Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1978 3 Skíðastaðir opnir um allt land: N ægur sn jór á Akureyri 9g Húsavík en lítill á ísafirði og i Reykjavík NÚ MEÐ hækkandi sól mun fólki gefast kostur á að stunda skíðaíþróttina af kappi þ.e.a.s., þar sem snjór er nægur. Vídast hvar á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörð- um er nú nægur snjór til skíðaiðkana, en í nágrenni Reykjavíkur er ekki enn kominn nægur snjór til að hægt sé að hafa lyftur í gangi, hins vegar er gott færi fyrir gönguskíði. annars kæmist fullur rekstur á í Hlíðarfjalli undir mánaðamót og þáyrði hótelið opnað. Húsavík Einar Olgeirsson hótelstjóri á Húsavík sagði þegar Morgunblað- ið hringdi i hann, að þar væri nú kominn góður skíðasnjór, og lyft- ur verið settar í gang í fyrradag. Allt hefði gengið að óskum og væri fólk þegar farið að hópast á skíði, enda stutt að fara. ísafjörður Birgir Valdimarsson á Isafirði sagði í samtali við Morgunblaðið að snjór á Seljalandsdal væri ekki tiltakanlega mikill, en þó hefði átandið batnað siðustu daga og keppnisfólk væri farið að nota lyfturnar. Sagði Birgir að menn vonuðust til að hægt yrði að opna lyfturnar fyrir almenning ein- hvern næsta daga. Þá kvað hann góðan snjó vera kominn á Selja- landsdal fyrir þá sem vilja ganga á skíðum. Bláfjöll I Bláfjöllum er kominn nokkur snjór, þannig að hægt er að stunda þar skíðagöngur og einnig er hægt að renna sér í stöku sköfl- um í hlíðum. Þó er ekki nægur snjór enn til að hægt sé að hafa sfciðalyftur í gangi, að því er As- geir Eyjólfsson starfsmaður í Blá- fjöllum tjáði Morgunblaðinu. I gær var skálinn í Bláfjöllum opnaður, og önnnur sú þjónusta sem skíðafólki er veitt. Er opið frá kl. eitt á daginn, og er allt starfsfólk komið til starfa, en það er ráðið frá og með áramótum. Stefán Kristjánsson hjá Blá- fjallanefnd sagði í gær, að i sumar hefði verið unnið á lagfæringu og gerð nýrra bílastæða. Þá hefur verið bætt við einni skiðalyftu fyrir almenning og lýsing í brekk- um endurbætt. A næstunni eru væntanleg tæki, sem tengja má við snjótroðarann og auðvelda lagningu göngubrauta og sléttun svigbrauta. I vetur verður opið í Bláfjöll- um, sem hér segir: Mánudaga kl. 13.00—19.00 Þriðjudaga kl. 13.00—22.00 Miðvikudaga kl. 13.00—22.00 Fimmtudaga kl. 13.00—22.00 Föstudaga kl. 13.00—19.00 Laugardaga kl. 10.00—18.00 Sunnudaga 10.00—18.00 Akureyri 1 skíðahótelinu á Akureyri varð Júlíus Björgvinsson fyrir svörum. Sagði hann, að gott skíðafæri væri nú í Hlíðarfjalli og lyftur opnar frá 10 árdegis til kl. 15.30 siðdeg- is. A næstu dögum yrði opnunar- tíminn lengur fram á kvöld, en Fyrsta barn ársins fædd- ist á Sauðár- króki ÞAÐ HEFUR nú komið í Ijós að fyrsta barn ársins hefur að öllum líkindum fæðzt á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. María Magnúsdóttir ljós- móðir á staðnum veitti Mbl. þær upplýsingar i gær, að klukkan 18 mínútur yfir tólf aðfaranótt nýársdags ■ hefði Alda Valgarðsdóttir, Asi Hegranesi, fætt stúlkubarn í sjúkrahúsinu. Fæðingin gekk í :lla staði vel og heilsaðist móð- ur og barni vel. Sfúlkan var rúmar 12 merkur og 51 sm á lengd. Maria var ljósmóðir og læknir var Bjarni Jónasson. fjórða hvern miða i ár. Það kostar aðeins 600 kr. á mánuði að gera eitthvað i því aö fjölga happadögum sínum i ár. Benz 250 - að verðmæti yfir 5 milljónir króna - sem aukavinning i júni. Og heila og hálfa milljón sem hæstu vinninga í hverjum mánuði. En alls eru vinn- ingar 18.750 og falla á Happdrætti má haga á marga vegu. Hafa fáa háa vinninga eða marga smærri sem koma sér þó vel. Við höllumst að þeirri skipan. En féllum þó i freistni að bjóða Mercedez Happdrættisáriö 1978 - Happaárió þitt?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.