Morgunblaðið - 25.10.1977, Side 28

Morgunblaðið - 25.10.1977, Side 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 A FUNDI borgarstjórnar 20. okt. spurðist Alfreð Þorsteinsson (F) fyrir um eftirfarandi: A. Hvenær má vænta þess, að Reykjanes- braut á mótum Elliðavogs verði tengd beint við Miklubraut? B. Hvenær verður hafist handa við byggingu væntanlegrar brúar yfir Elliðaár til að tengja saman Breiðholtshverfi og Árbæjar- hverfi? C. Hvað líður framkvæmd samnings milli Reykjavíkurborg- ar og Kópavogskaupstaðar um svonefnda Fossvogsbraut? Borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, svaraði og sagði, að i kjölfar þeirra upplýsinga sem reiknikerfi umferðar hefur gefið varðandi umferð á aðalgatnakerfi borgarinnar á aðalskipulagstima- bilinu hefði gatnamálastjóri unn- ið að gerð áætlunar til 5 ára um nauðsynlegustu framkvæmdir á þessu sviði. Albert Guðmundsson: „Forystumenn Starfs- mannafélags borgarinnar skilningsríkari á fram- kvæmd verkfallsins en starfs- bræður þeirra hjá B.S.R.B. Birgir ísl. Gunnarsson: Ekkert hægt að fullyrða hver verður fram- vinda mála með Fossvogsbraut Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur þann 20. október kvaddi for- maður launamálanefndar borgarinnar, Albert Guðmundsson, sér hljóðs og ræddi allitarlega um hinn nýja kjarasamning borgarinnar og félags starfsmanna hennar. Albert rakti sögu málsins og sagði, að á fundi sem haldinn hefði verið snemma í september hefði launamálanefnd staðfest vilja sinn um viðræður við Starfsmannafélag borgarinnar með hliðsjón af þeim kjarasamningum sem gerðir voru á vinnumarkaðinum 22. júní. Enn- fremur hefði launamálanefnd lýst sig reiðubúna að ræða'um leiðrétt- ingar á misræmi, sem kynni að hafa skapast við niðurröðun í launa- flokka. Siðan sagði Albert: „Eftir að sáttatillaga sáttanefndar hafði verið lögð fram og sáttanefndin frestað boðuðu verkfalli til 11. október lágu viðræður niðri, en opinberir starfsmenn einbeittu hins vegar kröftum sinum að þvi að láta fella sáttatillöguna. Aðalgatnakerfi Reykjavíkur- borgar fellur samkvæmt skil- greiningu undir þjóðvegi í þétt- býli, og þau mannvirki sem spurt er um undir liðum A og B falla undir þá skilgreiningu. Til nýrra framkvæmda og viðhalds þjóð- vega í þéttbýli er varið svokölluðu bensínfé af mörkuðum tekjum sem stofni, samkvæmt vegalög- um, og nemur fyrir Reykjavik kr. 120 milljónum á þessu ári. Það er því Ijóst að búast má við því, að á næstu árum þurfi Reykjavikur- borg að leggja fram verulega auk- ið fé til aðalgatnakerfis borgar- innar umfram það, sem nú er, ef fylgja á þeirri áætlun að fram- kvæma umræddar aðgerðir á skipulagstimabilinu. Samkvæmt þessum frumdrögum gatnamála- stjóra þarf að verja kr. 225 millj- ónum á næsta ári til gatnakerfis, kr. 255 milljónum árið 1979 og kr. 280 milljónum árið 1980. I þessari áætlun er reiknað með umferðar- tengingu á gatnamótum Reykja- nesbrautar og Miklubrautar árið 1978 og framkvæmdum við teng- ingu Höfðabakka við Bæjarháls á árunum 1978 og 1979. Borgarráð hefur nú nýlega samþykkt frum- drög og brú yfir Elliðaárnar á Höfðabakka og er unnið að hönn- un þessarar brúar nú. Áætlun þessi hefur enn sem komið er ekki verið kynnt í borgarráði né borgarstjórn, en stefnt er að þvi í tengslum við gerð fjárhags- áætlunar. Það ræðst þvi af endan- legum fjárveitingum borgar- stjórnar hvort hægt er að vinna að framkvæmdum við þessi mann- virki á næsta ári. Umrædd tenging mun kosta um 50 milljón- ir samkvæmt áætlun,' en brúin kemur til með að kosta um 200 milljónir, lauslega áætlað. Um C-lið er hægt aó segja, að þann 21. júlí gerðu borgarlög- maður og borgarverkfræðingur greinargerð sem lögð var fyrir borgarráð en greinargerð þessi var samin vegna ályktunar bæjar- stjórnar Kópavogs frá 27. maí um þetta efni. í greinargerð þeirra rekja þeir aðdraganda að sam- komulaginu milli Reykjavíkur og Kópavogs, en segja síðan orðrétt: ,,Á þeim tíma sem liðið hefur síð- an samkomulagið var gert hefur verið unnið að endurskoðun aðal- skipulags Reykjavikur. Geysimik- íl vinna innlendra sem erlendra sérfræðinga hefur verið lögð í reiknikerfi umferðar. Reiknikerfi þetta á samkvæmt gefnum for- sendum að leiða í Ijós umferð á stofn- og safnbrautum höfuð- borgarsvæðisins. Þær meginfor- sendur er gefa umferðarmagn eru bilaeign, ferðafjöldi, staðsetning, stærð og notkun húsnæðis, ibúða- fjöldi og heimilisfang þeirra. Að lokum gildir sú kenning, að menn velja sér þá leið í erindum sinum er minnstan tima tekur að aka. Undirbúningsvinna aó reikni- kerfinu tók lengri tíma en ætlað var i upphafi. Á þessari frum- vinnu við reiknikerfið stóð Reykjavíkurborg ein, en þegar reiknikerfið stóð fullbúið til notk- unar var raunverulega fyrst grundvöllur til að endurskoða til- veru Fossvogsbrautar í aðalskipu- lagi. Fulltrúar Kópavogs i viðræð- um þ.e. bæjarstóri og bæjarverk- fræðingur lögðu á það áherslu, að reiknikerfi umferðar yrði beitt á hið innra gatnakerfi Kópavogs til þess að gera sér grein fyrir afleið- ingum þess innan marka kaup- staðarins, hvort lagning P’ossvogs- brautar kæmi til eða ekki. Af okk- ar hálfu sem þátt tókum í þessari vinnu f.h. Reykjavikurborgar ar á þetta sjónarmið fallist enda var vandamál Reykjavíkur svipaðs eðlis, t.d. hversu mikla umferð yrði Miklabraut að taka komi Fossvogsbraut ekki, eða yrði Reykjavíkurborg að beina meiri umferó inn á Bústaðaveg svo dæmi séu tekin, sem varða skyn- samlega umræðu um þetta mál. Sama gildir og um Nýbýlaveg i Kópavogi . að á hann hlýtur að flytjast hluti þeirrar umferðar er ella ætti leið um Fossvogsbraut. Þegar hér var komið sögu gerði bæjarstjórn Kópavogs ályktun þess efnis, að hún teldi sig óbundna af fyrra samkomulagi um þetta mál. Alyktun bæjar- stjórnarinnar var gerð um það leyti sem tæknimenn Kópavogs voru að ljúka við þá vinnu, er þeir þurftu að leggja fram, þannig að unnt væri að beita reiknikerfi umferóar á hió innra gatnakerfi Kópavogs, samkvæmt ósk þeirra. I greinargerð borgarlögmanns og borgarverkfræðings eru mjög ítarlega rökstudd mótmæli við þessari ályktun bæjarstjórnar Kópavogs, en svar við þeirri greinargerð hefur ekkert komið. A meðan svo stendur mun tækni- legur undirbúningur að nýrri keyrslu í reiknikerfi umferðar í samvinnu við tæknimenn Kópa- vogskaupstaðar ekki geta farið fram. Á þessu stigi get ég því ekkert um það fullyrt hvernig verður framvinda mála varðandi framkvæmd á umræddum samn- ingi, sagði borgarstjóri að lokum. Alfreð Þorsteinsson þakkaði svör- in og ræddi síðan stuttlega um þau. Aó höfðu samráði við launa- málanefnd tók borgarstjóri hins vegar þá ákvörðun að samþykkja tillöguna.“ Albert sagði, að eftir að sáttatillagan hefði verið felld og samningaviðræður milli rikis- ins og BSRB hófust að nýju aðal- lega um helgina 8. og 9. október var enn beðið átekta, en launa- málanefnd hélt hins vegar fund og ræddi stöðu samningamálanna. Eftir að upp úr vióræðum ríkisins og BSRB slitnaði aðfararnótt 10. þ.m. og Ijóst var, að ríkisstarfs- menn myndu hefja verkfall á mið- nætti þann dag komu samninga- nefndir borgarinnar og Starfs- mannafélagsins saman til fundar kl. 15.00 og um kl. 18.30 tókust samningar sem undirritaðir voru með fyrirvara af beggja hálfu. Þessi kjarasamningur var síðan feildur með litlum atkvæðamun á almennum félagsfundi i Starfs- mannafélaginu sem haldinn var að kvöldi þessa sama dags og hófst því verkfal) borgarstarfs- manna á miðnætti. Albert sagði, að forystumenn Starfsmanna- félagsins hefðu þá lýst því yfir, að þeir óskuðu eftir að gera aðra samningstilraun og fimmtudag- Eftir hina ítarlegu ræðu Al- berts Guðmundssonar tók Davíð Oddsson (S) til máls. Hann sagði afstöðu borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins vera all undarlega til þessa máls. Davíð sagðist vilja minna á það að fyrir réttum tveimur vikum hefðu borgarfull- trúar Alþýðubandalagsins flutt tillögu hér í borgarstjórn um að borgin reyndi að gera hvað hún gæti til lausnar vinnudeilunni. Nú síðustu daga hefði síðan verið háð furóuleg málefnameðferð á síðum Þjóðviljans, varðandi það að borgin hefði slitið sig út úr og borgarstarfsmenn og launamála- nefnd gengið til samninga. Undir þeim árásum Þjóóviljans hefðu borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins setið þegjandi. Davíð sagð- ist ekki ætla að verða langorður en þó vilja segja eitt. Afskipti forystu B.S.R.B. af samningum borgarinnar væru vítaverð. Þorbjörn Broddason (Abl) sagði launþegasamtökum vera til lítils sóma ef þau hefðu sömu skoðun á verkföllum og Albert Guðmundsson. Magnús L. Sveinsson (S) sagði inn 13. október hefðu samningar tekist. Hinn nýi kjarasamningur hefði verið vel kynntur hjá Starfsmannafélaginu. Þegar hann hefði komið til afgreiðslu hefði þátttakan í atkvæðagreiðslunni verið 80% og af þeim hefðu 67% eða Vx greitt atkvæði með samn- ingnum. Þegar hefði starfsemi hafist að nýju hjá borginni sem kostur gat orðið, og að morgni næsta dags hefði svo að segja allt verið komið í eðlilegt horf hjá borginni. Albert Guðmundsson sagði síðan: „Ég tel engan vafa leika á þvi, að borgarstarfsmenn hafi þá þegar verið búnir að fá nóg af verkfallinu, sem fæstir þeirra óskuðu eftir í upphafi. Ég vil einnig taka fram, að meðan á verkfallinu stóð kom ekki til neinna alvarlegra árekstra eða átaka milli verkfallsmanna og einstakra borgarstofnana, og i þeim fáu tilvikum þar sem ágrein- ingur varð tókst að leysa hann með friðsamlegum hætti. Það er einnig sérstaklega athyglisvert, að engir árekstrar urðu sem vitað er um á sjúkrastofnunum borgar- innar. Er þessu ólíkt farið með verkfallsvörslu BSRB gagnvart það athyglisvert að sjá og heyra málflutning Alþýðubandalagsins og Þjóðviljans. Nú síðustu daga hefðu forystumenn starfsmanna- félagsins og borgarinnar verið út- hrópaðir eins og svikarar á síðum Þjóðviljans með tilheyrandi myndbirtingum og látum. Magnús sagði það ekki nýtt að þeir væru úthrópaðir sem eins konar svikar- ar er ekki væru sama sinnis og Alþýðubandalagið. Nú bæri hins vegar svo við að sjálfur Sigurjón Pétursson ætti sæti í launamála- nefnd borgarinnar og sæti því at- vinnurekendamegin við borðið. Á myndum sem birtar hefóu verið í Þjóðviljanum með undarlegum textum hefði ekki verið sjáanlegt að Sigurjón Pétursson sæti at- vinnurekendamegin við borðið. ríkisstofnunum og forystumenn Starfsmannafélagsins hafa sýni- lega sýnt meiri skilning á fram- kvæmd verkfallsins en starfs- bræður þeirra hjá BSRB. Ég sé ekki ástæðu til annars en að láta þetta koma fram, enda hefur jafnan ríkt skilningur og gagnkvæmur velvilji milli Starfs- mannafélagsins og Reykjavíkur- borgar, sem við hljótum öll að vona að átök undangenginna daga komi ekki til með að varpa skugga á. Albert Guðmúndsson ræddi síð- an ítarlega um sáttatillöguna og ýmiss konar vafstur um hana. Gerði hann þá grein fyrir þeim kjarabótum sem helstar mættu teljast til hagsbóta fyrir starfs- menn borgarinnar í kjara- samningunum. Áður hefur verið greint ítarlega frá þessu í Morgunblaðinu og þykir ekki ástæða til að endurtaka það hér. En siðan sagði Albert: „Að lokn- um þessum kjarasamningum má ljóst vera, að kjarabætur til félaga í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar eru nokkuð hærri en samið var um á almenna vinnumarkaðinum 22. júni s.l. Bæði sáttatillagan og síðasta til- boð fjármálaráðherra gerðu ráð fyrir nokkurri umframhækkun til opinberra starfsmanna og af hálfu rikisvaldsins hefur það ver- ið skýrt og réttlætt með því, að könnun Hagstofu Islands á launa- kjörum annars vegar á almennum vinnumarkaði og hins vegar hjá opinberum aðilum hafi leitt í ljós, að leiðrétta þyrfti launastiga opinberra starfsmanna einkum um miðbik hans, til þéss að þeir héldu hlut sínum. Það að kjara- Magnús sagðist biða eftir þeirri mynd í Þjóðviljanum sem sýndi forystumenn Starfsmannafélags- ins og Sigurjón Pétursson borgar- fulltrúa Alþýðubandalagsins við lausn kjaradeilunnar. Væntan- lega fengi sú mynd sömu máls- meðferð og þær myndir sem þeg- ar hafa verið birtar frá sama at- burði. Magnús L. Sveinsson sagði að forystumenn borgarstarfs- manna og aðrir sem hlut hefðu átt að máli hefðu orðið fyrir ómakleg- um árásum, raunar hinum furðu- legustu. Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl) tók síðan til máls og lýsti furðu sinni á árásum á Sigurjón Péturs- son, sem væri fjarri. Lauk umræðum þessum skömmu síðar. Davíð Oddsson: „Vítaverð afskipti forystu B.S.R.B. af samningum borgarinnar”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.