Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1978 f----------------------- Fárviðri í Bretlandi * Þar sem 33.000 þúsund slökkvi- liðsmenn eru i verkfalli í Bret- landi urðu lögreglumenn og her- menn að ganga í störf þeirra og hreinsa til eftir fárviðrið. Víða snjóaði í landinu og tor- veldaði snjókoma allar samgöng- ur á landi. Þá fylgdu þrumur og eldingar víða í kjölfar veðurofs- ans. Vindhraðinn komst í tólf vind- stig og urðu mörg skip að leita vars við ströndina meðan veðri9 gekk yfir. London, 3. janúar. AP. OFSAVEÐUR gekk yfir Bretland í dag og í nótt. Einn maður lét lífið í ofviðrinu, en það þeytti þökum af húsum og veki bíium. Maðurinn sem lézt var í bíl sín- um er tré rifnaði upp með rótum og lenti á bílnum, með fyrr- greindum afleiðingum. Mestar skemmdir urðu í New- market i austurhluta Englands. Þar skemmdust yfir hundrað hús, og járnbrautarmerki og bílar eyðilögðust. Fölsun í pólskri sjónvarpsmynd Varsjá, 3. janúar. Reuter. PÓLSK blöð hafa gagnrýnt fram- haldskvikmynd I póiska sjónvarp- Notadi uppskrift Agöthu og byrlaði frænda eitur Creances, Frakklandi. 3. jan. Reuter. HLJÓÐLATUR, miðaldra Frakki hefur játaö að hafa not- að eituruppskrift úr sögu eftir Agöthu Christie til að koma fyrir eitri í vínflösku og varð áttræðum frænda hans þannig að bana. Maðurinn sem heitir Roland Roussel og er 58 ára hefur alla tíð verið hinn prúð- asti borgari, en hefur nú verið ákærður fyrir morð á frændan- um á jóladag. „Eituruppskriftin" var úr sögunni „The Tuesday club murder" og fann lögreglan eintak af bókinni, þar sem vendilega var strikað undir hvernig að morðinu þar var staðið. I íbúð Roussels fundust einnigýmis eiturefni. Lögreglan segir að Roussel hafi gefið frænda sínum og frænku rauðvínsflösku með eitrinu sl. sumar, en þau hafi geymt sér til jólanna að bragða á því. Þegar þau veiktust var talið að ostrur sem þau höfðu verið að snæða væru eitraðar en síðan kom í ljós að vínið var banvænt. Eiginkona hans mun væntanlega ná sér. Grunsemd- ir vöknuðu fyrir alvöru þegar Framhaid á bls. 18 Kosiðí Chile Santiago, 3. janúar. Reuter. RUMLEGA sex milijónir Chile- manna taka þátt í þjóðaratkvæði um stuðning við herforingja- stjórn Augusto Pinochets forseta á morgun. Þar með ganga Chilebúar I fyrsta skipti að kjörborðinu sfðan herinn tók völdin í septemher 1973. Þjóðaratkvæðið er haldið þrátt fyrir andstöðu sjóhers, flyg- hers, kaþólsku kirkjunnar og stjórnmálaflokka sem verið hafa bannaðir. inu þar sem þar séu kommúnist- um og vinstrihópum eignuð afrek sem aðrir hópar andspyrnu- manna hafi unnið í stríðinu. Framhaldsmyndin heitir „Pólskir vegir" og fjallar um Pól- land undir hernámi Þjóðverja á stríðsárunum. Myndin er í 11 þáttum og henni lauk á jóladag með þvf að flestar hetjurnar biðu bana. Einn þriggja sagnfræðinga sem kvöldblaðið Kurier Polski birti viðtal við sagði að í kvikmyndinni væri kommúnistum ranglega eignuð fyrsta baráttan til varnar smábændum sem nazistar hröktu frá Zamosc-svæðinu í Suðaustur- Póllandi. I raun og veru var barátta á þessu svæði háð af bændahópum sem ekki er minnzt á einu orði í kvikmyndinni segir Waldemar Tuszynski ofursti við hersagn- fræðistofnunina. Hann segir að í kvikmyndinni komi ekki fram hve andspyrnu- hreyfingin í Póllandi hafi verið flókin. Annar sérfræðingur, Tomasz Szarota við sagnfræðistofnunina, segir að tilræðið við Kurt Hoff- mann, yfirmann atvinnumála, hafi verið verk Heimahersins sem hélt tryggð við pólsku útlaga- stjórnina í London en ekki vinstrisinnaeins og sagt sé í kvik- myndinni. VEÐUR víöaumheim Amsterdam 7 rigning Aþena 10 sól Berlfai 6 skýjaS Brússel 8 skýjað Kairó 17 sól Cbicago 6 bjart Kaupmanna- höfn 7 rigning Frankfun 5 rigníng Genf 9 skýjaS Helsinki 1 skýjað Jerúsalem 8 rigning Lissabon 15 rigning London 9 rigning Los Angeles 19 skýjað Madrid 9 skýjað Miami 24 skýjað Montreal -11 snjókoma Moskva - 3 þungbúiS New York 1 bjart Ósló 3 bjart París 8 skýjað Rómaborg 4 skýjað San Francisco 14 rígning Stokkhólmur 5 sól Rel Aviv 14 rignmg Vancouver : skýjað Vfatarborg 7 skýjað Við hér á norðurhjaranum kippum okkur ekki upp við myndir af þessu tagi, en Madrid-búar urðu dolfallnir þegar kafaldsbylur skall á milli jóla og nýárs. Þetta var í f.vrsta sinn í 7 ár, sem snjóar að ráði í borginni. Börnin urðu að vonum himinlifandi og þ.vrptust í almenningsgarða til að leika sér í snjónum, en sú sæla varð skammvinn því að um hádegisbilið hafði hlýnað svo í veðri að nýnæmið var á bak og burt. Umferðaröngþveiti varð í Madrid þennan morgun, og járnbrautarlestir voru yfirleitt tveimur klukku- stundum á eftir áætlun. Dularfullt skjal frá Austur-Þýzkalandi Bonn, 3. janúar. AP. ANDSOVÉZK yfirlýsing sem sögð er samin af andófsmönnum í austur-þýzka kommúnistaflokkn- um hefur komið upp á yfirborðið í Vestur-Þýzkalandi, en sérfræð- ingar eru ekki vissir um hvort hún endurspeglar meiriháttar klofning f flokknum eða ekki. Austur-Þjóðverjar segja að starfsmenn vestur-þýzku leyni- þjónustunnar hafi falsað skjalið sem er 30 síður og sagt er að háttsettir starfsmenn flokksins hafi samið. Vestur-þýzka tímaritið Der Spiegel hóf birtingu skjalsins í þessari viku og heldur þvi fram að það sé ófalsað og marki upphaf meiriháttar andstöðu gegn Rússa- hollri stefnu flokksforingjans Er- ich Honeckers. Vestrænir diplómatar sem náðst hefur til segjast enn vera að rannsaka skjalið og vilja ekkert um það segja hvort það er ófalsað eða ekki. Höfundar skjalsins kalla sig „samband 'lýðræðissinnaðra kommúnista" og hyetja til mál- frelsis, frelsis blaða og trúfrelsis, brottflutnings alls erlends herliðs frá báðum hlutum Þýzkalands og sameiningar landsins undir for- ystu framfarasinnaðra flokka. Þeir veitast líka harkalega að Sovétríkjunum og halda því fram að fleiri Austur-Evrópubúar hafi dáið fyrir hendi rússneskra kommúnista en hermanna Hitl- ers. „Við teljum hugmyndir Leníns um flokk, lýðræði og ríki óviðeig- andi,“ segja höfundarnir. Þeir segjast vera undir áhrifum frá „evrópukommúnistum" í Vestur- Evrópu og hvetja til þess að endi verði bundinn á „einræði eins fiokks" í Austur-Evrópu. Þeir hvetja líka til „afnáms ríkistrúar marxisma-leninisma". Austur-þýzka stjórnin hefur Honecker sakað tvo vestur-þýzka blaða- menn í Austur-Berlín um að hafa haft samstarf við vestrænar leyni- þjónustur um að dreifa skjalinu. Birting ávarpsins fylgir í kjöl- far orðróms í Bonn um klofning i stjórn austur-þýzka flokksins vegna ágreinings um samskipti við Vesturlönd. Flokksleiðtoginn Erich Honecker er fremstur í flokki þeirra sem vilja bæta sam- búðina við Vestur-Þýzkaland. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum er erfitt að meta hvort andófsmenn í forystu austur- þýzka kommúnistaflokksins séu fjölmennir eða áhrifamiklir. Talsmaður Bonnstjórnarinnar hefur neitað því að vestur-þýzka leyniþjónustan hafi komið nálægt yfirlýsingunni. Hann sagði að ekkert væri vitað um skipulögð samtök í Austur-Þýzkalandi sem talið væri að hefðu samið ávarpið. Flugslysið á Indlandi: Neitað að um skemmdaverk hafi verið að ræða ERLENT Bomba.v 3. jan. AP. LlK aðeins þrettán af 213 mönn- um sem munu hafa verið um borð í Boeing 747 vélinni frá Air India sem fórst um helgina, hafa fund- izt. Aðeins hefur fundizt hluti flaksins og þrátt fyrir mikla leit hefur ekki fundizt meginhluti vélarinnar og er talið að hún hafi sokkið í sæ. Með Boeing 747 vélinni voru 190 farþegar og 23 manna áhöfn. Vélin sprakk skömmu eftir flug- tak frá Bombayflugvelli á sunnu- dagskvöldið að því er sjónarvottar skýróu frá. Vélin átti að fara frá Bombay til Dubai og flestir um borð voru Indverjar, en með vél- inni voru einnig nokkrir Arabar. Mjög umfangsmikil leit var haf- in strax eftir slysið þar sem vélin féll í sjóinn norðvestur af Bom- bay. Fljótlega komust og á kreik sögusagnir um að vélin hefði sprungið af manna völdum og hefði sprengingin verið svo kröft- ug að vélin hefði sprungið í tætl- ur og því væri ekki við því að búast að brak úr henni fyndist, hvað þá líkamsleifar farþega eða áhafnar. Indversk blöð gáfu þessa kenningu í skyn i gær og opinber- ir fulltrúar sögðu í fyrstu ekkert um málið. Síðdegis í gær, mánu- dag, var birt opinber yfirlýsing þar sem hugmyndum um skemmdarstarfsemi var vísað á bug. Vakin var þó athygli á því, að fyrir flugtak hefði verið dæld í öðrum væng vélarinnar eftir flug en það hefði verið Iagfært. Vélin var fyrsta Jomboþota í eigu Air India. Þetta er alvarleg- asta slys Air India, en árið 1966 fórst Boeing 707 vél í svissnesku Ölpunum og létust þá 117 manns. V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.