Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1978 óraunverulega ! verki þar sem höfundur vill sýnilega leggja áherslu á raunsæi. Dæmi um einhliða persónu- lýsingu er einnig lýsing Páls Melsteðs í höndum Þorsteins Gunnarssonar og túlkun Sig- urðar Karlssonar á dusil- menninu Ólafi manni Rósu. Sterk persónugerð er aftur á móti Agnes Margrétar Helgu Jóhannsdóttur, enda skilar Margrét Helga hlutverki sínu af reisn. Ragnheiður Steindórsdótt- ir er Skáld-Rósa og túlkar hana eins vel og kostur er. Athyglisvert er til dæmis hvernig skáldkonan Rósa nýtur sín þegar hún fer með visur sínar. Túlkun Ragn- heiðar er í senn hógvær og festuleg og tvímælalaust er hér um að ræða merkan áfanga á leikferli hennar. En vegna þess hve umgjörðin utan um persónuleika Rósu er fyrirferðarmikil kemur hún veikari út úr verkinu en efni stóðu til Það er ekki sanngjarnt að miða verk Birgis Sigurðsson- ar við þær sögulegu stað- reyndir sem við þekkjum. Birgir hefur vinsað úr þeim og er ekki eingöngu háður þeim. En þegar um sögulegt efni er að ræða hlýtur mat áhorfandans að mótast nokk- uð af þvi sem hann best veit um Skáld-Rósu og tíma hennar. Verk Birgis nýtur ekki slíks mats, heldurgeldur þess Þótt leikritið um Skáld- Rósu sé verk um einstakling- inn og samfélagið, samfélag- ið gegn einstaklingnum eða öfugt, er Brynjólfur frá Minna-Núpi og ýmsir sögu- menn aðrir að vefjast fyrir áhorfandanum. Ég spái því að Skáld-Rósa muni verða vinsælt verk þrátt fyrir ýmsa augljósa galla þess sem listaverks. Hér er eitt- hvað af því ..þjóðlega" and- rúmslofti sem íslenskir leik- húsgestir geta ekki án verið Rómantík verksins þolir ef- laust ekki gagnrýni, en það hefur ýmsa kosti sem eru líklegir til að fleyta því áfram Ragnheidur Steindórsdóttir (Skáld-Rósa), Margrét Ólafsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson (Páll Melsted sýslumaður). Ragnheiður Steindórsdóttir sem Skáld-Rósaog Harald G. Haraldsson sem Natan Ketilsson. Pétur Einarsson sem Blöndal sýslumaður og Harald G. Haraldsson sem Natan. eftir JÓHANN HJÁLMARSSON hennar og Natans Ketilsson- ar verður mynd Natans einna eftirminnilegust. Harald G. Haraldsson leikur Natan af sannri innlifun. Örlög Natans og síðar aftaka Friðriks og Agnesar eru söguleg minni þar sem einstaklingurinn Rósa virðist furðusmár. Þar kemur til sögu í verki samfé- lagsmynd sem teflt er fram gegn mannlegum kenndum og breyskleika. Þáttur Björns Blöndals sýslumanns verður eins og áður þar sem um hann er fjallað ýktur. Lýsing höfundar og túlkun Péturs Einarssonar gera persónuna ógeðfellda og umfram allt Lelklist Einstaklingur og samfélag SKÁLD-RÓSA Leikrit í þrem þáttum eftir Birgi Sigurðsson Leikstjórn: Jón Sigurbjörnsson Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Búningar: Björg ísaksdóttir Lýsing: Daniel Williamsson SKÁLD-RÓSA Birgis Sigurðs- sonar er í raun og veru safn þjóðlífsmynda frá döprum timum. Þessu myndasafni hefur oftsinnis verið brugðið upp. I hug okkar koma kunn leikverk höfunda eins og Matthiasar Jochumssonar, Davíðs Stefánssonar og Jó- hanns Sigurjónssonar og fjöl- margar skáldsögur. Skáld- Rósa er i þremur þáttum, en mörgum atriðum; sum þeirra eru nokkuð löng, önnur ör- stutt. Hér eru dregnar fram ógnir og skelfingar fátæktar og annarra hörmunga, en inn á milli er leikið á strengi sælla ásta í faðmi náttúrunnar. Birgir Sigurðsson rekur ekki alla sögu Skáld-Rosu eins og við kynnumst henni i frásögn Brynjólfs frá Minna- Núpi, enda yrði það leikrit líklega einum of langt. Engu að siður skortir verk hans hnitmiðun. Það er eins og hanp ætli sér of stóran hlut á kostnað lýsingar Rósu sjálfr- ar. Því ber aftur á móti að fagna að sum atriði leikritsins eru skrifuð af sannri íþrótt vaxandi höfundar, samtöl, en þó einkum einstakar myndir, gefa verkinu táknræna merk- ingu og dýpka það. Hér er verið að fjalla um frelsið eins og Birgir hefur bent á, ein- staklinginn Rósu sem er trú tilfinningum sinum, býður rangsnúnu umhverfi byrginn og fer sinu fram hvað sem hver segir. En jafnvel hin frjálsa Rósa verður að lúta hinum samfélagslega ramma sem löngum hefur verið þröngur. í verki Birgis er hún engu að síður sigurvegari og um hana leikur birta í lokin þegar myrkt er allt um kring. í þjóðlifsmyndasafni Birgis Sigurðssonar þar sem sagt er frá ástum þeirra Rósu og Páls Melsteðs og siðar ástum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.