Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 Reykjavíkurmeistarar KR í körfuknattleik 1977. 1 efri röð eru leikmenn meistaraflokks og í neðri röð leikmenn 4. flokks sem einnig hlutu Reykjavíkurmeistaratitilinn. I efri röð frá vinstri eru eftirtaldir: Sveinn Jónsson, formaður KR, Kristinn Stefánsson, Einar Bollason, Andrew Pia/za, Kolbeinn Pálsson, Bjarni Jóhannesson, Jón Sigurðsson, Eiríkur Jóhannesson, Carsten Kristinsson, Árni Guðmundsson, Agúst Líndal, Birgir Guðbjörnsson og Helgi Agústsson, formaður körfuknattleiksdeildar og liðsstjóri meistaraflokks. PIAZZA OG JÓN í „BANASTUÐI" ER KR SIGRAÐI [S MB1103 STIGUM GEGN 70 SNILLIIARTAKTAR Andrew Piazza og Jóns Sigurðssonar tryggðu KR öruggan sigur yfir stúdentum og þar með Reykja- v íkurmeist arat it ilinn í síðasta leik Reykjavíkurmótsins í körfu- knattleik. Stúdentar áttu ekkert svar við stórkostlegum samleik þeirra félaga og áhorfendur, sem fjölmenntu á þennan leik, kunnu vel að meta þær listir sem á boð- stólum voru. KR-ingar tóku strax forystu í leiknum með körfu Piazza og eftir sex mínútna leik var staðan orðin 10—2 fyrir KR. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan oróin 24—10, en i hálfleik leiddu KR-ingar með 50 stigum gegn 29. 1 upphafi seinní hálfleiks virtist sem stúd- entar væru að vakna til lifsins og minnkuðu þeir forskot KR-inga um átta sig, en þá tóku KR-ingar öll völd aftur og skoruðu hverja körfuna á fætur annari án þess að stúdentar fengju nokkuð að gert. Um miðjan seinni hálfleik var staðan 70—46 og stuttu seinna 80—50. Leiknum lauk síðan með 33 stiga sigri KR, 103 stig gegn 70. Lið KR er geysisterkt og telja ýmsir að þetta sé besta lið, sem KR hafur teflt fram í körfuknatt- leik fyrr og síðar. Þrátt fyrir að það hefur misst bæði Birgi Guð- björnsson og Kristin Stefánsson vegna meiðsla. í leiknum gegn ÍS voru þeir Andrew Piazza og Jón Sigurðsson langbestir KR-inga, en þeir Koibeinn Pálsson og Einar Bollason voru einnig sterkir. Andrew Piazza skoraði 50 stig i þessum leik og brenndi vart af skoti, Jón Sig. skoraði 24 stig og Kolbeinn 14. Lið stúdenta náði sér aldrei á strik í Ieiknum gegn KR og hefur fjarvera Dirk Dunbar mikið að segja. Bestir IS-manna voru þeir Jón Héðinsson og Bjarni Gunnar Sveinsson. Aðrir leikmenn svo sem Kolbeinn Kristinsson, Steinn Sveinsson og Ingi Stefánsson fundu sig ekki í leiknum enda var þeirra gætt mjög stíft. Flest sig ÍS skoruðu þeir Jón Héðinsson 23 og Bjarni Gunnar 19. Dómarar voru þeir Þráinn Skúlason og hinn efnilegi Sigurð- ur Valur Halldórsson. Dæmdu þeir fyrri hálfleik vel, en misstu nokkuð tökin á leiknum í seinni hálfleik. —óG slökum leik Torfi Magnússon og Rick Hockenos, en sá siðarnefndi mætti að ósekju gera meira sjálf- ur, því að í þessum leik virtist hann geta skorað nánast hvenær sem hann vildi. Þessir tveir leik- menn skoruðu flest stigin fyrir Val, Torfi 19 stig og Hockenos 18. Hjá Ármanni voru Atli Arason og Jón Björgvinsson frískastir og skoraði Atli 19 stig og Jón 17. Lokastaðan í Reykjavíkurmótinu KH 5 5 0 463—339 10 stiS VALIR 5 4 I 376—331 S stig ls 5 3 2 433—391 H stig FRAM 5 2 3 398—413 4 sttK AKMANN 5 1 4 372—407 2 stig ÍR 5 0 5 297—458 Ostig Öll liðin jöfn Á LAUGARDAGINN léku KR og ÍR í Reykjavikurmótinu i körfuknattleik i meistaraflokki kvenna. ÍR-stúlkurnar tóku forystu i leiknum strax i upphafi og sigruðu örugglega 54—44 eftir að staðan hafði verið 28—20 i hólf- leik. Öll þrjú liðin i mótinu. KR, ÍS og ÍR, urðu þvi jöfn og verða að fara fram úrslitaleikir til að útkljá mótið. GG. Bjarni Gunnar Sveinsson kominn ( færi við KR-körfuna. Hann náði þeim merka áfanga um helgina að leika sinn 200. meistaraflokksleik fyrir IS. Aðrir á myndinni eru Kolbeinn Pálsson, Steinn Sveinsson og Jón Héðinsson. Bjami Gunnar með 200 leiki FYRIR leik KR og IS afhenti Valdimar Örnólfsson Bjarna Gunnari Sveinssyni, leikmanna IS, veglegan bikar fyrir 200 leiki með meistaraflokki tS. Bjarni Gunnar hefur um árabil verið einn besti miðvörður i fslenzkum körfuknattleik og hefur leikið fjölda landsleikja. Hann er mjög vinsæll leikmaður og virtur, jaPnl af samherjum sem mótherjum. GG Kallaá Cmyff HOLLENDINGAR verða án eins bezta leikmanns síns, varnarmannsins Wim Rijs- bergen frá Feyenoord er þeir mæta BelgíumÖnnum í undan- keppni heimsmeistarakeppn- innar í knattspyrnu í Amster- dam n.k. miðvikudagskvöld. Wim Rijsbergen hefur átt við meðsli að stríða að undan- förnu og um helgina kvað la-knir hans upp þann úrskurð að hann gæti ekki leikið á mið- vikudaginn. Jan Zwartkruis, fram- kvæmdastjóri hnllenzka lands- liðsins tilkynnti val landsliðs- ins á fundi með fréttamönnum á laugardaginn. Valdi hann bæði Johann Cruyff og Johann Neeskes í liðið, en sem kunn- ugt er leika þeir með spánska liðinu FC Barcelona. Tveir aðrir leikmenn sem leika með erlendum liðum verða í hol- lenzka landsliðinu þeir Rob Rensenbrink og Johnny Dasz- aba sem leika með heigíska liðinu Anderleeht. Mikill áhugi er ríkjandi í Hollandi á leik þessum, en Hollendingum nægir jafntefli í leiknum til þess að tryggja sér sess í úrslitakeppní heims- meistarakeppninnar í Argen- tínu næsta sumar. Lið Hollendinga á miðviku- dagskvöldið verður þannig skipað: MARKVERÐIR: Jan van Beveren (PSV Eindhoven), Jan Jongbloed (RodaJC) VARNARMENN: Wim Suurbier og Ruudi Krol (báðir frá Ajax), Hugo Hovcnkamp (AZ 67) og Johnny Duszaba (Anderlecht) MIÐJUMENN: Wim van Hanegem og Jan Peters (AZ 67), W'im Jansen (Feyen- oord), W'illy van de Kerkhof (PSV), Johan Neeskens (Barcelona) SÖKNARLEIKMENN: Ruud Geels (Ajax), Rene van de Kerkhof og W'illy van der Kuylen (PSV), Johan Cruyff (Barcelona) og Rohbie ^RensenbrinMAnderlencht)^ mm Valur sjgraði Ármann í EINN leikur fór fram í Reykjavíkurmótinu í körfukanttleik á föstudags- kvöld. Áttust þá viö Valur og Ármann og varó Valur að sigra í leiknum til þess aö eiga möguleika á sigri í mótinu. í byrjun Ieiks var mikið um mistök á báða bóga og gekk ieikmönnum erfiðlega að finna leiðina í körfuna. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 12:9 fyrir Ármann og höfðu Valsmenn verið ákaflega slakir fram að því,.en þá tóku þeir aðeins við sér og þegar flautað var til leikshlés hföðu þeir náð 9 stiga forystu, 39:30. Svipaður munur hélzt siðan út leikinn og Valsmenn sigruðu með 77 stigum gegn 63. Valsmenn voru óvenju daufir að þessu sinni og voru heppnir að mótherjarnir voru ekki sterkari en Ármannsliðið var í þessum leik. Beztir hjá Val voru EINAR OG PIAZZA FENGU EINSTAKLINGSVERÐLAUN R EYKJAVÍKU R M ÓTSIN S EINAR Bollason og Andrew Pi- azza fengu einstaklingsverð- laun fyrir vítahittni og stiga- skor. STIGAHÆSTIR URÐU: stig Andrew Piazza 141 Rick Hockenos Val 117 Símon Úlfasson Fram 109 Erlendur Markússon tR 102 Atli Arason Ármanni 89 VÍTAHITTNI: Einar Bollas. KR 23:18 78,3% MikeWood, A 32:25 78,1% Steinn Sveinss. IS 19:14 73,7% Til að koma til greina í sam- bandi við verðlaun fyrir vfta- hittni varð leikmaður að ná því að komast 10 sinnum á víta- punktinn. GG I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.