Morgunblaðið - 15.02.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUAR 1978
3
Dr. Euwe, forseti FIDE:
Skil vel þá ákvörðun Islend-
inga að hætta ekki á tilboð
Veit af fjórum tilboðum á leiðinni
„EG SKIL vel þá ákvörðun vkkar að bjóða ekki í
heimsmeistaraeinvígið í skák,“ sagði dr. Euwe, forseti
Alþjóðaskáksambandsins, í samtali við Mbl. í gær. „Eins
og reglurnar eru núna, er óvissan í sambandi við lengd
einvigisins of mikil, þannig
Dr. Euwe sagði enn ekk-
ert formlegt tilboð í einvíg-
ishaldið hafa borizt skrif-
stofu FIDE, en tilboös-
fresturinn rennur út á há-
degi á fimmtudag. „En ég
hef vissu fyrir fjórum til-
boðum; frá Austurríki,
að ahættan er talsverð.“
Hollandi, V-Þýzkalandi og
Filipseyjum," sagði dr.
Euwe. Hann kvaðst ekki
hafa haft spurnir af ein-
stökum liðum tilboðanna,
eins og verðlaunaupphæð-
inni. „Það eru skáksam-
bönd viðkomandi landa,
sem ein hafa réttinn til að
bjóða í heimsmeistaraein-
vígið, en hugsanlegt er að
einstaklingar og fyrirtæki
standi á bak við sambönd-
in,“ sagði dr. Euwe.
Þorskveiðar í flot-
vörpu bannaðar
við S- og V-land
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út regiugerð um bann við
þorskveiðum með flotvörpu fyrir
Suður- og Vesturlandi.
Samkvæmt reglugerð þessari
eru þorskveiðar í flotvörpu bann-
aðar í islenzkri fiskveiðilandhelgi
á tímabilinu frá 1. marz til 31. maí
n.k. á svæði, sem að austan mark-
ast af linu, sem dregin er réttvis-
andi austur frá Stokksnesi og að
vestan af Iínu, sem dregin er rétt-
visandi vestur frá Bjargtöngum.
Segir í fréttatilkynningu frá
ráðuneytinu, að reglugerð þessi
sé sett af fengnum tillögum Haf-
rannsóknastofnunarinnar og
Fiskifélags Islands, og sé sama
efnis og reglugerð, sem gefin var
út á s.l. ári.
Alþingi:
Spurt í þaula
um Álafoss hf.
ÞÓRARINN Þórarinsson hefur
lagt fram fyrirspurn til forsætis-
ráðherra í sameinuðu þingi um
Álafoss, þar sem hann spyr m.a.
af hverju Álafoss sé ríkisfyrir-
tæki, hverjir séu f stjórn fyrir-
tækisins, hverjir kjósi hana og til
hve langs tíma, einnig hvert sé
umboð stjórnarinnar.
Einnig spyr þingmaðurinn
hvert sé hlutafé Alafoss, hvaða
fyrirgreiðslu þetta fyrirtæki hafi
fengið frá riki síðan það yfirtók
Álafoss, hvort Álafoss greiði vexti
eða arð af hlutafé, hvort fyrir
dyrum standi fjárfestingar til að
auka lopaútflutning, hver hafi
tekið þá ákvörðun að flytja út
verksmiðjulopa í stórum stil til
þess að endurvinna erlendis, hver
fjármagnað hafi kaup Alafoss á
húseigninni Vesturgötu 2, hvers
vegna reikningar fyrirtækisins
séu ekki birtir í ársskýrslu Fram-
kvæmdasjóðs og loks spyr Þórar-
inn hvort Álafoss sé á lista yfir
ríkisfyrirtæki sem til tals hafi
komið að selja.
1 samtali við Morgunblaðið
sagði Þórarinn að þessum spurn-
ingum væri ekki varpað fram
vegna illvilja til Alafoss né held-
ur væri hann að reyna að gera það
á nokkurn hátt tortryggilegt. Hins
vegar væri Alafoss eitt af þeim
rikisfyrirtækjum, þar sem hvergi
væru birtir reikningar opinber-
lega og kæmi af þeim ástæðum
aldrei til skoðunar hjá Alþingi,
sem Þórarinn kvaðst telja óeðli-
legt þar sem hér væri um ríkisfyr-
irtæki að ræða.
• •
Okumaður
gefi sig fram
MJÖG harður árekstur varð á
Nesvegi á móts við Tjarnarból
8 laust eftir klukkan 19 á
sunnudagskvöld. Þar Icntu
saman tveir fólksbílar og slas-
aðist þrennt, sem var í öðrum
bílnum, hjón og lítill sonur
þeirra. Drengurinn slasaöist
mest, hlaut töluverð höfuð-
meiðsl.
Vegna þessa áreksturs þarf
lögreglan á Seltjarnarnesi
nauðsynlega að ná tali af öku-
manni gulrar fólksbifreiðar,
líklega Volkswagenbifreiðar,
sem ók þarna um á sama tíma
og áreksturinn varð.
Nu er tækifæriá.
að láta frystikLstuna
-borgasig
Það er sama hvort ræður,
bragðlaukarnir eða skynsemin:
nú er tækifærid...
áaðeins
880.-
krámir kílóió!
aðbúatð
„bestamatíheimi"
Komdu við í fiskbúðinni og biddu
um flak af „linu ýsu”.
Smjörsteiktu fiskinn og ...mmm...
Eða smálúðan. Soðin og borin
fram með bræddu íslensku smjöri
... þú færð hvergi betri mat.
Grill + kjöt + íslenskt smjör og
kokkurinn er öruggur um háa
einkunn.
aðfásér
iimandi brauð
ogístensktsmjör
Allir vita að smjör kann sér ekki
læti á nýju heitu brauði ( hefurðu
prófað að rista grófa brauðið?)
ath:
/ lOg af smjöri eru 74 hitaeiningar. Það er minna
í flestu feitmeti og jafn mikið og í smjörlíki.
en