Morgunblaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978 — Geir Hallgrímsson Framhald af bls. 16 til þess að hafa samband við forsætis- ráðherra vegna aðfinnslna minna utan dagskrár Enn er tækifæri, sagði BGr, að bæta úr af hálfu rikisfjölmiðilsins Margir aðilar vilja tjá sig í þessum viðkvæmu málum. m a þeir, sem hafa sérstöðu innan verkalýðshreyfingar eins og hér kom fram áðan ^ Málflutningur, sem ekki er fótur fyrir Þórarinn Þórarinsson (F) formaður útvarpsráðs. sagði málflutning stjórrv arandstæðinga hér og nú gerðan úr misskilningnum emum saman Við fangsefni umrædds sjónvarpsþáttar var ekki efnahagslög ríkisstjórnarmnar. heldur boðuð viðbrögð launþegasam- taka gegn þeim Þau viðbrögð varða fyrst og fremst þrjá aðila báða höfuð aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórrv ma. sem aðgerðunum er beint gegn Svo var um séð að allir þessir aðilar gætu komið fram sinum sjónarmiðum í þættinum. varðandi væntanlegar að- gerðir 1 og ? marz nk Stjórnarand- staðan sem slik gat ekki verið beinn aðili að þessu umræðuefm Guðmund- ur J Guðmundsson einn snjallasti málsvari verkalýðshreyfingarinnar, hafði tækifæri til að koma þvi á fram- færi. er hann vildi. m a að svara því. er fram kom í inngangssvari forsætis- ráðherra Gylfi Þ. Gislason hefði i engu um bætt hans málflutnmg, þótt i þætt- inum hefði verið Eg fæ ekki skilið óánægju fulltrúa stjórnarandstöðunnar hér á Alþingi með málflutning Guð mundar J . sem speglast í aðfinnslum þeirra Sama get ég raunar sagt um málflutning Ásmundar Stefánssonar, hagfræðmgs ASI, sem var mjög vel fram settar, þó mér virtist hann nokkuð villandi Ég sé enga gilda ástæðu til óánægju Benedikts og Lúðvíks með málflutning þessara manna í sjórv varpsþættinum hér á Alþingi. sem gægist fram milli orða þeirra Ég vil bera blak af þessum talsmönnum verkalýðshreyfmgarinnar, þó að ég hafi ekki verið efnislega sammála þeim Kannski stafar þetta allt af því að stjórnarandstöðunni finnst málstaður sinn ekki nógu góður Annað mál er. sagði ÞÞ, að vel má rétt vera að stjórnarliðar og stjórnar- andstaða leiði saman hesta sína í efna- hagsumræðum í sjónvarpi, ef menn fýsir mjög 0 Á hvern er hallað í ríkisfjölmiðlum? Guðmundur H. Garðarsson (S) sagði rétt. að ríkisfjölmiðlar ættu að vera óhlutdrægir Spurning væri hins vegar. hvort svo væri GHG sagði formann BSRB, svo dæmi væri tekið. hafa fengið ófá tækifæri til að koma fram í fréttum og efni sjónvarps, þar sem hann hafi verið einn um túlkun mála Forystumenn innan ASÍ. sem nú ættu samleið með formanni BSRB, hefðu og haft greiðan aðgang fyrir sjónarmið sín um ríkisfjölmiðla og til almennings Vitað er, sagði GHG, að innan heildarsamtaka launþega eru bæði félög og einstaklingar, sem hafa aðra afstöðu til ráðgerðra aðgerða 1 og 2 marz nk en ..toppforysturnenrv irnir" Hafa þessir aðilar fengið tæki- færi til að tjá viðhorf sin i rikisfjölmiðl- um<> Ég hefi verið formaður i stærsta stéttarfélagi landsins Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur, í 20 ár Ég hefi aldrei venð kallaður sem slikur til við tals eða umræðu í ríkisfjölmiðlunum Heldur ekki nú, þrátt fyrir fréttnæma sérstöðu til boðaðra aðgerða Þegar talað er um óhlutdrægni rikis- fjölmiðla. má hyggja að þeim. sem á hverjum tima kunna að hafa sérstöðu til mála innan launþegahreyfingarinrv ar Þeirra sjónarmið eiga jafnan lýð- ræðislegan rétt á sér, einnig til tjáning- ar, þótt vera kunni minnihlutasjónar- mið. ef óhlutdrægni er gætt — Ekki á eitt sátt Framhald af bls. 2 að afturköllun umburðarbréfsins breytir engu um upphæð þá, sem krefjast mætti í frádrætti af laun- um. Þessum ákvæðum hefur verið beitt nokkrum sinnum (t.d. gagn- vart BHM og kennurum) og nam þá frádrátturinn 9,8% af mánað- arkaupi fyrir tvo daga. Lætur það nærri að vera sú upphæð, sem ríkið hefði þurft að greiða starfs- manni, sem mætir til vinnu. Þannig liggur þegar fyrir örugg túlkun ríkisvaldsins og fordæmi fyrir því, hvernig skuli greiða þetta, sem að áliti lögfræðinga yrði þung á metum við endanlegt uppgjör þessa máls. J alangurs-kirkj a grafhýsi Gorms? EINS og skýrt var frá í Mbl. í gær fundu danskir fornleifafræð- ingar gröf og jarðneskar leifar Gorms gamla Danakonungs og Þyryar Danabótar konu hans um daginn. Knud Krogh bendir á bein þau, sem fornleifafræðingar telja vera jarðneskar leifar Gorms gamla. V erkbann á prentar a Bonn, Vestur-Þv/kalandi 28. febrúar. AP. Reuter. Gröfin fannst í rústum elztu kirkjunnar i Jalangni, en hún var byggð i kringum 960. Jalangri-kirkja var úr tré og mjög stór miðað við kirkjur á þessum tíma. Gröfin sjálf er um tíu fermetrar að stærð og fund- ust í henni, auk beinagrinda konungshjónanna, margar aðr- ar fornminjar. Má nefna fagur- lega skreyttan skartgrip og gullþræði, sem þykja benda til þess að hjónin hafi verið íklædd gullofnum klæðum. Veður víða um heim Amsterdam 12 sólskin Aþena 20 sólskin Berlfn 11 sólskin Brússel 14 bjart Chicago +3 snjókoma Frankfurt 15 skýjað Genf 11 þoka Helsinki 3 skýjað Jóh.b. 24 sólskin Kaup.m.h. 4 þoka Lissabon 11 skýjað London 11 skýjað Los Angeles 16 rigning Malaga 18 skýjað Miami 25 rigning Moskva + 1 bjart New York 1 skýjað Osló 2 skýjað Palma 17 skýjað París 11 bjart Róm 14 rigning Stokkh. 2 skýjað Tel Aviv 18 sólskin Tókíó 15 sólskin Vancouver 8 bjart Vín 11 skýjað Viðræður um landanir í Bretlandi FULLTRÚAR löndunarmanna f Bretlandi ræða við íslenzka fulltrúa í London á fimmtudag- inn samkvæmt fréttum frá Hull í gær. Leiðtogar löndunarmanna hafa lagt til að aflétt verði lönd- unarbanni því sem var sett fyr- ir tveimur árum en með því skilyrði að islendingar fallist á að landa aðeins litlu aflamagni og að það skiptist milli hafnar- borganna Hull, Grimsby, Fleet- wood og Aberdeen. Mælir með sakkarini Washington, 28. febrúar. AP. EF NOTKUN sakkarins kemur í veg fyrir offitu skiptir lang- tímahætta á krabbameini af völdum efnisins langtum minna máli en sú aukna hætta sem heilsunni stafar af offitu samkvæmt rannsókn eðlisfræð- ings við háskólann í Pittsburgh, dr. Bernard L. Cohen. Cohen lagði áherzlu á að niðurstöðurn- ar byggðust á bráðabirgðarann- sókn. Allt virðist benda til þess að Jalangs-kirkja hafi verið graf- hýgi Gorms gamla og Þyryar, en búizt er við að fleiri grafir eigi eftir að finnast í rústum kirkj- unnar. Gizka fornleifafræðing- ar á að í þeim gröfum hvíli aðrir helztu menn Danmerkur frá þessum tima, sem og aðrir meólimir konungsfjölskyldunn- ar. Forstjóri danska Þjóðminja- safnsins, Knud Krogh, með skartgripinn sem fannst í gröf- inni. Skartgripurinn er átta sm langur hár og útskorinn í stfl þeim er kenndur er við Jaling. Timman er efstur Bugojno. Júgóslavlu. 28. febrúar. AP. HOLLENSKI stórmeistarinn Jan Timman er efstur á alþjóðaskákmótinu f Bugojno að tveimur umferðum loknum. f annari umferð vann Timman Ungverjann Portisch, cn heimsmeistarinn Karpov varð að láta sér nægja jafntefli á móti Ivkov. önnur úrslit f ann- arri umferð urðu sem hér segir. Larsen vann Balashov, Miles vann Ljubojevic Vukic og Spassky gerðu jafntefli og sömuleiðis Byrne og Huebner, Bukic og Gligoric, Hort og Tal. Staðan að loknum tveimur umferðum er því þessi. 1. Timman tvo vinninga 2. Karpov, Hort og Miles einn og hálfan vinning 5. til 12. Ljubojecic, Gligoric, Byrne, Larsen, Bukic, Tal, Vukic og Ivkov einn vinning 13. til 16. Porticsh, Spassky, Hubner, Balashov hálfan vinn- ing. BLAÐAÚTGEFENDUR til- kynntu f dag að þeir hefðu sett verkbann á prentara við fimm dagblöð f Miinchen. Verkbann- ið er svar útgefenda við verk- falli prentara, sem vilja með þvf mótmæla nýrri tölvutækni. Samkvæmt vestur-þýzkum lögum ber vinnuveitendum ekki skylda til að greiða laun- þegum laun, meðan verkbann er í gildi. Verkbannið var sett á í dag og átti að gilda í 16 klukkustundir. Blaðaútgefend- ur hótuðu þó aó lengja það, SPYROS Kyprianou Kýpur- forseti friðmæltist í dag við egypzku stjórnina sem sleit stjórnmálasambandi við Kýp- urstjórn vegna atburðarins á Larnaka-flugvelli þegar 15 egypzkir hermenn féllu, en sagði að Kýpurbúar mundu alltaf verja fullveldi sitt eins ogþá. Tveir menn komu fyrir rétt i dag, annan daginn i röð, ákærð- ir fyrir moröið á ritstjóranum Youssef Sibai er leiddi til árás- ar Egypta á Larnaka-flugvelli. Þeir heita Samir Mohammed Khadar og Zayed Hussein og eiga á hættu skilorósbundinn dauðadóm. mættu prentarar ekki til vinnu á morgun. Litið er á það sem örþrifaráð i Vestur-Þýzkalandi að grípa til verkbanna en blaðaútgefendur gerðu það eigi að síður eftir að landssamband prentara hafði hótaó skæruverkföllum í Mun- chen, Kasselm, Wuppertal og Diisseldorf. I gær, mánudag, komu 17 dagblöð ekki út á fyrr- nefndum stöðum. Prentarar hafa sagt að verkföllum verði ekki aflétt fyrr en tryggt sé að prenturum verði ekki sagt upp störfum, þó að ný tölvutækni verði tekin í notkun við prent- un dagblaðanna. Lögreglumaður sem var i gíslingu eftir að skotið var á Sibai á Hilton-hótelinu í Nikós- iu fyrir 10 dögum sagði réttin- um, að Khadar hefði sagt sér, að hann og vitorðsmaður hans hefðu farið gagngert til Kýpur til þess að myrða Sibai. Egyptar hafa krafizt þess að mennirnir verði framseldir en Kýpurstjórn hefur vísað kröf- unni á bug. Kyprianou vann embættiseið í dag við upphaf fimm ára kjör- timabils í þinginu i dag og hét því að fylgja áfram stefnu Ma- kariosar erkibiskups. Kypri- anou gaf einn kost á sér þegar kjósa átti nýjan forseta í síðasta mánuði og hafði þá verið bráða- birgðaforseti siðan i september. Þetta gerðist 1970 — Stjórn hvfta minnihlutans í Rhódes- fu sfftur sfðustu tengsl- in við brezku krúnuna, rýfur þing og lýsir yfir kynþáttaaðskilnaði. 1966 — Sovézkt geimfar lendir á Venusi eftir þriggja og hálfs mánað- ar feró. 1961 — Kennedy forseti stofnar Friðarsveitirn- ar. 1959 — Makaríos erki- biskup snýr aftur úr út- íegð til Kýpur. *• 1954 — Fyrsta ráð- stefna Samtaka Amerikurikja (OAU) hefst í Caracas — Fimm þingmenn særast i skot- árás þriggja Puertorík- ana af áheyrendapöll- um fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 1950 — Klaus Fuchs fundinn sekur um að hafa afhent Rússum kjarnorkuleyndarmál. 1943 — Skipulagðar loftárásir Breta á járn- brautakerfi Evrópu hefjast. 1932 — Syni flugkapp- ans Charles Lindberghs rænt frá heimili hans í New Jersey. 1918 — Þjóðverjar taka Kiev. 1905 — Orrusta Rússa og japana við Mukden hefst. 1896 — Abyssiniumenn sigra Itali i orrustunni við Adowa. 1870 — Strið brýst úr milli Paraguay og Brazi- líu, Argentínu og Uruguay. 1815 — Napoleon stígur á land í Frakklandi og Loðvik XVIII flýr. 1811 — Fjöldamorð Mehmet Ali á Manelúk- um i Karíró. 1767 — Karl III rekur Jesúita frá Spáni. 1563 — Fjöldamorðin i Vassy: 1.200 franskir Húgenottar myrtir og fyrsta trúarbraóastyrj- öldin brýst út i Frakk- landi. Afmæli eiga: William D. Howells, bandarisk- ur rithöfundur (1837—1920) Theoph- ile Declasse, franskur stjórnmálamaður (1852—1923) Lytton Strachey, brezkur höf- undur (1880—1932). Hugleiðing dagsins: Einginn er alvitur — Hóras, rómverskt skáld 68 f. Kr. 8 f. Kr.) Kypianou friðmælist Nikósfu, 28. febrúar. Reuter. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.