Morgunblaðið - 20.01.1978, Síða 28

Morgunblaðið - 20.01.1978, Síða 28
28 MORGUNBI 4ÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978 V»M> \A09GÚU- KArPINU % I - 0 <7_ £5' GRANI göslari Látið yður ekki bregða, prestur, hann lætur til sín heyra nú strax, vatnið er orðið ískalt. 500 krónur á tfmann fyrir þetta er ekki of mikið! Geturðu ekki fundið þér neitt til dundurs unz Húsbændur og hjú byrja? BRIDGE Afengisbann ? „Það hefur verið mikið rætt um áfengisvandamálið í fjölmiðlum og er það vel, þar hafa mörg sjónarmið komið fram. Það er mfn skoðun að eina rétta lausnin á þessum málum er að setja á algjört vínbann. Flestir lands- manna vita það að við Islendingar græðum ekkert á áfenginu, langt því frá, heldur töpum við stórum upphæðum á ári hverju vegna áfengisins. Það er staðreynd að áfengi er mjög mikill skaðvaldur og hversu mörg skyldu dauðaslys- in hafa orðið vegna áfengisneyzlu og neyzlu annarra eiturlyfja hér á landi. Komin er upp stofnun fyrir drykkjusjúklinga hér á landi og kostnaðurinn við hana skiptir tug- um milljóna á ári. Þá er ónefndur sá stóri hópur aðstandenda þessa fólks en sorgir og erfiðleikar þeirra eru mjög miklir. Ég tel fráleitt að bæta eigi bjórnum ofan á allt saman. Hann yrði bara viðbót og kveikjan að drykkju sterkara áfengis, en það er dálítið athyglisvert að margir af þeim sem sent hafa bréf til Velvakanda og sagst vera með bjórnum eru meira og minna hlutdrægir, þvi mörgum finnst þeim bjórinn góð- ur og þeir hugsa bara um sjálfa sig, en ekki velferð þjóðarinnar að ég tel. Að lokum vil ég segja að áfengið er einn mesti óvinur þjóðarinnar. Gróðinn af áfengis- sölu er enginn þegar allt kemur til alls, en samt sem áður er þessi óþarfa drykkur til sölu hér á landi. Hvenær endar þessi saga? 0 Frjáls útvarps- rekstur? Velvakandi bað einhvern tima lesendur sina að segja álit sitt á frjáisum útvarpsrekstri hér á landi og á hann þakkir skilið fyrir það. Ég skora á alla lesendur Velvakanda og fleiri að taka nú höndum saman og senda Velvak- anda undirskriftalista til stuðn- ings frjálsum útvarpsrekstri og verum nú allir með i þvi. E.K. 1730—6804.“ • Ekkilítil Danmörk? „Á annan i jólum 1977 var í útvarpinu samtalsþáttur við tvo Færeyinga búsetta hér á landi, þá Ragnvald Larsen og Chuman Didriksen um jólahald i Færeyj- um bæði fyrr og nú. og er ekki nema gott eitt um það að segja. Nema það að ég hef aldrei heyrt það áður að siginn fiskur væri á jólaborðinu. Þar seiri ég þekki til var það jólagæs og vindþurrkað kjöt og nýtt kjöt en það var ekki þetta sem nefnt var. Chuman sagði að Suðureyingar væru alltaf fljótir til að tileinka sér danska siði og að Suðureyjar væru kallaðar Litla Danmörk. Umsjón: Páll Bergsson SPILIÐ í dag kom fyrir í fjöl- mennri tvímenningskeppni. I flestum tilfellum varð lokasamn- ingurinn 4 hjörtu og baráttan snerist um tilraunir suðurs til að ná yfirslag. Gjafari var vestur og austur- vestur voru á hættu. Norður S. K4 H. K865 T. K9432 L. ÁK Vestur S. D10985 H. 107 T. D7 L. DG32 Austur S. G762 H. G4 T. AG10 L. 10965 Suður S. Á3 H. ÁD932 T. 865 L. 874 Yfirleitt spilaði vestur út trompi og þeir sem spiluðu spilið beint af augum töpuðu þrem slög- um á tígul en áttu síðan afgang- inn, slétt unnið. En eftir að hafa tekið útspilið tóku vandvirkari spilarar á ás og kóng í laufi, fóru inn á höndina á tromp og trompuðu lauf í blind- um. Nú gátu þeir tekið spaðaslag- ina og spilað síðan Iágum tígli frá báðum höndum. Austur gat þá verið enedaspilaður eða liturinn orðið blokkeraöur og annarhvor andstæðingurinn þá neyddur til að spila út í tvöfalda eyðu. Staðan var þessi. Norður S. — H. 8 T. K9432 L. — Vestur Austur S. D109 S. G7 H. — H. — T. D7 T. ÁG10 L. D Suður S. — H. 932 T. 865 L. — L. 10 En vestur gat forðað yfirslagn- um með því að láta drottninguna hvort sem sagnhafi spilaði tígl- inum frá hendinni eða frá blind- um. Þá voru þrír tígulslagir ör- uggir og spiliö aðeins slétt unnið. Framhaldssaga eftir HUS MALVERKANNA Sr— 49 Jensen áfram. — Hann gengur á milli fólks og biður að gefa sér blöð og síðan sezt hann ró- lega inn í stofuna sína og klipp- ir myndirnar út og limir þær snyrtilega inn í stórar bækur. Hann skrafar við ráðherrana sina eins og gamla kunningja. Segir þeim hvað honum finnst þeir eigi að gera fyrir land sitt, og svo syrgir hann þá inniiega þegar þeir deyja. Þegar sljórnarskipti verða i löndunum og aðrir taka við er hann harmi lostinn þeirra vegna. Honum þykir vænt um ráðherrana sina. Hvort sem þeir eru hægri- eða vinstri- menn. Hann lifir fyrir þessar myndir sínar og myndi aldrei hafa áhuga á að snerta dauðan kött, hvað þá heldur með blóm hak við eyrun. — Gætu einhver börn hafa tekið upp á þessu? Birgitte horfði niður á tærn- ar á sér þegar hún spurði. Henni leið vægast sagt alltaf verr og verr og vissi ekki hvern- ig þessi sérkennilegu funclir hennar og Jensenhjónanna myndi enda. — Ég get ekki hugsað mér annað... Einhverjir krakkar sem hafa ætlað að stríða yður. — Ég bið afsökunar að ég skyldi vekja yður. Birgitte yppti öxlum vandræðalega. — Ég hugsaði ekki út í að hér væri ekki opið alla nóttina eins og I almennilegum bæjum. — Aimenniiegum bæjum... Hann endurtók orð hennar og lyfti brúnum. — Eftir því sem ég bezt veit er þetta nú eins konar bær og ég fæ ekki betur séð en við höfum opnað fyrir yður þótt nótt sé... — Afsakið mig... það var ekki svoleiðis meint. Nú fer ég og svo læt ég setja lás fyrir dyrnar mfnar f fyrramálið. Þér hafið sjálfsagt haft á réttu að standa. Þarna hafa börn verið að reyna að gera mér gráan leik. Rödd hennar dvfnaði og hún fann kökk í hálsinum ásér. — Ég kem með yður og að- gæti hvort ekki er allt í lagi. Egon Jensen tók frakka af herðátré. — Fyrst ég er kominn á fæt- ur er eins gott að við athugum það. — Og þennan dauða kött, endilega að skoða hann. Ruth Jensen hreytti út úr sér oróunum, tók trefil af snaga og vafði honum umhyggjusamlega um Jiáls eiginmanns síns og kyssti hann f kveðjuskyni. — Ef hann er þá til... Augnaráð hennar var illskulegt þegar hún skellti dyrunum á eftir þeim. 20. kafli Egon Jensen horfði hugsi á ungu stúlkuna með Ijósa hárið. Fyrst hafði hún þótzt vera dauðhrædd út af dauðum ketti. Hafði dregíð hann út úr rúm- inu um miðja nótt vegna svona smámáis. Og nú lézt hún verða enn hræddari vegna þess að á rúminu var auðvitað enginn dauður köttur. Hún hafði sigri hrósandi opn- að svefnherbergisdyrnar og sagt: „Þér getið séð það sjálfur hvort þessi hefur ekki verið vandlega fyrir komið...“ Og svefnherbergið hafði verið tómt... auðvitað var hvergi kött að sjá, þaðan af síður dauðan kött með blóm á bak við eyrun. Snyrtiiegt blátt rúmteppi sem virtist ekki hafa verið hreyft sfðustu klukkutímana. Engir dauðir kettir... Og sjálfsagt höfðu þeir aldrei verið þarna... hann fékk bara ekki botn í hvað vakti fyrir stúikunni með þessum láta- látum. Hún staðhæfði að hún væri sakamálasagnahöfundur, en hann sem gleypti í sig allar slfkar sögur hafði aldrei séð nafn hennar á neinni bók. Þcg- ar hann hafði sagt það við hana hafði hún sagt eins og annars hugar:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.