Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 VlH> u VcáJ; -> MORöíJK/- , v ^ MttlNli \\ (1 J I Ijfcr/ GRANI göslari «a» Afsakaðu — héll þetta væri kirsuber! Sama hver um mig spvr, ég verð ekki við næstu tvo tíma! Valdarán á íslandi? „í heimsfréttunum eru oft fregnir af byltingum og uppreisn- um víðsvegar í heiminum. Nú hef- ur eiginlega orðið eins konar bylt- ing.hér á landi. Ekki væri óhugs- andi að einhvern daginn gæti eftirfarandi klausa komið fram á strimlum fréttastofanna. Klaus- una sendi einn af lesendum Dag- blaðsins: „Laust eftir kl. 24 11. október s.l. brauzt út bylting á íslandi. Náði hinn svokallaði Thorlaciusarher völdunum. Tókst að ná á sitt vald öllum helztu stjórnarbyggingum, þar á meðal útvarpsstöðinni, sjónvarpsstöð- inni og einnig póst- og símabygg- ingunni. Rikisstjórnin er sögð i stofufangelsi. Ekki er getið um mannfall, annars eru óljósar fréttir, en sagt er að flestir ef ekki allir bæir á landinu séu á valdi Thorlaciusarhers. Virðist valdaránið hafa verið vel undir- búið. Frá fréttaritara Tass- fréttastofunnar á Islandi." Þessa ofanrituðu gamansömu klausu er að finna i Dagblaðinu miðvikudaginn 19. okt. sl. En því miður virðist sem hún gæti verið dagsönn ef dæma má eftir því hvernig þetta verkfall hefur þró- ast undanfarna daga. Undrun allra landsmanna vek- ur hin mikla stirfni og illmagnaða heimtufrekju Thorlaciusarskæru- hers í yfirstandandi verkfalls- deilu. Öllu góðum kjarabótum er nertað á þeim forsendum að þær séu of lágar og þvi ekki fært að þeim að ganga. Ef BSRB-menn vita af einhverjum Sesam-sjóði þúsund og einnar nætur, sem hægt væri að ausa úr þeim til handa, nú þá væri þessi launa- BRIDGE Umsjón: P6II Bergsson í grandsamningi er nákvæm taining tökuslaga nauðsynleg strax í upphafi spils. Þetta hef ég oft minnst á. Enda ekki óeðlilegt því sjaldan er góð vísa of oft kveð- in. Asamt opnun vesturs í spilinu í dag er þetta einmitt lykill aö vinn- ingsleið í úrspilsæfingu. Allir eru á hættu en vestur gaf. Norður S. D8732 H. K104 T. G87 L. 97 Suður S. K4 H. ÁD2 T. KD109 L. ÁK54 Eftir að vestur opnar á einu laufi verður þú sagnhafi í þrem gröndum, lesandi góður. Hvernig vilt þú spila spilið eftir að vestur spilar út laufdrottningu? Við sjáum strax fimm slagi á hjarta og lauf. Þrjá getum víð fengið á tígul og a.m.k. éinn á spaða. Við getum þannig fengið nfu slagi verði vörhin ekki áður búin að taka sína fimm. Hættan, sem varast þarf er því, að vestur eigi fimm lauf en ásana í tígli og spaða á hann eflaust báða. En er þá hægt að ráða við spilið? Já, ef spaðarnir liggja 3:3 eða ef vestur tekur ekki á spaðaás þegar við spilum lágum spaða frá kóngnum. Norður S. D8732 H. K104 T. G87 L. 97 753.7 COSPER Ekkert þras drengur minn, eða ég gifti ykkur hér á stundinni! Vestur S. AG6 H. G9 T. Á53 L. DG1086 Austur S. 1095 H. 87653 T. 642 L. 32 Suður S. K4 H. ÁD2 T. KD109 L. AK54 Við tökum útspiliö og spilum strax lágum spaða. Láti vestur lágt fáum við á drottninguna og ráðumst síðan á tigulinn. En taki vestur á spaðaásinn fáum vió fjóra slagi á spaða pg þurfum ekki slag*a ugtu til að vinna spiiið.’ RETTU MER HOND ÞINA 77 Ijóst, að jafnvel Niekerk skildi, að hann hefði orðið sjálfum sér til skammar. Hann var rauður í framan eins og karfi. Hann stóð upp, eins fljótt og sómasamlegt gat talizt, þakkaði gest- gjafanum stuttaraiega og hvarf á braut. lallíaUfa-pr-pang-prrr. Gamliford Arnar fór loksins í gang í fjórtándu tilraun. Bfllinn hóstaði og hristist á ieið til hæjarins Helpmekaar, en þaðan ætlaði Erik að taka áætlunarbflinn til Durban. Vegurinn — það var vafamál, hvort rétt var að nota það orð — hlykkjaðist eins og slanga gegnum hátt grasið, vék fyrir trjám og runnum, hvarf ofan í brúarvana læki og teygði sig að lokum upp í brekku, sem var svo brött, að Örn varð að snúa bílnum við og aka honum aftur á bak upp hrekkuría. Ford af árgerð 1920 var cnda sterk- astur, þegar honum var ekið aftur á bak. Fyrst I stað hugsaði Erik ekki um annað en þennan æðislega akstur. Það komst ekki annað að í huga hans. En þegar á leið, var sem um hægðist innra með honum. Nú var líka óvenjulega spennandi og skemmtileg vika á enda runnin, og Örn átti skilið, að honum væri þakkað. Erik fannst eins og hann hefði fram að þessu verið annað hvort sljór eða mótsnúinn f sambúð sinni með Erni. — Heyrðu, Fredrik, þú mátt ekki halda, að ég hafi ekki verið ánægður þessa daga á Jagersdrift. Ég hef lært heil- mikið, og þið hafið vcrið mér ákaflega góð. Satt að segja dáist ég að því starfi, sem þið vinnið. örn horfði fast á hjólförin, sem lágu hættulega nálægt hengiflugi. Það birti yfir and- iiti hans. — Jæja, það var nú gaman að he.vra. Ég hélt helzt, að þér fyndist þetta allt vera hlægi- legt. — Nei, það finnst mér ekki. En þú getur ekki vænzt þess, að ég geti kyngt öllu á augahragði. Ég hefði fengið taugaáfall, ef ég hefði verið með þér nokkrar vikur enn á þessum ferðum þfnum. Kælivatnið sauð, þegar þeir óku upp langa brekku, og örn varð að stöðva bílinn. Hann lét fara vel um sig f sætinu og horfði rannsakandi á Erik. Bezti strákur, hugsaði hann. Svolftið latur að hugsa og ögn eigingjarn. en heiðarlegur inn við beinið. Það væri gaman að vita hvað úr honum yrði. Erik langaði til að létta á sér við örn. Hann virti fyrir sér tignarlegt útsýnið af hárri hrekkubrúninni og mælti: — Ef ég á að segja eins og er, þá finnst mér þú vera mér ofur- efli. Ég hefði viljað tileinka mér afdráttarlausari viðhorf til kynþáttavandamálsins, trúar- bragða og slíkra mála, áður en svo færi, að ég hitti þig aftur. Stundum er ég fullur af mót- þróa, en þú hefur þaulhugsað alls konar mál fyrirfram, og þú gusar úr þér röksemdum á F ramhaldssaga eftu GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi færibandi svo að ég stend þér ekki snúning. Örn hló. — Þetta er frábært! Farðu heim til Durban og hugsaðu málin, þangað til þú kemst að niðurstöðu. Síðan skulum við ræða saman, svo að neistarnir fjúki, næst þegar fundum okkar ber saman. Erik ætlaði að flýta sér að segja einhver vinsamleg viður- kenningarorð við örn. — En eitt er það, sem ég verð að segja þér. Ég öfunda þig af sálarró þinni. Einhvern veginn virðist þú hafa sigrazt á öllum erfiðleikum, og þú veizt, hvað þú vilt. Örn fyllti þegar örvamæli sinn. — Öfundar þú mig? Hvers vegna? Þú getur sjálfur eignazt sömu sálarró. Er það nokkuð, sem aftrar þér? Erik striðnaði. — Hægan, hægan. Nú erum við aftur komnir að því. Nú skalt þú ekki fara að sálgreina mig og taka mig i fóstur. Ég stend á eigin fótum. örn hló og setti bilinn aftur I gang. Erik sat við hlið hans í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.