Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 31 flokki sínum þvi svartsýnni var hann á að málefni Valfrelsis næðu fram að ganga. t sama hópi voru þeir fáu, sm lýstu beinni andstöðu við málefni Valfrelsis. Engir þeirra hafa sent Valfrelsi skrifleg svör. 7. Valfrelsi hefur ekki starfað sem sjórnmálaflokkur hingað til. Hins vegar getur komið upp sú staða að félagið sjái sér ekki ann- að fært en að beita sér fyrir stofn- un stjórnmálasamtaka sem bjóði fram sjálfstæðan lista í næstu Al- þingiskosningum, til að gefa kjós- endum kost á að láta álit sitt i ljós á baráttumálum félagsins. Megin- orsök þessa, ef til kæmi, er sú tregða sem foringjar stjórnmála- flokkanna hafa sýnt gagnvart jafn sjálfsögðum réttindamálum almennings sem meginmálefni Valfrelsis eru. (Lítið varð úr efndum þeirra sem fyrir 4 árum höfðu (munnlega) lofað stuðn- ingi). 8. Valfrelsi hefur ákveðið að leita álits allra frambjóðenda i næstu Alþingiskosningum. Verður það gert að loknum prófkjörum, um eða fyrir næstu áramót. Að fengn- um svörum frambjóðenda við spurningum um a) persónulega afstöðu til baráttumála Valfrelsis og b) hvort þeir séu tilbúnir að beita sér fyrir því á Alþingi, að löggjöf um persónubundnar kosn- ingar og almennar atkvæða- greiðslur eða skoðanakannanir um mikilvæg málefni verði sett, mun Valfrelsi taka ákvörðun um, hvort og hverja félagið muni styðja í kosningunum eða hvort það sjái sig knúið til að beita sér fyrir stofnun stjórnmálasamtaka, sem þá bjóði fram lista í eigin nafni. En ef svo fer að Valfrelsi ákveði að bjóða fram sjálfstæðan lista, verður efnt til prófkjörs meðal almennings i öllum kjör- dæmum um frambjóðendur. F.h. Valfrelsis Sverrir Runólfsson, (ábyrgðar- maður). Athugasemd frá BSRB t MORGUNBLAÐINU laugardag- inn 22. okt. s.I. er viðtal við Óskar Vigfússon formann Sjómanna- sambands tslands, sem ber fyrir- sögnina „Framkoma BSRB gagn- vart sjómönnum er fráleit". I viðtalinu segir m.a.: „Að því er Óskar sagði, fer Sjó- mannafélag Reykjavíkur að mestu með málefni sjómanna á flutningaskipunum, og hefðu full- trúar þess ásamt fulltrúum Far- manna- og fiskimannasambands íslands gengið á fund verkfalls- nefndar og farið þess á leit að skipunum yrði hleypt upp að, en svarið hefði verið blákalt nei. Það er enn fráleitara að láta þetta verkfall bitna á sjómönnum, sem eiga engan þátt í þvi, en sjómennirnir eru langtimum sam- an fjarri fjölskyldum sínum.“ Vegna þess sem haft er eftir formanni Sjómannasambands is- lands vill verkfallsnefnd BSRB taka fram eftirfarandi: 1. Verkfallsnefnd BSRB hefur frá upphafi leitast við af fremsta megni að láta verkfallið bitna sem minnst á launþegum annarra stéttarfélaga. Þó er ljóst að verkall vitnar ætíð á fleiri aðilum en þeim sem verk- fallinu er beint gegn hverju sinni. 2. Ljóst er að það myndi draga stórlega úr áhrifamætti verkfalls BSRB, ef skipin sem nú liggja á Ytri-höfninni yrðu tollafgreidd. Með þvi yrði dregið verulega úr þeim þrýstingi á stjórnvöld sem verkfallinu er ætlað að hafa. Slikt yrði ekki til að flýta fyrir lausn kjaradeilunnar. 3. Samkv. 19. gr. I. nr. 59/1969 um tollheimtu og tolleftirlit er óheimilt að leggja aðkomuskipi að hryggju fyrr en að fengnu leyfi tollgæzlunnar, þ.e. að lokinni toll- afgreiðslu. Tollafgreiðsla getur ekki farið fram vegna verkfalls tollvarða. Verkfallsnefnd BSRB brestur al- gjörlega heimild til að leyfa skipunum, sem nú eru á Ytri- höfninni, að leggjast að bryggju án tollafgreiðslu. Með þvi væri verkfallsnefnd að veita undan- þágu frá ísl. lögum, og má ljóst vera, að til þess hefur nefndin enga heimild. 4. í verkfalli BSRB hefur al- mennt verió mjög góð samvinna við önnur stéttarfélög og þau vandamál sem upp hafa komið gagnvart félagsmönnum þeirra hefur yfirleitt tekist að leysa, án þess að við grundvallarþáttum verkfalls BSRB væri hróflað. 1 ljósi þess sem að framan greinir væntir BSRB þess, að góð samvinna megi verða vió stéttar- samtök sjómanna. Samúð með baráttu fyrir styttum vinnutíma. Eftirfarandi tillaga frá Pétri Péturssyni ftr. Starfsmannafél. rikisútvarpsins var einróma sam- þykkt á síðasta þingfundi. 13. þing B.S.R.B. 1950 lýstir yfir samúð sinni meó sjómönnum i baráttu þeirra fyrir 12 stunda hvíld á sólarhring. Yfírlýsing frá Vaifrelsi Samþykkt af framkvæmdanefnd Valfrelsis. Herra ritstjóri: Við biðjum yður að birta eftir- farandi í blaði yðar: 1. Allt frá stofnun Valfrelsis, hinn 1. des. 1969 hefur félagið aðallega unnið að því að kynna tvö málefni meðal almennings og ráðamanna og afla þeim fylgis, þ.e. a) að persónubundnar kosn- ingar (bæði til Alþingis og sveita- stjórna) verði teknar upp og b) að sett verði löggjöf um almennar aðkvæðagreióslur (þjóðarat- kvæði) og skoðanakannanir, sem skylt sé að taka tillit til að meira eða minna leyti við ákvarðana- töku. 2. Valfrelsi mun styðja, bæði Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins: Fullur studn- ingur við samn- ingamenn Starfsmannafélag Ríkisút- varpsins hefur sent Morgunblað- inu eftirfarandi fréttatilkynn- ingu: Fjölmennur félagsfundur í Starfsmannafélagi Ríkisútvarps- ins haldinn í Reykjavík laugar- daginn 22. okt. 1977 lýsir fullum stuðningi við samningamenn félagsins i kjaradeilu opinberra starfsmanna og ríkisvaldsins, þakkar þeim ötult starf að hags- munamálum félagsmanna og hvetur þá til eindreginnar varð- stöðu um hagsmuni BSRB, hér eftir, sem hingað til. Jafnframt skorar fundurinn á alla félaga, að þeir, hver og einn, sýni i verki samstöðu og hviki hvergi, unz sigri er náð. Fundurinn telur algerlega ófullnægjandi þau tilboð sem ríkið hefir lagt fram og lýsir yfir, að ekki kemur til greina, að fall- ast á neinskonar tilsslakanir, er taka mið af Reykjavíkursamning- um. Fullur samnings- og endur- skoðunarréttur er meginkrafa, sem hvergi ber að hvika frá. leynt og ljóst, þá stjórnmála- flokka og frambjóðendur sem taka munu ofangreind tvö mál- efni á stefnuskrár sínar. (Við síð- ustu Alþingiskosningar m.a. lýsti félagið yfir stuðningi sinum við tiltekinn stjórnmálaflokk, en for- ingjar hans höfðu þá lofað (munnlega) að taka upp málefni Valfrelsis innan síns flokks og á Alþingi). 3. Með því að stuðla að því að fyrrnefnd tvö málefni verði lög- fest sem virkir þættir i íslenskri stjórnskipan hyggst félagið ná fram meginmarkmiðum sínum sem er að efla og bæta lýðræðis- fyrirkomulagið. 4. Með þvi að auka þátttöku og þar með áhrifavald almennings á stjórnun ríkis og sveitarfélaga leiðir, að hinum kjörnu fulltrúum og ráðnu embættismönnum er veitt aukið aðhald vió stjórnunar- athafnir sem aftur veldur því að þeir leiðast síður út í vafasamar ákvarðanatökur. Af þessu leióir að áhrif sérhagsmunahópa og klíkuvald stórminnkar en al- menningsheill og -hagsmunir munu beinlinis ráða úrslitum við ákvarðanatöku ráðamanna. 5. Félagar Valfrelsis hafa ólikar stjórnmálaskoðanir. Sumir þeirra eru virkir félagar í stjórnmálafé- lögum, og sitja nokkrir m.a.s. i stjórnum þeirra. Stefna Valfrelsis hefur verið sú a) að vinna mál- efnum þess fylgi innan starfandi stjórnmálafélaga og -flokka, og b) að kynna málefni þess i fjölmiðl- um og á opinberum umræðufund- um. (Prófkjör um frambjóðendur er spor í rétta átt og má ef til vill rekja að meira eða minna leyti, til áhrifa Valfrelsis). 6. Valfrelsi hefur bæði munnlega og skriflega haft samband við flesta eða alla núverandi alþingis- menn til að kynna þeim málefni félagsins og til að öðlast vitneskju um hvað afstöðu þeir hefðu gagn- vart persónubundnum kosning- um og almennum atkvæðagreiðsl- um um mikilvæg málefni. Flestir hafa lýst sig, í fremur loðnum svörum, persónulega fylgjandi málefnum Valfrelsis, en i ljós kom berlega að því meiri völd eóa áhrif sem viðkomandi hafi i ÞESSAR telpur, Þurlður ÞórðardAttir, Harpa Erlingsdóttir og Margrét S. Jörgensdóttir, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrkt- arfélag vangefinna, að trabakka 4 f Breiðholtshverfi. A myndina vantar eina úr hópnum, sem að fyrirtækinu stóð, en hún heitir Anna Marfa Þórðardóttir. Telpurnar söfnuðu alls rúmlega 5200 krónum. ÞESSAR telpur efndu til hlutaveltu vestur við Ægissfðu til ágóða fyrir Styrktarfélag vangefinna og söfnuðu þær 6400 krónum.- Telpurnar heita: Guðbjörg Auður Benediktsdóttir, Laufey Sig- urðardóttir, Iris Þórisdóttir og Svava Kristfn Þórisdóttir. Búið bílinn undir veturinn Við bjóðum eftirtalda þjónustu í því skyni fyrir lágt verð, kr. 8.800 fyrir 4 cyl bíl og kr. 10.300 fyrir 6 eða 8 cyl 1. Mótorstilling Stilltir ventlar Head hert Blöndungur hreinsaður Bensínkerfið athugað Bensindæla hreinsuð Kerti athuguð Þjöppun mæld Platinur stilltar Kveikjuþétti athuguð Kveikjuþræðir athugaðir Kveikjulok og hamar athugað Kveikja smurð Viftureim athuguð Loftsía athuguð Frostlögur mældur 2. Undirvagn Púströr athugað Höggdeyfar athugaðir Athugað hvort leki úr mótor, gírkassa eða drifi 3. Tengsli stillt 4. Þurrkuarmar og rúðusprautur athugaðar 5. Stýrisgangur Slit í stýrisupphengju athuguð Slit í spindlum athugað Slit í miðstýrisstöng athugað Slit í stýrisvél athugað 6. Hemlar Vökvamagn athugað Hemlaátak jafnað Handhemill athugaður 7. Ljós athuguð HILDA HF. Suðurlandsbraut 6 Kaupum lopavörur Móttaka þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 10—3. Símar 34718 og 81699.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.