Morgunblaðið - 25.10.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977
3
Lögmaður sjávarútvegsráðuneytisins:
Óskar eftir hraðari
meðferð Hæstarétt-
ar á lögbannsmálinu
PÁLL S. Pálsson hrl. hefur snúið
sér til Hæstaréttar og óskað eftir
aó áfryjun vegna synjunar
borgarfógetans í R.vík um iiig-
bann á verkfallsvörslu BSRB vió
rannsóknaskipið Árna Friðriks-
son verði þingfest fyrr en áætlað
var eða strax í þessari viku og
hún hljóti hraðari meðferð í rétt-
inum en venja er með áfryjunar-
mál, með tilvísan til ákvæða 34.
greinar 3. málsgreinar um Hæsta-
rétt, „þegar sérstaklega stendur
á“.
Nokkurrar ónákvæmni gætti í
frétt Mbl. um þetta mál fyrir helg-
ina, en af henni mátti skilja að
lögbannsmálið fengi hægari með-
ferð fyrir Hæstarétti en ella, þar
sem málinu hefði verið áfrýjað en
það ekki kært. Það rétta er, 'að i
lögum um Hæstarétt segir að
synjunarúrskurði fógeta skuli
áfrýja en ekki kæra. Hefur orðið
misskilningur um þetta milli
Björns Helgasonar hæstaréttarit-
ara og blaðamanns Mbl., sem
Björn hefur beðió Mbl. að leið-
rétta.
Páll S. Pálsson sagði í samtali
við Mbl. í gær, að hann hefði tekið
ákvörðun um áfrýjun eftir vand-
lega fhugun enda ekki fundið
neina leið til að flýta málsmeð-
ferðinni, þar sem hún væri bund-
in i lögum á þann hátt er að
framan greindi. Hins vegar kvað
hann það engan veginn eðlilegt að
synjunarúrskurðir fógeta væru
bundnir við áfryjun og væri þessu
t.d. á annan veg háttað i dönskum
lögum, sem hefðu verið íyrir-
mynd islenzku laganna. Hefði
hann þess vegna óskað eftir þvi
við Hæstarétt að veitt yrðu af-
brigði þánnig að þessu umrædda
lögbannsmáli mætti hraða í með-
förum Hæstaréttar.
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins á Vestur-
landi 26.-27. nóvember
Á AÐALFUNDI kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Vestur-
landskjördæmi sl. föstudag var
samþykkt reglugerð um prófkjör
í kjördæminu. Þátttaka er heimil
meðlimum sjálfstæðisfélaga 16
ára og eldri, sem búsettir eru í
kjördæminu og einnig þeim sem
ætla að styðja flokkinn í alþingis-
kosningunum 1978 að því er segir
í frétt frá kjördæmisráðinu. Próf-
kjörið fer fram 26.—27. nóvem-
ber og rennur framboðsfrestur til
kjörsins út 5. nóvember kl. 24.00.
Skal framboðum skilað til full-
trúa kjörnefndar eða stjórnar
kjördæmisráðs.
Frambjóðendur verða valdir
þannig að meðlimum sjálfstæðis-
félaganna 16 ára og eldri er heim-
ilt að gera tillögur um frambjóð-
endur til prófkjörs. Skal tillagan
undirrituð af minnst 50 og mest
70 flokksmönnum og getur eng-
inn flokksmaður staðið að fleiri
en tveimur slíkum tillögum. Þá er
einnig ákvæði um að kjörnefnd er
heimilt að tilnefna frambjóð-
endur til viðbótar eftir því sem
þurfa þykir enda verði frambjóð-
endur til prófkjörs aldrei færri en
nemur tölu þeirra, sem skipa
framboðslistann til þingkosninga,
þ.e. 10.
Öbirt leikrit ákveð-
ið til kennslu?
„Þeir hafa víst í einhverjum
skólum verið að spá í þetta. Það
var svona hljóð í einhverjum
kennurum i haust að taka þetta
leikrit til kennslu, þegar það
kæmi út,“ sagði Valdimar
Jóhannsson, forlagsstjóri Iðunn-
ar, þegar Mbl. spurði hann um
áform um kennslu á leikriti Vé-
steins Lúðvíkssonar; Stalín er
ekki hér, sem getið er um í frétt-
unt varðandi bókaútgáfu Iðunnar,
en leikritið er væntanlegt á bók á
Óskar Vigfússon:
Morgun-
blaóið
fór ekki
rangt með
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Oskar Vigfússon,
forseta Sjómannasambands ls-
lands, og spurði hann hvort
rétt væri sem annað siðdegis-
blaðanna hafði eftir honum í
gær, að Mbl. hefði farið með
rangt eftir honum í frétt í
laugardagsblaði. Óskar kvað
svo ekki vera, en sagðist vilja
undirstrika eftirfarandi: „Ég
hef fulla samúð með kjarabar-
áttu BSRB, en ég álít það frá-
leita afstöðu af hálfu samtak-
anna að taka skipin ekki upp
að brygju."
næstunni. Varðandi það, að skipu-
lagðar skólasýningar á verkinu
yrðu fljótlega eftir frumsýningu
sagði Valdimar, að hann vissi
ekki betur, en einhverjir hefðu
komið að máli við Þjóðleikhúsið
og beðið um skólasýningar með
fyrra fallinu, þannig að nemend-
uin gæfist kostur á að sjá verkið á
sviði samtímis því, sem þeir læsu
það í skólunum.
Stefán Baldursson hjá Þjóðleik-
húsinu sagði það rétt að minnzt
hefði verið á skólasýningar á
þessu verki við Þjóðleikhúsið og
heföi það verið bókaútgáfan Ið-
unn, sem kom þeim tilmælum til
leikhússins. Hins vegar hefði ekk-
ert verið ákveðið af leikhússins
hálfu, en skölasýningar væru fast-
ur liður í starfseminni.
Hörður Lárusson hjá skólarann-
sóknadeild menntamálaráðuneyt-
isins kvaðst ekkert vita um áform
þess efnis að þetta leikrit Vé-
steins yrði tekið inn i námsefni
framhaldsskóla i vetur. „Við
Framhald á bls. 33.
Happdrætti H.I.:
Enga vinninga
hægt að borga
út í verkfalli
„Vegna verkfalls BSRB er því
miður ekki hægt að hefja útborg-
un vinninga í 10. flokki i dag,“
segir í fréttatilkynningu frá
happdrætti Háskóla tslands. „Út-
borgun vinninga hefst um það bil
sólarhring eftir að verkfalli lýk-
ur“.
Ljósm Mbl Ól K Mag
Frá Miklubrautinni i gær. Allir bilarnir á vinstri akrein.
Misnotkun vinstri
akreinarinnar
ALLAR helztu umferðargötur i borginni eru merktar með akreinum, en slik
merking á að stuðla að þvi að umferðin verði öruggari og að flutningsgeta
gatnanna aukist. Hins vegar er það staðreynd að það eru alltof margir
ökumenn sem ekki virðast kunna að nota akreinarnar rétt.
Hvað er akrein?
í 2. gr. umferðarlaga 3. málsgr. stendur: „Akreinar. Samhliða reinar,
sem skipta má akbraut i að endilöngu. hæfilega breiðar, hver um sig, fyrir
eina röð ökutækja". í 45. gr. sömu laga segir svo i 1. málsgr. „Ókumenn
skulu hajda ökutækjum sinum hægra megin á akbraut eftir þvi sem við
verður komið og þörf er á vegna annarrar umferðar."
Það er þvi miður algeng sjón að sjá hægfara ökutæki. oft ökutæki. sem
ekið er langt undir eðlilegum ökuhraða, á vinstri akrein. Þetta skapar
hættu m.a. óeðlilegan framúrakstur á hægri akrein. sem siðan leiðir til
þess að aftur er ekið yfir á vinstri akrein og svo koll af kolli.
Hægri akreinin er sú akrein, sem ökumenn eiga að nota, vinstri akrein
er fyrir framúrakstur og fyrir þá er ætla að beygja til vinstri. eins og kemur
fram i 46. gr. umferðarlaga 2. málsgr.: „Nú eru tvær eða fleiri akreinar
fyrir sömu akstursstefnu á vegi og sRál þá ökumaður i tæka tið áður en
komið er að vegamótum færa ökutækið á þá rein, sem heppilegust er
miðað við fyrirhugaða akstursstefnu."
Það að menn eigi i tæka tið að færa sig yfir á vinstri akrein þýðir ekki
að menn megi langtimum saman aka á þeirri vinstri af þvi að þeir ætli
einhvern tima að beygja til vinstri. Ókumenn ættu að taka sjálfa sig taki
og athuga hvort þeir hver og einn hafa ekki á þennan hátt misnotað
vinstri akreinina. Fyrir getur komið á vissum götum á vissum timum að
báðar akreinar séu fullnýttar og við þvi er ekkert að gera.
Hugsunarleysi
Akstur á akgreinum er orðinn snar þáttur i umferðinni og með siaukinni
umferð er það brýn þörf að ökumenn virði þær reglur er hér hafa verið
nefndar. Ekki vegna hinna ökumannanna, heldur vegna eigin hagsmuna
og umfram allt vegna aukins öryggis fyrir alla vegfarendur.
Sérstök ástæða er til að vekja athygli á þessu fyrir ökumenn dráttarbif-
reiðar. dráttarvéla, kranabifreiða og þungra vörubifreiða svo og annarra.
sem af einhverjum ástæðum treysta sér ekki til að aka á eðlilegum hraða
miðað við aðstæður.
Engar tölur eru til um það hvað óeðlilegur akstur á vinstri akrein veldur
mörgum slysum. en hitt er staðreynd að fátt eða ekkert fer eins i skap
ökumanna og það að verða fyrir þvi oft á dag að þurfa að taka alls konar
áhættu vegna hugsunarleysis og kæruleysis annarra i umferðinni, en
slæmt skap við akstur slævir oft dómgreindina.
Margir sakna vingjarnleika og tillitssemi i umferðinni. Að þessu eru allir
að leita, en enginn finnur. Er það e.t.v. vegna þess að allir leita að þessu
hjá öðrum en enginn hjá sjálfum sér?
Alþýðuflokkur
á Vesturlandi:
Eiður Guðna-
son gefur
kost á sér í
fyrsta sætið
„ÞAÐ ER nokkuð síðan að leitað
var til niín um að gefa kost á mér
í prófkjör Alþýðuflokksins i Vest-
urlandskjördæmi og ég hef nú
ákveðið að gefa kost á mér í f.vrsta
sætið,“ sagði Eiður Guðnason,
fréttamaður, í samtali við Mbl. í
gær.
Eiður sagói að eftir þessa
ákvörðun hefði hann óskað eftir
þvi við framkvæmdastjóra sjón-
varpsins að veróa fluttur í annað
starf hjá sjónvarpínu, þar sem
hann teldi ákveðin afskipti af
stjórnmálum ekki samrýmast al-
mennum fréttastörfum hjá sjón-
varpinu. „Ég sé þvi hins vegar
ekkert til fyrirstöðu að ég g. ti
innt af hendi einhver önnur störf
hjá sjónvarpinu."
Eiður Guðnason sagðist nú hafa
starfað hjá sjónvarpinu á ellefta
ár, „svo gott sem allan tímann í
fréttum og þar áður var ég í
blaðamennsku i fimm ár, hjá Al-
þýðublaðinu."
Prófkjör Alþýðuflokksins á
Vesturlandi fer fram í siðari
hluta nóvember, en framboðs-
frestur rennur út 29. október.
Auk Eiðs hefur Guðmundur Vé-
steinsson, bæjarfulltrúi á Akra-
nesi, ákveðið aó gefa kost á sér í
fyrsta sætið, sent losnaði eins og
kunnugt er, við ákvörðun Bene-
dikts Gröndal, formanns Alþýðu-
flokksins. um að fara i framboð í
Reykjavík.
Kosið í 1. des.-nefnd:
Verdandi hlaut
471 atkvæði
og Vaka 351
KOSIÐ var til hátíðarnefndar stú-
denta 1. desember á laugardag.
842 greiddu atkvæði og hlaut B-
listi Verðandi 471 atkvæði, eða
57,3%, og A-listi V'öku hlaut 351
atkvæði eða 42,7%. Efni 1. des-
hátíðarinnar verður því „Kven-
frelsisbaráttan", en Vaka bauð
upp á efnið „Menntun og mann-
réttindi".
Siðast þegar kosningar fóru
fram 1975 hlaut B-listi Verðandi
54% atkvæða og A-listi Vöku
36%. Engar kosningar föru fram í
fyrra. þar sem Vaka dró lista sinn
til baka vegna ágreinings um
kosningafyrirkomulagió.
Byggingariðnaðurinn að lamast vegna verkfallsins:
Steypustöðvarnar fá
ekki afgreitt sement
— og íhuga þær kaup á sementi
erlendis frá í framtíðinni
BYGGINGAIÐNAÐURINN í
Reykjavík og nágrenni hefur að
nokkru leyti lamast, þar sem sem-
ent hefur ekki verið afgreitt ti|
steypustöðva i hálfan mánuð
vegna verkfalls BSRB, að því er
Víglundur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri steypustöðvar BM
Vallá tjáði Mbl. í gær. Steypu-
stöðvarnar hafa ekki getað af-
greitt steypu síðan fyrstu verk-
fallsvikuna og afleiðingin er sú
að iðnaðarmenn í byggingariðn-
aði eru orðnir verkefnalitlir. Víg-
lundur sagði að ste.vpustöðvarnar
íhuguðu nú alvarlega kaup á sem-
enti erlendis frá, þar sem þær
gætu ekki búið við það óöryggi,
sem væru samfara viðskiptum við
Sementverksmiðju ríkisins og
það tjón, sem tíð verkföll við
verksmiðjuna sköpuðu þeim.
Víglundur sagði að í þetta
skipti væru það 8 starfsmenn
Sementverksmiðjunnar í Artúns-
höfða, sem væru i verkfalli og af
þeim sökum væri ekkert laust
sement afgreitt. Er hér um að
ræða 5 bllstjóra, 2 skrifstofu-
menn og einn verkstjóra. Víg-
lundur sagði að stevpustöðv arnar
myndu hugsanlega gera það að
kröfu f.vrir áframbaldandi við-
skiptum við Sementverksmiðjuna
að hún semdi við starfsfólk sitt í
einu lagi en ekki þrennu lagi eins
og nú er með tilhe.vrandi hættu á
verkföllum, og að hún semdi við
starfsfólkið um leið og stærstu
viðskiptavinirnir eins og steypu-
stöðvarnar.
Víglundur sagði að lokum, að
það væri mjög bagalegt fyrir
byggingariðnaðinn að missa úr þá
góðu tíð, sem hefði verið undan-
farna daga.