Morgunblaðið - 15.02.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter vill selja
200 orrustuþotur
til Miðausturlanda
Washington — Kaíró
14. febrúar — Reuter — AP
STJÓRN Carters lagði i dag til
við Bandarfkjaþing að samtals
200 fullkomnar orrustuþotur
yrðu seldar til Egyptalands, Isra-
els og Saudi-Arabíu. t yfirlýsingu
utanrikisráðuneytisins um þessa
fyrirhuguðu vopnasölu kemur
fram að tsraelsmenn eiga að fá 90
þotur af gerðunum F-15 og F-16,
Egyptar 50 af gerðinni F-5E, og
Saudi-Arabar 60 af gerðinni F-15.
Þetta eru mun færri þotur en
lsraelsmenn hafa farið fram á að
fá, en Cyrus Vance utanrfkisráð-
herra segir, að i tillögunni sé
bæði tekið tillit til öryggis tsraels
og varnarþarfar Egypta. Vance
lét svo um mælt að hlutverk
Saudi-Arabíu varðandi spennu-
slökun í þessum heimshluta yrði
ekki ofmetið, og væri ríkinu
nauðsynlegt að bæta vopnabúnað
sinn þannig að hann svaraði nú-
tímakröfum.
Vopnasala eins og sú sem hér
um ræðir er háð samþykki Banda-
rfkjaþings, en Vance sagði að ráð-
gert væri að afhending flugvél-
anna tæki nokkur ár. Upphaflega
óskuðu tsraelsmenn eftir þvf að
fá keyptar 275 þotur af fullkomn-
ustu gerð, og er búizt við hörðum
mótmælum vegna þessa niður-
skurðar.
Sadat forseta var ákaft fagnað
við komuna til Kaíró á mánudags-
kvöld. Þar er almannarómur að
ferð hans um átta lönd hafi þjón-
Framhald á bls. 18
Sómalskir stríðsfangar í fangabúðum stjórnarhersins f Eþíópfu. Sautján Sómalfumenn eru sagðir vera f
þessum búðum, sem eru í Harar. (AP-sfmamynd)
Sómalir hrinda
sóknartilraunum
Mofíadishu. 14. febrúar. Reuter.
LIÐ Sómalfumanna hefur hrund-
ið sóknartilraun Eþiópfumanna
meðfram járnbrautarlfnunni
austur af Dire Dawa og heldur
skriðdrekaliði f skefjum í Harra-
ova að því er starfsmenn sóm-
alska upplýsingaráðuneytisins
sögðu í dag.
Þcir segja að í aðsigi sé árás úr
norðri á bæinn Adigala við járn-
brautina og bæði Harraova og
Adigala séu í höndum Sómalíu-
manna. Sveitir frá hafnarborg-
inni Assab við Rauðahaf standa
að árásinni á Adigala að sögn
þeirra.
Embættismennirnir segja að
Eþíópíumenn hafi aðeins sótt 10
km í austur frá fjallaborginni
Harar við veginn til Jijiga. Það er
í mótsögn við upplýsingar frá Eþí-
ópíumönnum og vestrænum
diplómötum þess efnis, að Eþíóp-
íumenn hafi sótt meðfram járn-
brautinni fram hjá Harraova, tek-
ið bæinn Babile og að þeir séu
komnir hálfa leiðina til Jijiga.
Sómalíumenn virðast því hafa
staðið sig miklu betur en áður var
talið gegn liðsafla Eþíópíumanna
sem er búinn miklum fjölda skrið-
dreka og flugvéla og nýtur stuðn-
ings Rússa og Kúbumanna. Sóm-
alskur embættismaður sagði í dag
að fréttir Eþíópíumanna væru
„lygar og áróður“.
Sómalskir leiðtogar telja að
Eþíópíumenn ætli að sækja undir
leiðsögn Rússa upp eftir járn-
brautarlínunni og yfir landamær-
in inn í Norður-Sómalíu þar sem
þeir ætli að taka höfnina Zeyla
við Aden-flóa. Sómalskir embætt-
ismenn segja að þeir hyggi einnig
á aðra árás eftir veginum frá Har-
Framhald á bls. 18
Ítalía:
Hryðju-
verkasam-
tök myrtu
dómarann
Róm, 14. febrúar £ Reuter.
HELZTU hryðjuverkasamtök
vinstri öfgamanna á ítalfu,
Rauða stórfylkið, svokallaða,
hefur lýst ábyrgð á morðinu á
dómaranum Riccardo Palma í
dag á hendur sér. Miklum
óhug hefur slegið á yfirvöld á
ttalíu vegna morsðihs sem tal-
ið er standa í beinu sambandi
við réttarhöldin yfir Renato
Curcio, leiðtoga Rauða stór-
fylkisins, sem eiga að hefjast á
næstunni. Hryðjuverkasam-
Framhald á bls. 18
Ráðgjafa Strauss
rænt í Munchen
Munchen, 14. febrúar. AP.
LÖGREGLUNNI í Munchen barst
í kvöld orðsending óþekktra sam-
taka um að þau hefðu f gær rænt
Dieter Huber, sem er helzti utan-
ríkismálaráðgjafi Frans Josef
Strauss. Lögreglan segir, að ekki
sé annað hægt en að taka bréfið
alvarlega þar sem það sé póstlagt
áður en nokkrum öðrum en lög-
reglunni var kunnugt um hvarf
Hubers.
. Bréfið er undirritað með
Lík Riccardos Palma dómara, sem þriggja manna hryðjuverkahópur réð bana í gærmorgun. (AP- skammstöfun, sem talið er að
símamynd) standi fyrir „Giinther Sonnen-
Losaði sig
undan áhrifum
þorparanna
Töktó — 14. fcbr. — AP.
SKÓLAPILTUR í Kwangtung-
héraði f Kína, Liu Ke að nafni,
lýsir því f grein i Dagblaði al-
þýðunnar, hvernig hann hafi far-
ið að því að losa sig undan áhrifa-
mætti „þorparanna fjögurra", að
því er Hsinhua-fréttastofan segir
frá í dag. Hann segist hafa verið
vanur því að opna glugga skóla-
stofunnar upp á gátt á köldum
Framhald á bls 18.
Nýtt vopn í baráttunni
gegn hjartaáföllum?
Bandarfska blaðið The
Herald Tribune skýrir frá þvf á
forsfðu að rannsóknir f Banda-
rfkjunum og Kanada hafi leitt f
Ijós að notkun lyfsins
„anturane" geti fækkað dauðs-
föllum af völdum hjartaslags
um allt að helming meðal
þeirra, sem fengið hafa hjarta-
slag cinu sinni. Meðal þetta
hefur verið i notkun um all-
langt skeið, en þvf hefur hingað
til verið beitt gegn þvagsýru-
gigt. Niðurstöður þessarar
rannsóknar birtast f nýút-
komnu tölublaði hins þekkta
bandarfska læknatimarits The
New England Journal of
Medicine, en von er á niður-
stöðum frekari rannsókna á
áhrifum lyfsins gegn hjarta-
áföllum og annars konar
heilsubresti, sem stafar af æða-
kölkun.
Morgunblaðið sneri sér til
Þórðar Harðarssonar, hjarta-
sérfræðings, og spurði um notk-
un „anturanes" hér á landi.
Þórður kvað sér ekki kunnugt
um að það hefði verið notað hér
að nokkru marki, en það hefði
þau áhrif að auka útsHilnað á
þvagsýru f þvagi og smálosa
sjúklinga þannig við einkenni
þvagsýrugiktar. Þá kvað hann
lyfið hafa nokkur áhrif gegn
bólgum, eins og til dæmis aspe-
rfn, sem i sumum tilvikum gæti
dregið úr samloðun á blóðflög-
um, sem væri fyrsta stig blóð-
storknunar.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum meðal lækna að
verði niðurstöður framhalds-
rannsókna á áhrifum „antur-
ane“ á sömu lund og þær, sem
birtust í The New England
Framhald á bls. 18
berg úrvalsliði" en Sonnenberg á
að koma fyrir rétt í næsta mánuði
vegna morðsins á Siegfried
Buback rfkissaksóknara. t bréf-
inu segir m.a. orðrétt: „Nú fær
Frans Josef Strauss tækifæri til
að sýna hvers virði frelsi og
mannslff eru honum,“ og þykir
þessi setning benda mjög til þess
að hér séu hryðjuverkasamtök að
verki.
Huber hvarf þegar hann var á
leið til vinnu f bækistöðvum
Kristilega jafnaðarmanria-
sambandsins í Munchen á mánu-
dagsmorgun. Bifreið hans fannst
fljótlega í bílskúr við fjölbýlis-
húsið þar sem hann býr. Hundur
Hubers var i framsætinu og bíl-
Framhald á bls 18.