Morgunblaðið - 26.02.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978
17
Elizabcth Tavlor hefur verið lýst sem „feg-
urstu konu heims“. En sem barn (til vinstri
með móður sinni og Hovvard bróður sínum)
var meira tekið til fríðleika unga drengsins.
Hún getur ekki gengið í
rekkju með manni, sem
hún ekki er gift." Ein af
ástæðunum til þess, að þeir
vilja láta fólk vita þetta, er
sú, að það er i mótsögn við
aðra algenga sögu um hana
og er til leiðréttingar á því,
sem þeir telja ósanngirni.
Sjálf hefur hún sagt sér til
varnar: „Það siðferði, sem
mér var kennt heima,
krafðist hjónabands. Ég
gat einfaldlega ekki haft
lausasambönd. Þess vegna
giftist ég öll skiptin, og nú
er ég ásökuð fyrir að vera
hórkona.'"
Það fyrirbæri, sem heim-
urinn þekkir núna sem
Elizabeth Taylor, er verk
Mike Todds. Á þeim stutta
tima, sem þau áttu saman,
áður en flugvél hans fórst i
fárviðri yfir Nýju Mexikó
1958, breytti hann Eliza-
beth Taylor úr sljórri kvik-
myndadis i heimsfræga
persónu, sem ávaflt er í
blaðafregnum, hvað sem
hún gerir, ástalíf hennar
og óhofslifnaður er dagleg-
ur blaðamatur.
Umbreytingin, sem Mike
Todd annaðist, var algjör.
Hann hleypti fjöri í hana,
hvað snertir kynlíf, starf
og fjármál. Hann breytti
trú hennar, þótt hann
gerði það ekki af ásettu
ráði. Hún snerist ekki
formlega til Gyðingatrúar
fvrr en eftir lát hans. Hann
kenndi henni að njóta
iburðar og tildurs, og hún
var góður nemandi í þvi
efni. Hann gaf henni fyrsta
Rolls-Royceinn. Og útgjöld-
in voru færð á kostnaðar-
hliðina vegna kvikmvndar-
innar „Umhverfis jörðina
á 80 dögum."
Taylor og Todd giftu sig
í Acapulco í febrúar 1957.
Það var hennar fyrsta gyð-
inglega brúðkaup, en brúð-
arkjóllinn var hinn þriðji,
sem Helen Rose hannaði á
hana. Michael Wilding tók
nú að sér hlutverk bróður
og annaðist undirbúning
brúðkaupsins. Bezti vinur
Todds, Eddie Fisher, söng
brúðkaupsserenöðu. Kona
Fishers, Debbie Reynolds,
var brúðarmær. Elizabeth
Teylor gat varla gengið
vegna skurðaðgerða í
hryggnum. Catinflas, mezi-
kanski gamanleikarinn
frægi úr „Umhverfis jörð-
ina á 80 dögum", aðstoðaði
brúðgumann við að lyfta
brúðurinni upp og setja
hana niður. Flugeldar
v mynduðu upphafsstafi
brúðhjónanna á himnum,
og hvenær sem Todd vék-
frá brúðurinni, æpti hún
„Mike", skrækri röddu.
1 marz 1957 hlaut „Um-
hverfis jörðina á 80 dög-
um“ Academy Award sem
bezta mynd ársins, og hún
fékk re.vndar fjögur önnur
verðlaun. I sama mánuði
tilkynnti Todd, að kona sín
væri barnshafandi, og síð-
an hófst ferðalag þeirra
hjóna og tveggja sona frú-
sem hafði notíð mikilla
vinsælda á Broadwav.
Pandro Berman. sem
stjórnaði töku myndarinn-
ar „The National Velvet".
sem áður er getið, segir svo
frá: „Við fengum Mike til
að fá hana til að gera það.
Við þurftum alltaf að leita
til Mikes, ef eitthvað þurfti
að gerast. Hún var vax i
höndum hans. Hún hafði
engar sjálfstæðar hugsanir
á þessum tíma." Hún féllst'
á þetta, en lýsti þvi yfir, að:
þetta yrði endanlega síð-
asta m.vnd hennar — þessi-
og svo „Don Quixote". en
það var næsta verkefni
Todds, og hún var búin að
lofa að leika I henni.
Todd beitti áhrifum sín-
um til þess að tryggja. að
myndin yrði góð, en það
átti ekki að taka hana i lit,
þar sem það hefði tvöfald-
að kostnaðinn. Richard
Brooks, sem leikstýrði
„Kettinum", minnist þess
með ánægju. hvað gerðist,
þegar Todd kom til að ná i
konu sina eftir fvrsta dag-
inn við upptökuna. Það var
um fimm leytið. þegar
Todd kom og heilsaði
Brooks og sagði: „Er eitt-
hvað að, karl minn?"
„Ö, þetta bvrjaði ekki
vel. Mvndin á að ver.a i
svart-hvítu," sagði Brooks.
„Og finnst þér það
heimskulegt?"
„Já. Þetta er fólk. sem á
að teljast vel efnuð fjöl-
skylda i Suðurrikjunum.
og hér er ein af fegurstu
konum i heimi. og þetta á
allt að verða i svörtu og
hvítu."
„Hvað verðurðu hérna
lengi?"
„Til klukkan sex."
Todd hljóp upp á loft. og
tuttugu minútum fyrir sex
komu þeir niður þrír
helztu menn hjá MGM.
Þeir gengu beint til Brooks
og spurðu: „Af hverju tek-
urðu ekki myndina í lit?"
Mánuði síðar var Todd
allur. Hann var að reyna að
gera það, sem margur
arinnar um Evrópu í aug-
lýsingask.vni fyrir kvik-
mvndina.
1 ágúst 1957 eignaðist
Elizabeth þriðja barn sitt,
meybarn, sem andaði ekki
fyrstu 15 minúturnar, en
þá var tilkynnt, að allt væri
I lagi. Hún var skirð Liza
Todd. Það tisti í Todd, þeg-
ar hann skýrði blaðamönn-
um frá þvi, að i saman-
burði við hina nýju dóttur
sina „liti móðirin út eins og
Frankenstein". En á sama
tíma neitaði hann að fall-
ast á þá bón Elizabethar að
mega draga sig i hlé frá
kvikmyndaleik og helga
sig fjölskyldunni. Hún
þrumaði og sagði, að Todd
ætti að kaupa hana út úr
samningnum við Metro-
Goldwvn-Maver. Þess i stað
rak hann hana í það að fara'
að vinna aftur i febrúar
1958.
Kvikmyndin, sem um var
að ræða, var „Köttur á
heitu blikkþaki" eftir leik-
riti Tennessee Williams,
hefði betur látið ógert —
sérstaklega árið 1958 — að
fljúga frá Los Angeles til
New York .i litilli leiguvél
til að vera þar yfir helgina.
Elizabeth Taylor átti að
fara með honum, en varð
eftir heima með slæmt
kvef. Richard Brooks hafði
einnig neitað henni um
eins dags aukaley.fi frá
upptökunni af ótta við af-
stöðu tryggingarfélaganna,
en þegar til kom gat hún
ekki farið hvort eð var.
Það var engin leið fyrir
hana að eiga sina eigin
sorg út af fyrir sig. Brooks
minnist þess, að Dick Han-
ley, sem hafði verið ritari
Todds, hafi hringt i sig og
sagt: „Blessaður komdu
hingað. Hún öskrar eins og
brjáluð manneskja."
Brooks fór á vettvang, og
þar var hópur af kvik-
myndafólki. sem hafði
streymt þangað, eftir að
fréttin barst út um flug-
slysið. Hún hafði tekið illa
Framhald á bls. 31
RENAULT
BÍLASÝNING
Sýnum laugardag og sunnudag frá kl. 1-6
Flestar gerðir Renault bíla.
Komið og skoðið vinsælu Renault bílana i húskynnum okkar að Suðurlandsbraut
KMSTIHN GUÐNASON Hf.
SUÐURLANDSBSAUT 20. SÍMI 86633
RENAULT
20.