Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977 39 Skömmu síðar kenndi Kristinn sér meins, sem hann hafði ekki áður fundið til. Harmur laust um- hverfið allt, sem varla var þó hægt að átta sig á svo skjótt, en Kristinn var látinn innan skammrar stundar frá þessu, þrátt fyrir allar aðgerðir. Kristinn M. Gunnarsson var fæddur á Eskifirði, en fluttist þaðan til Reykjavíkur með for- eldrum sínum þá nokkurra mán- aða gamall. Kristinn á einn al- bróður, einn hálfbróður og eina hálfsystur á lifi. Faðir hans var vélsmiður og virðist það rénna stoðum undir menntaveg og störf Kristins. Hann vann ýmis störf sem ungl- ingur, en hóf síðan nám í Vél- smiðjunni Héðni hf. og lauk það- an vélvirkjaprófi 1953. Siðar hóf hann nám i Vclskóla íslands og lauk þaðan vélstjóraprófi hinu meira (rafmagnsdeild) árið 1959. Eftir það hefst sjómennska, það er vélstjórastarf á skipum, sem þá var enn nær einasta starfsgreinin, sem vélstjóralærðir menn gátu fengið við sitt hæfi miðað við menntun. Kristinn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Guð- mundsdóttur 3. nóv. 1949. Allt frá unglingsárum unnust þau hugástum og voru hvort öðru sífellt hin trausta stoð í viðfangs- efnum lífsins og báru hvort með öðru allar byrðar þess. Þau eign- uðust fjögur mannvænleg börn. Þau Unni og Huldu, sem báðar eru giftar, Guðjón, sem er kvænt- ur og er við nám um þessar mund- ir erlendis, og Margréti, sem er 15 ára í foreldrahúsum. Kristinn var heimakær maður og góður húsfaðir. Löngun þeirra hjóna til þess að hann gæti unnið í landi og verið nær heimili þeirra var mikil. Þau réðust þá í að reka verzlun um tíma á eigin vegum. Það gekk ekki nógu vel til þess að svæfa með Kristni löngunina til að sinna vélvirkjun eða fara með vélar og stjórna þeim. Hann réðst þvi til Keflavíkurflugvallar og vann þar um tíma við slík störf þótt honum líkaði þar aldrei vel. Kristni voru rík í huga umbóta- og leiðbeiningarstörf og þegar honum gafst tækifæri tók hann að sér starf aðstoðarskoðunarmanns fyrir Öryggiseftirlit ríkisins 7. sept. 1974, en um haustið 1975 varð hann skoðunarmaður í fullu starfi fyrir eftirlitið og var fast- ráðinn í það starf 1. janúar 1975 og sinnti því starfi með vaxandi trúnaði og fjölgandi viðfangsefn- um til hins siðasta. Hin margþættu og oft óiíku störf, sem ætlast var til að hann leysti af hendi, leiddu hann aldrei til uppgjafar, heldur til að leysa viðfangsefnin með dyggð og sóma. Yrðu vandasöm úrlausnarefni fyrir hendi var þjált að starfa með Kristni, þvi þolgæði og prúð- mennska var honum í blóð borin. Þó gat hann einarðlega og á skýr- an hátt leitt skoðanir sínar í ljós án þess að torvelda samstarf sitt við aðra. Kristinn gekk vel til verka og hafði gleði af starfi sínu með okk- ur í eftirlitinu. Hann var hvetj- andi til góðs samstarfs og lá aldrei á liði sínu, enda höfum við ávallt haft sömu ánægjuna af návist hans og hlýleik. I félagsmálum var Kristinn svo sem mér er tjáð, að hann hafi verið á heimili sinu ávallt hinn hægláti, trausti, en jafnframt glaðværi og góðlyndi fulltrúi trygglyndis við menn og málefni. Þar lét aldrei öðru hærra, en fyndist honum sér vera misboðið sem sjaldgæft var, átti hann, eins og flestir með sömu skapgerð, erf- itt með að sæta þvi eða jafna sig á því fyrst í stað. Það er skarð fyrir skildi þegar svo traustur drengur, sem Krist- inn var, hverfur af vettvangi og nú þegar kær félagi og starfsbróð- ir er farinn minnumst við hlýrra samverustunda með honum með þakklæti og söknuði. Við biðjum saknandi eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum blessunar Drottins og að vegurinn framundan megi verða þeim bjartur og greiður, þótt syrti mjög að nú um stund. Friðgeir Grímsson og starfsféUgar. Louis Einarsson —Kveöja Fæddur: 15. febrúar 1925. Dáinn: 27. september 1977. Við fráfall bróður mins Louisar Einarssonar frá Siglufirði komu ótal skýrar og fagrar myndir í hugann frá æskudögum okkar fyrir norðan. Þvi langar mig nú til að færa honum mina hinstu kveðju og þakklæti i fáum og fá- tæklegum orðum. Louis fæddist í Siglufirði 15. febrúar árið 1925, sonur hjónanna Kristmundar Eggerts Einarssonar bryta er lést árið 1961, og Borghild Einarsson f. Hernes sem búsett er i Reykja- vik. Eg man frá æskudögum okkar, ef eitthvert af okkur yngri syst- kinum hans datt og skrámaði sig eða ef eitthvað annað bjátaði á, hvað gott var ef hann var nálæg- ur, því þá var gefiö mál að allt varð gott á ný. Hann var alveg sérstaklega umhyggjusamur bróð- ir sem ætíð vildi gera gott úr öllu sem úrskeiðis fór og ætið tókst honum það. Louis var mikill nátt- því nú sé hann kominn til fegurri heima þar sem engir sjúkdómar eru til, og þar á sólarströndum muni hann á sinum tima taka á móti okkur hinum. Þegar ég kveð elskulegan bróður minn hinstu kveðju, þá þakka ég honum fyrir allt sem hann var mér, betri bróð- ur hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Mig langar til að kveðja hann með fögrum sálmi eftir Guðmund Einarsson. Til þfn cg. Drottinn. husa hcf. cr harmar Iffs mig þjá. Og bið af hjarta huggun m*f mcr himni þínum frá. Mík örmum kærlciks vcikan vcf «K vota þcrra brá. kom. athvarf mitt. ok ci vi<) tcf. minn anda lát þig sjá. 0. lát mÍK fcginn fa«na þvf. þ<*ir fá. scm cg hcf misst. nú horfin sM öll harmaský. í himna sælli vist t»K dýrrtarljóma upphcims f hjá cnglasvcit þar gist. scm andans framför æ cr ný um cilffð fyrir Krist. Eg bið Guð að blessa minningu Louisar. Utför hans fór fram frá Foss- vogskirkju 6. okt. sl. Svanhvít. RENAULT 20 Renault 20 er bíllinn sem sameinar lipurð bcejarbílsins og stcerð og þcegindi ferðabílsins. Bíll sem hentar íslenskum aðstceðum einkar vel. Renault 20 er framhjóladrifinn bíll, með sjálfstceða fjöðrun á hverju hjóli. Vélin er 102 hestöfl og eyðslan aðeins 9 l á 100 km. Renault mest seldi bíllinn í Evrópu 1976. RENAULTO KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 i wii i iniin ixnniiirTiíi nnwi irr i iiMffWi'1'! úruunnandi og mikið gefinn fyrir útiveru, ég man er þeir æsku- félagar Louis Jón Einarsson, Hjörtur Karlsson og aðrir vinir stunduðu fjallgöngur, hvað Louis naut þeirra innilega og hvað þær höfðu góð áhrif á hann. Louis hóf ungur nám í vélsmiði á Akureyri enn sú atvinnugrein mun ekki hafa átt við hann. Þá snéri hann sér að málningarstörfum, fannst hann betur eiga þeima þar, og þá atvinnugrein stundaði hann upp frá þvi á meðan heilsan entist honum, en heilsuna missti hann á bezta aldri og náði sér aldrei til fulls eftir það. Louis var mjög listfengur og eiga ýmsir eftir hann bæði mál- verk og ímálaða dúka sem þóttu hrein listaverk. Louis var vin- margur enda þannig gerður, hann var strangheiðarlegur, hjálpsam- ur og trygglyndur, einnig hafði hann mjög létta lund, átti mjög gott með að koma öllum í gott skap hvernig sem á stóð. Louis var trúaður maður þótt hann tal- aði ekki mikið um það, þvi betur sýndi hann trú sina í verki. Hann var mjög barngóður, ekki gekk hann fram hjá barnahóp sem eitthvað hafði sletzt upp á vinskapinn hjá án þess að staldra við og tala við þau þar til allir voru orðnir sáttir á ný. Louis vann lengst af hjá Antoni Víglundssyni og Stefáni Guð- rriundssyni málarameisturum i Siglufirði, en þeir eru nú báðir búsettir í Reykjavik. Louis íét vel af þessum vinnuveitendum sinum og bar þeim gott orð og fjölskyld- um þeirra. Ekki má gleyma vinnufélögum hans, en milli Louisar og þeirra skapaðist mikil og góð vinátta. Hann þótti dugleg- ur, vandvirkur og samviskusamur við allt er hann tók sér fyrir hend- ur. Ég veit að bróðir minn var þannig gerður að ef hann mætti mæla til okkar nú þá'bæði hann okkur að láta ekki sorgina yfir- buga okkur ættingja sína og vini, YLURINN FRÁ OSRAM HEFUR LINAÐ ÞRAUTIR MARGRA. Hvort sem þú þjáist af gigt eöa harðsperrum — eöa þá bara löngun til sólarlanda — hefurOSRAM ráö viö verstu stingjunum! OSRAM Ultra Vltalux er lampinn, sem kemur öllum í suðrænt skap, og heldur viö heilbrigðum litarhætti, jafnvel í versta skammdeginu. OSRAM Theratherm hefur reynst gigtarsjúkum vel í mörgum tilvikum. OSRAM vegna gæðanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.