Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTOBER 1977 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10 — 11 FRA MANUDEGI kröfugerð þeirra ef til vill í lagi, en engu slíku er til að dreifa nú. því miður. Enginn sjóður er til að ausa úr nema okkar vesæli og illa stæði ríkissjóður og svo auðvitað vasar almennings í landinu. Það er langt því frá að ég sé á móti því að BSRB-menn fái sanngjarnar kjarabætur. á þeim eiga þeir auð- vitað fullan rétt til jafns við aðra launþega i landinu. En þegar BSRB-menn vilja í einu stökki rifa sig uppá háa-c meðan aðrir launþegar una vel lægri tónum og haida sig þar ánægðir með sitt, þá hygg ég að nokkuð mikið ósam- ræmi sé komið á alla hljómkvið- una, sem sé alltof margir falskir tónar, en slíkt má ekki eiga sér stað, samræmis verður að gæta í öllum hlutum ef vel á að fara. En því miður, öllum góðum kjaraboð- um er neitað og talin alltof lág og að engu hafandi. Þannig lagaður samningaandi og þvergirðingur er ekki heillavænlegur til sam- komulags og kann aldrei góðri lukku að stýra. Og hlytur fyrr eða siðar að stefna i ógöngur öllum samningaleiðum. ..Beint af eyrar- oddanum undan svarta bakkan- um." Þorkell Hjaltason." 0 Tilburðir fyrir prófkjör ,,Nú er í uppsiglingu prófkjör í Sjálfstæðisflokknum og hafa rnenn getað lesið í Morgunblaðinu um tilburði eins væntanlegs frarn- bjóðanda til þess að vekja á sér athygli og skopast að. A dögunum var sem sé sagt frá því að nafn- greindur alþingismaður hefði sótt um inngöngu i Hvöt og mun inn- tökubeiðnin hafa verið undirrituð með ..jafnréttiskveðju'. þótt aldrei hafi maður heyrt þann mann orðaðan í sambandi við jafnrétti kynjanna. Blaðamaður- inn. sem skrifaði fréttina, hefur vonandi þó ekki viljandi gert þingmanninum þann bjarnar- greiða að gera hann að athlægi. svo augljós sem tilgangurinn er. Ég geri fastlega ráð fyrir að þingmaðurinn sé félagi í ein- hverjum hinna fjölmörgu karla- klúbba í Reykjavík. svo víða sem hann kemur við og ef þessi nýbak- aði „áhugamaður" jafnréttis vill vera sjálfum sér samkvæmur ætti hann að flytja þar tillögu um að opna félagið f.vrir konum. Gæti maður þá fengið annan grínþátt að skemmta sér við, en þá verður hann að hafa snör handtök, þvi senn dynur prófkjörið yfir. Auður Auðuns." Þessir hringdu . . . 0 Skrítnar baráttuaðferóir Svo sem vel er kunnugt af fréttum hefur lengi staðið hálf- gerð ógnaröld í Þýzkalandi að því er sumir telja vegna mannránsins á dögunum og atburðanna er fylgdu i kjölfar þess. Hefur það og fleiri atburðir í svipuðum dúr orðið tilefni til hugleiðinga „Friðarsinna," sem fara hér á eftir: „Við fáum daglega fréttir af því í blöðum okkar hvernig hin og þessi baráttusamtök erlendis berjast fyrir ýmsum hagsmuna- málum og hugsjónamálum sinum. Það er kannski gott við verkfallið hjá okkur núna að þurfa ekki að frá fréttir af þessum voðaatburð- um nema gegnum blöð, — við þurfum ekki á meðan að horfa upp á myndir frá átökum í sjón- varpi. En mörg þessi samtök hvar sem þau eru, Baader-Meinhof, PLO, IRA og hvað þau nú öll heita, hafa vægast sagt undarleg- ar baráttuaðferðir. Það er beitt ofbeldi eða hótað að gera það, mannrán framin, morð, flugrán og hver veit hvað, jafnvel oft á tíðum til að mótmæla ofbeldi. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á meistaramóti sovétlýðveldis- ins Moldavíu (Bessarabíu) i ár kom þessi staða upp i skák þeirra Averkins, sem hafði hvítt og átti leik, óg Figlers. 17. d6! — Rxd6, 18. Rd5 — Dd7, 19. g4. Svartur gafst upp. Eftir 19. . . Rf4, 20. Rxf4 — exf4, 21. Bxf4 tapar hann einfaldlega manni. Sigurvegari á mótinu varð Lutikov. Hann hlaut lO'/i v. af 13 mörulegum. Annað sætið kom í hlut Figlers, sem hlaut 10 v. og þriðji varð Averkin með 8‘/4 v. Þetta eru skrítnar baráttu- aðferðir. En hvernig er það með okkur hérlendis, kemur þetta okkur eitthvað við? Ég ræddi áð- an um að gott væri kannski að fá minni fréttir af þessum atburðum en endranær, en er okkur ekki hollt að vita hvað er að gerast úti i hinum stóra heimi? Vissulega er það nauðsynlegt fyrir okkur að vita það. Þó að þetta sé landfræði- lega fjarlægt landi okkar er ekki að vita nema vettvangur slíkra atburða geti einnig orðið hér á landi eða hér við land, t.d. hvað flugrán snertir. Því mætti e.t.v. spyrja í framhaldi af þessu hvar við stöndum t.d. i Sameinuðu þjóðunum eða öðrum alþjóða- samtökum og hvort við getum ekki á einhvern hátt látið he.vra í okkur um svona mál eða a.m.k. má spyrja hvort slíkt sé rétt. Erum við of smá og fátæk til að geta gert ofbeldisaðgerðir og bar- áttuaðferðir ýniissa samtaka áð umtalsefni á alþjóðavettvángi. Margt mælir kannski á móti svona hugleiðingum. kannski eru þetta aðeins órar, að við getum skipt okkur af stórmálum ein- hvers staðar úti í heimi. Það má svo sem vel vera, en þetta eru þó mál, sem gætu snert okkur á eftir- minnilegan hátt, ef vettvangur þeirra skyldi berast að okkar ströndum. Nóg um það. vonandi hafa einhverjir fleiri sitthvað til þessara mála að Ieggja." HOGNI HREKKVISI Lukkutröllin gt*ta ekki stöðvað leik — sama hver í hlut á! — KA—Grótta Framhald af bls. 25 einna mest á þeim Þór Ottesen og Grgtari Vilmundarssyni og var sá síðarnefndi markhæsti Gróttumaður- inn í leiknum. Mörk Gróttu: Grétar Vilmundarson 7, Þór Ottesen 4, Gunnar Lúðvíksson 2, Axel Friðriksson 2, Reynir Erlings- son 2, Kristján Guðlaugsson 1. Mörk KA: Sigurður Sigurðsson 7, Þorleifur Ananíasson 5, Jóhann Einarsson 3, Hermann Haraldsson 3, Ármann Sverrisson 3, Páll Kristjáns- son 2. — stjl. — Sinfónían Framhald af bls. 13 os eftir Mozart og síðan bæði dúett úr Don Giovanni eftir Mozarl. Sieglinde Kahmann er frábær söngkona. eins og reyndar kom fram siðar á tön- leikunum. Kristinn Hallsson er í „fínu formi" eins og sagt er. Hann söng á síðari hluta tón- leikanna tvö íslenzk lög. Heimi eftir Pál Isólfsson og Vorgyðj- an kemur eftir Arna Thor- steinsSon. I lagi Arna var söng- ur Kristins sérlega góður og frábærlega vel útfærður. Há- punktur tónleikanna var söng- ur Sieglinde Kahmann á aríu úr Kátu ekkjunni eftir Léhar. Vonandi eiga íslenskir hljóm- leikagestir eftir að heyra hana syngja oftar með sinfóniu- hljómsveitinni og sjá hana á leiksviði. Stemningin var svo slerk, að jafnvel krakkar, sem sátu á gólfi íþröttahússins og voru ekki alltaf „kyrrlát og hljóð", störðu frá sér numin. Hljómsveitin lék tvö aukalög til að skemmta fólki og enduðu tónleikarnir með mikilli kátínu. Jón Asgeirsson — Kerfið og manneskjan Framhald af bls. 15 að varla er að undra þótt ekki sé hægt að fullnægja hjúkrunaiþörf allra spítaladeilda landsins með útlærðum og verðandi (nemum) húkrunarfræðingum eingöngu. En hvaða lausn gæti komið til greina? Almenningi virðist það oft liggja hendi næst að reyna svo sem hægt væri að fá ólært fólk til aðstoðar við hjúkrunarstörfin. Fá gott fólk og skynsamt, sem fúst er til að starfa undir stjórn og hand- leiöslu hjúkrunarfræðinga. Fölk, sem ekki hefur fryst brjóstvil sitt og löngun til að hjúkra og hjálpa sjúkum. Og enn finnst vonandi margt af því. ef eftir er leitað. Það er staöreynd iífsins, sem aldrei fellur úr gildi, aö í hjúkrun og umönnum sjúkra hafa þeir komist lengst, sem þetta hafa haft til að bera. hvað sem allri sérlegri hjúkrunarfræði líður. sem ekki ber að vanmeta. Þettaætlu hjúkr- unarfræðingarnir. hjúkrunar- stéttin, öðrum fremur að kunna að skilja og meta- og hagnýta sér meðan hún enn er sjálf of fámenn og vanmegna til að fullnægja þörfinni á sinu eigin starfssviði. Sú stétt veit þó flestum öðrum betur, áð fyrir hverja deild á sjúkrahúsi. sem lokast vegna vöntunar á hjúkrunarliði, er hóp- ur af sjúku fólki dæmdur til að Vera áfram heima við allavega ástæður. Stundum sem sjúkir ein- stæðingar eða í höndum ólærðs fólks, sem sumt hvað hefur sára- lítil tök á eða aðstæður til að veila þá hjúkrun og Utnönnum sem þyrfti. Eg á því enga betri ósk til handa okkar ágælu hjúkrunar- stétt (sem efalaust er eitt mikil- va-gasta hjólið í okkar samfélags- kerfi) en að hún sé þess ávallt minnug. aö ofar hverri stétt. ofar hverju kerli er manneskjan sjálf. Og vonandi verður það aldrei svo fullkomið hjá okkur, að það gangi af eðlilegri mannúð og heilbrigðu brjóstviti dauðu. Ingibjörg Þorgeii sdöttir. Verksntidju _ útsala Alafoss Opió þriójudaga 14-19 fimmtudaga 14—18 á útsöíunni: Flækjulopi Hespulopi Flækjuband Fndaband Prjónaband Véfnaðarbútar Bílateppabútar Teppahútar Teppamottur ALAFOSS HF MOSFELLSSVEIT eldhúsviftur eru ísenn kröftugar, hljóðlátarog fallegar. Eigum fyrirliggjandi tvær gerðir, SANIM AR með þremur hröðum og Ijósi og ELECTRONIC með elektrónískri hraðastillingu og innbyggðu Ijósi. Báðar gerðir er hægt að stilla á inn - eða útblástur Verð frá kr. 44.500,- Verzlunin PFAFF sími 26788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.