Morgunblaðið - 20.01.1978, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978
m 5IMAK
|P 28810
car rental 24460
bíialeigan
GEYSIR
BORGAPIIJNI 24
LOFTLEIDIR
-E- 2 1190 2 11 38
Ekkja Chous
til Kambódíu
Tokyo. Belgrad. Peking, Bangkok.
18. jan. AP — Reuter.
TENG Ying Chou, ekkja Chou En
Lais fyrrum forsætisráðherra
Kína, varaforseti kínverska
þingsins og meðlimur miðnefnd-
ar kommúnistaflokks Kína, hélt í
dag með sérstakri flugvél til
Kambódíu. Herma fregnir að
hugsanlega sé ferð Teng upphaf
diplómatískra tilrauna til að
koma á samningaviðræðum milli
Vfetnama og Kambódíumanna í
deilu landanna, en þau slitu
stjórnmálasambandi á gamlárs-
dag.
1 fylgd með Teng Ying Chou
eru tveir háttsettir embættis-
menn, Han Nien-Lung aðstoðar-
utanríkisráðherra Kína og Shen
Ping deildarstjóri i deild þeirri í
utanrikisráðuneyti Kína sem fer
með málefni Asíu. Herma
áreiðanlegar fregnir að aðstoðar-
utanríkisráðherra Víetnams Phan
Nien, sé nú í-Peking, en hann er
sérfræðingur í landamæradeilum.
Segja þessar heimildir að Phan
Nien sé þangað kominn til að fá
Kínverja til að koma á ný sam-
bandi á milli Vietnams og Kambó-
díu. Talsmaður sendiráðs Kambó-
díu í Peking sagði í dag að engar
viðræður hefðu átt sér stað i
Peking við Víetnama, en talið er
að Phan Nien hafi verið í Peking
frá 9. janúar.
Víetnamar hafa skýrt frá að
þeir vilji þegar í stað hefja við-
ræður til lausnar deilu landanna,
en Kambódíumenn segjast ekki
tala við Víetnama fyrr en þeir
síðarnefndu hafi farið með herlið
sitt á brott úr Kambódíu. Kínverj-
ar hafa lýst því yfir að þeir vonist
til að friðsamleg lausn deilunnar
fáist með samningaviðræðum.
Opinberlega hafa Kínverjar ekki
tekið málstað annars aðilans, en
af skrifum kínverskra blaða að
undanförnu má draga þá ályktun
að samúð þeirra sé með Kam-
bódiumönnum, skýrði júgóslav-
neska fréttastofan í Peking
Tanjug frá í dag.
I útvarpssendingu Phnom Penh
útvarpsins í dag sagði Pol Pot
forsætisráðherra Kambódíu að
herir landsins hefðu unnið nýja
sigra í átökum við víetnamskar
hersveitir.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
W <.I,YSI\(, V
SIMIW KK:
22480
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
20. janúar
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
furustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Guðrfður Guðbjörns-
dóttir les söguna Gosa eftir
Carlo Collodi f þýðingu Gfsla
Ásmundssonar. (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Það er svo margt kl. 10.25:
Einar Sturluson sér um þátt-
inn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Tékkneska fflharmonfusveit-
in leikur „Óð Hússíta", for-
leik op. 67 eftir Dvorák;
Karel Ancerl stj. / Alicia de
Larrocha og Fflharmonfu-
sveit Lundúna leikur
Fantasfu fyrir pfanó og
hljómsveit op. 111 eftir
Fauré; Rafael Friihbeck de
Burgos stj./ Sinfónfuhljóm-
sveit Lundúna leikur
Sinfónfu nr. 2 eftir William
Walton; André Previn stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Á
skönsunum“ eftir Pál Hall-
björnsson. Höfundur les.
(17).
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfónfuhljómsveit útvarps-
ins f Banden-Baden leikur
Sinfónfu f d-moll eftir Anton
Bruckner; Lucas Vis stjórn-
ar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Hottabych“ eftir Lazar
Lagfn. Oddný Thorsteinsson
lýkur lestri þýðingar sinnar
(18).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Viðfangsefni Þjóð-
félagsfræða. Dr. Svanur
Kristjánsson lektor flytur er-
indi um rannsóknir á fslenzk-
um stjórnmálaflokkum.
20.00 Beethoventónleikar
finnska útvarpsins f septem-
ber sl.
a. „Prometheus“, forleikur
op. 43.
b. Pfanókonsert nr. 5 f Es-
dúr op. 73. Emil Gilels leikur
með Fflharmonfusveitinni f
Helsinki; Paavo Berglund
stjórnar.
20.50 Gestagluggi. Hulda Val-
týsdóttir stjórnar þætti um
listir og menningarmál.
21.40 Kórsöngur. Hollenski
útvarpskórinn syngur lög
eftir Brahms, Hauptmann,
Gade o.fl. Stjórnendur:
Anton Krelage og Franz
Múller.
22.05 Kvöldsagan: „Sagan af
Dibs litla“ eftir Virginfu M.
Alexine. Þórir S, Guðbergs-
son les þýðingu sfna (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Afangar. Umsjónar-
menn: Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.40 Fréttir Dagskrárlok.
SKJflHUM
FÖSTUDAGUR
20. janúar
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Vorflugan og silungur-
inn
Bresk fræðslumynd um líf-
rfki árinnar.
Myndin er að nokkru leyti
tekin neðan vatnsborðs og
lýsir lifnaðarháttum sil-
ungsins, og fleiri dýr koma
við sögu.
Þýðandi og þulur Guðbjörn
Björgólfsson.
20.55 Kastljós (L)
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
V_____________________________
21.55 Háski á hádegi
(High Noon)
Einn frægasti „vestri“ allra
tfma, gerður árið 1952.
Leikstjóri Fred Zinnemann.
Aðalhlutverk Gary Cooper
og Grace Kelly.
Myndin gerist f smábænum -
Hedleyville árið 1870. Lög-
reglustjórinn er nýkvæntur
og ætlar að halda á brott
ásamt brúði sínni. Þá berast
honum þau boð, að misindis-
maðurinn Frank Miller, sem
þykist eiga lögreglustjóra
grátt að gjalda, sé laus úr
fangelsi og væntanlegur til
bæjarins með hádegislest-
inni.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
23.15 Dagskrárlok
_____________________________>
til bæjarins með hádegis-
lestinni og ætli þorpar-
inn sér að launa lögreglu-
stjóranum lambið gráa.
Lögreglustjórinn sem
hafði kvænst fyrr um
daginn verður því að
berjast við þorparann í
stað þess að halda í brúð-
kaupsferð sína, eins og
hjónakornin ætluðu sér.
„Háski á hádegi“ er tal-
in einn bezti vestri sem
gerður hefur verið, og
hefur kvikmyndin hlotið
mörg verðlaun, þar á
meðal Óskarinn. Hún
gerist öll á 80 mínútum,
og er atburðarásin mjög
hröð og spennandi. Kvik-
myndahandbókin okkar,
sú lúna skrudda, gefur
henni hæstu mögulegu
einkunn og hvetur sjón-
varpsáhorfendur til að
berja hana augum.
Gary Cooper og Grace Kelly í hlutverkum sfnum f
„Háski á hádegi“.
„Vorflugan og silungurinn" nefnist bresk fræðslu-
mynd um lífríki ár einnar, sem sýnd verður í kvöld
klukkan 20.30. Þessi sérkennilegi fiskur er eitt þeirra
vatnadýra sem við sögu koma í þeirri mynd.
Myndin fjallar um lög-
reglustjóra í smábæ í
Bandaríkjunum. Honum
er tilkynnt að þorpari
einn, sem ber mikinn hat-
urshug til hans sé á leið
Þorparinn og
lögreglustjórinn
„Háski á hádegi“
(High noon) heitir kvik-
myndin sem sjónvarpið
sýnir í kvöld klukkan
21.55. Hún er vestri gerð-
ur árið 1952 með leik-
stjóranum Fred Zinne-
mann, en í aðalhlutverk-
um eru þau Gary Cooper
og Grace Kelly.