst skipa sigldi til Norðurpólsins fyrir tveimur mánuðum. Nýi ísbrjóturinn er talinn stærri og kraftmeiri en Arktika og fyrsti sovézki isbrjóturinn, Lenín. Heimahöfn ísbrjótanna er í Murmansk og þeir eiga að halda uppi ferðum allt árið milli vestur- og austurhluta Sovétríkjaanna. hélt uppi harðri andstöðu gegn Yadin sem beitti sér fyrir aðild að stjórn Begins. Prófessor Yadin var herráðsfor- seti ísraelska hersins eftir stríðið 1948 en hefur stundað fornleifar- rannsóknir um árabil. Hann er þekktastur fyrir rannsóknir sínar í hinu forna virki Massada skammt frá Dauðahafi þar sem Gyðingar vörðust til síðasta manns gegn Rómverjum fyrir 2.000 árum og síðustu varnar- mennirnir sviptu sig lífi fremur en að falla í hendur Rómverjum. Tamir var yfirmaður neðan- jarðarhreyfingarinnar Irgun Zvai Leumi sem laut forystu Begins í Jerúsalem í stríðinu 1948. Hann var einn af stofnendum Frjálsu miðhreyfingarinnar sem gerði bandalag við Herut-flokk Begins en sagði sig úr hehni og var óháð- ur þingmaður þar til hann gekk í DMC fyrir kosningarnar í maí. Meir Amit var áhrifamaður í Verkamannaflokknum þar til DMC var komið á laggirnar í fyrra. Veruleg lækkuná dollurum London, 24. októbcr. Reuter. MIKIL óvissa ríkti á gjaldeyris- mörkuðum í dag og dollarinn lækkaði verulega en mikil eftir- spurn var eftir svissneskum frönkum og gulli. Svissneski frankinn seldist fyr- ir 2,2315 dollara sem er hæsta verð sem hefur fengizt fyrir hann síðan í ágúst 1975. Ástæðan fyrir slæmri stöðu dollarans er sem fyrr uggur um ástandið í bandariskum efnahags- málum og óvissa um hvað banda- ríska stjórnin hyggst fyrir. Mikill halli er á viðskiptum Bandaríkjamanna við erlend riki og því er haldið fram að Hvita húsið og bandaríski seðlabankinn fylgi ekki sömu stefnu í gjaldeyr- ismálum. Tímaritið Business Week telur að breyting geti ekki orðið til batnaðar fyrr en Carter forseti komist upp á lag með að vinna með þinginu, kaupsýslumönnum og seðlabankanum. BaiiRkok. 24. október Reutrr. HERSTJÓRNIN i Thai- landi, sem tók völdin í síð- ustu viku, tilkynnti í dag um verkaskiptiiígu við stjórn landsins. Sett hafa verió á stofn þrjú ráð, framkvæmdaráð, herráð og borgaralegt ráð. Ekki var tilkynnt um nýjar em- bættisskipanir og segja stjórnmálafréttaritarar að flest bendi til að formaður herráðsins, Si Angad flota- foringi, og Chama yfirhers- höfðingi landsins muni fara með stjórnina. Ekki var sagt hve lengi þessi ráð myndu starfa,, en frétta- menn segja að litið sé á þau sem bráðabirgðaráðstafan- ir. Hinir nýja valdhafar hafa lofað nýrri stjórnar- skrá fyrir landið og-frjáls- um þingkosningum á næsta ári. Oeinkennisklæddir lögreglumenn, vopnaðir byssum, gæta inngöngudyranna að skrifstofu blaðafulltrúa st jórnarinnar ( Bonn á fimmtudagskvöld. EKsabet Englandsdrottning flytur hásætisræðu sfna við setningu kanadfska þingsins og notar gleraugu ( fyrsta skipti opinberlega. Pierre Trudeau forsætisráðherra hlustar. berjast í Eþíópíu Mogadishu, 24. okt. Rputer. ÞtJSUNDIR kúbanskra her- manna taka þátt i hörðum bardög- um í borginni Harar og nágrenni hennar að sögn talsmanns Frelsisfylkingar Vestur-Sómalíu (WSLF) í dag. Talsmaðurinn gaf í skyn að nokkrir Kúhumenn hafðu verið teknir til fanga og að opinber tilkynning yrði birt bráðlega. Tvö þúsund hermenn frá Suður-Jemen berjast einnig við hlið Eþíópiumanna hjá Harar að sögn aðalritara W'SLF, Abdallahi Hassan Mohamoud. Hann sagði að sovézkir ráðunautar væru Kka aí Harar. Mohamoud sagði að hreyfingin fengi ekki aóeins hergögn frá Sómalíu. Hann sagði að hreyfing- unni bærust vopn frá öllum Arabalödnum nema Líbýu og Suður-Jemen. Hann sagði að engin hætta væri á þvi að hdrgagnasendingarnar yrðu stöðvaðar. Sómalíumenn fengu flest sín hergögn frá Rúss- um, en Rússar stöðvuðu her- gagnasendingar sínar þegar stríð- ið hófst fyrr á þessu ári. Mohamoud kvað hreyfinguna ekki óttast skort á hergögnum eða skotfærum. Hann kvað hreyfing- una hafa fengið að láni hjá Sóma- liuher sovézksmíðaða skriðdreka og stórskotavopn. Hann sagði að hreyfingin beitti einnig banda- rískum hergögnum sem hefðu verið tekin herfangi. Útvarpið í Mogadishu sagði i dag að sómalskir skæruliðar fögn- uðu sameiningu andstæðra hreyf- inga skæruliða í Eritreu er frá var skýrt i síðustu viku og kvað hana marka upphaf endaloka að- skilnaðar baráttu Eritreubúa. Jafnframt hafa Rússar opinber- lega hætt stuðningi sínum við Sómalíu og lýst yfir stuðningi við Eþíópíumenn. Sovézki sendiherr- ann i Addis Ababa, Anatoly Ratanov, sagði við athöfn í tilefni 60 ára afmælis sovézku byltingar- innar að Rússar mundu standa við hlið Eþíópíumanna. Jafnframt fengu Sómalir engar kveðjur frá Rússum og Kúbumönnum er þeir minntust átta ára afmælis bylt- ingar sinnar. AMY Carter, yngsta dóttir Carters Randarfkjaforseta og Rosalynn konu hans, átti t(u ára afmæli þann 19. október. Fékk hún að bjóða ungum vinum sfnum til veizlu ( Hvfta húsinu. Amy situr við fætur föður s(ns á myndinni og á horðinu sjást nokkrar af afmælisgjöfum hennar. Þúsundir Kúbana v.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.