Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTOBER 1977 37 samningur starfsmanna borgar- innar gefur þeim að meðaltali um það bil 1.5% meiri bætur en loka- tilboð ríkisins fól í sér gagnvart BSRB má hins vegar skýra með því, að samkvæmt sáttatillögunni og síðasta tilboði ríkisins var fólg- in all veruleg útgjaldahækkun hjá ríkinu vegna sérstakra kjara- bóta til starfshópa t.d. kennara sem sveitarfélög hafa almennt ekki í þjónustu sinni. Útgjalda- hækkun borgarsjóðs samkvæmt kjarasamningunum er af þeirri ástæðu ekki meiri en útgjalda- hækkun ríkissjóðs samkvæmt síð- asta tilboði hans. Albert Guðmundsson sagði, að í endurskoðaðri fjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir árið 1977 hefðu verið áætlaðar 565 - milljónir vegna hækkunar á kaupgjaldslið- um en nú væri áætlað, að það myndi hækka um 75 milljónir. Albert sagðist undir lokin vilja nefna, að á siðustu vikum hefðu einstakir forystumenn BSRB gert það að höfuðkröfu sinni, að sam- tökin fái endurskoðunarrétt með verkfallsrétti á samningstiman- um. Af hálfu ríkisvaldsins hefir þeim þó verið gert Ijóst, að for- senda til lagasetningar um verk- fallsrétt opinberra starfsmanna var, að verkfallsrétturinn fylgdi aðeins gerð aðalkjarasamnings sem gilda skyldi í tvö ár. Því hefur verið lýst yfir, að ekki sé vilji til að gera lagabreytingu er heimili verkfallsrétt á gildistima aðalkjarasamnings og að sam- kvæmt gildandi lögum hafi fjár- málaráðherra ekki umboð til að semja um frekari verkfallsrétt en lög gera ráð fyrir. Ég hygg einnig, að flestir félagsmenn í BSRB og mikill meirihluti þjóðarinnar hafi þegar fengið sig fullsadda af verkfalli opinberra starfsmanna og þá einkum og sér í lagi óbilgjarnri framkvæmd þess af hálfu forustumanna BSRB. Samningamenn Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar virðast einnig hafa skilið, að óraunhæft væri að leggja áherslu á þessa kröfu forystumanna BSRB um aukinn verkfallsrétt og gerðu hana ekki að úrslitaatriði við samningsgerðina, enda í minum huga furðuleg afstaða og i engu samræmi við hagsmuni hins al- menna Iaunþega að halda starfs- mönnum í verkfalli dögum saman til þess aðallega að knýja á um aukinn verkfallsrétt, sem á sér enga stoð í lögum, sem sett voru með samkomulagi aðila. Albert sagði, að í hinum nýja kjarasamn- ingi væri ákvæði sem hljóðaði þannig, „Verði gerðar breytingar á vísitölureglum almennra kjara- samninga í landinu á gildistima þessa samnings með lögum, skulu samningsaðilar taka upp viðræð- ur í því skyni að tryggja þann tilgang ákvæða samningsins um verðbætur að þau verði eigi lakari en hjá öðrum fjölmennum laun- þega samtökum í landinu." Albert Guðmundsson sagði í lok máls síns: „Reykjavíkurborg á enn ósamið við Hjúkrunarfélag Islands. I lok júnímánaðar var gerður samsvarandi samningur við Hjúkrunarfélagið um frestun viðræðna og afturvirkni kjara- samninga og gerður var við Starfsmannafélag Reykjavikur- borgar. Þá gaf launamálanefnd einnig Hjúkrunarfélaginu sam- svarandi yfirlýsingu og gefin var til Starfsmannafélagsins í byrjun septembermánaðar þess efnis að launamálanefnd væri reiðubúin að hefja viðræður við samninga- nefnd Hjúkrunarfélagsins um nýja kjarasamninga svo og að launamálanefnd væri reióubúin að ræða frekar um leiðréttingu á misræmi sem kynni að hafa skap- ast við niðurröðun i launaflokka hjúkrunarfræðinga á sjúkrahús- um borgarinnar og var í þessu sambandi vitnað til bréfs borgar- stjóra til Hjúkrunarfélags isiands 28. mars s.l. Ef frá er talinn fundur hjá sáttanefnd, sem haldinn var eftir að boðaó hafði verið til verkfalls hefur Hjúkrunarfélagið ekki ósk- að sérstaklega eftir viðræðufundi með launamálanefnd, en launa- málanefnd er að sjálfsögðu reiðu- búin að hefja slikar viðræður á Ekki verður hjá því komizt að borgarsjóður taki lán til stutts tíma grundvelli þess kjarasamnings sem nú hefur verið gerður við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar svo og þeirra atriða ann- arra sem um getur i áður til- vitnuðum bréfum. Þess ber að geta, að fyrir höndum launamála- nefndar borgarinnar undirrituðu hinn nýja kjarasamning Albert Guðmundsson, Markús Örn Antonsson, Kristján Benedikts- son og Sigurjón Pétursson." Björgvin Guðmundsson spurðist fyrir um eftirfar- andi á fundi borgarstjórn- ar 20. okt. Hvernig er lausafjárstaða borgarsjóðs í dag? Hvernig hefur hún þróast undanfarið? a. Hefur borgarsjóður orðið að taka einhver skamm- tímalán undanfarið vegna fjárskorts? b. Hve mikil er yfirdráttarskuld borgar- sjóðs í Landsbankanum í dag? Hve mikil var hún um síðustu áramót? Hver er yfirdráttarheimildin? Borgarstjóri, Birgir ís- leifur Gunnarsson, (S) svaraði og sagði að borgar- sjóður hefði ekki tekið nein skammtímalán á þessu ári hvorki í skulda- bréfa- eða víxilformi. Hinn 30. sept. sl. hefði yfirdrátt- ur á hlaupareikningi borg- arsjóðs í Landsbanka ís- lands verið 364 milljónir. Rétt væri aö geta þess, að yfirdráttur hækkar all- mjög á fyrstu dögum mán- aðar vegna launagreiðslna. Og í gærkvöldi (19. okt.) hefði hann verið 477 millj- ónir. Áramótayfirdráttur hefði verið 111 millj. og sérstakt samþykki bankans Olafur B. Thors: „Út í hött að aðrir hagsmunir en hafnar- innar hafi legið að baki Nokkuð langar umræður urðu á fundi borgarstjórnar 20. október varðandi útboð á fyllingarefni i Kleppsvík. Þrjú tilboð bárust í verkið. Þau voru frá Námunni hf„ Björgun hf. og Sveinbirni Run- ólfssyni. Aðaldeiluefnið á fundin- um var, hvort væri hagstæðara, tilboðið frá Björgun hf. eða frá Námunni hf. Náman hf. mun hafa ætlað að taka sitt fyllingarefni úr Hval- firði, Björgun hf. á Engeyjar- sundi en Sveinbjörn Runólfsson ætlaði að taka grjót af landi við Elliðaárvog, en það þurfti borgin að losna við. Alfreð Þorsteinsson (F) kvaddi sér hljóðs og sagði að Náman hf. hefði verið með hag- stæðara tilboð í fyrstu. En síðan hefðu sérfræðingar sest niður og reiknað upp á nýtt og fengið út að Björgun hf væri með hagstæðasta tilboðið. Þessa útreikninga hefði hafnarstjóri kynnt á fundi stjórn- ar Innkaupastofnunar Reykjavík- urborgar. (Ef marka má fundar- gerðir sem fyrir liggja hafa menn í stjórn ISR ekki verið á eitt sáttir um hina nýju útreikninga. Þeir eru tæknilegs eðlis, varða lestar- rými Perlu (Náman hf) og lestar- rými Sandeyjar II, ennfremur þjöppun efnis og útskolun.) Á fundi borgarstjórnar urðu umræður um þessi atriði allflókn- ar og kom m.a. fram, að einhver misreikningur hefði orðið þegar flutningsgeta Perlu hefði verið reiknuð út. Alfreð Þorsteinsson sagði siðan á fundí borgarstjórn- ar, að hafnarstjóri hefði á um- ræddum fundi hjá stjórn ISR þar sem hann var mættur sem embættismaður lýst yfir að hann myndi ekki mæta á fundi hjá stjórn ISR. I bókun sem Alfreð lét gera um málið á fundi stjórnar ISR 1,0. okt. segir m.a.: „að minu áliti eru forsendur hafnarstjóra, er hann kynnti á stjórnarfundi ISR 3. okt„ vafasamar og eðlilegt hefði verið að yfirfara allar upp- lýsingar viðvíkjandi þetta mál, áð- ur en endanleg ákvörðun var tek- in. Þar fyrir utan skýtur það skökku við, að á sama tíma og hafnarstjóri beri sig illa út af slæmri fjárhagsstöðu Reykja- vikurhafnar skuli hann neita að mæta á fundi stjórnar ISR eða senda fyrir sig fúlltrúa, þegar fjallað er um málefni sent hugsan- lega gæti sparað höfninni tug- milljónir króna." A fundi borgar- stjórnar i byrjun október var fundargerð hafnarstjórnar frá 26. sept. lögð fram og samþykkt án athugasemda. Varðandi þetta atr- iði sagði Alfreð: „ég vil taka fram, að þá lá ekki fyrir umsögn borgar- lögmanns um stöðu hafnarstjórn- ar gagnvart stjórn ISR sem beðið var um á siðasta stjórnarfundi ISR. Leit ég þar af leiðandi svo á, að málið væri í biðstöðu og harma það, að afgreiðsla málsins skuli nú talin útkljáð." Alfreð Þor- steinsson sagði, að framkoma hins móðgunargjarna hafnarstjóra væri furðuleg og borgarstjóra bæri skylda til að sjá svo um, að allir embættismenn borgarinnar mættu á fundum stjórnar ISR, ef óskað væri eftir þvi. Alfreð lauk máli sinu með því að segja, hér væri „prinsipmál" að ræða og með virðingarleysi við stjórn ISR væri verið að gera at- lögu að henni. Ólafur B. Thors (S), formaður hafnarstjórnar, tók næst til máls. Hann sagðist vilja harma ræðu Alfreðs Þorsteinssonar. I henni hefðu komið fram ómaklegar og ódrengilegar aðdróttanir að ákveðnum einstaklingi, þ.e. hafn- arstjóra. Ólafur sagði, að Hafnar- stjórinn i Reykjavík hefði löngum Alfre<) Ólafur verið þekktur af einstakri sam- viskusemi í starfi, ósérhlífni og góðri stjórnun á málum hafnar- innar. Borgarfulltrúinn sagði hugmyndir Alfreðs Þorsteinsson- ar um að annarlegar hvatir réðu ákvörðun hafnarstjórnar um að taka tilboði Björgunar hf. vera alrangar. Siðan spurði Ölafur B. Thors: „Vill borgarfulltrúi Alfreð Þorsteinsson í raun gera sam- starfsmönnum sínum hér i borgarstjórn upp slíkar hugrenn- ingar?" Þá sagði Ölafur: „A síð- asta fundi borgarst jórnar var fundargerð hafnarstjórnar sam- þykkt án athugasemda. Svo lengi hefur Alfreð Þorsteinsson setið hér i borgarstjórn að honum ætti að vera fuilkunnugt um að þetta er eðlileg málsmeðferð. Sannleik- ur málsins er þvi augljós. Borgar- fulltrúi Alfreð Þorsteinsson hef- ur ekki haft hugmynd um hverju hann svaraði já við á síðasta fundi borgarstjórnar er hann sam- þykkti margumrædda fundargerð hafnarstjórnar. Olafur B. Thors sagði, að umræddir útreikningar hefðu verið gerðir til að fó tilboð- in borin saman eins og þau i raun eru. Hann sagði það gjörsamlega út i hött, að aðrir hagsmunir en hagsmunir hafnarinnar hefðu legið að baki fyrrgreindri ákvörð- un. Hann sagðist ekki vorkenr.a Alfreð vegna þess, að hann hefði ekki gert athugasemd þegar fundargerðin lá fyrir borgar- stjórn til samþykktar. I þessu máli ætti Alfreð Þorsteinsson við engan að sakast nemasjálfan sig. Ólafur ítrekaði síðan fyrri um- mæli sin, „að hann harmaði orð Alfreðs Þorsteinssonar í garð hafnarstjóra, þau væru ódrengi- leg“. Björgvin Guðmundsson (A) sagði það sjálfsagði kurteisi að embættismenn borgarinnar leit- uðu umsagnar stjórnar ISR. Þvi vildi hann vita að hafnarstjórn hefði tekið ákvörðun í máli þessu í stað stjórnar ISR. Kristján Benediktsson (F) sagði aó sér hefði fundist tilboð þriðja aðila, Sveinbjarnar Runólfssonar, hag- stæðast. Hann hefði ætlaö að taka grjót sem borgin ætti og þyrfti að losna við. Sannleikur málsins væri hins vegar sá, að formgalii hefði verið á útboði þar sem óskað var eftir að efninu yrði dælt úr sjó. Til að forðast vandræði hefði því aðeins verið hugað að tveimur margumræddum tiiboðum- Kristján sagðist ekki fullviss um gang málsins en eftir sinni bestu vitund væri þetta þannig. Alfreð Þorsteinsson sagði að sér þættu „primadonnustælar" hæstvirts borgarfulitrúa Olafs B. Thors veróa orðnir það gamaldags i stofnun þessaii, að þeir væru ekki lengur vióeigandi. Þá sagðist Alfreð kunna betur viö gamla Heimdallarstílinn á Olafi. Hann lagði fram tillögu um, að hlutlaus athugun færi fram á hvorl tilboö- ið væri hagstæöara. Ólal'ur B. Thors lagði fram frávisunartil- lögu en þar segir m.a., að þar sem máliö hafi þegar verið afgreitt bæði i hafnarstórn og borgar- stjórn sé það ekki réttur gangur að samþykkja tillögu Alfreðs. Slik málsmeðferð sé augljóslega af „prinsipástæöum" út í hött, málið hafi verið afgreitt að undan- gengnum nákvæmum athugunum frá borgarstjörn. Fróvisunartil- lagan var samþvkkt. þyrfti ef farið væri yfir það mark. Eins og borgarfulltrúum va*ri kunnugt. sagði Birgir Isleifur, er velta borgarsjöðsins sjálfs án f.vrirtækja um 10,4 milljarðar. Reynsla undanfarinna ára er sú, að mánuöirnir okt.—des. eru erf- iöastir fyrir borgarsjóð. Hæsti yfirdráttur sem hlutfall af veltu 'borgarsjóös undanfarin ár hefur verið 8%. Þá spurði Björgvin Guömunds- son hvernig fjárhagsstaða borgar- sjóðs gagnvart hinum ýmsu fyrir- tækjum borgarinnar' væri i dag, ennfremur hvernig hún hefði þróast á þessu ári? Borgarstjóri sagði, að hinn 30. sept. hefði greiöslustaöa fyrirtækja með sjálfstæðan efnahagsreikning verið þannig, að inneign stofnan- anna væri 253 milljónum hærri en áramótainneign þeirra. Þessi heildarinnistæöa æ*tti eftir að breytast mjög mikið á árinu. Þannig myndu Byggingarsjöður, Vatnsveita og Maibiksstöð nota verulegar fjárhæðir af inneignum sínum og sennilegt er, að B.vgg- ingarsjóður muni vera i skuld við borgarsjöö um áramótm. Hins vegar er gert ráð fyrir, að Húsa- tryggingar auki við inneign sína, ef tjónum fjölgar ekki frá því sem veriö hefur. Þá spurði Björgvin Guömunds- son hvernig innheimta álagðra gjalda hefði gengið miöaö við sl. ór. Borgarstjöri svaraði og sagði að samkvæmt upplýsingum frá Gjaldheimtunni væri staðan nú þannig; Gjöld álagningarárs 45.03% (44.82% 1976), eftirstöðv- ar 51.57% (47.43% 1976) og fast- eignagjöld 90.45% (90.48% 1976). Borgarstjóri sagðist vilja gera grein fyrir þeim vanda, sem borg- arsjóöur stæði nú frammi fyrir vegna nýgerðra kjarasamninga borgarstarfsmanna. „Hinn 1. okt. voru brúttólaun að meðtalinni greiðslu í lífeyrissjóö samtals kr. 361 milljón. Nú að loknum samn- inguni eru áætlaðar samsvarandi tölur 1. nóv. sem hér segir: 1. Mánaöarlaun 1. növ. kr. 424 millj- ónir. (Sú tala er sambærileg við 361 milljón) 2. Inneign vegna hækkunar júli — okt. er 172 millj- ónir. 3. Inneign vegna launa- flokkaskriðs júli — okt. er 24 milljónir. Samtals 620 milljönir. Borgarsjóður þarf því að greiöa í laun um na*stu mánaðamót upp- hæð sem er 259 milljónum hærri heldur en launagreiöslur voru þann 1. okt. Þá má geta þess, að áætluö laun 1. des. eru 490 millj- ónir og til viðbótar kemur per- sónuuppbót sem reiknuð er til greiöslu í desembermánuði kr. 37 milljónir. Sú mikla launafjárhæð sem borgarsjóður þarf nú að greiða um næstu mánaðamót er mun meiri en rekstrartekjur borgarsjóðs á þessu timabili geta staðið undir. eða það sem ætlast má til að viöskiptabanki okkar geti leyst úr með venjulegri vfir- dráttarheimild. Ég tel þvi, að ekki verði hjá því komist að borgar- sjóður taki lán til tiltölulega stutts tima sem þö þarf að vera fram yfir áramöt til að standa undir þeim greiðslum. Er nú unn- ið að athugun á því máli. Björgvin Guðmundsson tök siöan til máls og ræddi stuttlega um málin. FRA BORGAR- STJÓRN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.