Morgunblaðið - 25.10.1977, Side 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977
— Þegar svæðið í Laugardal
verður fullnýtt, en nú er skammt í
land með að svo verði, verður hér
meira og glæsilegra íþróttasvæði
en stórborgir erlendis, jafnvel
milljónaborgir, geta státað af,
sagði Baldur Jónsson vallarstjóri
íþróttavalla Reykjavíkurborgar er
Morgunblaðsmenn litu við hjá
honum nýverið.
Tilefni spjalls okkar við Baldur
var, að nú er gerð nýs íþróttavallar
í Laugardal, fullkomins frjáls-
íþróttavallar, svo til lokið, en völl-
urinn er austan aðalleikvangs
Reykvíkinga, Laugardalsvallar.
Vegfarendur um Suðurlandsbraut
hafa líklega veitt þessum nýja
velli eftirtekt, því nú í haust hefur
iðjagrænt gras hans skotið upp
kollinum og dafnað vel í veður-
blíðunni undanfarið, en sáning fór
fram í lok ágústmánaðar.
Hérna verður meira og
glæsilegra íþróttasvæði
en víða erlendis,
segir vallarstjóri
Baldur Jónsson vallarstjóri
Baldur tjáöi okkur aö byrjað
heföi verið á hinum nýja velli
fyrir fjórum árum. — Fram-
kvæmdir við hann lögöust þó niö-
>ir bar sem við einbeittum okkur
að þvi aö klára grasvellina fyrir
framan Laugardalshöllina, sagði
Baldur, en þar er nú grassvæöi
sem vel er af látið og á stærð við
þrjá knattspyrnuvelli. Baldur
sagði að síðan hefði verið hafizt
handa með hinn nýja völl í vor.
Þær framkvæmdir hafa gengið af-
burðavel og allt staóizt áætlun,
sagði Baldur, og höfum við verið
mjög heppnir með verktaka, en
framkvæmdirnar hefur fyrirtæki
Gunnars Rósinkranz, Vægi sf., séð
um, að undanskilinni undirvinnu
svæðisins sem Hlaðbær hf. sá um.
Baldur Jónsson kvað undirbún-
ingsvinnu við hinn nýja völl svo
til alveg lokið. Væru hlaupabraut-
ir, stökksvæði og aðhlaupsbrautir
tilbúnar undir lagningu asfalts,
en til að hægt verði að leggja hið
endanlega gerviefni á völlinn
næsta sumar kvað Baldur nauð-
Séð yfir hinn nýja frjáis-
íþróttavöll, en undirbúnings-
framkvæmdum að lagningu
gerviefnis er nú svo til lokið
synlegt að neðra asfaltlagið, 3,5
sentimetrar, yrði lagt nú í haust.
Ofan á neðra asfaltlagið verður
s'vo lagt annað asfaltlag, 2 sm það
lag þarf ekki að leggja fyrr en
næsta sumar, en gerviefnislagið
verður .síðan lagt ofan á þetta lag.
Baldur sagði að ekki væri enn
búið að ákveða hvaða gerviefni
verður sett á hinn nýja frjáls-
íþröttavöll. Hefðu fjölmörg svör
borizt við útboði Innkaupastofn-
unar Reykjavíkurborgar, en sú
stofnun ætti enn eftir að gera
samninga við hina erlendu aðila.
Morgunblaðið hefur fregnað að
8—9 tilboð hafi borizt í lagningu
gerviefnis á hinn nýja frjáls-
íþróttavöll í Laugardal og í fljótu
bragði sé hagstæðast tilboð
sænskra aðila sem framleiða
gerviefnið Rubtan, bæði hvað
snertir kostnað og viðhald í ná-
inni framtíð. Baldur tjáði okkur
að tilboðin sem borizt hafa hafi
verið á bilinu 33—80 milljónir
króna.
Hinn nýi frjálsíþróttavöllur í,
Laugardal mun sennilega kosta
eitthvað frá 80—100 milljónir
króna þegar hann verður full-
gerður, að sögn Baldurs. Sagði
Baldur að í dæmið vantaði þó
búningsklefa. Hann kvað þá eina
vandamálið sem við yrði að glima
í Laugardal i náinni framtið, en
þar er búningsaðstaða af skornum
skammti sem stendur. Við höfum
þó alltaf leyst vel og örugglega öll
vandamál sem komið hafa upp i
þessu sambandi og svo mun
áfram verða, sagði Baldur.
Að lokum báðum við Baldur að
segja okkur frá hver íþróttaað-
staðan í Laugardalnum væri,
fyrir utan sundlaugarnar og
íþróttahöllina. Sagði hann þá:
Fyrst ber náttúrulega að nefna
aðalleikvanginn, en undir stúku
hans er leikfimisalur, frjáls-
fþróttasalur með hlaupabrautum
svo og lyftingaherbergi. Grasvell-
irnir fyrir framan Laugardals-
höllina eru glæsilegir, en það
svæði jafngildir stærð þriggja
knattspyrnuvalla. Þá er hérna
fullkominn kastvöllur fyrir kast-
greinar frjálsíþrótta, þ.e. kúlu-
varp, kringlukast, spjótkast og
sleggjukast. Á mílli aðalleik-
vangsins og sundlauganna er síð-
an ágætur æfingavöllur. Nú svo
er það von manns að hinn nýi
frjálsíþróttavöllur verði kominn í
gagnið næsta sumar. ef veður
leyfir. — ágás.