Morgunblaðið - 06.11.1977, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977
45
Sýning á vatslita-
myndum opnuð í
Ásgrímssafni
I DAG verður hin árlega haust-
sýning Asgrimssafns opnuð. Aðal-
uppistaða þessarar sýningar eru
vatnslitamyndir og nokkrar
þjóðsagnateikningar.
Viðfangsefni Asgrims Jóns-
sonar í þessum myndum eru m.a.
blóm, úr Borgarfirði, Möðrudals-
öræfi og frá Þingvöllum, en þar
málaði hann mikið vor og haust.
Teikningarnar á sýningunni
eru gerðar eftir þeim þjóðsögum
sem Asgrimur hafði einna mest
dálæti á, og er sagan af Majðveigu
Mánadóttur ein þeirra, en í eigu
Asgrimssafns eru margar myndir
af henni og tröllinu.
Eins og undanfarin ár kemur út
á vegum safnsins nýtt jólakort. Er
það prentað eftir vatnslitamynd-
inni Botnssúlur séðar frá Kaida-
dal. Mynd þessi hefur vakið mikla
athygli gesta sem komið hafa í
Asgrimssafn.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur er ókeypis.
Mjaðveig Mánadóttir og tröllið. — Mynd þessi er ein af sfðustu
teikningum Asgrfms.
Hveragerðiskirkja fær
2,2 millj. kr. að gjöf
Hveragerði 3. nóvember
ÞANN 1. nvember s.l. afhenti
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri
elli- og hjúkrunarheimilisins
Grundar, Hveragerðiskirkju 2.2.
millj. króna að gjöf.
Gjöf þessi kemur frá stjórn
Grundar, og er hún úr stofnsjóði
til minningar um stofnendur
Grundar, þá séra Sigurbjörn A.
Gíslason, Flosa Sigurðsson,
Harald Sigurðsson, Júlíus Arna-
son og Pál Jónsson og er gefin i
tilefni 55 ára afmælis Grundar
þann 29. okt. s.I.
Prestur og sóknarnefnd færðu
fyrir hönd safnaðarins stjórn
Grundar alúðarþakkir fyrir
höfðinglega gjöf.
Georg.
Hveragerðiskirkja
Ljósm. Mbl. Kristinn Olafsson.
Grétar rakari hefur
klippt Breiðhyltinga
um sex ára skeið
OKKUR varð á f messunni á dög-
unum er við sögðum frá opnun
nýrrar rakarastofu f Drafnarfelli
8 í Breiðholti. Þar stóð að þetta
væri fyrsta rakarastofan í Breið-
holti en átti auðvitað vera fyrsta
rakarastofan í Efra-Breiðholti því
Grétar rakarameistari Bernódus-
son hefur s.l. sex ár rekið rakara-
stofu f Arnarbakka. Um leið og
við biðjum Grétar velvirðingar á
mistökunum birtum við mynd af
kappanum á stofunni sinni.
Fyrirbyggjandi aðgerðir í umferðarmálum:
Alftamýrarskóli sendir
foreldrum umferðarkort
1 HAALEITISHVERFI í
Reykjavík standa nú yfir
nokkrar framkvæmdir er
hamla eiga gegn umferðarslys-
um og eiga að stuðla að auknu
öryggi gangandi vegfarenda.
Skólastjóri Álftamýrarskóla,
Ragnar Júifusson, boðaði
fréttamenn á sinn fund f gær
og kynnti þeim þessar aðgerðir,
en skólinn hefur skipulagt her-
ferð til kynningar þessum
framkvæmdum fyrir yngstu
skólabörnunum.
Þær framkvæmdir sem hér
um ræðir eru uppsetning gagn-
brautarsjósa á Háaleitisbraut
og jafnframt eru gerðar eyjur á
götuna og hún mjókkuð þar:
húsagötunni meðfram fjölbýlis-
húsunum sunnan við Háaleitis-
brautina verður breytt i ein-
stefnuakstursgötu og verið er
að setja upp umferðarljós á
horni Háaleitisbrautar, Ármúla
og Safamýrar. Þá hefur Safa-
mýri verið mjókkuð við Álfta-
mýrarskólann, þar sem gang-
braut er yfir götuna, en hún var
mjókkuð úr 12 metrum i 7.
Gúttormur Þormar og Baid-
vin Ottósson ræddu um þessar
byeytingar á fundinum ásamt
Ragnari og töldu þeir að þær
stuðluóu ótvirætt að auknu ör-
yggi gangandi vegfarenda, sér-
staklega yngstu borgaranna.
Ragnar Júliusson sagði að
skólinn hefði látið gera sérstakt
kort yfir skólasvæói Alfta-
mýrarskóla, sem sent hefði ver-
ið til forráðamenna yngri
bekkjardeilda. Með bréfi, sem
einnig er sent til forráðamanna
nemendanna er skýrt frá til-
gangi kortsins en hann er sá að
kynna rækilega staðsetningu
umferðarljósa, gönguljósa og
gangbrauta og er gert ráð fyrir
að foreldrar skoði kortið með
börnunum og velji með þeim
hentugustu Ieiðina frá heimili
til skóla, en inná kortið eru
merkt öll heimili í hverfinu.
Ragnar sagði að kostnaður við
gerð kortsins hefði verið um
80—90 þúsund krónur, auk
vinnu kennaranna, sem hefðu
þurft að útbúa það til heim-
sendingar með börnunum, en
þessi kostnaður væri svipaður
og þrír legudagar barns á
sjúkrahúsi. „Ef þessar aðgerðir
okkar geta því komið í veg fyrir
þó ekki væri nema eitt hand-
leggsbrot eða lærbrot þá hefur
það greinilega komið að gagni,
sagði hann.
I niðurlagi bréfsins segir:
„Mikils er um vert að yngstu
borgararnir læri að virða regl-
ur, sem settar eru til öryggis 1
umferðinni og temji sér að nota
umferðarljós og gangbrautir.
Vonandi göngum við sem eldri
erum þar á undan með góðu
fordæmi, og munu kennarar
skólans ekki láta sitt eftir
liggja.
Takmarkið er: Slysalaust
H:'aleitishverfi.“
Nú eftir helgina mun Baldvin
Ottósson, sem sér um umferðar-
fræðslu í skólum fara í heim-
sókn i Alftamýrarskólann, en á
þann hátt er m.a. fylgt eftir
þessum aðgerðum.
Guttormur Þormar sagði að
þetta framtak skólans væri
aígjörlega komið frá skólanum
sjálfum og þakkaði hann Ragn-
ari Júliussyni fyrir það frum-
kvæði og fordæmi, sem hann
hefði með þessu sýnt og jafn-
framt fyrir gott samstarf á sviði
umferðarmála.
A kortið eru merkt öll hús hverfisins og geta foreldrar þv( fundið öruggustu leiðina ( skólann int
börnunum.
Guttormur Þormar, Ragnar JúKusson og Baldvin Ottóson kynna hér þær framkvæmdir, sem standa
yfir ( Háaleitishverfi sem auka eiga öryggi gangandi vegfarenda ( hverfinu. Ljósm. RAX.
ÁLFTAMÝRARSKÓLI
SKOLASVÆD!
OANCtíRíUrFARi..