Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 blMAK 28810 24460 bílaleigan GEYSIR BORGARTÚNI 24 car rental LOFTLEIDIR S 2 11 90 2 11 38 FERÐABÍLAR hf. Bílaleiga, sími 812G0 Fólksbilar, stationbilar, sendibil ar, hópferðabílar og jeppar. 22 0-22* RAUDARÁRSTÍG 31 V> .. Hópferðabílar 8—50 farþega Kjartan Ingimarsson Simi 861 55, 32716 Bændur! Rjúpnaskyttur! Hinar handhægu tveggja rása talstöðv- ar komnar aftur. BENCO Bolholti 4, Reykjavík. simi 91-21945, Hjálmar Bárdarson sýnir fuglamyndir hjá Fugla- verndarfélaginu annað kvöld Hjálmar Bárdarson FUGLA VERNDARFÉLAG fs- lands heldur annan fræösiufund sinn á þessum vetri í Norræna húsinu n.k. miövikudaftskvöld. Hjálmar Bárðarson siglinga- málastjóri, sem löngu er lands- kunnur fyrir Ijósmyndir sinar, flytur fyrirlestur á fundinum og sýnir litskuggamyndir af íslenzk- um fuglum. Hann hefur á undan- förnum árum snúið sér í auknum mæli að þvi að ljósmynda fulga, og á fundinum sem hefst kl. 20.30, sýnir hann meðal annars myndir af ýmsum sjaldgæfum íslenzkum fuglum. Öllum er heimill aðgang- ur að þessum fundi Fugla- verndarfélags íslands meðan hús- rúm leyfir. Tvær Hringskonur við hluta af basarmununum. Hringsbasar KVENFÉLAGIÐ Hringurinn heldur sinn árlega handa- vinnu- ojí kökuhasar á Hallveigarstöðum laugardaginn 29. þ.m. kl. 14.00. Sýnishorn af basarmununum voru í glugga Gráfeldar á horni Bankastrætis og Þingholts- strætis nú um sl. helgi. Samtök herstöðvarandstæðinga: Ásmundur Ásmundsson formaður miðnefndar f fréttatilkynningu, sem borizt hefur frá Samtökum herstöðva- andstæðinga, greinir frá kosn- ingu nýrrar miðnefndar samtak- anna, sem fram fór á ráðstefnu í Grindavík nýlega. Formaður mið- nefndarinnar er Asmundur As- mundsson, Kópavogi, en ritari er Guðsteinn Þengilsson og gjald- keri Jóhann Guðjónsson. Aðrir í miðnefndinni eru Arni Björnsson, Árni Hjartarson, Frið- geir Björnsson, Gunnar Andrés- son, Hörður Zophaníasson, Jónas Jónsson, Kristján Bersi Ölafsson, Reynir Sigurðsson og Rósa Stein- grimsdóttir. Á ráðstefnunni var meðal ann- ars ákveðið að efna til „mikilla aðgerða í marsmánuði" n.k., auk þess sem herstöðvaandstæðingar boða að farið verði í göngu í maí eða júní. Þá lýsti ráðstefnan yfir stuðn- ingi við kjarabaráttu opinberra starfsmanna, samþykkti að krefj- ast lokunar Kefiavíkur- útvarpsins og beindi þvi loks til stjórnvalda að styðja frelsisbar- áttu Grænlendinga. Leifur Eiríksson - Norræn persóna? Eftirfarandi klausa birtist í leiðara stórblaðsins VVashing- ton Post í síðustu viku: Við viljum ómögulega að þið haldið að við gerum ekki annað en að velta fyrir okkur yfirlýs- ingum frá Hvita húsinu og öðru hátíðlegu tildri. En eins og gengur og gerist vorum við að lesa eina slíka tilkynningu í vikunni, þegar við rákumst á eftirfarandi yfirlýsingu: Bandarikin eru ung þjóð, en skuld hennar til hinnar hug- rökku norrænu persónu, Leifs Eiríkssonar, nær Iengra aftur en til ársins 1776...“ o.s.frv. Það er nefnilega það: „Norræn persóna." Orðalag þetta má finna í yfirlýsingu Jimmy Cart- ers frá 23. september sl„ þar sem hann gerir heyrum kunn- ugt að framvegis verði 9. októ- ber haldinn hátiðlegur sem Dagur Leifs Eiríkssonar. Ástæðan fyrir því að við setj- um út á þetta ruglingslega orða- lag, er ekki sú að Leifi Eiríks- syni, hvíli hann í firði, hefði fundizt þetta gersamlega óþol- andi. Ástæðán er heldur ekki sú staðreynd, að Leifur Eiríks- s.on var norrænn maóur, ekki norræn kona eða norrænt barn. Ástæðan er sú þróun og það fordæmi, sem þessi málnotkun gétur hæglega haft i för með sér. Þeir, sem bera ábyrgð á þess- um málfarsbreytingum, mega gjarnan taka til athugunar þær staóreyndir, sem sagan segir okkur um norrænu mennina, sem höfðu jú oft kvenfólk í för með sér og hættu sér ekki að- eins í langar siglingar til Vesturheims, heldur héldu þeir einnig til meginlands Evrópu og hikuðu ekki við að leggja nokkur þorp í rúst þar og hlutu af því nafnið Normannar. Af því er nafnið Normandy dregið, þótt íbúar Normandy séu ekki kallaðar „Norpersónur" eða „Normandypersónur". Hefur einhver heyrt um „Innrás Normandypersóna"? Og þegar hér er komið því þá að láta staðar numið? Hvað um móður Leifs Eiriks- sonar, sem er sögð hafa yfirgef- ið föður hans, Eirík rauða, vegna þess að hann neitaði að ganga undir skirn. Því kallaði hún þá Leif Eiríksson? Af hverju er hann ekki líka kennd- ur við móður sína? Þið skiljið kannski núna hversu yfirgripsmikið þetta vandamál er. Við hér raunum halda okkur við einfaldar siða- venjur og álitum okkur ekki gera arfleið neins manns eða konu skömm með þvi að full- yrða það, að okkur er mikil ánægja í því að halda 9. október hátíðlegan og minnast hetjunn- ar og norræna mannsins Leifs Eirikssonar. The Washington Posi. Ný hárgreiðslu- stofa í Borgarnesi FYRIR skömmu var opnuð að Skúlagötu 13, Borgarnesi, ný hárgreiðslustofa. undir nafninu: Hárgreiðslustofan Edda, Borgarnesi. Eigandi stofunnar er Edda Hinriks- dóttir hárgreiðslumeistari sem áður rak hárgreiðslu- stofu í Reykjavík í nokkur ár. Auk hennar starfa á stofunni tvær stúlkur. Öll tæki á stofunni eru af nýjustu gerð frá þýzka fyrir- tækinu Vella. Um leið var opnuð á sama stað ný snyrti- stofa og er eigandi hennar Hjördis Karlsdóttir fegrunar- sérfræðingur. Þessar stofur eru þær fyrstu sinnar teg- undar í Borgarnesi. (Fréttatilkynning).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.