Morgunblaðið - 04.01.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIXUDAGUR 4. JANUAR 1978
SAGA HM íKNATTSPYRNU
tee EI6A SKÍL'ifc
A£) FÁ AD HALOA
FVR5TU lcePPWÍNA
FVl2.ii?. UÍTT FEAM'
LA2r.
í MÁLI OG
ÚRSLITAKEPPNI Heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu fer fram f Argentínu f júnímánuði á þessu
nýbyrjaða ári. Þessi mikla keppni er sá fþróttaviðburð-
ur, sem talið er að flestir muni fylgjast með. Auk þeirra,
sem verða á keppnisstöðunum, er reiknað með að meira
en tvær milljónir sjónvarpsáhorfenda fylgist með
keppninni f 125 löndum.
Hér á fþróttaslðu Morgunblaðs- lega að fylla upp f tölu þátttak-
ins hefst f dag myndasaga, þar enda.
sem rakin er saga HM f knatt- Nú hafa viðhorfin breytzt og
spyrnu. Fyrst var keppt f Uru- knattspyrnuþjóðir vildu miklu
guay árið 1930 og þá gekk erfið- • fórna til að fá að vera með f
MYNDUM
þessari eðlu keppni.
Myndasagan mun birtast á
fþróttasfðunni daglega fram á
sumar, en alls birtist hún 172
sinnum.
Til glöggvunar skulum við rifja
upp hvaða 16 lið það eru, sem
hafa tryggt sér þátttökurétt f úr-
slitum HM f sumar. Auk heims-
meistara V-Þýzkalands og gest-
gjafanna frá Argcntfnu eru það
lið Hollands, Frakklands, Spánar,
Italfu, Ungverjalands, Austurrfk-
is, Póllands, Skotlands, Svfþjóðar,
Brasilfu, Perú, Mexfkó, trans og
Túnis.
20 ár eru nú liðin sfðan Island
tók fyrst þátt f keppninni og eins
og reyndar má eðlilegt telja, hef-
ur landinn yfirleitt mætt ofjörl-
um sfnum f leikjum keppninnar.
t sumar vannst þó langþráður sig-
ur f keppninni er Norður-lrar
voru að velli lagðir á Laugardals-
vellinum. Var það fyrsti HM-
sigur tslendinga f knattspyrnu.
GETSPEKIIMGAR Á
STÚFANA AÐ NÝJU
NU ER SU stund runnin upp á ný, að allir helstu opinberu tipparar Islands og Bretlands tendra Ijós sfn f
Getraunaþætti Mbl. Er ekki að efa, að fjöldi manns hefur saknað þáttarins um hátfðarnar, en það
reyndist erfiðleikum bundið að halda honum gangandi þvf að allt fram f sfðustu viku lágu getraunir niðri
hérlendis. Hlé þetta hefur þó ekki til einskis verið, þvf að höfuðsérfræðingar Mbl. hafa legið næstum
sleitulaust f bleyti og mega þvf lesendur vænta ótrúlegra framfara á næstunni.
Að þessu sinni, er þriðja um-
ferð bikarkeppninnar á dagskrá
og má þvi frekar en oft áður
vænta óvenjulegra úrslita.
Burnley- Fulham x
Þó að Burnley reki lestina í 2.
deild, þá er heimavöllur jú alltaf
heimavöllur og teljum við trúlegt
í meira lagi, að Burnley nái jafn-
tefli, en að okkar mati sigra þeir
ekki.
Cardiff-Ipswich 1
Hér munu margir fordæma tipp
okkar, en við teljum það þó í
samræmi við frammistöðu félag-
anna I vetur. Ipswich hefur enn
ekki unnið útileik, en Cardiff er
hins vegar sterkt lið á heimavelli.
Heimasigur.
Sunderland-Bristol Rovers 1
Rovers hafa sótt mjög í sig veðr-
ið undanfarnar vikur, en framan
af vetri var liðið ákaflega slakt.
Sunderland eru hins vegar nokk-
uð traust heimalið og treystum
við á þá.
Chelsea-Liverpool x
Oft höfum við talað um jafn-
teflisfnykinn, sem oft leggur af
ýmsum leikjum. Hér er daunn
þessi sterkur mjög og verður ekki
fram hjá honum horft eða þefað.
Jafntefli.
Everton-Aston Villa 1
Everton virðist nú vera að ná
sér á strik á ný og verður þá ekki
að sökum að spyrja. Heimasigur.
Hull C-Leicester 1
Ekki verður um lið þessi sagt,
að þau séu imynd velgengninnar
á þessu keppnistimabili, en af
tveimur illum teljum við Hull lík-
legra til að koma knettinum i net-
ið og þvi tippum við á þá. Heima-
sigur.
Leeds-Manchester City 1
Keppni þessi er líklega siðasti
möguleiki fyrir Leeds til þess að
hreppa eitthvert góðgæti á þess-
um vetri og þar sem liðið er gott
er þvi tekst vel upp, teljum við
það sigurstranglegra.
WBA-Blackpool 1
Blackpool leikur í annarri deild
og framan af vetri var liðið meðal
þeirra efstu í deildinni, en siðan
hefur þeim hrakað. WBA hefur
átt misjöfnu gengi að fagna und-
anfarið, en við höllumst engu að
siður að heimasigri.
Middlesbrough-Coventry 2
Boro eru geysilega Iélegir um
þessar mundir og á þeim forsend-
um höfum við mesta trú á útisigri.
Orient-N'orwich x
Orient eru til alls líklegir og er
lið þeirra síður en svo slakt. Við
teljum, að Norwich komist áfram,
en ekki fyrr en eftir aukaleik.
Sheffield Utd.-Arsenal x
Það liggur við, að ummælin um
leikinn hér rétt fyrir ofan hafi
verið samin um þennan leik en
ekki hann. Jafntefli.
Tottenham-Bolton 1
Bolton hefur ekki svo mikið
sem krækt i eitt stig i viðureign-
um sinum i Lundúnum i vetur og
eru þeir leikir þó orðnir fimm að
tölu. Nú mæta Bolton sterkasta
Lundúnaliðinu i sinni deild og
teljum við þvi, að gæfan muni
ekki brosa ýkja mikið við þeim.
Heimasigur.
—gg.
.3 *© íð 2 c 3 Ö£ ím o S 3 S SB s 3 •O < 2 *o * S bC «0 Q 2 a u > C »o G« Tlminn Útvarpió Vísir c c > ■o *© A Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the world Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Burnley — Fulham X X i 1 1 X X X X X X 3 8
Cardiff — Ipswich 1 2 2 X X 2 2 2 2 2 2 1 2 8
Sunderland — Brislol Ro\. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11
Chelsea — Liverpool X 2 X X X X 2 X X 2 2 7 4
Everton — Aslon Villa 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 10 1
Hull C. — Leicester 1 1 X 1 1 2 1 X X X X 5 5 1
Leeds — Man. Clly 1 1 2 X X 1 X 1 1 1 1 7 3 1
WBA — Blackpool 1 1 I 1 1 1 1 1 1 1 1 11
Middlesbrough — Covenlry 2 2 X 1 1 1 1 X X X X 4 5 2
Orient — Norwich X 2 X 2 2 X X X 2 2 2 5 6
Sheffield Uld — Arsenal X 2 2 X 2 1 2 2 2 2 2 1 2 8
Tottenham — Bolton 1 X 1 1 1 1 1 X X 1 1 8 3
Erlendur
til æfinga
á Spáni
Erlendur Valdimarsson, Is-
landsmeistari í kringlukasti og
sleggjukasti, heldur um miðjan
mánuðinn til Spánar þar sem
hann mun dveljast í 3 vikur við
æfingar. Mun Erlendur dvelja í
æfingamiðstöð finnskra íþrótta-
manna er nefnist Los Pacos, en að
jafnaði dvelja þar margir frægir
íþróttamenn við æfingar. Erlend-
ur hefur áður dvalið í þessum
æfingabúðum og í spjalli við Mbl.
sagði hann að þarna væri aðstaða
mjög góð.
Borða Islendingar
kirsuber með þeim
stóm í Danmörku?
RUMENAR hafa náð beztum árangri alla þjóða i Heimsmeistarakeppninni i
handknattleik og unnið þessa miklu keppni handknattleiksmanna fjórum
sinnum. Sviar hafa náð næst beztum árangri, en þeir unnu HM 1954 og
1958, en hafa að auki náð silfri og bronzi einu sinni. Tékkar og V Þjóðverjar
hafa unnið keppnina einu sinni hvor þjóð.
í grein i norska Dagblaðinu er fjallað um möguleika fulltrúa Norðurland-
anna og kostnað, sem Danir hafa lagt i vegna keppninnaf. Fer hér á eftir
úrdráttur úr grein þessari:
..Tekst Dönum, íslendingum og Sví-
um, hinum þremur norrænu fulltrúum,
að komast upp á milli þjóða frá A-
Evrópu í HM í handknattleik í lok þessa
mánaðar og byrjun þess næsta? Svarið
er já — en þó ekki án fyrirvara. Bæði
Dönum og Svíum ætti að takast að
komast í hóp þeirra beztu og ,,að borða
kirsuber'' með þeim stóru Islendingar
þurfa að berjast ef þeir ætla sér að
komast i hóp þeirra 1 0 beztu
Svíar eru í riðli með Búlgörum, Jap-
önum og Pólverjum og eftir úrslitum
fyrri leikja ættu Svíar að vinna bæði
Búlgara og Japani örugglega Sviar
hafa leikið tvo leiki við Búlgari og
unnið báða, 21:19 í HM 1974 og
25:15 í Austurríki 1977 Svíar hafa
unntð Japani 4 sinnum, en einu sinni
tapað fyrir þeim Svíar hafa unnið
Pólverja 6 sinnum, hafa tapað 8 sinn-
um, en þrtvegis gert jafntefli
Danir og íslendingar eru í sama riðli,
ásamt Sovétmönnum og Spánverjum
Danmörk og Sovétríkin eru augljósir
kandidatar með að komast áfram, en
ísland gæti þó komið á óvart Það hafa
verið miklar sveiflur í leik islenzka
liðsins, það hefur gert jafntefli við eitt
sigurstranglegasta liðið i keppninni,
Ungverja, siðan hefur liðið jafnvel tap>-
að á heimavelli fyrir Noregi
Danir hafa veitt 55 milljónum króna
i undirbúning liðs sins i Heimsmeist-
arakeppninni og i byrjun desember
unnu þeir rúmensku heimsmeistarana
20 19 og gerðu síðan jafntefli 17:17.
Hafa Danir kostað miklu meira til und-
irbúnings liðs síns en t d Svíar og
áður en keppnin hefst 26. janúar verða
þeir með 22 undirbúningslandsleiki á
keppnistímabilinu að baki Með öðrum
orðum má segja að leikmenn þeirra
hafi i hálft ár verið atvinnumenn i
íþróttinni
En allt útlit er fyrir að Danir fái
bróðurpartinn af þessu fé aftur til baka
Aður en sala aðgöngumiða á leikina i
,HM raunverulega hófst var búið að
tryggja fjárhagslega afkomu keppninn-
ar með pöntunum á miðum Nú er um
helmingur af þeim 100 þúsund mið-
um, sem átti að selja, þegar seldur
Uppselt er á úrslitaleikina og leik Dana
á móti Sovétmönnum
Sex beztu þjóðirnar á HM í Dan-
mörku komast sjálfkrafa á Ólympiuleik-
ana í Moskvu 1 980 — áij.