Morgunblaðið - 06.11.1977, Síða 27
26
AKUREYRARBLAÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1977
...til
hliðar
kross..
9 UPPABUIN eins og á sunnudegi mættu þau i.sinn fyrsta tima
i dansnámi i Alþýðuhúsið á Akureyri fyrir nokkru síðan. Flest
voru þau feimin og hljóðlát, en önnur ærslafengnari og ekki
nokkurn skapað hlut óstyrk eða hrædd. Kvenfólkið var i miklum
meirihluta og aðeins þrír strákar i þessum föngulega hópi 30
dansnemenda á aldrinum 4 og 5 ára.
Fyrstu sporin reyndust flókin fyrir mörg þeirra, það var ekki
svo auðvelt að flytja fæturna til hliðar og svo i kross, eins og
kennararnir vildu. Svo átti lika að hreyfa hendurnar. Þegar leið
á tímann jókst öryggið og þetta varð allt miklu auðveldara um
leið og gamanið varð meira. Til hliðar kross, til hliðar kross . . .
Þær Erla Haraldsdóttir og Harpa Pálsdóttir kenndu þessum
ungu Akureyringum og sagði Erla að áhugi væri mikill fyrir
dansnámi meðal Akureyringa Þær kenna hjá Dansskóla Heið-
ars Astvaldssonar og er fullt á flestum námskeiðum, sem nú
standa yfir, að sögn Erlu. Ekki bara hjá yngstu aldursflokkunum,
heldur almennt hjá fólki á öllum aldri og ýmsum stigum
danskfunnáttunnar.
Bifrei
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
Sudurlcindshraut 14 - Iteykjavik - Sími
Umboösmaður á Akureyri
Bílaverkstæði Jóhannesar Kristjánssonar,
Gránufélagsgötu 47, sími 23630.
LADA
1600
Nýr bíll á íslandi
Komið og skoðið LADA 1600
Verð ca. 1585 þús. Hagstæðir greiðsluskilmálar
Innanlandsflug með afslætti
AthugaÓu afsláttarmöguleika þína
FLUCFÍLAC /slajvds
INNANLANDSFLUG
Grafík á Akureyri
Opnuð hefur verið ný listsýning í Gallery Háhól og
verður hún opin til 13. nóvember kl. 7—10 virka
daga og 3—10 um helgar. Þar sýna Björg Þorsteins-
dóttir, Þórður Hall og Jón Reykdal grafíkverk. - sv.p.
Ljósm. Friöþjófur