Morgunblaðið - 26.02.1978, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
„Ég fæddist í Hamp-
stead."
„Nei, elskan, þú fæddist
í Hendon.“
„Það var i Hampstead,
Richard.“
„Þvi miður, ástin, það
var í Hendon.“
Þannig skemmtu Burton-
hjónin vinum sinum. Rich-
ard Burton, sonur námu-
verkamanns, leit á Eliza-
beth Taylor sem stúlku úr
efri millistétt. Þess vegna
var hægt að hiæja að því.
þegar hann striddi henni
með fæðingarstaðnum, að
bæði höfðu hálfvegis á
réttu að standa. Þegar
Elizabeth Taylor fæddist í
London í febrúar 1932.
bjuggu foreldrar hennar í
glæsilegu húsi í Hamp-
stead, en heimilisfang
þeirra í ófínna hverfi og
fæðingin var skráð I Hend-
on.
Ég hélt alltaf, eins og all-
ir aðrir, að Elizabeth
Taylor væri ensk. Þannig
vildi Metro-Goldwyn May-
er líka hafa það. En þegar
ég tók að rita um þessa
furðulegu manneskju, sem
verið hefur i sviðsljósi
heimsins i 30 ár. komst ég
að raun um. að báðir for-
eldrar hennar væru amer-
ískir — og mjög amerískir
meira að segja. Þau voru
frá Mið-vesturríkjunum,
og það var á sinn hátt enn
merkilegra en upphefð
dóttur þeirra einni kynslóð
síðar. að þau Sara og
Francis Taylor skvldu
klifa brattan frá uppruna
sinum tii fínasta fólksins í
Englandi á fjórða áratugn-
um. Þeim tókst það með
útliti sinu — þau báru af
að glæsileik og þokka.
Þau voru bekkjarfélagar
i menntaskóla i Arkansas
City um 1912, en hvorugt
þeirra virðist hafa lokið
stúdentsprófi. Um það
leyti sem þau giftust, 1926,
var Sara Warmbrodt (af
þýzkum ættum) orðin
þekkt leikkona undir nafn-
inu Sara Sothern. Francis
Taylor var listaverkasali,
sem hafði hlotið þjálfun í
starfi i þjónustu frænda
síns, Howard Young.
Young var auðugur og ráð-
rikur maður, sem rak
myndhús (gallery) f New
York. Hann sendi hin ný-
giftu hjón til Evrópu til að
afla „góðra hluta, þ.e.
verka eftir gömlu meistar-
ana, til að prýða ameriska
veggi. Hann lét þau bera
sig ríkmannlega en jafn-
framt vita af því, að þau
væru bara fátækir ættingj-
ar. Sara Taylor lék aldrei
meir.
Taylor-hjónin settust að i
London, og Francis Tavlor
setti á fót listaverkaverzl-
un i Old Bond Street. Þau
eignuðust tvö börn. sem
voru jafnvel enn fallegri
en foreldrarnir. En hinn
Ijóshærði Howard, sem
fæddist 1929, þótti þó enn
fríðari en systirin Eliza-
beth. Listaverkasali frá
Liverpool segir: „Fólki,
sem kom inn i málverkasal-
inn, varð starsýnt á börnin
vegna fegurðar þeirra. En
flestir, sem sáu þau bæði,
dáðust meira að drengn-
um.“
Segja má, að Taylor-
fjölskyldan hafi komizt
undir verndarvæng Vict-
ors Cazalet, auðugs þing-
manns. Hann gaf Elizabeth
fyrsta litla hestinn, sem
hún eignaðist og lánaði
fjölsk.vldunni 16. aldar hús
á landareign sinni í Kent.
F.vrir henni varð það tákn
hinna ensku lifshátta —
bæði fyrir kvikmyndir og
fyrir stríð — sem þau gætu
aldrei notið aftur.
Taylor-hjónin voru trúað
fólk og í sama trúflokki og
Cazalet. Þegar Elizabeth
var þriggja ára, varð hún i
fyrsta skipti af mörgum
lifshættulega veik. Sara
Taylor var þess fullvissr að
þáttaskipti hefðu orðið til
hins betra, þegar Victor
Cazalet kom, hélt barninu í
örmum sér og talaði um
Guð.
Vegna yfirvofandi styrj-
aldar hélt Taylor-
fjölskyldan frá Englandi
til Bandarfkjanna árið
1939 og settist að i Los
Angeles. Þegar Elizabeth
litla kom heim, var ýmsum
veigamiklum spurningum
ósvarað varðandi hana
sjálfa. Var hún ensk eða
amerisk, veik eða frísk, rfk
eða ekki. Cazalet varð ekki
var við neinar hugleiðing-
ar í sambandi við leiklist.
„Bæði börnin voru alger-
lega óspillt og blátt
áfram.“
Tveim árum sfðar var
Elizabeth Taylor
samningsbundin Universal
kvikmyndafélaginu. Við
lok striðsins var hin fín-
gerða. vel uppaida telpa
barnastjarna. sem hafði
þúsund dollara vikulaun.
Hvernig gerðist það?
Sara Taylor stóð á bak við
það, segir Hollywood.
Metnaðargirnd hennar,
sem hún varð að bæla
niður i London, blossaði
upp, þegar heim kom. Það
er mál manna, að hún hafi
verið einarðasta og ákveðn-
asta leikaramamma. sem
nokkurn tíma hafi komið í
skrifstofu kvikm.vndaleik-
stjóra. Hún reyndi einnig
að koma syni sínum að, en
hann brást henni. Daginn,
sem hann átti að koma til
prófunar, rakaði hann af
sér allt hárið.
Þegar samningurinn við
Universal rann út, felldu
forstjórarnir svofelldan úr-
skurð: „Hún hefur ekki
lengur barnsandlit. Augu
hennar eru of köld.“ En
Sara hélt sinu striki. Og nú
kom enski hreimurinn til
hjálpar, þvf að þetta var.
Eftir Brendu Maddox
Goð-
sögnin
um
Elizabeth
Taylor
þegar samvinna Breta og
Bandarikjanna var sem
nánust á striðsárunum. Og
svo fór fyrir þrákelkni og
einbeitni Söru, að Metro-
Goldwyn-Mayer gerði
samning, sem meira að
segja fól í sér, að Sara
Taylor komst á launaskrá
líka. í myndinni „Lassie
Come Horne", 1943, gat
hún sér gott orð, en sinn
mikla sigur vann hún með
myndinni „National Velv-
et“ 1945.
Sú mynd fjallar um sam-
band ungrar stúlku og
hests, sem hún vinnur í
happdrætti. Síðan vinnur
hún gífurlegar kappreiðar
á hestinum, en þegar upp
kemst, að knapinn er kven-
kyns, er hún dæmd úr leik
og svipt verðlaununum. En
hún lætur sig það engu
skipta, þvi að hún hefur
sigrað samt, látið drauma
sína rætast.
Fyrstu meiri háttar
kynni heimsins af Eliza-
beth Taylor eru þau, að
hún elskar hest og faðmar
hann að sér af miklum
ástriðuþunga. Margir aðdá-
enda hennar eru sagðir
aldrei hafa getað fyrirgefið
Fyrri grein
Fyrir tveimur mánuðum kom út
í Bretlandi bókin „Hver er hrædd-
ur við Elizabeth Taylor?" Höfund-
ur hennar fjallar þar um einkalíf
og hina almennu goðsögn einnar
frægustu konu heims um áratuga
skeið. Hún er nú aðeins 45 ára,
en hefur verið stjarna í meira en
þrjátíu ár. Mbl. birtir hér útdrátt
úr bókinni.
henni, að hún skipti yfir í
karlmenn.
Elizabeth Taylor ólst
upp hjá Metro-
Goídwyn-Mayer. Hún er
sennilega eina barna-
stjarnan, sem lifði sitt
gelgjuskeið alveg fyrir
allra augum. Ef hún hefði
fengið húðsjúkdóma, bólur
eða nabba, hefði hún
kannski náð að eiga nokk-
urra ára eigið líf. En hún
var alltaf fegurðardís.
„Elizabeth á vorkunn skil-
ið“, er haft eftir fortstjóra
nokkrum. „Hún hefur aldr-
ei komizt i snertingu við
venjulegt líf.“
Kvikmyndaverið mennt-
aði hana, útvegaði henni
fótboltahetju sem „bo.v-
friend" og seldi hana heim-
inum sem táningadrottn-
ingu.
Uppreisn
gegn mömmu
Sjötti áratugurinn var
tfmi, þegar fegurð hafði til-
gang — þann að ná sér i
eiginmann. A sjötta ára-
tugnum giftist Elizabeth
Taylor fjórum sinnum:
þeim Conrad Hilton, jr..
Mjchael Wilding, Mike
Todd og Eddie Fisher.
Hilton, sonur hóteljöf-
ursins, var óþroskaður og
óefnilegur eiginmaður. En
jafnvel á þessum tímum
tvöfalds siðgæðis voru ekki
margar brúðir, sem héldu í
brúðkaupsferðina við svo
miðaldalegar aðstæður.
„Sara hafði gætt þess af
svo mikilli hörku, að engir
Hollywood-flagarar kæm-
ust nálægt Elizabeth," seg-
ir kvikmyndastjórinn Sam
Marx, „að henni tókst það
of vel. Elizabeth gekk í
hjónaband algerlega
reynslulaus og ósnortin.“
Hjónaskilnaðurinn var
áfall fyrir Elizabeth. En
hvað sem þvi líður, þá hélt
hún brúðargjöfunum og
þar á meðal 100 hlutabréf-
um í Hilton-
hótelhringnum, minka-
kápu, kádilják, hring, sem
var 50.000 dollara virði og
loðhundi, sem samsvaraði
augnalit hennar. Hún gerði
uppreisn gegn móður
sinni, sem hafði reynt að
hindra hjónaskilnaðinn, og
sneri ekki heim aftur.
Umboðsmaður Eliza-
bethar útvegaði henni rit-
ara og félaga til að fylla
skarð Söru, og var það
Peggy Rutledge. Hún seg-
dir, að Elizabeth Taylor
hafði orðið það æ betur
ljóst, að hún væri aðeins
innantóm fegurð. „Hver
myndi kæra sig um mig, ef
ég hefði ekki þetta and-
lit?“
Hún leysti sinn vanda
með því að biðla til Micha-
el Wilding og giftast hon-
um. Hann var brezkur og
helmingi eldri en hún.
(Hans vegna hryggbraut
hún Howard Hughes, sem
gekk með grasið i skónum
á eftir henni).
Fjórum árum og tveimur
sonum síðar var hjóna-
bandið í rústum. Wilding
hafði farið með henni til
Hollywood, þar sem allt fór
úrskeiðis hjá honum en
upp á við hjá henni. „Ris-
inn“ frá árinu 1956 mark-
aði upphaf óslitinnar raðar
af metsölumyndum, sem
vart nokkur stjarna hefur
afkastað síðan.
XXX
Hafi Metro-
Goldwyn-Meyer lagt
grunnin að goðsögninni
um Elizabeth Taylor, þá
hafa vinir hennar lagt
drjúgan skerf til hennar
líka. Með því er ekki sagt,
að þeir hafi ekki sagt satt.
Það er vegna þess að þeir
hafa sagt sömu hluti með
sömu orðum, þannig að
sagan hefur fengið á sig
trúverðugan helgiblæ
svona álika og sögurnar af
Öskubusku og Mjallhvíti.
Hún hljóðar eitthvað á
þessa leið: „Elizabeth er
mjög siðsöm manneskja.
Stjórnunarfélag íslands
Áttu í vanda með bókhaldið?
Bókfærsla I
Vegna mikillar eftirspurnar endurtekur Stjórnunarfélag Islands í
annað sinn á þessu misseri námskeið i bókfærslu I, dagana 6.—9.
mars n.k.
Á námskeiðmu verður fjallað um sjóðbókarfærslur, dagbókarfærslur,
færslur við viðskiptamannabók og vixlabækur og sýnf verður uppgjör
fyrirtækja Námskeiðið er sniðið fyrir stjórnendur smáfyrirtækja, fólk
sem annast bókhald slíkra fyrirtækja, fólk sem ekki hefur bókhalds-
menntun en vinnur eða hyggst vmna viö emhvers konar rekstur
Ennfremur er tilvalið fyrir konur eða karla sem vilja aðstoða maka sinn
við rekstur svo og konur sem eru að halda út á vinnumarkaðinn eftir að
hafa sinnt heimilisstörfum um lengri eða skemmri tima að koma á
námskeiðið
Námskeiðið stendur i 22 klst samtals og leiðbeinandi verður
Kristján Aðalsteinsson
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa SFÍ að Skipholti 37, simi
82930 og þar fer einnig fram skráning þátttakenda
Stjórnunarfélag Islands
Lóubúð
Úrval af kápum.
Ullarkápur (Camel)
Regnkápur,
Kápur með skinnkraga
og slár,
Fínflauelsdragtir.
Úrval af blússum og pils-
Lóubúð,
Bankastræti 14.
2. hæð.
Sími 13670.
íiI.VslNííASlMINN KR:
22480
JRorflimblflbib
Stjórnunarfélag íslands
ER KERFIÐ í LAGI?
Framleiðslustýring og verksmiðjuskipulagning
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir nám-
skeiðí i framleiðslustýringu og verk-
smiðjuskipulagningu dagana 1 —3.
mars nk. Á námskeiðinu verður faríð i;
framleiðsluáætlanir, skipulagstækni
(minnislístar, Knattkort, örvarit, notkun
rafreikna o.fl ), staðsetningu fyrirtækja,
heildarskipulagningu á nýju fyrirtæki og
endurskipulagningu vinnustaðar.
Námskeiðið á erindi til forst|óra, framleiðslustjóra og verkstjóra. sem
umhugað er um að auka hagræðingu i fyrirtæki sinu.
Leiðbeinandi verður Helgi G. Þórðarson verkfræðingur
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til skrifstofu félagsms að Skipholti 3 7,
i sima 82930 _