Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 Örn og Örlygur: Kennslubók í skák fyrir unga byrjendur BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hefur sent á markað kennslubók í skák, sem Guðmundur Arnlaugs- son, rektor, hefur þýtt. Nefnist hún „Skák fyrir unga byrjendur — ný aðferð til að læra að tefla“. Höfundar eru Eilliam T. McLeod og Ronald Mongredien. í tilkynningu frá útgáfunni seg- ir m.a. um bókina: Kennsluaðferð bókarinnar er með nýstárlegum hætti. Rætt er um einn mann i senn og sýndur fjöldi leikja til Tryggvi Emilsson: Studningur við baráttu BSRB í kjarabaráttu opinberra starfs- manna, sem stefnir að því að rétta hlut þeirra lægst launuðu og tryggja sér þau sjálfsögðu mann- réttindi sem verkfallsrétturinn er, er mér efst i huga að barátta þeirra er i öllu eðli sínu sú sama og okkar Dagsbrúnarmanna og að nái þeir ekki fram sínum rétti þá verður okkur þyngri róðurinn. Ég tel baráttu þeirra svo ná- skylda okkar verkafólksins og okkur beri nauðsyn til að ganga fram við hlið þeirra og veita þeim allan þann stuðning, sem við get- um í té látið. Við munum okkar eigin baráttu og hversu oft var lögð á það rík áhersla að sundra röðum okkar. Eg virði og met mikils þá menn sem standa nú á verkfallsverði opinberra starfsmanna og óska þeim allra heilla, þeirra ávinning- ar eru jafnframt okkar sigrar. Reykjavík 24. október 1977, Tryggvi Emilsson. —BSRB Framhald af bls. 48 fram samfara endurskoðuninni vegna harðrar andstöðu og ólik- legra væri með hverjum deginum, að unnt yrði að ná þessu ákvæði með verkfallsréttinn að þessu sinni. Hins vegar væri krafa er tryggði endurskoðun með öðrum hætti. I viðræðum, sem Morgunblaðið hefur átt við ýmsa samninga- nefndarmenn BSRB hefur komið fram og ber þeím öllum saman um það, að bandalagið hafi fyrir nokkrum dögum fallið frá kröf- unni um verkfallsrétt í endur- skoðunarákyæði samningsins. Um helgina hefur samninga- gerðin verið þannig, að fundur var boðaður klukkan 16 á laugar- dag eins og áður hefur verið skýrt frá. Við upphaf fundar efndu all- margir félagar úr BSRB til mót- mælastöðu við anddyrí Háskól- ans. Hófu þeir að safnast þar sam- an klukkan 15.30, en hurfú á brott um klukkan 17. Var þar allmargt manna. Þessi fundur stóð með kvöldverðarhléi fram til klukkan tæplega 02.30 og var þá ákveðið að samninganefndir hittust að nýju klukkan 11.30 á sunnudags- morgun. Sá fundur stóð aðeins i klukkustund og var enn ákveðið að aðilar hittust klukkan 16. Sá fundur stóð siðan til klukkan 03 í fyrrinótt og hafði þá lítið sem ekkert áunnizt. A sáttafundinum aðfararnótt mánudagsins, virtist svo sem samninganefndarmenn BSRB væru að herðast í afstöðu sinni til samninga. Þeir sátu á alllöngum fundum í hátíðasal Háskólans og þess að æfa sig á. A bókarkápu segir, að sé fylgt leiðbeiningunum stig af stigi þá geti byrjendur strax náð tökum á leiknum og orðið slygnir skákmenn. Skák fyrir unga byrjendur er ríkulega skreytt skýringarmynd- um og eru þær teiknaðar á tákn- rænan hátt og úr garði gerðar til að laða fólk til frekari athugunar. Skák fyrir unga byrjendur er filmusett í prentsmiðjunni Odda hf. en prentuð hjá Collins i London. mátti heyra lófatak annað slagið frá fundinum. Að sögn samninga- nefndarmanna var það er menn stigu i ræðustól og voru kjarnyrt- ir í máli. Líktu nokkrir samninga- nefndarmenn BSRB þessum fundi við framboðsfundi, þar sem menn héldu æsingaræður hver i kapp við annan. A sunnudag, síð- degis, höfðu ráðherrarnir óskað eftir því að breytt yrði um við- ræðuform og tveir menn frá hvor- um deiluaðila fengju fullt umboð til viðræðna og yrðu umræðurnar þeirra í milli, en síðan yrði árang- ur borinn undir aðra samninga- menn. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér mun það hafa verið vilji fundarins að þeir Kristján Thorlaeius og Har- aldur Steinþórsson færu til þess- ara funda með ráðherrunum tveimur, en áður en það var end- anlega ákveðið bað Kristján Thorlacius um að þeim yrði ekki veitt neitt umboð af samninga- nefndinni. Kvaðst hann frábiðja sér allt umboð. Varð þá úr að þeir Kristján og Haraldur voru kjörnir til viðræðna við ráðherrana en án þessa umboðs sem ráðherrarnir höfðu óskað eftir. Var í lok fund- arins ákveðið að þeir myndu hefja viðræður við ráðherrana klukkan 10 næsta dag, sem var í gær. Að sögn samninganefndar- manna í nefnd BSRB fór ýmislegt í handaskolun i þeirri fram- kvæmd viðræðnanna, sem viðhöfð var á sunnudag. í eitt skipti kom upp á daginn, að allir reikningar, sem framkvæmdir höfðu verið, voru rangir. Varð að kalla til hag- fræðing Alþýðusambands ís- lands, Ásmund Stefánsson, sem kom og yfirfór útreikninga BSRB. Höfðu nokkrir samningamenn á orði að sitthvað væri að reikna 4% hækkun og4% lækkun kaup- taxta — en það mun ekki öllum hafa verið ljóst. Þá var talsvert skipulagsleysi á fundarstjórn hjá BSRB og mun nefndin oftar en einu sinni hafa eytt umtalsverð- um tíma í að ræða mál, sem þegar höfðu verið afgreidd frá henni. M.a. vegna þessa komu fram óskir um breytt vinnubrögð og á árdeg- isfundinum milli ráðherranna Matthíasar A. Mathiesen og Hall- dórs E. Sigurðssonar annars veg- ar og Kristjáns Thorlacius og Har- alds Steinþórssonar hins vegar, sem haldinn var í gær, tókst sam- komulag um skipan 5-manna við- ræðunefnda frá hvorum aðila. í BSRB-nefndinni voru kjörnir: Kristján Thorlacius, Haraldur Steinþórsson, Einar Ólafssón, Ágúst Hafberg og Valgerður Jónsdóttir. I 5-manna nefnd ríkis- ins voru ráðherrarnir en að auki Höskuldur Jónsson, Þorsteinn Geirsson og Indriði Þorláksson. BSRB-nefndin mun hafa umboð, sem takmarkast af ákveðnum ramma. Nefndirnar áttu síðan fund með sér í gær síðdegis og að loknum fyrsta fundinum var gert kvöld- verðarhlé. Hittust síðan 5- mannanefndirnar aftur klukkan 20.30, en samninganefnd BSRB, 60 manna nefndin, var boðuð til sáttafundar klukkan 22.30. Á blaðamannafundi í gær var Kristján Thorlaeius spurður að því hvaða háttur yrði hafður á, er verkfalli yrði aflétt og samningar hefðu tekizt. Kristján sagði að í lögum BSRB væri gert ráð fyrir að stjórn og samninganefndin af- léttu verkfalli á sama hátt og þau boðuðu þau. Þegar samningar hins vegar tækjust nú myndu samningar verða urfdirritaðir með fyrirvara um samþykki félaga, en leitað yrði samkomulags við fjár- málaráðherra um frestun verk- fallsins strax og kjarasamning- arnir hafa verið undirritaðir og sú frestun gilti þar til niðurstöður lægju fyrir úr atkvæðagreiðslum um samningana í félögunum. — Þrjú slys Framhald af bls. 2 Einn maður varð fyrir minni hátt- ar meiðslum þegar fimm bílar lentu i árekstri á mótum Bústaða- vegar og Eyrarlands og tveir öku- menn og farþegi urðu fyrir meiðslum, þegar bílar rákust saman á mótum Kringlumýrar- brautar og Hafnarfjarðarvegar. Loks var bifreið ekið á ljósastaur á Grensásvegi við Ármúla um sjö- leytið á laugardagskvöldið og var ökumaðurinn fluttur á slysadeild. Hann mun ekki hafa meiðst mikið. — Geirfinnsmál Framhald af bls. 48 kváðu upp úrskurðinn í Hæsta- rétti en Ingibjörg Benediktsdóttir fulltrúi sakadóms Reykjavíkur kvað upp úrskurðina, sem stað- festir voru. — Söluskattur Framhald af bls. 48 kvæmdastjóri Verzlunarráðs, sagði i samtali við Mbl. að ástæð- ur þessarar beiðni væru meðal annars þær. að greiðslur til fyrir- tækja, sem selja gegn afborgun- um, væru nú fastar i bönkum og annars staðar, og einnig fengju fyrirtæki, sem selja ríkinu vörur og þjónustu, ekki greidda reikn- inga og ættu því mörg fyrirtæki inni hjá ríkinu hærri upphæðir en næmi þeim söluskatti, sem fyr- irtækin ættu að skila. Sagði Þor- varður ljóst, að vegna þessa myndu fyrirtæki ekki geta staðið í skilum með söluskatt í dag og þvi hefði beiðni um frestun ein- daga verið borin fram. — Lögbann Framhald af bls. 48 manns hans, Einar Ingi- mundarsonar bæjarfógeta, af máli þessu og fógeti settur í hans stað. ísal óskaði lögbanns á aðgerðir verkfallsvarðanna á föstúdaginn, eftir að þeir höfðu meinað skip- inu að leggjast að bryggju þrátt fyrir að leyfi bæjarfógeta þar að lútandi lægi fyrir. Lögmaður Isal, Guðmundur Pétursson hrl., lagði fram greinargerð sína fyrir helgi en Guðmundi Ingva var veittur frestur til mánudags. I greinar- gerð Guðmundar Ingva, lögmanns BSRB, eru m.a. rakin afskipti Einars Ingimundarsonar bæjar- fógeta af málinu og dregið í efa lögmæti þeirrar ákvörðunar hans að leyfa súrálsskipinu að leggjast að bryggju í Straumsvík síðdegis á föstudag. Verði að gera þá kröfu, með hliðsjón af afskiptum bæjarfógetans, að undirmaður hans víki sæti sem fógeti í mál- inu, þar sem telja beri hann van- hæfan til starfans vegna afskipta yfirmanns hans af málinu. Það, sem fyrir liggur næst í málinu, er að Már Pétursson úr- skurði hvort honum beri að víkja sæti í málinu eða ekki. Sagði Már í samtali við Mbl. -í gær, að hann myndi kveða upp úrskurð um þetta atriði klukkan 11.30 í dag, þriðjudag. Urskurðinum má skjóta til Hæstaréttar á hvorn veginn sem hann verður og getur því orðið bið á því að lyktir fáist í þessu Iögbannsmáli. Súrálsskipið Radiant Ventura liggur fyrir festum út af Straums- vík. — Flugleiðir Framhald af bls. 48 þeirra tæplega 200 Islendinga sem biðu fars heim í New York. ,,Það er ekki hægt annaö en að hjálpa þessu fólki heim,“ sagði Sveinn. „Mjög margir eru orðnir illa haldnir vegna féleysis og það er hreinlega ekki hægt að láta fólkið velkjast svona um erlendis félítið og félaust.“ Þessi flugvél verður fyrst um sinn notuð til æfingaflugs hér á landi áður en hún verður sett inn í áætlunar- flugið. Sveinn Sæmundsson sagði, að í gær hefðu 433 íslendingar beðið heimferðar með Flugleiðum er- lendis. — 0 — Nokkrar undanþágubeiðnir liggja fyrir hjá verkfallsnefnd BSRB en nefndin hefur haldið að sér höndum með að veita undan- þágur, þar sem samkomulag hef- ur þótt í sjónmáli. Engu að síður hefur orðið lengra i samkomulag- ið en menn hugðu, og sögðu verk- fallsnefndarmenn, aó ef svo héldi fram sem nú horfði enn um sinn yrði ekki komist hjá þvi að taka afstöðu til einstakra beiðna, sem fyrir liggja. Hér er einkum átt við beiðni Flugleiða um undanþágu til að fá að fara þrjár ferðir, þ.e. millilend- ingu á leiðinni New York — Luxemborg og auk þess ferðir Is- land — Glasgow — Kaupmanna- höfn og tsland — London. Hingað til hefur verkfallsnefnd veitt Flugleiðum undanþágu til að fara þrjár ferðir milli Islands og Evrópu með Boeing 727 þotum auk þess sem flugvél var heimilað að millilenda hér með 100 far- þegar frá New York, þegar veitt hafði verið undanþága til að taka hér sjúklinga. Á sama hátt hefur Arnarflug fengið undanþágu til að fara þrjár ferðir. — Rækjuveiðar Framhald af bls. 48 en rækjuveiðar áttu að hefjast hinn 21. október að undangeng- inni seiðarannsókn. hafrann- sóknaskipsins Drafnar, sem ekki hefur komizt úr höfn sökum ólög- legra hindrunar verkfallsvarða B.S.R.B. Smábátafélagið Huginn átelur B.S.R.B. harðlega fyrir þessar aðgerðir. Una sjómenn því illa að láta stétt þessa draga sig inn í afleiðingar verkfallsins og má m.a. benda á það að meðlimir B.S.R.B. hirða ávallt sín laun þeg- ar sjómenn heyja sín verkföll. Ennfremur ásakar smábátafélag- ið Huginn sjávarútvegsráðuneyt- ið fyrir linkind í þessum málum, að leyfa ekki að hefja veiðar, þar sem rækjusjómenn höfðu skuld- bundið sig til að telja ýtarlega öll seiði er í vörpu kynnu að koma og gefa um það skýrslu og jafnframt að stöðva veiðar ef nauðsynlega þyrfti, færi seiðamagn yfir ákveðnar viðmiðunartölur". Sigurjón Hallgrímsson, stjórn- arformaður í smábátafélaginu Huginn, sagði í samtali við Mbl., að sú breyting hefði nú orðið, að hluti af Djúpinu hefði verið opn- aður fyrir rækjubátana til að hleypa þeim af stað og myndu menn fara á miðvikudagsmorgun. — Lögreglu- menn Framhald af bls. 2 bættið í Reykjavik heyrði ekki undir forsætisráðuneytið, en Páll sagði að sér væri ekki kunn frek- ari atriði málsins. Morgunblaðið hafði samband við Björn Sigurðsson, formann Lögreglufélagsins, og spurði hann um tildrög þessa máls. Björn kvað þessa samþykkt fyrst og fremst hafa verið gerða í því skyni að lýsa allri ábyrgð á hendur stjórn- ar félagsins og þá sérstaklega hann sjálfan sem formann þess í þeim tilfellum sem einstakir lög- reglumenn kynnu að hafa framið agabrot samkvæmt túlkun yfir- manna lögreglunnar, því að af hálfu félagsins hefðu verið send út bréf á vinnustaði lögreglunnar með fyrirmælum hvernig þeir skyldu haga starfi sínu í verkfall- inu. Björn var spurður um afskipti forsætikráðherra af málinu en Björn kvaðst aldrei sjálfur hafa borið það út að forsætisráðherra hefði hafl afskipti af þessu máli, en því væri ekki að neita að hann hefði heyrt flugufregnir um þau innan lögregluliðsins. Morgunblaðið sneri sér þá til lögreglustjórans i Réykjavík, Sigurjóns Sigurðssonar, og spurði hann hvort hann hefði fengið fyrirmæli um það frá forsætirs- ráðherra að láta skrifa niður ein- staka lögregluþjóna sem gerzt hefðu sekir um agabort. Sigurjón kvaðst hvorki hafa fengið fyrir- mæli um slikt frá forsætisráð- herra, öðrum ráðherrum né stjórnarráðinu yfirhöfuð og væru þetta því staðlausir stafir. — Mjór er mikils vísir Framhald af bls. 14. sem nýr skóli leyfði sér að leggja á nemendur. Margir hafa barið sér á brjóst nemendum til samlæt- is yfir þessari áþján. Loks batt Magnús Torfi Olafsson enda á þennan barlóm með því að kippa z-unni út úr málinu og stofnhljóð- unum með. Minna mátti ekki gagn gera. Þetta er sorglegt dæmi um mistök velunnara gegn eftir- Iæti sínu. Margir lustu upp fagnaðarópi við þetta tækifæri. En þeir eru líka ófáir, sem ekki vilja sætta sig við þessa óvægilegu aftöku og þá málvönum, er kom í kjölfarið. Ég legg til að málið verði tekuð upp að nýju og sem fyrst og að z eða stofnhljóð hennar kennd í barna- skólum. Mér virðist reynsla benda til, að getan og viljinn til þess að læra þetta tiltekna atriði sé í réttu hlutfalli vð aðrar námsgreinar. Börn eru líka alltaf að læra eitt- hvað nýtt og að jafnaði ekki mjög fordómafull. Ég nefndi fyrr í þessari ritsmið, að e.t.v. væru einhvers staðar vegaskil til þess að velja eða hafna z s.s. i miðmyndarending- um sagna. Ég hef helgað stafsetningu þetta greinarkorn. Ekki vegna þess að hún sé mér hugstæðari en aðrir þættir islenzks máls heldur af því að hún er í brennidepli líðandi stundar og nemendur og kennarar vilja ekki að þetta mál- efni, sem varðar þá og auðvitað alla þjoðina svo mjög, sé lengur eins konar leikfang stjórnmála- manna og fjölmiðla. Það verður að taka ákveðna og varanlega stefnu í þessu máli og það sem fyrst áður en meiru er spillt. Og það þarf að ætla móðurmálinu meira rúm i námsskránni, ef vel á að vera. Ég hef góðan vilja tii þess að bæta hér við öðrum pistli um mál- fræði, en það verður að bíða ann- ars tíma. En ég get ekki látið vera að drepa lítillega á kommusetn- ingu. Ég hef aldrei verið hænd að ströngum kommusetningarregl- um, heldur reynt af veikum mætti að fylgja aðalreglum og málskyni. En þegar ég nú er að verða torlæs á stafsetningarverkefni fyrir nemendur mína (einkum 1976) sakir greinarmerkjaleysis, hljóta forráðamenn um kommusetningu að hafa gengið fulllangt í hlut- verki sínu. I námsskrám síðari ára og fyrirmælum fræðsluyfir- valda er kénnurum gert að leggja mikla alúð við lestrarlag nem- enda, þegar tilteknum lestrar- hraða er náð. Með lestrarlagi á ég við áherzlur og blæbrigði raddar eftir efni og setningaskipan. Um þetta er gott eitt að segja. En samtímis er mjög fækkað greinar- merkjum, sem eru þó þær vörður, er lesandinn hefur helztar að styðjast við. Vissulega má finna lestrarefni með alltof mörgum greinarmerkj- um, svo að auðlesið verði. En hér má á milli vera. Auk þess leiðist mér ósamræmi í fyrirmælum. Þegar glíman, sem felldi z-una úr málinu, stóð sem hæst gengu fulltrúar fjölmiðla fyrir fölk og spurðu um álit þess á málinu. Svörin voru margvísleg eins og fólkið. I viðtali, sem Morgunblað- ið hafði við Baldur Jónsson lektor þ. 5. september 1973, segir svo orðrétt: „Yfirleitt er það mikill ábyrgðarhluti að breyta stafsetn- ingu ogþað gera menningarþjóðir ekki nema þær séu til þess neydd- ar. Þetta veldur miklu meira raski en menn koma auga á í fljótu bragði." (Tilvitnun lýkur). Ég tek undir þessi orð af heil- um hug og vona að þau megi verða forráðamönnum leiðarljós í nútíð og framtíð. Reykjavik 11. okt. 1977.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.