Morgunblaðið - 06.11.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1977
Alþýðubandalagið:
Fyrri áfangi forval-
sins um þessa helgi
FORVAL Alþýðubandalagsins
varðandi skipan framboðslista
flokksins í Reykjaneskjördæmi
fer fram um þessa helgi. Að sögn
Gunnlaugs Ástgeirssonar, for-
manns kjördæmisráðsins, nær
forvalið eingöngu til flokksbund-
inna félaga í Alþýðubandalaginu,
sem eru um og yfir 500 talsins og
hafa þeir allir fengið send gögn
til þátttöku í forvalinu.
Forvali Alþýðubandalags er
þannig háttaó, aö þaö fer fram í
tveimur áföngum. I fyrri áfangan-
um er þátttakendum ætlaö aö
festa á blaö þá tíu menn úr röðum
flokksmanna sem viðkomandi
æskir helzt að skipi framboðslist-
ann. Síðan verður unnið úr þess-
um seðlum í hverju Alþýðubanda-
lgsfélagi fyrir sig í kjördæminu,
en því næst er útbúinn nýr for-
valsseðill þar sem þeim tíu mönn-
um, er flestir höfðu tillögur um,
er raðað í stafrófsröð en þátttak-
endur eiga síðan að stilla þeim
upp í þau sæti, sem viðkomandi
vill að mennirnir skipi á fram-
boðslistanum þegar endanlega
verður gengið frá listanum. Þessi
síðari áfangi forvalsins er ákveð-
inn 27. nóvember nk. að sögn
Gunnlaugs Astgeirssonar.
Á bls. 72 í Mbl. í dag byrjar itarlegur greinaflokkur, þar
sem raktir eru f jölmargir þættir ránsins á Lufthansaþot-
unni í sl. mánuði, sem ekki hafa birzt áður. Var efni þetta
unnið úr bandariskum, brezkum og þýzkum blöðum og
tímaritum.
HAFIZT er handa um að rffa húsið sem stðð við Lækjargötu lOa sem er f eigu Iðnaðarbanka Islands.
Að sögn Péturs Sæmundsens, bankastjóra, keypti bankinn lóð þessa til að geta haft hönd f bagga
varðandi byggingarframkvæmdir fyrir norðan bankann, en ekkert er þó enn ráðgert með framkvæmd-
ir. Bjóst Pétur við að gert yrði bflastæði fyrir viðskiptavini bankans á hluta lóðarinnar en trjágróður
hennaryrði varðveittur f samráði við þá sem lóðir eiga að Ióð bankans. Ljósm. Kristinn
Hlekktist á
í lendingu
ÞAÐ ÓHAPP varð síðdegis inni Cessna 150, tveggja
a föstudag að lítilli flugvél
hlekktist á í lendingu í
Borgarfirði. Flugmanninn,
sem var einn í vélinni, sak-
aði ekki, en vélin skemmd-
ist nokkuð.
Að sögn Skúla Jóns
Sigurðssonar hjá Loftfera-
eftirlitinu varð óhapp
þetta þannig að flugmaður-
inn, sem var í æfin£aflugi,
hugðist lenda á flugvellin-
um á Stóra-Kroppi og tókst
honum lendingin vel í alla
staði, sagði Skúli Jón, en á
flugvellinum var holklaki,
sem brast er vélin hafði
lent og runnið nokkurn
spöl eftir brautinni.
Var hún því ekki á mik-
illi ferð, en er hún sökk
niður í gegnum klakann
hvolfdi henni. Flugmaður-
inn slapp ómeiddur, en vél-
in er nokkuð skemmd og að
sögn Skúla var verið að
koma henni til Reykjavík-
ur í gær, en eigendur henn-
ar eru nokkrir ungir menn
sem hafa stundað eða eru i
flugnámi. Vélin er af gerð-
sæta og ber einkennisstaf-
ina TF-USA og var hún
nýlega keypt til landsins
frá Bandaríkjunum, en
hún er nokkurra ára göm-
ul.
Skúli Jón Sigurðsson
sagði að óhöpp sem þessi
gætu orðið bæði vor og
haust á flugvöllum, sem
eru með malarslitlagi, þeg-
ar klaki er í jörðu, og þyrfti
jafnan að hafa það í huga
er flogið væri á þessa staði.
Utgáfa (Jtvegsspilsins afhenti Matthfasi Bjarnasyni sjávarútvegs-
ráðherra f gær eintak af spilinu, sem er byggt upp á svipaðan hátt
og Matador. Jón Jónsson er þarna að afhenda sjávarútvegsráð-
herra spilið f Sjómannaskólanum f gær.
Fiskimjöls-
verkmiðjan í
Eyjum kaup-
ir Guðmund
Jónsson
Fiskimjölverksmiðjan í Vest-
mannaeyjum hefur fest kaup á
nótaskipinu Guðmundi Jónssyni
frá Sandgerði. Haraldur Gíslason,
framkvæmdastjóri verksmiðjunn-
ar, kvaðst hafa gengið frá samn-
ingum vió forráðamenn Rafns hf.
sl. föstudag en vildi ekki láta uppi
hvert kaupverðið var. Guð-
mundur Jónsson var smiðaður á
Akureyri í fyrra og þykir mjög
fullkomið skip, því að með litilli
fyrirhöfn má stunda mismunandi
veiðar á skipinu.
Neshreppur utan Ennis
vill leigja húsnædi lóran-
stödvarinnar
„VIÐ höfum verið að
pressa það að fá afnot af
fleiri íbúóum innan lóran-
stöðvarinnar á Gufu-
skálum, en það hefur ekki
fengizt. Þetta er dálítið
viðkvæmt mál, en okkur
vantar húsnæði og hjá
Bókagjafir til græn-
lenzkra menntastofnana
Kennaraskólanum í Góðvon á
Grænlandi og menntastofnun
Knud Rasmussen í Sisimiut voru
afhentar bókagjafir frá mennta-
málaráðuneytinu á grænlenzkri
kvöldvöku i Menntaskólanum við
Hamrahlíð s.l. föstudagskvöld.
Hvor skóli fékk um 20 bækur með
ýmsu efni um land og þjóð og
liðlega 100 mynda litmyndaflokk.
Vilhjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra bað fyrir góðar
kveðjur til Grænlendinga með ósk
um aukið samstarf á milli Græn-
lendinga ogog íslendinga.
lóranstöðinni standa níu
íbúðir auðar,“ sagði
Samúel Ólafsson, sveitar-
stjóri Neshrepps utan
Ennis, í samtali við Mbl. í
gær.
Samúel býr nú í húsnæði
lóranstöðvarinnar og sagði
hann að það hefði kostað
„töluvert umstang“ að fá
þá íbúð leigða. „Það er
varnarlióið, sem á þessar
húseignir, en það hefur
gefið Pósti og síma heimild
til að leigja út, en það eru
eingöngu starfsmenn Pósts
og síma sem vinna við
stöðina.
Það er auðvitað rétt aö
hér er um lokað svæði að
ræða og þessi íbúðarhús
eru alveg við lóranstöðina
og innan girðingar, en
auðvitað er það mjög
freistandi fyrir okkur að
reyna að leysa húsnæðis-
vandræði með því að fá
þetta húsnæði á leigu,“
sagði Samúel.
Morgunblaðið reyndi í
gær að ná tali af Jóni A.
Skúlasyni, póst- og síma-
málastjóra, en án
árangurs.
Fridrik
fer ekki
í prófkjör
„ÉG HEF tekið þá ákvörðun að
svara neitandi ósk kjörnefndar
Sjálfstæðisflokksins um að ég
gefi kost á mér í prófkjör
flokksins," sagði Friðrik Ólafs-
son, stórmeistari, í samtali við
Mbl. í gær.
„Ég er þeirrar gerðar að ég
vil fyrst kyíina mér málefnið
og síðan vinna að því af alhug,
ef ég fæ áhuga á þvi. En svona
undirbúnings- og fyrirvara-
laust get ég ekki hafið þátt-
töku í stjórnmálum frekar en
öðru.“
mi
FLlifil
mm
ALÞJÓBAARMli LAfiA
6EGN HRYÐJUVERKUM
INNLENT
Grænlenzk stúlka