Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 27
35 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 Snæbjörn Einars- son skáld 7 5 ára Síðast liðið fimmtudagskvöld vorum við Jóhann bróðir minn á gangi í Austurstræti. Mættum við þar manni, er stöðvaði okkur. Dró sá upp miða úr vasa sinum, las af honum fjórar ljóðlínur og spurði hvort við vissum hver ort hefði. Hendingarnar, sem hann las, voru þessar: „Ofl vard litlu landi lið að skáldsins tungu. þó aó þagni rómur þeirra. er fegurst sungu.** Við Jóhann vorum fljótir til svars og sögðum honum, að þetta visubrot væri eftir Snæbjörn Einarsson, úr kvæðinu: „Horfið skáld“, sem birtist í ljóðabók hans „Ber þú mig-þrá" og kom út 1955. Þetta var einkennileg tilviljun, sem varð til að minna mig á, að Snæbjörn vinur minn ætti bráð- um merkisafmæli og það er í dag, 25. október, sem hann heldur upp á 75 ára afmæli sitt. Ekki er ég til þess fær að skrifa um Snæbjörn Einarsson eins vel og ég vildi og vert væri, en mig langar þó i tilefni af 75 ára afmælinu að senda honum kveðju og rifja dálítið upp ævi hans og störf og úr hvaða jarðvegi hann er sprottinn, því að ég hefi þekkt hann og hann hefir verið vinur fjölskyldu minn- ar frá þvi ég fyrst man eftir. Snæbjörn er fæddur í Garði i Þistilfirði 25. október 1902 og voru foreldrar hans Einar Einars- son bóndi þar og Björg Sigmunds- dóttir kona hans ættuð úr Suður- Þingeyjarsýslu. Þau voru vinsæl og gestrisin, glaðvær og söngvin og hef ég heyrt, að gestum þeirra hafi þótt hver stund annarri betri, er þeir dvöldu á heimili þeirra. Á þeim tíma, þ.e. upp úr aldamótum, var ekki hljóðfæri á hverju heimili, en i Garði og síðar í Garðstungu hjá Einari og Björg var orgel, sem húsbóndinn lék á af innri þörf og hrifnæmi. I Garði var oft tekið lagið og hefi ég heyrt til þess tekið, hversu fagra söng- rödd Björg Sigmundsdóttir hafi haft. Af systkinum Snæbjarnar, sem voru fjögur, þrír bræður og ein systir, lifir nú. aðtins systirin Járnbrá, húsfreyja í Sveinungs- vík í Þistilfirði, og þangað fer Snæbjörn á hverju vori, þvi hann er áreiðanlega sama sinnis og litla stúlkan i kvæðinu hans „Lítil stúlka og vorið“ sem segir: „En ég vil alltaf vera á vorin hérna heima og vakayfir ánum og heyra fuglaklið. Ogliggjauppifjalliog láta mig þar dreyma um landió mitt og fólkió, sem þráir gleói og frió.“ Á uppvaxtarárum Snæbjarnar hafði hann mikinn hug á að ganga svokallaðan menntaveg. En til þurfti meira fé en hann hafði yfir að ráóa og eftir að faðir hans lézt, þegar Snæbjörn var 17 ára, var ekki um að ræða fjárstuðning heiman að. Þeir vinir hans Sigur- páll Jónsson frá Klifshaga, og Björn Haraldsson í Austurgörð- um sögðu honum þó svo vel til, að honum var leyft að setjast í annan bekk Gagnfræðaskólans á Akur- eyri og tók annars bekkjar próf með góðum árangri næsta vor, þ.e. 1922. Lengri varð skólaganga hans í bóklegum fræðum ekki, því að léttur sjóður sparifjár var á þrotum og atvinna lítil og tekju- rýr. Skólagangan varó þó til þess, að ýmsir báðu hann að kenna börnum sínum, enda þörfin brýn, þvi að enginn fastur skóli var þá f N-Þingeyjarsýslu, hvorki í sveit- um né þorpum. Snæbirni mun strax hafa fallið vel við kennslustarfið, sem átti eftir að verða aðallífsstarf hans og talið það bæði ánægjuríkt og mannbætandi. Hvatning hefir honum líka orð- ið, að nemendur hans elskuðu hann og virtu, því að hann skildi þá svo vel og gerði sér grein fyrir að „Vormanns lund er viðkvæm". t sama ljóðinu, sem heitir „Drengurinn minn“, segir hann einnig: Litla þjóóin Ijóóa, leiddu drenginn góóa, veittu gæfu og gleói. greiddu veginn hans. Sáóu sannleiks fræi í sálu nemandans. Fagra veröld. Frjálsa móóir. Fóstra hins unga manns." Það er engin furða, þó að kenn- ari, sem hefir slíka afstöðu til nemenda sinna, yrði eins vinsæll og raun bar vitni. Ekki mun held- ur hafa spillt, að alls staðar þar sem Snæbjörn kom byrjuðu menn að syngja. Hann er fram úr skarandi ,,músikalskur“ og söngvinn og tókst hvarvetna að fá menn til að taka lagið. Þegar hér var komið sögu var hann einnig orðinn ágæt- ur organisti og lék á orgel undir söngnum þar sem orgel voru til. Undirstöðu í orgelleik lærði Snæbjörn hjá Þuríði Þorsteins- dóttur húsfreyju á Ytra-Lóni á Lauganesi. Segist hann minnast námstímans þar meðal björtustu og beztu daga lífs síns, enda hafi frú Þuríður verið gáfuð, vel lesin og víðsýn höfðingskona, sem á mörgum sviðum hafi eins og lokið upp fyrir sér lífsbókinni og veitt sér innsýn í það, sem hann hafði ekki áður leitt hugann að. Snæbjörn tók virkan þátt í ung- mennafélagshreyfingunni i N- Þingeyjarsýslu og sat m.a. í stjórn ungmennafélagsins í Þistilfirði. Á þeim tíma, þ.e. tímabilinu milli 1920 og 1930, var íþróttahreyfing- in einnig í mikilli sókn og vetur- inn 1926 til 1927 efndi U.M.F.I. og t.S.Í. til eins vetrar fimleikanám- skeiðs í Reykjavík undir yfirum- sjón Jóns Þorsteinssonar og sóttu það nemendur hvaðanæva að af landinu. Nám þetta átti að duga til, að þeir, sem það sóttu, gætu síðan kennt algengar iþróttir og fimleika í átthögum sinum. Snæbjörn sótti þetta námskeið og kenndi síðan fimleika og sund við skóla þá, er hann starfaði við mestan hluta ævinnar og hélt fim- leikanámskeið víðs vegar í Norð- ur Þingeyjarsýslu. Sjálfur var Snæbjörn góður íþróttamaður, m.a. ágætur glímu- maður, og þó að hann sé enginn risi að vexti þótti hann ekki dæl- legur bleyðimönnum, þegar glíma skyldi eður fangbrögð þreyta. Um og eftir 1940 tók Snæbjörn að fást við söngmál í N- Þingeyjarsýslu. Glæddist sönglif þá mjög i sýslunni, einkum á Raufarhöfn, sem þá var i örum vexti. Stofnaði Snæbjörn þar og stjórnaði um árabil samkór, karla- kór, telpnakór og kvartett karla. Þóttu kórar þessir góðir og sungu viða í N-Þingeyjarsýslu m.a. á hinum fjölmennu útisamkomum i Asbyrgi. Árið 1949 fór Snæbjörn sem kennari i Kaldrananesskólahverfi í Strandasýslu þar sem hann kenndi næstu fimm árin á vetr- um. Alltaf fór hann þó til Raufar- hafnar á sumrin og starfaði þá eins og reyndar bæði fyrr og síðar að hluta hjá útibúi Kaupfélags N-Þingeyjarsýslu á Raufarhöfn. 1954 hætti Snæbjörn kennslu i Kaldrananesskólahverfi og hóf aftur kennslu við barna- og ungl- ingaskólann á Raufarhöfn. Var hann síðan kennari þar til ársins 1972, að hann flutti með fjöl- skyldu sína til Hafnarfjarðar þar sem hann hefir búið siðan. Það sem lengst mun halda nafni Snæbjarnar á loft eru kvæðin hans, sem mörg eru fágætlega ljóðræn og fögur. Eg spurði hann einu sinni hvað hann héldi að væri fyrsta vísan, sem hann hefði ort. Hann kvaðst fyrst minnast þess, að hann hefði sex eða sjö ára gamall reynt að yrkja um Einar bróður sinn og er visan svona: „Finar morki maðurinn mikill þykist vera. Hann er stöðugt að strföa mér, en er þú hræddur við mig.“ Vísan mætti að sjálfsögðu vera betur ort, en „mjór er mikils vís- ir" og allt í einu voru ljóð Snæ- bjarnar svo sem „Ber þú mig þrá“ og „Shirley Temple" komin á hvers manns varir og sungin um allt Island. Seint mun þeim sem á hlýddu úr minni líða hinn fagri þjóðhátíðarsálmur hans, er sung- inn var í Asbyrgi 7. júlí 1974. Það sem mér þykir eftirtekta- verðast við skáldskap Snæbjarnar er, hversu margir kunna eftir hann ljóð og stökur án þess að vita hver höfundur er sbr. áður sagt. Ljóð hans eru svo létt og leikandi, að menn læra þau án fyrirhafnar. I einhverri vísu Snæ- bjarnar er þetta: „Stundum hefir lítið ljóð i april lifað stærri verk“. Ég er viss um að þau sem hann kallar litlu ljóðin sín lifa lengst kvæða hans og þau munu einnig „lifa stærri verk" bæði hans og annarra. Ég hefi oft hugsað um, hvað gáfuðum mönnum getur orðið ’mikið úr lítilli tilsögn. Þetta hefir Snæbjörn sannað á óvenju glæsi- legan máta, því að hann hefir orðið kennari og leiðtogi á öllum þeim sviðum, sem hann hlaut ein- hverja undirstöóumenntun í. Ég veit Snæbjörn, að ég tala fyrir munn allra sýslunga þinna i Norður-Þingeyjarsýslu þegar ég flyt þér, ágætri eiginkonu þinni, frú Eriku, börnum ykkar og barnabörnum hjartanlegar árn- aðaróskir á 75 ára afmælinu og þakka þér störf þfn og kyndilburð í þágu heimahéraðsins. Barði Friðriksson. Afmælisbarnið tekur á móti gestum á heimili sinu i Hafnar- firði, að Hjallabraut 21, eftir kl. 4 síðd. i dag. Leiðrétting 1 FRÉTT í blaðinu á föstudaginn frá Ferðamálaráði misritaðist föðurnafn Birgis Þorgilssonar sem sæti á í Landk.vnningar- nefnd. Leiðréttist það hér með, og er Birgir beðinn velvirðingar á þess- um mistökum. Mg hefur lengi grunoð það... en nú veisfu með fullri vissu hve frúbœr mazDa 323er Mazda 323, 3ja dyra. Mazda 323, 5 dyra. Mazda 323, 3ja dyra með sjálfskiptingu. í sparaksturskeppni B.Í.K.R. fór Mazda 323 91.07 km., á 5 1. af bensíni og var það minnst eyðsla 1300 CC bíla í keppninni. Mazda 323 er því í flokki þeirra smábíla, sem sameina sparneytni, fallegt útlit og gott rými. Mazda 323 er nú fáanlegur í þremur útgáfum-. 3ja dyra, 5 dyra og 3ja dyra með sjálfskiptingu. Mazda . . . mest seldi japanski bfllinn á fslandi. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.