Morgunblaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978
Sigurður E. Haraldsson:
Sú þióð”
Þriðjungur aldar er nú frá því
að þúsundir íslendinga áttu sam-
eiginlega hátíðarstund á Þingvöll-
um, en aðrir landsmenn fylgdust
með úr fjarlægð. Þessi hátíðar-
stund var regnvotur júnídagur og
lýðveldi í landinu var endurreist.
Forsagan er alkunn, margar lang-
ar aldir þraukaði þjóðin og beið
þessa dags. Loks var hann runn-
inn upp. Heimurinn umhverfis
engdist í blóði heimsstyrjaldar,
sem brátt var þó á enda. Fram-
undan var tíð fyrirheita um betri'
heim, meira frelsi, minni þjáning-
ar, aukin tækifæri til hamingju
og gleði.
I byrjun ársins 1944 ávarpaði
þáverandi rikisstjóri Sveinn
Björnsson, en hann var kjörinn
fyrsti forseti lýðveldisins síðar á
árinu, þjóð sina og lagði m.a. út af
orðum eins af merkustu rithöf-
undum Breta. Þau orð voru á
þessa leið: „Sú þjóð, sem setur
eitthvað ofar frelsinu, mun glata
því. Og það er kaldhæðni örlag-
anna, að ef þjóðin setur lífsþæg-
indi og peninga ofar frelsinu,
mun hún missa þetta hvort-
tveggja. Þjóð, sem berst fyrir
frelsi sínu, getur ekki gert sér
nokkra von um að öðlast frelsi og
halda því, nema hún sé þessum
kostum gædd: ráðvendni, djörf-
ung, framsýni og fórnfýsi. Ef
þjóðin er ekki þessum kostum bú-
in, er sökin hennar sjálfrar og
einskis annars, ef hún glatar
frelsi sínu.“
Síðar í ræðu sinni minnti
Sveinn Björnsson á, að Islending-
ar hefðu átt tvo menn, sem settu
ekkert ofar frelsi landsins, annan
Sigurður E. Haraldsson
á átjándu öld og hinn á nitjándu
öldinni. Þeir voru Jón Eiríksson
konferenzráð og Jón Sigurðsson
forseti.
Ég vænti þess, að fieirum en
undirrituðum þyki ástæða til að
rifja þessi orð upp einmitt þessa
daga. Það er ónotageigur í mörg-
um, sem hugleiða málefni þjóðar-
innar nú. „Og það er kaldhæðni
örlaganna, að ef þjóðin setur lifs-
þægindi og peninga ofar frelsinu,
mun hún missa þetta hvort
tveggja." Þessi aðvörunarorð
fyrsta forseta lýðveldisins leyfi ég
mér að endurtaka. Þaninn streng-
ur getur brostið. A það hefur ver-
ið minnt, að grannar okkar á Ný-
fundnalandi uggðu ekki að sér
fyrr en um seinan, þeir glötuðu
frelsi sínu.
UTANKJORSTADAKOSNING
vegna prófkjörs um skipan framboöslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við næstu
boraarstjómarkosningar, verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Kosningin hefst miðvikudaginn
22. febrúar og fer fram daglega milli kl. 5—7 e.h., en laugardag frá kl. 10—3 og
sunnudag frá kl. 2—5.
Utankjörstaðakosningunni lýkur föstudaginn 3. marz.
Utankjörstaðakosningin er þeim ætluð, sem fjarverandi verða úr borginni
aðalprófkjörsdagana 4., 5. og 6. marz, eða verða forfallaðir.
Þannig lítur kjörseðillinn út:
ATKVÆÐASEÐILL
í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík 4., 5. og 6. marz 1978
Albert Guðmundsson, stórkaupmaður, Laufásvegi 68
Ásgrímur P. Lúðvíksson, bólstrarameistari, Úthlíð 10
Baldvin Jóhannesson, símvirki, Otrateig 30
Bessí Jóhannsdóttir, kennari, Hvassaleiti 93
Birgir ísl. Gunnarsson, borgarstjóri, Fjölnisvegi 15
Björgvin Björgvinsson, lögregluþjónn, Fífuseli 36
Davíö Oddsson, skrifstofustjóri, Barmahlíð 27
Eggert Hauksson, iðnrekandi, Vesturbergi 48 « m, &
Elín Pálmadóttir, bíaðamaður, Kleppsvegi120 W^
Garðar Þorsteinsson, stýrimaður, Hjarðarhaga 36
Grétar H. Óskarsson, flugvélaverkfræðingur, Huldulandi lí'^l
Guðmundur G. Guðmundsson, iðnverkamaður,Langholtsvegi 182?
Guðríður Guðmundsdóttir, verkstjóri, Kleppsvegi 44
Gunnar Hauksson, verzlunarmaður, Austurbergi 16
Gústaf B. Einarsson, verkstjóri, Hverfisgötu 59
Hilda Björk Jónsdóttir, verzlunarmaður, Kötlufelli 9
Hilmar Guölaugsson, múrari, Háaleitisbraut 16
Htilda S. Valtýsdóttir, húsmóðir, Sólheimum 5
Jóhannes Proppé, deildarstjóri, Sæviðasundi 90
Kristinn Jónsson, prentsmiðjustjóri, Fornastekk 7
Kristján Ottósson, blikksmiður, Háaleitisbraut 56
Magnús Ásgeirsson, viðskiptafræöinemi, Meðalholti 6
Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri, Geitastekk 6
Margrét S. Einarsdóttir, ritari, Hraunbæ 68
’ ý ■ Markús örn Antonsson, ritstjóri, Krummahólum 6
Ólafur Jónsson, málarameistari. Brautarlandi 14
Ótafur B. Thors, forstjóri, Hagamel 6
Páll Gíslason, læknir, Rauðagerði 10
Ragnar Júlíusson, skólastjóri, Háaleitisbraut 91
Sigríður Asgeirsdóttir, lögfræðingur, Fjölnisvegi 16
Siguröur E. Haraldsson, kaupmaöur, Hvassaleiti 5
Sigurjón A. Fjeldsted, skólastjóri, Brekkuseli 1
jteúli Möiler, kennari, Þykkvabæ 2
^®í#lörnsson' kaupmaöur, Leifsgötu 27
SveinTOjörnsson, verkfræöingur, Grundarlandi 5
Valgarð Briem, hæstaréttarlögmaður, Sörlaskjóli 2
Þórólfur V. Þorleifsson, bifreiöastjóri, Gautlandi 11
Þórunn Gestsdóttir, húsmóðir, Fjótugötu 19 b
Þuríður Pálsdóttir, söngkona, Vatnsholti 10
ATHUGIÐ: Kjósa skal fæst 8
með því að setja krossa i reitina
óskað er að skipi
FÆST 8 -
RÁÐLEGGING TIL KJÓSENDA í PRÓFKJÖRINU:
Klippið út meðfylgjandi sýnishom af kjörseðli og merkið það eins og þér hyggist fylla út atkvæðaseðilinn.
Hafið úrklippuna með yður á kjörstað og stuðlið þannig að greiðari kosningu.
Minnist þess að kjósa á með því að merkja með krossi fyrir framan nöfn 8 frambjóðenda minnst og 12 mest.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.