Morgunblaðið - 06.11.1977, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977
Krakkar út kátir hoppa
úr koti og höll.
Léttfættu lömbin skoppa
um laut og völl.
Smalar í hlíðum hóa
sitt hvella lag.
Kveður í lofti lóa
svo léttan brag.
Vetrarins fjötur fellur
þá fagnar geð.
Skólahurð aftur skellur og
skruddan með.
Sóleyjar vaxa í varpa
og vorsól skín.
Velkomin vertu, Harpa,
með vorblóm þín.
Margrét Jónsdöttir.
Það er skemmtilegt aó kunna
þessa vorvísu — og sjálfsagt
eru mörg orð, sem þið skiljið.
ekki í vísunni. Þið skuluð þá
venja ykkur á að spyrja alltaf
um það, sem þið vitið ekki, og
ræða um það við hina full-
orðnu.
Þórir S. Guðbergsson
Rúna Gfslatfóttir
Q>. S. <?árd
Ljóð
eftir Harald Ragnar Jóhannes-
son, 9 ára, Syðra Fjalli, S.Þing.
Bæði nött og daga
ég vann og vann.
En kaffið Braga
brann og brann.
Ég þreyttur var alla daga
og bar um leið tóman maga.
En svo kom læknir og sagði
við mig,
að ég ætti að fara á mið.
Dag einn sá ég marga hvali
og sagði við mig ég vildi
ég væri lítill bali.
Ósk mín rættist. Ég varð bali
og var notaður f.vrir búrhvali.
„Hún er óviðjafnanleg og ég get ímyndað mér
hana eftir tíu ár á snekkju grísks olíukóngs"
— sagdi De Gaulle um Jackie áríð 1961 —
Hún var ein mesta eyðslukló
allra kvenna í heiminum: á einu
ári er álitið að hún hafi eytt næst-
um 300 þúsund pundum f fata-
kaup. Hann var einn auðugasti
maðurinn f heiminum: árið 1968
voru eignir hans metnar á um 200
milljónir punda. Jaekie og Ari
þörfnuðust því hvort annars. Það
var einnig ósvikin væntumþykja
þeirra á milli. En hjónaband
þeirra var kaffært f ástrfðufull-
um grfskum fjölskylduhöndum.
Bók Nocholas Fraser Philip
Jacobsen, Mark Ottaway og Lewis
Chester um æviferil Onassis kom
á markaðinn í Bretalndi 3. þ.m.
Charles de Gaulle, sem hafði
orð á sér fyrir að vera mikili
mannþekkjari, heillaðist af
Jacqueline Kennedy i opinberri
heimsókn hennar til Frakklands
1961. „Hvert er álit þitt á henni?“
spurði De Gauiie einkavin sinn,
menntamálaráðherrann André
Malraux.
„Hún er einstök eiginkona for-
seta Bandarikjanna,“ var svarið.
Þá sagði De Gaulle: „Já, hún er
óviðjafnanleg. Eg get ímyndað
mér hana eftir tiu ár á snekkju
grísks olíqkóngs."
Innan tveggja frá þessari dular-
fuliu spá, var Jackie gestur
Onassis á snekkjunni Christina.
Innan átta ára fór hún í brúð-
káupsferð á snekkjunni með hon-
um.
Fyrstu kynnin
Kennedy forseti tók því ekki
eins vel. Fyrri ágreiningur Onass-
is við bandarikjastjórn gerði
hann að óæskiiegum gestgjafa
forsetahjónanná. Þegar Onassis
bauðst til að iána þeim snekkjuna
og hann væri ekki með, krafðist
Jackie þess þó að hann væri i
fylgd með þeim, þó ekki væri
nema „af vinsemd við þau“.
Á þessum tima var Onassis ekki
aðeins nafntogaður maður, held-
ur safnaði hann einnig frægu
fólki i kringum sig. Gestabókin á
snekkjunni bar það með sér. í
hverri ferð snekkjunnar voru
nokkrar Hollywood-stjörnur eins
og Marlene Dietrich, Douglas
Fairbanks, Greta G:rbo, Ava
Onassis nokkrum mánuðum áður
en hann lést 69 ára að aldri.
Garner, Cary Grant, Jack Warner
og Darryi Zanuck. Ennfremur
fólk með blátt blóð i æðum t.d.
Pétur fyrrverandi Júgóslavíukon-
ungur og eiginkona h'ans, Farouk
fyrrverandi konungur Egypta-
lands og fleiri. Onassis hafði jafn-
framt nokkra viðskiptavini sina
og starfsmenn með i þessum ferð-
um, sem kunnu vel að meta siíkan
félagsskap. Onassis hafði ánægju
af að safna saman gjörólíku fóiki í
þessar ferðir. Hann var jafn kurt-
eis og töfrandi við „óbreyttar ást-
konur“ gesta sinna sem við
„bandarískar bankastjórafrúr."
Allt um borð í snekkjunni va>ð
að vera það besta og glæsilegasta
sem völ var á. Bestu víntegund-
irnar voru leitaðar uppi og veittar
gestunum. Venjulega voru tveir
kokkar um borð, annar franskur
og hinn matbjó griskan mat.
Allar siðvenjur og smekkur
Onassis sjálfs höfðu tekið fram-
förum. Hann drakk mikið, en
skynsamlegar en hann hafði gert
á strfðsárunum og árunum eftir
strið. Hann reykti mjög mikið, —
vindlinga á daginn og vindla eftir
kvöldverð. Hann var stöðugt
sveittur og með vasaklút tii reiðu,
sem var í stíl við klæðnaðinn.
H:nn stundaði ekki mikið likams-
rækt, en átti það til að taka sund-
spretti í sjónum ef veðrið bauð
upp á það. Hann var vanur að
segja að þá hefði hann tíma til að
hugsa i einverunni.
Aðdáun Onassis á Jackie í þess-
ari fyrstu siglingu þeirra var aug-
Ijós, vegna þess fjölda gjafa sem
hann gaf henni. Jackie talaði vel
um Onassis, sem hún lýsti sem
„lifandi og lífsglöðum manni sem
hefði unnið sig upp“. Kennedy
var skilningsrikur, en forðaðist
sviðsljósið. Hann skýrði frá því
siðar, að hann hefði komið boðum
til Onassis um að hann væri ekki
velkominn til Bandarikjanna fyrr
en eftir kosningarnar 1964. Hann
notfærði sér ennfremur „sektar-
kennd“ Jackie yfir þessari ferð til
þess að biðja hana um að fylgja
sér í framboðsferðina til Texas i
næsta mánuði á cftir. J :ckie svar-
aði strax: „Auðvitað vil ég það,
Jack.“
Onassis var i Hamborg i við-
skiptaerindum þegar hann fékk
fregnir af þvi að Kennedy hefði
verið myrtur i Dallas. Hann flaug
strax til Washington. Þegar hann
birtist i Hvita húsinu vakti það
enga sérstaka athygli.
Kennedy fjölskyldan
reyndi lítið til
að hindra
hjónabandið
Þegar fjölmiðlar um allan heim
byrjuðu að spá í hjónaband
Það var systir Jakcie, Lee Radz-
iwill, sem kynnti þau í upphafi.
Sumarið 1963 var hún og maður
hennar i matarboði hjá Onassis í
Aþenu. Þá var minnst á það, að
lát þriðja barns Jackie. Patrick
Bouvier Kennedy. hefði valdið
henrii míklu þunglyndi. Onassis
stakk þá uppá að hún ætti að fara
i siglingu um Miðjarðarhafið sér
til hressingar og upplyftingar á
snekkjunni Chrfstina. Lee hafði
samband við Jackie vegna þessa
tilboðs. sem Jackie þáði á stund-
inni.